Morgunblaðið - 29.10.1976, Page 1
40 SIÐUR
251. tbl. 63. árg.
FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1976
Prentsniiðja Morgunblaðsins.
r
Matthías A. Mathiesen í fjárlagaræðu um skattaumbætur:
Tekjum hjóna skipt til
Skattafeláttur vegna útivinnandi eiginkonu
— Laun einstaklinga í atvinnurekstri áætluð
Sjá fyrri hluta f járlagaræðu bls. 18 og 19.
MATTHlAS A. Mathiesen, fjármálaráðherra, skýrði frá þvf í fjárlaga-
ræðu sinni á Alþingi f gær, að rfkisstjórnin mundi á næstu vikum
leggja fram frumvarp um umbætur í skattamálum. Gerði fjármálaráð-
herra þingheimi grein fyrir helztu þáttum þeirra breytinga sem stefnt
ér að. Þá skýrði fjármálaráðherra frá þvf, að starfshópur á vegum
fjármálaráðuneytisins hefði fjallað ftarlega um kosti og galla virðis-
aukaskatts en áljósi gagnrýni, sem fram hefði komið á virðisaukaskatt-
inn m.a. f Noregi hefði verið talið rétt að kanna málið nánar og reyna
að finna leiðir til þess að ná fram helztu kostum virðisaukaskatts án
þess að gallarnir fylgdu.
Matthfas Á. Mathiesen skýrði ennfremur frá þvf, að hann hefði
óskað eftir sérstakri könnun á þvf, hvort taka ætti upp hér á landi
svokallaðan „punktskatt", sem beitt er f vaxandi mæli á Norðurlönd-
um og er f ætt við vörugjaldið, sem hér er við lýði.
Fjármálaráðherra gerði útflutningsuppbætur á landbúnaðarafurðir
að umræðuefni f ræðu sinni og sagði, að venja hefði verið að miða
framfög úr rfkissjóði við 10% af „heildarverðmæti landbúnaðarfram-
leiðslunnar" þ.e. öllum afurðum landbúnaðarins. Kvaðst ráðherrann
telja eðlilegra, að 10% reglan næði einungis til sauðfjár- og nautgripa-
afurða, enda væri útflutningurinn allur frá þeim kominn. Fjármála-
ráðherra skýrði frá því, að ef verðábyrgð rfkissjóðs á útfluttar land-
búnaðarafurðir yrði fullnýtt á árinu 1977 mundi það kosta rfkissjóð
um 2,2 milljarðar króna en fjárlagaáætlun gerir ráð fyrir 1800
milljónum króna f þessu skyni.
Helztu breytingar á skattalöggjöfinni, sem Matthias A. Mathiesen
boðaði f ræðu sinni, eru þessar:
Framhald á bls. 22 Matthfas A. Mathiesen.
Símamvnd AP
IVOR RICHARD, forseti Rhódesíuráðstefnunnar í Genf, hellir vatni í glas á meðan
fulltrúar biða eftir að ráðstefnan verði sett. Aftast er sendinefnd Rhódesiustjórn-
ar og Ian Smith, forsætisráðherra. Til hægri er sendinefnd Muzorea biskups (í
svörtum fötum). Þar fyrir aftan er séra Sithole og hans lið. Til vinstri er
sendinefnd dr. Mugabes en fyrir aftan sendinefnd Nkomos.
Tortryggni á
Rhódesíufundi
Genf 28. október — Reuter
RAÐSTEFNAN á milli' svartra og hvftra Rhódesfubúa hófst f dag f
Genf en fundi var frestað innan hálftfma frá setningu, eftir að forseti
ráðstefnunnar skýrði frá því, að mikil tortryggni væri á milli aðila,
sem ætla að reyna að semja um leið til að binda enda á valdaskeið
hvfta minnihlutans f landinu.
Forseti ráðstefnunnar, Bretinn
Ivor Richard, lýsti fyrir blaða-
mönnum andrúmsloftinu, sem
ríkjandi er á ráðstefnunni, með
Pundið lækkar
en gull hækkar
London 28. október — Reuter.
Pundið féll en á erlendum gjaldeyrismörkuðum f dag og deilur
magnast innan brezka Verkamannaflokksins um efnahagsmál. 1
morgun fór pundið niður f 1.5555 bandarfska dali og er orsökin
álitin vera deilur James Callaghans, forsætisráðherra, við vinstri-
menn I eigin flokki um niðurskurð á opinberum útgjöldum.
Markaðurinn var í allan dag
mjög viðkvæmur fyrir minnstu
hræringum í stjórnmálum og
féll tímabundið eftir útkomu
vinstrisinnaða vikuritsins
Tribune, þar sem krafizt var
meiri þjóðnýtingar og óskertra
fjárveitinga til velferðarmála.
Eftir þvi sem lfða tók á kvöldið
komst markaðurinn í meira
jafnvægi og þegar honum var
lokað stóð pundið í 1.5695 döl-
um, sem er hálfu senti minna
en i gærkvöldi. Sig pundsins er
þváorðið 48.8% sfðan 1971.
Gullverð hækkaði aftur á
móti á mörkuðum f London og
Zúrich um 5 dali fyrir hverja
únsu eftir að mikil eftirspurn
hafði komið í ljós á uppboði
alþjóðagjaldeyrissjóðsins á
Framhald á bls. 22
þessum orðum: „Maður getur
næstum fundið tortryggnina f
loftinu í kringum ráðstefnubygg-
inguna og um allan bæinn."
Fulltrúarnir á ráðstefnunni
komu saman í dag tveimur
klukkustundum seinna en upp-
haflega var áætlað og samþykktu
að fresta fundi þar til í fyrramálió
innan við hálftíma frá setningu,
sagði Richard.
Hann sagði fulltrúum á ráð-
stefnunni, að eftir að formenn
sendinefndanna hefðu haldið
Framhald á bls. 22
Ford enn á eftir
□-------------------------□
sjá grein á bls. 20
New York, Cincinnati
28. október — Reuter.
Ford er ennþá á eftir í kapp-
hlaupinu um atkvæðin, en hann
ákvað í dag að fara aftur til Texas
og Ohio þar sem hann verður að
Framhald á bls. 22
Hua. Brezhnev.
Kínverjar
endursenda
heillaóskir
Brezhnevs
Moskvu 28. október — Reuter.
TILRAUNIR sovézku stjórnar-
innar til að koma á viðunandi
sambúð við nýja stjórnendur f
Peking virðast hafa beðið nýtt
skipbrot. Um það leyti, sem
sovézk blöð og útvarp skýrðu
frá þvf, að leiðtogi sovézka
kommúnistaflokksins hefði
sent heillaóskaskeyti til nýorð-
ins formanns kfnverska
kommúnistaflokksins, Hua
Kuo-fengs, skýrði talsmaður
kfnverska utanrfkisráðu-
neytisins frá þvf, að skeytið
hefði verið afþakkað.
Kínverskir embættismenn i
Moskvu voru ekki reiðubúnir
til að staðfesta þetta, en fyrr
dag sögðu beir. að ræða, sem
Framhald á bls. 22