Morgunblaðið - 29.10.1976, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1976
21
r r
Olympíuskákmótið í Israel:
Island vann
Luxemborg
— er í 10. saeti
Haifa 28. okt. einkaskeyti til Mbl.
frá Einari S. Eaiarssyni
og Braga Halldórssyni:
I FJÓRÐU umferð tefldi
fslenzka sveitin við Luxem-
borgara og lauk keppninni með
3 vinningum gegn 1 fyrir
islenzku sveitina. Björn hafði
hvitt á fyrsta borði og tefldi við
Stull, sem svaraði með Sikil-
eyjarvörn. Björn blés snemma
til sóknar á kóngsvængnum en
telfdi of stift til vinnings svo
Stull náði að hrinda sókninni.
Björn komst i mikið tfmahrak
en það var eins og andstæðing-
ur hans missti þráðinn og Birni
tókst að ná óstöðvandi sókn svo
að Stull neyddist til að leggja
niður vopnin i 39. leik.
Magnús tefldi Caro-Kann
vörn gegn Feller og sigraði
snaggaralega i fjórtán leikjum.
Skák Magnúsar fylgir hér á
eftir. Margeir beitti enskum
leik gegn Schammo á þriðja
borði. Schammo valdi ranga
áætlun með því að hróka langt
og Margeir gaf honum engin
grið eftir það og hóf stórsókn á
drottningarvængnum sem ekki
gat endað á annan veg en með
algjöru afhroði Luxemborgar-
ans. Á f jórða borði tefldi Björg-
vin við Schneider og tefldi
Sikileyjarvörn. Hann fékk
erfiða stöðu, komst f mikið
tfmahrak, missti af jafnteflis-
leið og varð að gefast upp þegar
skákin átti að fara f bið.
Snaggaralegur
vinningur Magnúsar
Hér kemur vinningsskák
Magnúsar í gær:
Hvftt: J. Feller, Luxemborg.
Svart: Magnús Sólmundarson.
Caro-kann vörn:
1. e4 — c6 2. Rc3 — d5 3. Df3?
(Óvanalegur leikur, Larsen
hefur beitt þessum leik
einstaka sinnum. Hugmyndin
að baki leiknum er t.d. að
treysta peðið á f7 með biskup á
c4 og riddara á a5). . dxe4 4.
Rxe4 — Rf6 5. Rxf6 — gxf6
(Nú er svartur kominn út í
hagstætt afbrigði svipað því
sem gerist eftir 1. e4 — c6 2. d4
— d5 3. Rc3 — dxe4 4. Rxe4
—Rf6 5. Rxf6—gxf6 nema að þá
stendur hvíta drottningin ekki
á f3 en þar á hún alls ekki
heima í þessu afbrigði þvl að
hún þvælist aðeins fyrir hvíta
riddaranum á gl). 6. Bc4 — Rd7
7. Dh5 (Hvftur hótar heima-
skítsmáti en Magnús sér við
þvi)—.. .Re5 8. Bb — Da5 (Tví-
eggjaður leikur. Svartur gefur
hvíti kost á að drepa á f7. Tvær
leiðir koma helzt til greina eftir
9. Bxf7 — Kd8 10. h3 — Be6 11.
Be8 — Dd5 12. Rf3 — Bg7 og
svartur vinnur mann eða 10. h3
— f4 og staðan er tvísýn) 9.
Dh4 — Hg8 10. f4 — hxg2
I A A
t t t t t
t H 1
%‘ú %
■ ■ Q fl
s !§ §§§
AJ ö a] □ I |J
H B S Ej fi
(mannsfórn sem leiðir til vinn-
ings f örfáum leikjum) 11. fxe5
— dxe5 12. Kfl — Hg4 13. Df2
— Hf4 14. Rf3 — Bh3 og hvftur
gafst upp vegna máthótunar-
innar 15. Kgl — Hxf3 Del mát.
I1 — A
t t §§ 1 t t
t §§§ HM
■
■ : am ........
Jl / A
A Q A o B S
Qf P s
(Skýringar eftir Magnús Sól-
mundarson og Braga Halldórs-
son).
Urslit hjá helztu sveitum
urðu þessi í 4. umferð: V-
Þýzkaland — England 2:2,
ítalia — Bandaríkin 1:2 og ean
biðskák, Noregur — Filipseyjar
lM'.l'/i og ein biðskák, Hoiland
— Argentína V4:1V4 og 2 bið-
skákir, Sviss — Israel 1:1 og 2
biðskákir.
Staða efstu liða:
1. V-Þýzkaland 12 vinningar, 2.
Bandarfkin 11 vinningar og ein
biðskák, 3. England 11 vinning-
ar, 4—5. Noregur og Filips-
eyjar 10(4 vinningur og ein bið-
skák, 6. Italía 10 vinningar og
ein biðskák. 7—8. Argentína og
Astralía 9(4 og 2 biðskákir. 9.
Danmörk 9(4 og ein biðskák 10.
Island 9(4 vinningur.
Ekkert verður teflt á föstu-
dag en 5. umferð á laugardag.
Öryggisaðgerðir hertar
Teflt er í tveimur aðskildum
ráðstefnusölum Dan Carmel-
hótelsins við Panoramastræti. í
Rauða salnum teflir „efri deild-
in“ en „neðri deildin“ í þeim
græna. ísland hefur tilheyrt
efri deildinni hingað til og mun
halda fast f sæti sitt þar. Vopn-
aðir verðir með gegnumlýsandi
furðutæki skyggna mannskap-
inn á leiðinni inn sem fyrrum.
öryggisgæzla hefur enn verið
hert, af hverju vita menn ekki
en einhverjir vöknuðu við
dularfulla sprengihvelli í
nágrenni hótelsins í gærmorg-
un. Nú fær enginn að fara leng-
ur inn á sjálft skáksvæðið nema
hafa gula spjaldið, en hver
sveit fékk 5 slík spjöld. Hendi
það keppendur að stika um gólf
stefnulaust milli leikja mega
þeir búast við að taugaveiklaðir
laganna verðir hefti för þeirra.
Erfitt er nú orðið að fylgjast
með strákunum, þar sem engin
sýningarborð eru.
Kunningjar frá tslandi
Frammi í setustofunni er
venjulega margt um manninn.
Þar er hægt að fylgjast með
nokkrum skákum á sjónvarps-
skermi. Á miðju gólfi hefur
verið komið fyrir griðrarmiklu
taflborði og vilji menn tefla
verða þeir að beita nýju bragði,
svokölluðu „fangbragði", til að
geta hreyft mennina. Hér er
mikið spjallað, teflt og spilað.
Gamall kunningi landans, sr.
William Lombardy, situr hér
iðulega, þegar hann er ekki
„inn á“ og spilar „backgamm-
on“ við einhverja ljóshærða
maddömu. Hann er nú orðinn
tágrannur sem unglingur, 30
kílóum léttari en í fyrrahaust
að sjálfs hans sögn. Fleiri kunn-
ingjar frá síðustu alþjóðamót-
um heima eru hér svo sem
gamla kempan Najdorf og kona
hans, Timman, Vesterinen og
Keen frá því á Reykjavíkurmót-
inu í haust og Hartston, Oster-
meyer og Lain, garðyrkjubónd-
inn frá Guernsey, frá þvi á
svæðamótinu í fyrrahaust.
Skák úr 3. umferð
Eftirfarandi skák var tefld í
3. umferðinni:
Hvítt: Castro (Kolumbiu)
Svart: Helgi Ólafsson.
1. Rf3 — Rf6, 2. c4 — g6, 3. b4
— Bg7, 4. Bb2 — 0-0, 5. g3 £ c6,
6. Bg2 — a5, 7. bxa5 — Dxa5, 8.
0-0 — d6, 9. h3 — Rbd7, 10. Rd4
— Rb6, 11. Bc3 — Dc5,12. d3 —
Ra4, 13. e3 — d5, 14. Db3 —
dxc4, 15. dxc4 — Rxc3, 16. Rxc3
— e5, 17. Re2 — Da5, 18. Hfdl
— Ha7, 19. Habl — Bf5, 20.
Hb2 — Hd8, 21. Hxd8 — Dxd8,
22. Ra4 — "Rd7, 23. Bfl — Be6,
24. Ddl — Bf6, 25. Rac3 — Rc5,
26. Dxd8 — Bxd8, 27. Rcl —
Ba5, 28. Rbl — Ra4, 29. Hc2 —
Rc5, 30. g4 — Kf8, 31. Rd2 —
Bxd2, 32. Hxd2 — Ha4, 33. Rb3
— Rxb3, 34. axb3 — Hb4, 35.
Hd3 — Ke7, 36. f4 — e4, 37.
Hc3 — Kd6, 38. g5 — b5, 39.
Bg2 — bxc4, 40. bxc4 — Hxc4,
41. Hxc4 — Bxc4, 42. Bxe4 —
Be6, 43. h4 — Bf5, 44. Bf3 — c5,
45. Kf2 — c4, 46. e4 — Bd7, 47.
Ke3 — Kc5, 48. h5 jafntefli.
■ i® Wm
A t Hl t
tg§ . SP m. t HH
má ÆM mt wm m A
M t yWM'/ A m WrrrM'.
jm wm v/ ÍL éh
ÉP m. ■
wm mxtí, m ÉÉÉ
I þessarri stöðu var samið
jafntefli:
Bretland:
London, 28. okt. — Reuter.
BORIS Ponomaryov, rit-
ari miðstjórnar sovézka
kommúnistaflokksins, er
nú í heimsókn í Eng-
landi, og hefur heim-
sóknin valdið háværum
mótmælum. 1 dag mætti
Ponomaryov á áheyr-
endapöllum Neðri mál-
Heimsókn „Stór-
meistara kúgunar
veldur deilum
Boris Ponomarev, ritari miðstjórnar
sovézka kommúnistaflokksins, ásamt
James Callaghan, forsætisráðherra Bret-
lands, í brezka þinginu.
stofu þingsins í London,
en varð að hverfa á brott
eftir að þingmenn höfðu
gert að honum harða
hríð.
Ponomaryov, sem
nefndur hefur verið í
Bretlandi „Stórmeistari
kúgunar“, var að fylgjast
með umræðum í Neðri
málstofunni þegar í-
haldsþingmaðurinn Pet-
er Blaker sagði um hann:
„Núverandi embætti
hans er að skipuleggja
afnám frelsis okkar.“
Nokkur hávaði varð í
málstofunni við þessi um-
mæli, en síðar sagði
annar þingmaður íhalds-
flokksins, Nicholas
Ridley, um Ponomaryov
að hann væri „maður,
sem lítur frjáls þing
fy rirlitningar augum. “
Fór Ridley fram á að öll-
um yrði vísað af áheyr-
endapöllum, en áður en
sú tillaga var felld með
192 atkvæðum gegn 80
hélt Ponomaryov á brott.
Ponomaryov kom til
Englands sem fararstjóri
sex manna nefndar frá
sovézku vísindaakademí-
unni, en nefnd þessi kem-
ur í boði framkvæmda-
ráðs brezka Verkamanna-
flokksins, og er að endur-
gjalda heimsókn fulltrúa
framkvæmdaráðsins til
Sovétríkjanna árið 1973.
Ponomaryov er sjálfur
sagður fyrrum Stalínisti,
og sakaður um að hafa
skipulagt innrás Sovét-
ríkjanna í Tékkóslóvakiu
1968. Hann hefur nú um-
sjón með samskiptum
Kreml við kommúnista
og aðra vinstriflokka
erlendis.
Frankfurt:
Lögreglan
engu nær
LÖGREGLAN í Frankfurt f Vest-
ur-Þýzkalandi hefur ekkert fund-
ið, sem bent gæti til þess hver
orðið hefðu afdrif Gunnars Elfs-
sonar.
Sveinn Björnsson í sendiráði ís-
lands í Bonn sagði við Mbl. i gær,
að lögreglan ynni kappsamlega að
þessu máli en þrátt fyrir víðtæka
ránnsókn væri hún engu nær um
það hvað valdið hefði hvarfi
Gunnars.
Sýningu Torfa
lýkur í dag
MALVERKASYNINGU Torfa
Jónssonar á Loftinu við Skóla-
vörðustfg lýkur klukkan 18 f
kvöld. Aðsókn að sýningunni
hefur verið góð og hún hefur
fengið góða dóma í blöðum.
• •
Okumaður fólks-
bíls beðinn að
gefa sig fram
MIÐVIKUDAGINN 27. október
klukkan rúmlega 12 á hádegi varð
árékstur á Melatorgi i Reykjavik.
Fólksbill ók þá aftan á bifreiðina
R-7386, sem er Volkswagen. Öku-
menn bifreiðanna töluðu saman,
en þar sem ekkert sjáanlegt tjón
varð á fremri bílnum, var ákveðið
að kalla ekki til lögreglu. En síðar
um daginn, fór farþegi úr fremri
bifreiðinni á slysadeild vegna
meðsla í hálsi. Þarf því slysarann-
sóknadeild lögreglunnar að hafa
tal af ökumanni fólksbílsins, sem
ók aftan á fremri bifreiðina. Er
ökumaðurinn, ung kona, beðinn
að gefa sig fram við lögregluna
sem allra fyrst.