Morgunblaðið - 29.10.1976, Side 22

Morgunblaðið - 29.10.1976, Side 22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1976 22 Fyrsti fundur verdbólgu- nefndar í gær NEFND sú, sem forsætisráðherra skipaði nýlega til að leita leiða til að ná hraða verðbólgunnar niður f það, sem gerist I nágrannalönd- unum, hélt sinn fyrsta fund ár- degis í gær í Þórshamri. I nefndinni eiga sæti fulltrúar þingflokkanna, fulltrúar verka- lýðssamtakanna, vinnuveitenda og fjórir menn skipaðir af ríkis- stjórninni og voru allir þeir menn, sem sæti eiga í nefndinni, mættir á fyrsta fund hennar. Á þessum fyrsta fundi nefndarinn- ar var rætt almennt um verkefna nefndarinnar en auk nefndar- manna sátu fundinn Klemens Tryggvason, hagstofustjóri, og Ólafur Davíðsson, hagfræðingur Leiðrétting Frá því var skýrt í Morgunblað- inu nýlega að Björn Bjarnason, formaður Landssambands iðn- verkafólks, myndi halda ræðu á degi iðnaðarins á Egilsstöðun nú á föstudag. í fréttinni var Björn sagður formaður Iðju, en það er að sjálfsögðu rangt. Réttur er tit- ill Björns eins og hann er hér í upphafi.en að auki er hann starfs- maður Iðju í Reykjavfk eins og kunnugt er. — Jóhanna Framhald af bls. 40 greindari," sagði Martin Padley Flugvélin, sem flutti ..Jóhönnu", lenti á flugvellinum utan við Nizza kl 1 9 40 að íslenzkum tíma og tók þar á móti henni fjöldi fréttamanna Sennilega hafa aldrei jafnmargir er- lendir fréttamenn tekið á móti íslenzkri flugvél Nefna má, að allar sjónvarpsstöðvar í Frakklandi fylgd- ust með komunni og meðal annars sjónvarpsmenn frá Bretlandi Eftir að búið var að ná ..Jóhönnu" út úr vélinni var hún ður er nú hjá eigend- um og stjórnendum Marinlands enda áttu þeir ekki von á því að háhyrningurinn væri þetta hress eft- ir um 7 klukkustunda flugferð og hvað þá að hann þægi mat — ÁLVER Framhald af bls. 2 heyrði umrætt viðtal við oddvit- ann í útvarpinu, og gerði gang- skör að því að fá það í hendur. Umbeðin gögn hafa nú þegar ver- ið send oddvitanum. Ég fæ ekki séð að svör oddvit- ans stangist á einn né neínn hátt við upplýsingar mínar um þetta mál hér á Alþingi, þó þau hefðu efalítið orðið á annan veg í dag. En umrætt viðtal mun tekið upp í vikunni sem leið. Mál þetta er á könnunarstigi og á engan hátt bindandi. Lauslegar stað- setningarhugmyndir, sem fyrir löngu voru komnar í hendur full- trúa flokkanna í orkunefnd, breyta þar engu um, enda hafa þær aldrei verið neitt launungar- mál. Ekki heldur um þá staðhæf- ingu mína að engar bindandi ákvarðanir verða teknar í þessu máli án samráðs og vitundar heimaaðila. Það er því ástæðuiítið af þingmanninum að flytja mál sitt I því formi, sem hann gerði, hér í þingsal. Valur Arnþórsson, kaupfélagsstjóri, tók á móti um- ræddum gögnum sem forseti bæjarstjórnar á Akureyri, og sé ég ekki, að þingmaðurinn hafi ástæðu til athugasemda af því til- efni. — Krafla Framhald af bls. 2 metra í holu 11. Sagði Isleifur, að þegar borunum í þessum tveimur holum lyki yrði borun á svæðinu hætt að minnsta kosti að sinni enda væri þá búið að bora þær holur, er verið hefðu á þeirri áætlun, sem nú væri unnið eftir. ísleifur tók fram að ekki væri að sinum dómi hægt að vinna lengur við borunina en fram að jólum vegna veðráttunnar. — Gufan hefur vissulega látið á sér standa en eins og útlitið er nú með guf- una ætti virkjunin að geta farið á stað með hálfum afköstum um áramót, sagði Isleifur að lokum. — Ford Framhald af bls. 1. sigra ef hann á að ná kosningu. Ford sagði á fundum í Ohio og Indiana að hann ætlaði að hvetja til alþjóðlegs samstarfs gegn dreifingu kjarnorkuvopna og til aukinnar friðsamlegrar nýtingar kjarnorku. Riehard Cheney, starfsmanna- stjóri Fords, sagði að forsetinn hefði náð fótfestu á heimavelli Carters í suðrinu, væri að ná undirtökunum i miðvestrinu og Klettafjallafylkjunum, þar sem staða repúblikana hefur löngum verið styrk, og hefði nauma for- ystu í Kaliforniu, fjölmennasta fylki Bandarikjanna. Þegar á heildina er litið hefur Carter þó forystu og er munurinn á þeim tveimur 3—6% samkvæmt skoðanakönnunum Gallups og Harris. Þriðji frambjóðandinn til for- setakjörs, Eugene McCarthy, hef- ur farið þess á leit við hæstarétt að hann tryggi að nafn hans verði sett á kjörseðla í New York. Ef McCarthy fær nafn sitt á kjör- seðilinn getur það leitt til þess, að hann nái svo mörgum atkvæðum frá Carter, sem á mests fylgis að fagna í fylkinu, að Ford fái alla 41 kjörmenn þess. Nafn McCarthys var tekið af atkvæðaseðlum eftar að demókratar i New York höfðu ásakað hann um misferli varðandi stuðningsmannalista. — Viljum ekki.. Framhald af bls. 2 með skipulaginu hafa Hafnfirð- ingar sýnt, að þeir vilja ekki hrað- braut í gegn hjá sér. Ég vil leið- rétta þann misskilning, sem fram hefur komið, að framkvæmdir í Kópavogsgjá og Arnarnesi séu unnar fyrir gýg ef hraðbraut verður ekki látin fara í gegnum Garðabæ. Þetta er rangt, því gert er ráð fyrir tengibraut úr Arnar- nesi upp Arnarnesháls að nýju Reykjanesbrautinni. Loks vil ég láta i ljós þá von, að þetta mál leysist án deilna. Okkur Garðbæingum finnst að við eigum töluvert mikinn rétt á því að á okkur sé hlustað sem ibúa þessa svæðis, sem vegurinn liggur í gegnum, og ekki sízt fyrir þá sök hve eindreginn vilji íbúanna er í málinu. — Rhódesía Framhald af bls. 1. stefnuræður sínar í fyrramálið ætlaði hann að fresta fundi í nokkra daga til þess að menn gætu ræðst einslega við. Samkvæmt afrískum heimild- um stöfuðu tafirnar á setningu ráðstefnunnar af ágreiningi um hlutverk Breta i samningaviðræð- um. Leiðtogar þjóðernissinna, Joshua Nkomo og Robert Mug- abe, áttu á siðustu stundu fund með Ivor Richard, og óskuðu eftir fullnaðarskýringu á hlutverki og stöðu Breta i viðræðunum. í ráðstefnunni taka þátt sendi- nefnd Ians Smith, forsætisráð- herra í stjórn hvíta minnihlutans, og sendinefndir fjögurra hreyf- inga svartra þjóðernissinna. Við setninguna las Richard upp skeyti frá James Callaghan, forsætisráð- herra Bretlands, þar sem hann sagði að vonir Breta varðandi Rhódesiu væru að „landið yrða sjálfstætt undir stjórn, sem þjón- aði hagsmunum allra þjóða Zimb- awe“, sem er afriskt nafn á land- inu. — Rafha Framhald af bls. 16 einnig verið okkur þungir í skauti Síðastl ár borguðum við níu millj- ónir, þegar hreinn hagnaður Rafha var aðeins tvær milljónir Rafha hef- ur frá upphafi getað boðið sinar framleiðsluvörur á verði, sem i öll- um tilfellum er lægra en verð sam- bærilegrar framleiðslu erlendis, sé miðað við stærð og gæði," sagði Axel Kristjánsson, forstjóri Rafha, að lokum Móttaka fyrir starfsmenn og vel- unnara fyrirtækisins verður kl. 5 í dag í húsakynnum fyrirtækisins HÞ. — Vestrænt Framhald af bls. 16 bræðralag, og siðfræði lýðræð- isins, er heimspeki kristin- dómsins og gyðingatrúar. Við stöndum vörð um þessa lýð- ræðishugsjón. Þau öfl, sem berjast á móti okkur, vinna gegn henni. Arabarikin vinna gegn henni. Öll þau öfgaöfl, hvort sem er til hægri eða vinstri i heiminum I dag, Baader Meinhof I Þýzkalandi, nýnasistar í Argentínu, marxistar þar, fasistar þar, hryðjuverka - og ofbeldishópar njóta fjárhagslegs stuðnings Arabarikjanna. Allir þessir öfgahópar starfa gegn vest- rænu lýðræði. Við berjumst fyrir það. Oft að því er virðist aleinir. Þvi fórum við til En- tebbe-flugvallar á meðan allur heimurinn hofði aðgerðarlaus á. Hin svokallaða eining Araba- rikjanna er blekking. Á meðan þeir hafa einn sameiginlegan óvin — Israel — er þeim unnt að standa saman. Lítum t.d. á Sýriand og Jordan, hefðbundin fjandríki. Eða samskipti Sýr- lands og Egyptalands. Eða það sem nú er að gerast í Líbanon. Astandið I Líbanon verður ekki skilið án vitneskju um samskipti Sýrlands og Egypta- lands. Það er forsenda óeirð- anna þar. Assad Sýrlandsfor- seti stefnir að því sem nefnt hefur verið austurblokkin, þ.e. samband Jordans, Sýrlands og Líbanon, sem myndi mynda baug um norðaustanvert Israel — og vera undir forystu Sýr- lands. Því hefur Assad reynt að koma sér í mjúkinn hjá Jordan. Ég vil taka það sérstaklega fram hér, að þrátt fyrir áróður araba um hið gagnstæða, þá hefur Israel ekki átt neinn þátt I gangi mála I Libanon. Mig langar líka til að segja þér, bæt- ir sendiherrann við, frá nokkru sem ekki margir vita. Israel hefur starfrækt á landamærum Libanon og Israels hjálparstarf- semi, þar sem 12000 manns, ar- abar, hafa notið læknis og ann- arrar aðstoðar. Þetta vita ekki margir. —Þetta samtal fór fram á Hótel Sögu, á 5tu hæð. Þegar því lauk, gekk sendiherrann út að glugganum, sem sneri út á Háskóla Islands og sagði: Hugsaðu þér að ég standi nú efst á Golanhæðum og horfi yf- ir dal þar sem búa þúsundir gyðinga. Og alveg eins og ég gæti nú miðað byssu að einum glugganna á þessari byggingu — og hann benti á háskólann — svo auðvelt er það fyrir araba að miða á einn okkar. Við för- um fram á að búa við frelsi og öryggi, en þetta er það sem við búum við núna. Við treystum á stuðning rikja eins og ykkar, hefðbundinna lýðræðisrikja Norður-Evrópu í baráttunni fyrir þvi frelsi og öryggi. — Kínverjar Framhald af bls. 1. Brezhnes hélt, sýndi að afstaða Sovétríkjanna til Kína væri óbreytt. Skeyti Brezhnevs, sem birt var á forsíðum hélztu blaða Moskvu, er annað, sem hann sendir til Peking í nafni sovézka kommúnistaflokksins og annað skeytið, sem hann fær endursent. I mörg ár hefur ekki verið neitt samband á milli komm- únistaflokkanna tveggja. Rúss- ar héldu því fram að kinverski flokkurinn hefði hreinlega verið eyðilagður af maoistum og í Peking var sagt að endur- skoðunarsinnar hefðu lagt undir sig sovézka flokkinn. Þetta síðasta skeyti og skeyti, sem sent var I síðasta mánuði þar sem samúð var lýst vegna fráfalls Maós, voru álit- in sýna að sovézka stjórnin vildi kanna andrúmsloftið í Peking varðandi bætta sambúð landanna. Fréttamenn í Moskvu álita þó margir, að Kremlstjórnin hafi átt von á því að skeyti Brezhnevs yrði endursent og hafi ætlað að nota það til að sýna öðrum kommúnistaflokk- um sáttarvilja sinn. — Tekjum hjóna Framhald af bls. 1. þeim gert að greiða skatt af þeirri áætlun. 0 Reglum um söluhagnað og fyrningar verður breytt á þann veg, að engar verðbreytingar eru reiknaðar í fyrningum. Lausafé skal fyrnt af bók- færðu verði og söluverð eigna fært til lækkunar fyrninga- grunni. Heimild verði til endurfjárfestingar en að öðru leyti verður söluhagnaður skattskyldur. Svipaðar reglur munu gilda um mannvirki og aðrar eignir, þó er ekki gert ráð fyrir, að skattlagning sölu- hagnaðar af íbúðarhúsnæði verði aukin, né heldur að íbúðarhúsnæði verði fyrnan- legt. Söluhagnaður af landi og náttúruauðæfum, sem er um- fram verðbólguvöxt, verður skattlagður að fullu, enda sé andvirði ekki endurfjárfest í atvinnutæki. 0 Ekki er gert ráð fyrir stað- greiðslu skatta i þessum tillög- um en við það er miðað, að staðgreiðsla geti verið tekin upp í náinni framtíð. Þess vegna eru ekki gerðar tillögur um meiri háttar breytingar á ákvæðum núgildandi laga að þvi er varðar skattfram- kvæmd. — Pundið Framhald af bls. 1. gulli í Washington i gær. Helztu myntsalar í London settu gullúnsuna á 122.75 doll- ara siðdegis en þá koma þeir sér alltaf saman um verð, sem er viðmiðun fyrir markaðinn. Verð á gulli hefur farið lækk- andi í marga mánuði, en tals- menn gullmarkaða segja að enn sé of snemmt að segja hvort veruleg breyting sé að eiga sér stað á verðþróun. Tilkynnt var í Briissel að sér- fræðingar Efnahagsbandalags- ins ætluðu að hraða sér til að finna leiðir sem bandalagið get- ur farað til að hjálpa Bretum út úr efnahagslegum ógöngum sínum. Þó að ekki hafi verið gerð nein áætlun þar að lút- andi, þá er framkvæmdanefnd bandalagsins mikið í mun að aðstoða Breta og Itali, sem einnig eiga i örðugleikum, en liran hefur fallið verulega að undanförnu. Mun nefndin kanna vandamál beggja land- anna i næstu viku og væntan- lega leggja svo fram tillögur á fundi fjármálaráðherra — Fjárlagaræða Framhald af bls. 19 einnig kem til i ár<r-j voru lagðir á tveir nýir skattar. Annar var . : asKí * iu? skv. fyrrnefndum lögum um ráðstafan -*f f:válum, er nam 204 millj. kr. Hinn var vo . 65/1975. Nam það 1.208 millj. kr GjÖld 19 75 gerðu ráð fyrir gjöldum au fjárhæð ■" taða reiknings varð, eins og áður sag£ ða 1.351 millj. kr. umfram fjárlög eða Hluta þ. ' Æáiii; ar má rekja til áhrifa markaðra tekna og og gjaldaheimilda, sem ekki voru me ú hækkun er talin nema 2.654 >’ liti á bls 187 f rfkisreikn ingi. Á v gjalda um 1.005 millj. kr. skv. hc<, 'ðstafanir I efnahags og fjármálu >ra liða urðu umframgjöld- in 9.702 tn -i síðan leiða að verulegu leyti af ýrnsum ' kvæðum um fjárhagslegar skuldbir i.ðu hærri en gert var ráð fyririfjí li stó. - r ngreindar fjárhæðir sem hér seg Frarr: ■ rfkísins urðu 16.502 milfj. kr eð; ’ »9 þer af 329 milli kr. veg. Niðurgreiðslur urðu 5.586 millj. kr. eða 1.828 millj. kr. umfram fjárlög. Vextir og verðbætur af skuldum rfkissjóðs urðu 1.776 millj. kr. eða 1.064 millj. kr. umfram áætlun. Uppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir urðu 11 02 millj. kr. eða 386 millj. kr. umfram fjárlög, og jarðræktarframlög urðu 353 míllj. kr. eða 117 millj. kr. umfram fjárlög. Gjöld Vegagerðar urðu 4.005 millj. kr. eða 462 millj. kr. umfram fjárlög, en 603 millj. kr. umfrarn, ef tekið er tillit til lægri markaðra tekna að fjárhæð 141 millj. kr. en fjárlög áætluðu. Framangreindir fimm gjaldaliðir námu samtals 29.324 millj. kr. eða um helming heildargjalda. Er sú fjárhæð 6.369 millj. kr. umfram fjárlög af fyrrgreindum 11,4 milljörðum. Ef tekið er tillit til áhrifa markaðra tekna Tryggingastofnunar og Vegagerðar, er fjárhæðin 6.181 millj. kr. og f samanburði við heildarfjárhæðina 9.702 millj. kr., er það 64% eða tæplega 2/3 umframgjalda. Að öðru leyti visa ég f rfkisreikning og greinargerð rfkis- bókhaldsins, en minni þó á, að með gjöldum eru taldar 846 millj. kr. vegna ábyrgðar rfkissjóðs á verðtryggingu Verð- jöfnunarsjóðs fiskiðnáðarins samkvæmt lögum nr. 45/1975. Lántökur. Skuldir rfkissjóðs á lánareikningum við Seðlabankann hækkuðu um 3.548 millj. kr. án hækkunar gengísbundinna lána að fjárhæð 270 millj. kr. Skuldaaukn- ingin skiptist þannig, að 1 667 millj. kr. voru vegna breyt- ing? 4 rfirdráitarskuld rfkissjóðs á aðalviðskiptareikningi, 931 millj. kr. var vegna skulda Rafmagnsveitna rfkisins við rfkissjóð, 846 millj. kr. vegna Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðar- ins, 329 millj. kr. vegna skulda Vegagerðar við rfkissjóð I ársbyrjun og 200 millj. kr. vegna skulda hennar við rfkissjóð i árslok og 168 millj. kr. vegna hlutafjárframlags rfkissjóðs til íslenska Járnblendifélagsins. Samtals eru þessar fjárhæðir 4.141 millj. kr. Afborganir til Seðlabankans af lánum ásamt ýmsum öðrum minni háttar lánahreyfingum námu 593 millj. kr. á árinu. Aðrar lánahreyf- ingar á teknum lánum fólu f sér skuldaaukningu að fjárhæð 2.177 millj. kr. án gengishækkunar að fjárhæð 1.1o2 millj. kr. Þessi lántaka, nettó. var vegna landshafna 570 millj. kr, Vegagerðar 675 millj. kr , vegna hlutafjárframlags til ísl. Járnblendifélagsins 150 millj. kr. og vegna kaupa á togaran- um Baldri fyrir Hafrannsóknastofnun 322 millj. kr. Rfkissjóður tók á sig 130 millj. kr. lán til Rafmagnsveitna rfkisins og 70 millj. kr. til landshafna af spariskfrteinafé. Skyldusparnaður á árinu 1975 skv. lögum um ráðstafanir f efnahags- og fjármálum nam 239 millj. kr. og ersú fjárhæð færð sem tekin lán. Þessar fjárhæðir nema samtals 2.156 millj. krona. Aðrar lántökur og útgreiðsla afborgana svarar til inn- streymis að fjárhæð 21 millj. kr. Hlutafjáreign rfkissjóðs hækkaði um 456 millj. kr. á árinu og þar af voru 311 millj. kr. vegna hlutafjár f jslenska Járnblendifélaginu. Ég tel mig nú hafa gert nokkra grein fyrir afkomu rfkissjóðs á árinu 1975 og vænti þess, að þau atriði, sem ég hefi drepið hér á skýri í aðalatriðum fjármál rfkissjóðs á árinu 1975. "

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.