Morgunblaðið - 29.10.1976, Síða 2

Morgunblaðið - 29.10.1976, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1976 Gylfi Þ. Gíslason á Alþingi: Brot á grundvallar- reglum um fréttaflutn- ing ríkisfjölmiðlanna GYLFI Þ. Glslason, formaður þingflokks Alþýðuflokksins, kvaddi sér hljððs utan dagskrár I sameinuðu þingi 1 gær og gerði að umtalsefni það sem hann kallaði • brot á 3. grein útvarpslaga um óhlutdrægni rfkisútvarps, svo og 4. kafla reglugerðar um frétta- flutning þess, þar sem segir: „Fréttaskýringar ber að afmarka greinilega frá fréttum, og skal ávallt kynnt nafn höfundar slfkra skýringa." Las Gylfi upp eftirfarandi fréttafrásögn útvarpsins I fyrra- kvöld, þar sem segir frá umræð- um um tillögu þingmanna Alþýðuflokks til þingsályktunar um þingkjörna rannsóknarnefnd á gangi og framkvæmd dóms- mála: „Ólafur Jóhannesson, dómsmálaráðherra, tók næstur til máls. Hann sagðist ekki vera and- vígur slikri nefndaskipan, ef neðri deild sýndist rétt að skipa slíka nefnd, en hann gerði ýmsar athugasemdir við tillöguna, og má segja, að litið hafi staðið eftir af ágæti hennar, að ræðu dómsmála- ráðherra lokinni." Sagði Gylfi að þingflokkurinn hefði ritað út- varpsstjóra kvörtunarbrér' af þessu tilefni. Fréttastofa útvarpsins baðst i kvöldfréttum i gær afsökunar á þeim mistökum, sem Gylfi gerði að umræðuefni. Aðalfundur Skógræktar- félags íslands hefst í dag AÐALFUNDUR Skógræktar- félags tslands hefst í dag kjukkan 9 árdegis I Tjarnarbúð I Reykja- vfk. Um 60 fulltrúar skógræktar- félaganna I landinu sitja fund- inn. I dag verða fluttar skýrslur um störf félagsins, kosið í nefndir þingsins og lagðar fram tillögur. Aðalfundinum lýkur um hádegi á sunnudag en aðalumræðuefnið á fundinum verða fjármál skóg- ræktarfélaganna. Utan dagskrár á Alþingi: Engin ákvörd- un um ÁLVER nema í fullu samrádi vid heimamenn Stefán Jónsson, þingmaður Al- þýðubandalags, kvaddi sér hljóðs utan dagskrár í sameinuðu þingi i gær í tilefni af viðtali við Gunnar Kristjánsson, bónda á Dagverðar- eyri og oddvita í Glæsibæjar- hreppi, í ríkisútvarpinu i fyrra- kvöld, sem hann sagði leiða líkur að, að Gunnar Thoroddsen, iðnaðarráðherra, hefði ekki skýrt Alþingi alls kostar rétt frá mála- vöxtum undirbúnings hugsanlegs álvers við Eyjafjörð. Nefndi þing- maðurinn það sérstaklega í þessu sambandi, að nefndur oddviti hefði séð tvenns konar teikningar af hugsanlegri staðsetningu ál- vers við Eyjafjörð hjá forseta bæjarstjórnar á Akureyri. Þetta sýndi hvort tveggja, að vart væri hægt að segja að þetta mál væri á „algjöru könnunarstigi“ sem og 80 millimetra úrkoma á ein- um sólarhring á Seyðisfirdi Seyðisfirði, 27. október. FÁDÆMA mikil úrkoma hefur verið hér f þessum mánuði og hefur úrkoman frá þvf 4. október alls mælzt 461,1 millimetri. Einn sólarhring, 24. október, mældist úrkoman 80 millimetrar og frá sl. sunnudegi til miðvikudags var hún 150 millimetrar. Milli 30 og 40 konur eru nú komnar á atvinnuleysisskrá hér á Seyðisfirði en ekkert atvinnuleysi hefur verið hér síðan í fyrravetur. Allar horfur eru á því, að atvinnu- lausum eigi enn eftir að fjölga á næstunni, því skuttogari staðar- ins er í viðgerð og slæmar gæftir hafa verið hjá bátum. Þær konur, sem þegar hafa misst vinnuna, unnu allar í fiski. Þórður Jónasson EA 350 hefur að undanförnu landað hér þrem- ur slöttum af síld, alls um 200 tonnum og hefur verið saltað úr því í 1700 tunnur. Þorður Jónas- son er hættur síldveiðunum enda búinn að veiða í sinn kvóta. — Sveinn. hitt að ekki hefði verið haft sam- ráð við „heimamenn“, eins og ráð- herra hefði látið að liggja. Þá spurði þingmaðurinn um hlut Vals Arnþórssonar, kaup- félagsstjóra, í undirbúningi þessa máls. Gunnar Thoroddsen, iðnaðar- ráðherra, sagði efnislega af þessu tilefni: Ég hefi áður greint Al- þingi frá þeim könnunarviðræð- um, sem nefnd um orkufrekan iðnað hefur átt við hinn norska aðila um könnun þessa máls. Þar kom skýrt fram að norska fyrir- tækið fékk heimild til frumkönn- unar á hugsanlegri staðsetningu álvers við Eyjafjörð og Reyðar- fjörð. I kjöifar þessara viðræðna og athugana sendi hið norksa fyrirtæki ýmisskonar upplýsingar og lauslegar teikningar af hugsanlegri staðsetningu, sem hvorttveggja var afhent nefndar- mönnum í viðkomandi nefnd, þ. á m. fulltrúa Alþýðubandalagsins í henni, Inga R. Helgasyni. Forseti bæjarstjórnar Akureyrar fékk þessi gögn til skoðunar úr hendi nefndarinnar. Oddviti Glæsibæjarhrepps óskaði bréflega eftir umræddum gögnum. Það bréf var stílað á ráðuneytisstjóra iðnaðarráðu- neytis Árna Snævar, sem var I veikindafríi. Eg vissi þvi ekki um tilvist þess fyrr en eftir að ég Framhald á bls. 22 Dagur iðnaðarins er haldinn hátfðlegur á Egilsstöðum 1 dag, af því tilefni munu margir forystumenn 1 fslenzkum iðnaði verða þar staddir og kynna sér fjölþætta starfsemi iðnfyrirtækja. Ymislegt verður gert til hátfðabrigða f tilefni dagsins á Egilsstöð- um. Á næstunni mun Mbl. kynna nokkur fyrirtæki í iðnaði á Egilsstöðum og segja fréttir úr borgarlffinu. Þessi mynd var tekin f Trésmiðju Fljótsdalshéraðs 1 gær, en það fyrirtæki framleiðir einingahús úr viði. Ljósm-ágás. Dagur iðnaðarins á Egilsstöðum í dag Frá Ágústt Asgeirssyni blm. á Egilsstöd- um, 28. október DAGUR Iðnaðarins hefst hér kl. 9 í fyrramálið. Þetta verða merk tfmamót fyrir bæjarbúa, en hér er iðnaður ákaflega mikilvægur öllu atvinnulffi, þar sem yfir 50% vinnufærra manna stunda bein störf í iðn- aði. Undirbúningur er á loka- stigi, en talsvert er um að vera hér vegna þessa iðnkynningar- dags. Iðnaðarráðherra, dr. Gunnar Thoroddsen, er væntanlegur til Egilsstaða f dag ásamt mörgum framá- mönnum úr iðnaði. Mun ráð- herra og föruneyti heimsækja Lagarfossvirkjun f dag, en sfð- an verða nokkur fyrirtæki heimsótt f fyrramálið. Egils- staðahreppur mun svo bjóða gestum til hádegisverðar í Valaskjálf, og að honum lokn- um munu gestirnir skoða aðn- aðarsýningu þá sem nú er verið að Ijúka við að setja upp í Vala- skjálf. Þá mun hefjast fundur um iðnaðarmál, þar sem fluttar verða tvær ræður, auk þess sem efnt verður til almennrar um- ræðu um málefni iðnaðarins á Egilsstöðum, Austurlandi og öllu tslandi. Iðnaðarráðherra mun síðan halda iðnaðarfólki og gestum hóf siðla dags. Verða þar aðil- um í iðnaði á Egilsstöðum veitt- ar viðurkenningar landssam- taka iðnaðarins. Að sögn Bjarna Arthúrsson- ar, formanns undirbúnings- nefndar að degi iðnaðarins hér á staðnum, er allur undirbún- ingur á lokastigi. Sagði Bjarni að mikil vinna hefði verið lögð í undirbúning síðustu tvær vik- urnar, og nú síðustu daga hafa menn jafnvel lagt nótt við dag. Mestur tfminn hefur farið í kynningarsýningu á iðnaði Egilsstaða, sem verið er að setja upp i Valaskjálf. Hreppsnefndin vill taka vel á móti ráðherra og föruneyti hans, og í því skyni er verið að leggja síðustu hönd á skyndi- lagfæringar á götum bæjarins, þ.e. þeim sem ekki eru malbik- aðar, en þær hafa verið holóttar og illar yfirferðar upp á sfðkast- ið að sögn. Þetta iðnkynningar- átak sem formlega mun hefjast á morgun, hefur því einnig orð- ið til að bæta göturnar hér á Egilsstöðum, en yfir því eru bæjarbúar flestir mjög hressir. Svavar Markús- son látinn SVAVAR Markúgson, að- stoðarbankastjóri við Búnaðarbankann, lézt i fyrrinótt eftir erfiða sjúk- dómslegu, aðeins 41 árs að aldri. Svavar var á yngri árum þjóðkunnur íþrótta- maður. Svavar var fæddur 30. maí 1935 f Reykjavík. Foreldrar hans voru Markús A. Einarsson verkstjóri og Anna Guðmundsdóttir. Svavar lauk kennaraprófi 1955 og var kennari við Gagnfræðaskólann í Kópavogi 1955—’58. Arið 1958 réðst hann til Búnaðarbankans og starfaði þar til dánardægurs. Mörg hin síðari ár var Svavar yfirmaður vfxladeildar bankans Svavar Markússon. og aðstoðarbankastjóri varð hann nú í haust. Svavar Markússon var um ára- bil einn þekktasti frjálsfþrótta- maður landsins. Hann tók þátt f fjölmörgum mótum erlendis, m.a. Ólympíuleikunum f Róm 1960. Hann átti lengi Islandsmet f milli- vegalengdum hlaupagreina. Þá átti Svavar f mörg ár sæti í stjórn Frjálsíþróttasambands Islands. Eftirlifandi kona Kristín Pálmadóttir. Svavars er „Viljum ekki stóra hrað- braut með brúm o g slaufum” — segir Olafur G. Einarsson, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar — tilgang með að byrja á gerð vegar fyrir neðan byggðina f Garðabæ sem stendur, því hann á ekki að tegjast í Engidal heldur á Álfta- nesi vestra. Það virðist MORGUNBLAÐIÐ sneri sér f gær til Ólafs G. Eanarssonar forseta bæjarstjórnar Garðabæjar, og innti eftir áliti hans á samþykkt bæjarstjórnar Hafnarf jarðar, sem skýrt var frá í Mbl. f gær, en þar kemur fram að Hafnfirðingar telja útilokað að breyta legu Hafnarfjarðarvegar. Svar Ólafs var efnislega á þessa leið: Það sem við Garðbæingar leggj- um áherzlu á er að lösna við á fá stóra hraðbraut í gegnum byggð- ina hjá okkur með tilheyrandi slaufum og brúm, hraðbraut af Krafla: Hola 7 hættir að gjósa Sjálfskaparvlti tæmist ÞÆR breytingar hafa helzt orðið á Kröflusvæðinu sfðustu daga, að hola 7 hefur hætt að gjósa. Að sögn fsleifs Jónssonar hjá Jarð- boranadeild Orkustofnunar lítur einna helzt út fyrir að eitthvað hafi stfflað holuna, þá gæti þarna einnig verið um að ræða áhrif frá holu 10, sem nú er verið að bora, en skammt er á milli þessara holna. Þá tæmdist hola 4, sem nefnd hefur verið sjálfskaparvfti, um síðustu helgi en gefur nú örðu hvoru gufú. Jarðskjálftavirkni við Kröflu hefur farið vaxandi að undanförnu og mældust 68 skjálftar þar sfðasta sólarhring. ísleífur Jónsson sagði að gufu- borinn væri við borun í holu 10 og væri kominn f um 900 metra en Jötunn er kominn niður í um 300 Framhald á bls. 22 þeirri gerð, sem myndi skerða af lóðum og jafnvel ryðja burt hús- um. Við teljum’ að slík braut muni ekki þjóna byggðinni og hún sé ekki nauðsynleg. Ég vona að við verðum ekki misskildir. Það er ekkí meiningin að gera Hafnfirð- ingum erfiðara fyrir að komast til Reykjavíkur. Við viljum að nú- verandi Hafnarfjarðarvegur verði tengibraut milli byggðanna og umferð þar verði stjórnað með ljósum. Það er okkar ósk að lögð verði áherzla á gerð nýs vegar úr Breiðholti í Reykjavík, sem liggi fyrir austan Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð og tengist Reykja- nesbrautinni við Kaplakrika. Á þennan veg á að beina allri þungaumferð, sem er óæskileg í byggðarlagi eins og Garðabæ. Með því að losna við þungaumferðina af Hafnarfjarðarvegi teljum við að flutningsgeta hans aukist fyrir venjulega umfjerð milli byggð- anna. Við Garðbæingar sjáum engan vera a kreiki einhver misskilningur hjá bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Hún vill fá hraðbraut að Engidal, en lengra getur hún ekki náð, því í núverandi skipulagi Hafnarfjarð- ar á vegurinn í Engidal að vera innanbæjarvegur í Hafnarfirði og Framhald á bls. 22 Rætt við fleiri en Finn Jónsson í KYNNINGU á dagskrá út- varpsins í kvöld kemur fram, að í myndlistarþættinum, sem er í umsjá Hrafnhildar Schram, verði rætt við Finn Jónsson. En auk hans mun Hrafnhildur einnig ræða við Magnús Árnason, listmálara, Einar Hákonarson og Ragn- heiði Jónsdóttur. Eru hlutað- eigandi beðnir velvirðingar á, að þetta kemur ekki fram í kynningunni bls.4.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.