Morgunblaðið - 29.10.1976, Side 11

Morgunblaðið - 29.10.1976, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1976 11 Grundvallaratriðið í R.K.Í. er samstarf — Rætt við Eggert Ásgeirsson framkvæmdastjóra Rauða krossins EINS og fram hefur komið f fréttum nýlega er lokið for- mannafundi Rauða kross Is- lands. Var þetta fyrsti for- mannafundurinn skv. nýjum lögum félagsins og leitaði Morgunblaðið frétta hjá Egg- erti Ásgeirssyni framkvæmda- stjóra R.K.I. um árangur fund- arins: — Verkefni fundarins var að endurskoða fjárhagsáætlun fé- lagsins og ákveða hvernig verja beri fé til nýrra verkefna. Fyrst og fremst er gagnsemi fundar- ins sú, að skipzt er á skoðunum um verkefni deilda og samstarf þeirra og aðalstjórnar. Það rið- ur á mjög mikiu að þetta sam- band sé gott, sagði Eggert, ekki sízt nú þegar f jöldi nýrra deilda hefur tekið til starfa um allt land og nýtt og ferskt forystu- fólk tekið þar við trúnaðarstörf- um. Eggert sagði að verkefnasvið félagsins væri mjög vfðfeðmt, og það væri grundvöllur i starf- inu að þarfir I hverju héraði réðu hver verkefni væru tekin fyrir á hverjum stað. Nú er verið að skipuleggja neyðar- varnir viða um land í samráði við Almannavarnir og því verk- efni er miðstýrt. Tekur R.K.I. að sér afmarkað hlutverk á þessu sviði en' það er fjölda- hjálp ef til neyðar kemur. Þurfa allar deildir félagsins að vinna eftir svipaðri áætlun og er áætlanagerð nú í gangi vfða um land. — Almenningur hefur mjög mikinn áhuga á þessu starfi og þar sem R.K. deildir eru ekki starfandi er verið að undirbúa stofnun þeirra. Áhugi er hjá minni sveitarfélögum fyrir þvf að R.K. starf komist þar á þvi mönnum verður æ ljósara hversu mikilvægt er að almenn- ingur taki þátt í velferðarstarfi og veiti sveitarfélögunum að- stoð. Bæði er nauðsynlegt að hjálpa fólki við þjálfun á þessu svæði til að geta hjálpað sjálfu sér og öðrum. Við höfum ráðið f okkar þjónustu Björn Þórleifs- son, sem áður var félagsmála- stjóri Akureyrar, og er hann að hefja undirbúning að starfi á félagslegu sviði auk þess sem hann heldur áfram framkvæmd kennslukerfis f skyndihjálp, en það er annað verkefni sem rík- isvaldið hefur falið R.K.Í. að annast. Þá sagði Eggert að deildum félagsins hefði fjölgað mjög undanfarin ár og félagatalan einnig aukizt, nú væru deildirn- ar 34 og félagsmenn um 8.500. Fjárhagur félagsins er með blóma en það segir ekki nema takmarkaða sögu sagði Eggert þar sem verkefni væru nú mjög mörg og fjölbreytt og þvf væri hart keyrt, eins og hann komst að orði. — Aðalfjáröflunarleiðin eru söfnunarkassarnir og eru nettó- tekjur af þeim um 40 milljónir. Þær skiptast þannig, að 10 milljóir fara til deilda f hlut- falli við fbúatölu á hverju deild- arsvæði, 10 milljónir renna til sérstakra verkefna, sem deild- irnar eru með á prjónunum, og um 20 milljónir renna til R.K.I. og hinna ýmsu verkefna sem samtökin hafa með höndum. Sjúkrahótelið og skyndihjálp- arkerfið hefur verið mjög þungur baggi á félaginu og ýmsar deildir standa f mjög fjárfrekum framkvæmdum sem engan veginn er hægt að kosta með sameiginlegum sjóð- um. Sem dæmi um það má nefna að verkefni formanna- fundarins var að ákveða hvern- ig bæri að verja 10 milljónum sem óráðstafað er til verkefna á þessu og næsta ári. Fjárhags- nefnd félagsinsreyndi að skoða verkefnin og endirinn varð sá að hægt var að veita fé til 7 verkefna sem 12 sóttu um. Er Ólafur Mixa flytur fundinum skýrslu sfna. Sitjandi eru Eggert Asgeirsson frkv.stj., sr. Arni Sigurðsson frá Blönduósi, Sigurþór Halldórsson frá Borgarnesi og Björn Tryggvason form. R.K.l. A fundinum veittu starfsmenn R.K.l. víðurkenningu fyrir gott samstarf, þeim Ólafi Mixa og formanni Grundarfjarðardeildar, Hildi Sæmundsdóttur, sem hér sést taka við verðlaunabók frá Dóru Jakobsdóttur deildarstjóra R.K.t. það til sjúkrahótels á Akureyri, dagvistunarstofnunar I Grund- arfirði, öldrunarmálaverkefnis hjá Reykjavíkurdeild, sjúkra- bíls á Suðurnesjum og Vfk f Mýrdal. Þetta eru alls 13 milljónir en sótt var um fyrir Franthald á bls. 25 ■^Gallabuxumar™-6 sem endast & endast LAUGAVEGUR ®-21599 BANKASTRÆTI 14275 <Ertu buxncilaus ?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.