Morgunblaðið - 29.10.1976, Page 7

Morgunblaðið - 29.10.1976, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKTÖBER 1976 7 Endurskoðun skattalaga Geir Hallgrimsson for- sætisráðherra fjallaSi um endurskoðun skattalaga i stefnuræðu sinni sl. mánudag og sagði: „Á þessu hausti verða lögð fram frumvörp um breytingar á lögum um tekju- og eignarskatt og stefnt að afgreiðslu þeirra fyrir áramót. í heild er ekki reiknað með veruleg- um breytingum á skatt- fjárhæðum, en hins vegar er þessum breytingum ætlað að hafa áhrif i þá átt að skipta skattbyrð- inni milli manna á sann- gjarnari hátt en gildandi reglur fela i sér. Við skattlagningu tekna hjóna er nauðsynlegt að haga skattlagningu fyrst og fremst með tilliti til fjölskylduaðstæðna, en i minna mæli eftir þvi, hvernig tekjuöflun heimil- anna er háttað þ.e. hvort bæði hjónin vinna utan heimilis eða einungis ann- að þeirra. Skattalög og framkvæmd verða að tryggja jafnrétti karla og kvenna. Við skattlagningu þeirra, sem stunda sjálf- stæðan atvinnurekstur verður að stefna að því að skilja á milli atvinnurek- andans og fyrirtækisins við skattútreikning, en einkafyrirtækin njóti síð- an sömu skattakjara og önnur fyrirtæki. Þetta má gera á ýmsan veg. t-.d. með því að reikna at- vinnurekendum launa- tekjur frá eigin fyrirtæki eða með þvl að lita á þá úttekt eigandans eða þann lifeyri, sem hann hefur notað sér og sinum til framfærslu. Hér er um hugmyndir að ræða, sem ekki er auðvelt að koma i framkvæmd af tæknileg- um ástæðum, en leggja verður áherslu á að finna örugga lausn. Við breytingar á fyrn- ingarreglum skattalaga er nauðsynlegt að endur- skoða ákvæði um skatt- skyldu söluhagnaðar. Það er óeðlilegt að skattleggja ekki i rikari mæli sölu- hagnað eigna, sem fyrnd- ar hafa verið i atvinnu- rekstri og það verður að fyrirbyggja að hægt sé að selja eignir milli fyrir- tækja og fyrna á ný án þess að söluhagnaðurinn sé skattlagður hjá selj- anda. Þetta á við þegar eignir eða andvirði þeirra eru teknar út úr atvinnu- rekstri án þess að aðrar eignir komi i staðinn. Leitast verður við að samræma álagningar- grunn tekjuskatts og út- svars með það fyrir aug- um að nálgast skatt á brúttótekjur. Geir Hallgrlmsson forsætis- ráðherra Nauðsynlegt er jafn- hliða að samræming sé I framkvæmd skattalaga alls staðar á landinu. Á næstunni þarf að taka ákvarðanir um lækkuð að- flutningsgjöld og sölu- skatt af vélum og tækjum til iðnaðar, sem gætu falið F sér einhvern tekjumissi fyrir ríkissjóð. Þetta mál verður metið i tengslum við endurskoðun tollskrár, sem nú stendur fyrir dyr- um. En tillögur um breyt- ingar á tollskrá i áföngum fram til 1980 af tilefni samninganna við EFTA og EBE og til að bæta sam- keppnisstöðu islensks iðnaðar munu koma fram á næstu vikum. j þessari tillögugerð verður að taka tillit til stöðu hins sér- staka vörugjalds i skatt- kerfinu. Við þessa athug- un þarf ennfremur að taka tillit til fyrirætlana um að taka upp virðisaukaskatt i stað núverandi sölu- skatts. Breyting af þessu tagi sem nýlega var gerð i Noregi hefur ekki i alla staði gefist vel og er okk- ur nauðsynlegt að læra af reynslu Norðmanna og annarra nágrannaþjóða, áður en endanlegar tillög- ur eru gerðar og ákvarð- anir teknar." Prófraun þingflokka Verðbólgunefndin svo- kallaða, samstarfsnefnd þingflokka og aðila vinnu- markaðar, er athyglisverð prófraun, sem frammá- menn í islenzkum stjórn- málum ganga undir i aug- sýn alþjóðar. Þar reynir á ábyrgð og heilindi þeirra, sem fara eiga fyrir á leið þjóðarinnar út úr vanda efnahagslifsins, til meiri stöðugleika i atvinnu- og efnahagsmálum þjóðar- innar og traustleika gjald- miðils okkar og kaupgildis launa. Þá verður þessi nefnd ekki siður prófraun á samstarfshæfni flokka og flokksforingja. Hér er i raun um að ræða úttekt almennings, sem á mestra hagsmuna að gæta um hvern veg til tekst. á ábyrgð og áreiðanleika is- lenzkra stjómmálamanna, innan þings og utan. Það er engum vafa undirorpið að þorri þjóðarinnar æskir þess einlæglega, að hér verði vel og drengilega að verki staðið. Þessi nefnd verður i brennidepli al- þjóðar næstu vikur. Og það verður áreiðanlega eftir þvi tekið, hver frammistaða hvers og eins verður, sem prófraun þreytir. IV/IIP /V SUÐURVERI I VI I Stigahlið 45—47 Sími 82430 immaiiH ELECTROLUX Z 305 ryksugan hefur ★ 800 watta mótor Dregur snúruna inn i hjól- ið ★ Hún sýnir hvenær pokinn er fullur. •fr Aðeins kr. 36.500.— húsg.deild s. 8fr-l 12. Ma(vörud<MÍd s 86-111. vefn- aúarvörud. s. 86-113. Ileimilistækjadeild s. 81680. S Rammagerðin Sendum um allan heim. Allar sendingar full tryggðar. Rammagerðin Hótel Esju, Hótel Loftleiðum, Hafnarstræti 1 9. phyris snyrtivörur veröa sífellt vinsælli Snyrtisérfræðingur frá phyris verður hjá okkur frá hádegi i dag phyris er nýjasta snyrtivörulínan frá “^•ribad. ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? t^> Þl AUGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR Þl AUGLYSIR I MORGUNBLAÐINU Snyrtivörudeild Glæsibæ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.