Morgunblaðið - 03.11.1976, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 03.11.1976, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1976 13 Ólympíuskákmótið í Haifa: r Islendingar standa höll- um fæti gegn Filipseyjum Haifa, 2. nóvember, einka- skeyti til Mbl. frá Einari S. Einarssyni og Braga Halldórs- syni: 1 7. UMFERÐ f dag mætti fslenzka sveitin þeirri frá Filipseyjum. Þremur skákum lauk, tveimur með jafntefli en ein tapaðist og standa lslendingar þvf höllum fæti f viðureigninni, hafa hlotið einn vinning á móti tveimur en ein skák fór f bið. lslendingar eru núna f 12—15. sæti með 17 vinninga, en Hoilendingar eru enn efstir með 22 vinninga, Englendingar hafa 21H vinn- ing, Bandarfkin 21 vinning, Argentfna 20 vinninga og Chile 19 H vinning. Holland og England gerðu jafntefli f kvöld 2:2, Bandarfkin unnu Argentfnu 2M:VA og Israel hefur yfir 2:1 á móti Þýzka- landi. Stórmeistararnir Guðmundur Sigurjónsson og Torre hvfldu í þetta sinn. Helgi Olafsson tefldi við Rodriques á 1. borði og hafði svart. Skákin fór í bið, en lauk með jafntefli. Magnús Sólmundarson tefldi við Mascarinas á 2. borði og átti jafna skák. En hann lék slysa- lega af sér, missti mann og tapaði skákinni. Margeir átti i höggi við Catuela og varð skák- in jafntefli. Björgvin Víglunds- son tefldi við Estimo og fór skákin tvisvar í bið og er mjög tvfsýn. SNILLDARSKAK GUÐMUNDAR I 7. umferðinni tefldu Is- lendingar við Austurríkismenn og unnu eins og fram kom f blaðinu í gær með 2W vinningi gegn 1V4. Þessi sigur var sá sæt- asti í mótinu til þessa. Guðmundur Sigurjónsson lagði stórmeistarann Robatch að veili í snilldarlegri sóknar- skák og fylgir hún hér á eftir. Helgi Ólafsson tefldi við alþjóð- lega meistarann Duckstein, sem frægur er fyrir leiftrandi sóknarskákir og hefur meðal annars unnið Friðrik Ólafsson og sjálfan Botvanik. Helgi varðist sóknartilraunum Duck- steins af seiglu og stóð betur i lokin þegar Austurríkismaður- inn sá þann kost vænstan að ná jafntefli með þráskák. Viðureign Björns Þorsteins- sonar og Hoelzl á þriðja borði varð söguleg í meira lagi. Hoelzl valdi Aljekinvörn gegn Kóngspeðsleið Börns. Björn fórnaði peði í miðtaflinu og náði hættulegum sóknarfærum á Kóngsvæng. Björn komst í tímahrak meðan andstæðingur hans virtist ekkert þurfa að hugsa sig um. Björn lenti tvisvar í tímahraki í sömu set- unni og varð því að ná 56 leikja markinu. Þegar fimm tíma setunni var lokið hafði Björn notað þrjá og hálfan tfma en andstæðingur hans einn og hálfan. Herbragð Austurríkis- mannsns heppnaðist, Björn lék af sér í tímahrakinu og and- stæðingurinn náði að þráskáka í 57. leik. Magnús Sólmundar- son tefldi Caro-Kann vörn við Roehrl. Magnús fékk þrengra tafl út úr byrjuninni en rétti smátt og smátt úr kútnum og komst út I drottningarendatafl með peð yfir. Ekki leyndist vinningur í biðstöðunni, þannig að Magnús valdi þann kostinn að þráskáka. Þannig lauk þremur skákum af fjórum með þráskák. SKAKIN VIÐ ROBATCH Hér fer á eftir sigurskák Guðmundar við Robatch. Skýr- ingar eru eftir Guðmund sjálfan og Braga Halldórsson: Hvftt: Guðmundur Sigurjóns- son Svart: Robatsch Sikileyjar-vörn. 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6. Bc4 e6 7. Bb3 Be7 8. Be3 a6 9. f4 (oft- ast er hér leikið 9. De2 og mark- ar sá leikur upphafið á Velimirovic-árásinni, er nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir. Guðmundur kærði sig ekki um að tefla hana vegna þess hve hún hefur verið rann- sökuð mikið nýlega. Leikurinn, sem Guðmundur velur, er hins vegar aiveg brúklegur enda lék Fischer þannig margsinnis f þá góðu gömlu daga meðan hann var og hét). 9. — d5? (tvfeggj- aður leikur sem tæplega á rétt á sér svona snemma tafis. Spassky kaus að hróka í 4. ein- vígisskákinni gegn Fischer). 10. e5 Rd7 11. Dh5 Rc5 12. 0-0 (eftir þennan leik verður svart- ur stórlega að vara sig á áætlun- inni Hf3 og síðan Hh3) 12. — Rxb3 13. axb3 Bc5 14. Rce2 0-0 15. Khl (nú hótar hvítur að vinna mann með 16. Rxc6) 15. — Db6? (þennan leik verður að telja vafasaman. Betra var að leika 15. — De7 því að þar er svarta drottningin til taks í vörninni). 16. c3 Bxd4, 17. Rxd4 Rxd4, 18. b4 a5 (ástæðulaust var að láta peðið á b3 af hendi) 19. Bxd4 Db5, (þessa stöðu hefur Robatsch greinilega vanmetið, þvf að hvítur heíur einn hag af því að biskuparnir skulu vera mislitir. Það sannar raunar eina reglu í sóknartaflmennsku að sá sem stýrir sókninni hafi hag af mislitum biskupum) 20. Hf3 (hvítur hefur í frammi beinar hótanir með Hg3 eða Hh3. Svartur verður að gera við þessu) 20. — De2, 21. Hgl (allt hvíta liðið er búið til sóknar) 21. — axb4, 22. Bc5 He8, 23. Dh4!! (hárnákvæmur leikur. Verra er að leika 23. Bxb4 Dxb2 þvf að þá hótar svartur að leika 24. — Hal. Biskupinn stendur bæði í sókn og vörn á c5) 23. — Dxb2 (ef svartur leikur 23. — b6 svarar hvftur með 24. Be7 því að þá dugir ekki 24. — Dxb2 vegna 25. Hg3 Hal Hxq7 og svartur er óverjandi mát) 24. Hg3 Hal, 25. Dh6 Hxgl, 26. Bxgl g6, 27. Hh3 Dbl (ef svart- ur reynir að leika 27. — Dcl leikur hvítur 28. Dxh7 Kf8, 29. Dh4 og síðan 30. Df6 og mát verður ekki varið á h8) 28. f5!! (eftir þennan leik eru svarti £ I 1 i i i it i E A i : : \ > ; i [ '= M ! 1 I&1& allar bjargir bannaðar t.d. 28 — gxf5, 29. Hg3 Kh8 30. Dg7 mát eða 28. — Dxf5, 29. Dxh7 Kf8, 30. Bc5 He7, 31. Dh8 mát eða 28. — exf5 29. Dxh7 Kf8 30. Dh8 Ke7, 31. Df6 Kd7, 32. Dd6 mát) svartur gafst upp. — Bylting Framhald af bls. 1. ingu frá hernum sem lesin var f útvarpinu. Sfmasamband við Bujumbura hefur verið rofið og útgöngubann fyrirskipað frá sólsetri til dögunar. Flug- vél Sabena-flugfélagsins fékk ekki að lenda samkvæmt áætl- un i Bujumbura f dag. Herinn segir í tilkynningu sinni að hann hafi neyðzt til að taka völdin vegna „græðgi klíku eigingjarnra stjórnmála- manna í völd og auð og versn- andi ástands i efnahagsmál- um“. Ókunnugt er um afdrif Micombero fráfarandi forseta sem byltingarmenn sögðu þjást af ofþreytu og er lýst sem ofdrykkjumanni. Hann hefur verið við völd f 10 ár og inn- leiddi lýðveldi minnihluta- þjóðarinnar Tutsi í stað kon- ungsrfkis Hutu-manna. Byltingarleiðtogarnir eru einnig taldir heyra til Tutsi- þjóðinni þar sem flestir leið- togar Hutu-manna voru myrtir þegar þeir gerðu árangurs- lausa tilraun til að bola Tusi- mönnum frá völdum 1972. Starfsmenn Sameinuðu þjóð- anna sögðu að Tusi-menn hefðu myrt að minnsta kosti 80.000 Hutu-menn þegar þeir bældu niður uppreisnina, Micombero sagði að 100.000 hefðu veriö myrtir og sam- kvæmt öðrum heimildum voru 150.000 myrtir. — írakar Framhald af bls. 1. sem hafa verið gerðar til að leysa deilumálin í Lfbanon. A fundi æðstu manna Araba- ríkjanna í Karíró var írak éina Arabalandið sem lagðist gegn áætluninni um frið f Líbanon sem samþykkt var á fundi sex Araba- leiðtoga í Riyadh. Irakar hafa hótað að láta ,til skarar skrfða gegn Sýrlendingum til að trufla tilraunir þeirra til að stilla til friðar i Líbanon sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum. A fundinum f Riyadh var dvöl sýrlenzka herliðsins f Líbanon samþykkt og miðlað málum í deil- um Sýrlendinga og palestfnska skæruliðaforingjans Yasser Ara- fats. _____ ^rttacto con ml £uta Viajo ícargo do \a Aflet'C'.a de Viaies Me !!am0 M,direcciónes Mi ðr>ia ! . iiama Telt Te» í skemmtiferö skal okkur líöa vel. Aukið öryggi eykur á vellíðan. Öryggiskortiö eykur öryggi þitt og þinna. Villist einhver eða lendi í óhappi getur kortið hjálpað. Á því er beiðni um aðstoð, á tungu landsbúa. Einnig getur það upplýst blóðflokk eigandans og fleiri öryggisatriði. Kortið fá allir sem fara í hópferð á okkar vegum. oamvinnu- feröir I Ferðaskrifstofa-Austurstræti 12 sími 2*70*77

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.