Morgunblaðið - 29.10.1976, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKTÖBER 1976
39
— Telja áfengi
Framhald af bls. 5
margir nota til framleiðslu áfengs
öls.
5. Fundurinn telur að veiting
vínveitingaleyfa til hótela og
félagasamtaka séu til tjóns heil-
' brigðu þjóðlífi. Fundurinn skorar
því á stjórnvöld að afnema þessar
leyfisveitingar og hamia þannig
mót vaxandi eiturefnaneyslu í
landinu. Ef hins vegar leyfisveit-
ingum verður haldið áfram skor-
ar fundurinn á sömu aðila að
hækka gjöld fyrir þessi leyfi að
mun. Leyfisgjöld félags fyrir vín-
veitingar á einni samkomu má
ekki vera lægra en 20 þúsund kr.
og árlegt gjald fyrir vlnveitinga-
leyfi hótels ekki minna en 1 millj-
ón króna.
Formaður félagsins er nú Björn
Jónsson bóndi að Kóngsbakka í
Helgafellssveit. — Fréttaritari.
— íslandsklukkan
Framhald af bls. 15
maður er karrnski að keyra ollu
miklar vegalengdir. Það er þægilegt
að leika undir stýri við niðinn frá
vélinni sagði Hafsteinn Hannesson
að lokum.
MIKIÐ ÁNÆGÐ,
EN LÍKA DÖSUÐ
— Nei ég verð ekki kölluð
Snæfriður endalaust, þetta llður hjá
eins og annað, segir Kristin Dröfn
Árnadóttir i viðtali við Morgunblaðið
en þessi 23 ára gamla stúlka fer með
hlutverk Snæfriðar Eydalin í íslands-
klukkunni á Sauðárkróki. Gerir hún
þessu erfiða hlutverki ótrúlega góð
skil þegar haft er i huga að hún er
þarna að leika sitt fyrsta meiri háttar
hlutverk.
— Ég var mikið ánægð að frum-
sýningunni lokinni, en lika dösuð.
segir Kristin. — Ég var sérstaklega
ánægð fyrir hönd Gisla Halldórsson-
ar með hve vel þetta gekk. Án hans
hefði íslandsklukkan ekki orðið neitt
i höndunum á okkur.
Við spyrjum Kristinu hvernig
henni falli við persónuna Snæfriði
jslandssól — Mér finnst hún stór-
kostleg manneskja. sem ekki ber
tilfinningar sinar utan á sér. Hún ber
takmarkalausa ást og virðingu til
tveggja manna. Árna og föður sins
og lendir i erfiðleikum þess vegna.
Ekki segist Kristin reikna með að
læra neitt i leiklist i framtíðinni þó
svo að vissulega þyki henni gaman
að leika. — Ég væri ekki að þessu
erfiði ef ég hefði ekki gaman af
þessu, en ég ætlaði mér nú reyndar
aldrei út i þetta. Það var aðeins fyrir
beiðni góðs vinar mins, sem ég fór
fyrst að vinna með Leikfélaginu,
segir „hið Ijósa man" þeirra Sauðar-
króksbúa að lokum.
— Opið bréf
Framhald af bls. 13.
einsýnt, aö. alþingi vilji nú, með
fyrrnefndum tillögum, ganga of
langt til móts við Reykjavíkur-
borg en sniðganga stofnanir, sem
eru jafnréttháar.
Það telst ekki viðunandi að
færa gjöf frá Alþingi á silfurfati
vegna persónulegrar reynslu
þingmanna af stofnun, meðan
þeir hafá ekki einu sinni haft
fyrir því að kynna sér verr settar
stofnanir, þar sem við liggur að
neyðaróp kveði daglega.
Það skal fram tekið, að það er
ekki ætlun undirritaðs, að
Alþingi leggi ekki Grensásdeild
lið sitt innan þess, sem teljast má
skynsamlegt og sanngjarnt, en
það má þá ekki vanrækja á öðrum
sviðum á sama tíma eða í langan
tíma eins og gert hefur verið.
Hér er um mikið þjóðhagsmál
að ræða. Endurhæfing á að vera
fyrir alla og hagsmunamál allra,
en það er ekki allra að fram-
kvæma hana svo að vel fari. Þetta
mál hlýtur að heyra beint undir
yfirmann heilbrigðismála I land-
inu, hæstvirtan heilbrigðismála-
ráðherra. Vona ég að hann sýni
endurhæfingarvandamálum
skilning á öllum sviðum og hjálpi
okkur sem erum i eldlínunni
betur en gert hefur verið og sanni
um leið fyrir þjóðinni að vald
hans nýtist Islendingum sem bezt.
Landspitalanum, 21. október
1976.
Páll B. Helgason, læknir
Sérfræðingur I orku- og endur-
hæfingarlækningum.
Dipl. of the American Board og
P.M.&R.
— Innláns-
aukning fÆ
verið þarna einhvern, þótt neikvæð
skrif hefðu ekki ein verið þar að
verki. Alþýðubankamálið sjálft hefði
auðvitað haft neikvæð áhrif á rekstur
bankans og hann beðið tjón af.
Bankinn hefði misst fasta viðskipta-
vini, en einhverjir nýir hefðu auðvit-
að komið í staðinn Af útlánum síð-
asta árs voru afskrifaðar 30 milljónir
króna og er það bpint reikningslegt
tap bankans „Við ætlum okkur ekki
að tapa meiru og nú er unnið að því
að fá betri tryggingar á útlánum."
60 til 70 milljónir króna geta banka-
lega séð talízt vantryggðar, en nú
hefur verið gengið frá tryggingu á
um það bil helmingi þeirrar upp-
hæðar og vonir standa til að trygg
ing fáist fyrir allri upphæðinni fyrir
áramót
Þessi útlán eru auðvitað ekki kom-
in inn aftur i bráð og rýrir það mjög
lausafjárstöðu bankans og þar með
möguleikana á að veita þá þjónustu,
sem óskað er.
Eins og áður hefur komið fram
óskaði fráfarandi bankaráð eftir
sakadómsrannsókn á viðskiptum
bankans við þrjá aðila, Air Viking,
Guðna Þórðarson og Sunnu. Þessir
aðilar höfðu á hendi um 15% af
heildarútlánum bankans Saksóknari
ríkisins ákvað siðar að vikka út rann-
sóknina, svo að hún næði til samtals
1 1 viðskiptaaðila bankans. Þessir
1 1 aðilar höfðu samtals 44% af
heildarútlánum bankans. Það kom
fram að sakadómsrannsóknin hefði
tekið mun lengri tíma, en bankaráð-
ið hefði talið heppilegt og jafnframt
hefðu skrif blaða um málið skert
traust á bankanum Hefði þetta
gengið svo langt, að efasemdir
hefðu vaknað um það, hvorí það
hefði i raun verið rétt að óska eftir
sakadómsrannsókninni. Benedikt
Davíðsson var spurður hvort núver-
andi bankaráð hefði af fenginni
þessari reynslu þá skoðun að ekki
ætti að skjóta slíkum málum sem
þessum i rannsókn. Hann vildi ekki
svara spurningunni, brosti aðeins
og viðstaddir skildu að hér væri um
álitamál að ræða Þá lét bankastjórn-
in í Ijós ótta sinn um að rannsóknin
gæti enn dregizt í 6 mánuði Saka-
dómarinn, Sverrir Einarsson, sem
væri með rannsóknina, hefði fjöl-
mörg önnur mál og hann gæti ekki
lagt þau til hliðar. Auk þess kom
fram að hann hefur aðeins ritara
sjötta hvern dag, svo að starfsað-
staða í sakadómi er ekki sem bezt
væri á kosið
Þá kom það fram á fundinum að
Alþýðubankinn lánaði þrotabúi Air
Viking 1.584 þúsund krónur eftir að
öll viðskipti höfðu verið stöðvuð
milli þessara aðila. Þetta lán var veitt
til þess að unnt yrði að kaupa þriðju
þotuna, sem Air.Viking hafði haft á
leigu á kaupaleigusamningi. Ef vélin
hefði ekki verið keypt fyrir 10 jan-
úar síðastliðinn hefði þrotabúið
misst 8 5% af greiddri leigu fyrir
þotuna og skipti það milljónatugum
ef ekki hundruð milljónum Þvi veitti
bankinn þetta lán, gegn traustri
tryggingu, og fyrir bragðið má bank-
inn eiga von á að endurheimta
nokkrar milljónir af útistandandi
skuldum í þrotabúi félagsins. Al-
þýðubankinn lánaði þessa fjármuni
ásamt tveimur stærstu lánardrottn-
um Air Vikings, Samvinnubankan-
um og Olíufélaginu, og voru þessar
tæplega 1.6 milljónir króna hlutur
bankans í því heildarláni
Þá var loks vikið að því, að komið
hefði fram í blöðum, að rangt hefði
verið bókað það sem gerzt hefði á
bankaráðsfundum. Þessu svöruðu
þeir félagar með því að lesa upp
bókun bankaráðsfundar hinn 1 7
nóvember 1 975, en þar segir efnis-
lega: Einar (Ögmundsson) spurði
bankastjórana, hvort þeir hefðu ekki
báðir samþykkt viðkomandi útlán.
Jón (Hallsson) svaraði því játandi,
en sagði að vegna fjarveru sinnar
erlendis hefði hann ekki vitað um
allt.
Stefán Gunnarsson bankastjóri
sagði, er hann hafði lesið upp bók-
unina. Um þetta „já" stendur styr-
inn Það kom fram á fundinum að
samkvæmt gögnum bankans hefðu
bankastjórarnir oftast samþykkt út-
lánin báðir, en stundum annar hvor.
Þá kom einnig fram að þann tima,
sem Jón Hallsson, bankastjóri hefði
verið erlendis, hefði lánsupphæð Air
Vikings aukizt mjög verulega
Að lokum sagði Ingi R. Helgason,
lögfræðingur bankans, að hann væri
viss um að er lokið yrði sakadóms-
rannsókn myndi saksóknari ríkisins
ekki sjá ástæðu til ákæru á hendur
nokkrum manni í bankanum hefðu
ekki verið brotin nein lög, er vörð-
uðu hegningu. Hins vegar hefðu
verið brotnar starfsreglur, sem hver
og einn banki þurfi að hafa í heiðri.
— Ráðstefna
Framhald af bls. 5
Þessi ráðstefna er liður I því aó
vekja attiygli opinberra aðila og
raunar sjáandi fólks almennt á
sérþörfum hinna blindu.
Ráðstefnan hefst föstudags-
kvöld (29. okt.) kl. 20.00 og
verður framhaldið laugardag kl.
10.00—16.00.
■'.& IV
\
'ý Á
Nú kynnum við tvö ný fatasnið
frá Colin Porter:
SAVIL 0G MILAN0
framleidd úr ensku ullarefni, einnig úr
hinu vinsæla íslenska Cavalery Twill
ofnu efni sem framleitt er sérstaklega
fyrir okkur af íslenskum aðilum
Veljum íslenskan fatnað
£ TÁ****^
A‘S'*'
Á
Nýjar vörur fyrir
veturinn m.a.
ullarfrakkar,
ullarsailor,
peysur
o.fl.
/
yi
jEBB !
LÆKJARGÖTU 2 - SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155