Morgunblaðið - 03.11.1976, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.11.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1976 15 Viðræður við EBE á morgun? Briissel, 2. nóv. NTB. Reuter. DIPLÓMATAR í Briissel sögðu f dag að fresta yrði fyrirhuguðum viðræðum lslendinga og Efna- hagsbandalagsins af tæknilegum ástæðum. Eins og fram hefur komið f Mbl. hafa talsmenn utan- rfkisráðuneytisins upplýst, að engar ákvarðanir hafi verið tekn- ar um viðræður við EBE. Fyrsti fundurinn fer fram eftir nokkra daga og formaður fslenzku samn- inganefndarinnar verður trúlega Einar Agústsson utanrfkisráð- herra samkvæmt heimildunum. Fréttaritari NTB bendir á, að Bretar vilji hraða viðræðunum þar sem samningur þeirra og Is- lendinga renni út 30. nóvember en segir að íslendingar fari sér að engu óðslega. Stjórnin f Reykja- vík bíður eftir formlegri staðfest- ingu EBE á stækkkun landhelgi bandalagslandanna i 200 mílur svo hægt verði að ná samkomu- lagi um tímasetningu viðræðn- anna segir fréttaritarinn. I kvöld er haft eftir heimildum í aðalstöðvum EBE að viðræður bandalagsins og tslands gætu haf- izt á morgun, fimmtudag. Búizt var við að gengið yrði formlega frá samningnum um 200 mílurnar f kvöld og það var sögð ástæðan fyrir því að viðræðurnar hefðu dregizt að sögn Reuters. Brezki utanríkisráðherrann, Anthony Crosland, sagði eftir fund utanríkisráðherra EBE í Haag á laugardag þegar stækkun fiskveiðilögsögu bandalagsland- anna var ákveðin — að viðræður hæfust við Islendinga á miðviku- dag. Viðræður verða einnig hafn- ar við Norðmenn, Bandaríkja- menn, Kanadamenn og fleiri þjóðir. Tilgangi viðræðnanna er þann- ig lýst að reynt verði að komast að samkomulagi um rammasamning sem síðar verði hægt að setja inn f nákvæmari ákvæði, til dæmis um fiskkvóta. Enn eykst vald Indiru Nýju Delhi, 2. nóv. AP. NEÐRI deild indverska þingsins samþykkti f dag lagafrumvarp, um breytingar á stjórnarskránni sem þykir marka enn ein tfma- mót þar í landi, en þar er kveðið á um enn meiri völd til handa Indiru Gandhi forsætisráðherra. Þar er kveðið á um nánast ótak- markað vald til handa forsætis- ráðherranum f öllu framkvæmda- legu tilliti. Aðeins fjórir urðu til að greiða atkvæði gegn þessum stjórnar- skrárbreytingum, allir aðrir voru með þeim. Ríkisstjórnin segir að samþykkt þessara breytinga muni verða til að hraða félagslegum og efnalegum umbótum i landinu en hins vegar staðhæfir stjórnarand- staða landsins, sem hefur reyndar verið múlbundin að mestu, að samþykktin hafi f för með sér að Indland sé endanlega komið I rað- ir algerra einræðisríkja. I frum- varpinu er stjórninni meðal ann- ars veitt heimild til að banna „andþjóðlegar“ hreyfingar og hópa og gera flestar þær ráðstaf- anir sem þurfa þykir gegn þeim sem dirfast að rísa upp gegn stjórninni. „Þetta frumvarþ mun opna flóðgáttir fyrir einræði í land- inu,“ sagði P.G. Mavalankar, einn af fáum þingmönnum, sem greiddi atkvæði gegn frumvarp- inu, en langflestir þingmenn stjórnarandstöðunnar mættu ekki til fundarins f dag í mótmæla- skyni við frumvarpið sem þeim var kunnugt um að ætlunin var að samþykkja. „Guð mun ekki fyrir- gefa yður þá synd sem þér eruð að drýgja með þessu,“ sagði Mavalankar. Með frumvarpinu greiddu atkvæði 366 þingmenn i neðri deildinni. Frumvarpið á eft- ir að fara fyrir efri deild þingsins og mun verða lagt fyrir hana í næstu viku. Það er þó nánast formsatriði eins og nú er málum háttað. Enda þótt frumvarpið og sam- þykkt þess kæmi ekki á óvart þótti þó sumum sem þar væri enn gengið lengra en búist hafði verið við og Indira Gandhi héldi nú nánast landinu i helgjargreipum, þegar það væri orðið að lögum. Indira Gandhi. Kortin sýna styrkleikahlutföll frambjóðenda í kosningunum f Bandaríkjunum 1968 og 1972. 1968 111572 1.0AK0TA IDAHO / /S DAK0TA r-— /WYOMJNG ' NtB'RASKAX I0WA KANSAS ] MIS NEW HAMPSHIRE VERMONT^ ^MAINE felASS. M. MARYLO / NEW arizona/ mexico DjC. 1 1 HUMPHREY NIXON WMk WALLACE HAWAÍÍ Tl^ida 1972 M0NTANA NEW HAMPSHIRE 7~-flDAHO / /S DAKOTA / T^Jwyoming I o /nevaoa/ L___L£Brask; \ / UTAH / ] % \ I /cOLORADO | H NIXON l l MC60VERN / NEW arizona/ mexico Samtals 538 kjörmenn velja Bandarfkjaforseta og nægir frambjóðanda að fá 270 kjörmenn til að ná kosningu. Á kortinu er sýndur kjörmannafjöldi hvers ríkis. Kalifornía hefur flesta kjörmenn eða 45 talsins og næst er New York með 41 kjörmann. PólitLskttil- ræðiíParís París, 2 nóv Reuter SPRENGING skók i dag íbúðarhús, þar sem þekktur hægrisinnaður stjórn- málamaður býr, með þeim afleiðingum að barn þeyttist út um glugga á sjöttu hæð og fimm manns slösuðust. Stjórn- málamaðurinn Jean Marie Le Pen, sem m.a. hefur boðið sig fram til forseta, slapp hins vegar ómeiddur. Enginn þeirra sem slasaðist er talinn í lífshættu. Ekki er vitað hverjir stóðu að sprengjutilræði þessu. Diplómatar frá N-Kóreu ollu slysi Kaupmannahöfn 2. nóv. AP DANSKA lögreglan lætur nú fara fram rannsokn á ákæru þess efnis að þrfr nýir diplómatar frá Norður-Kóreu hafi valdið um- ferðarslysi, .þar sem einn maður slasaðist. Þeir eru bornir þeim sökum að hafa ekið yfir á rauðu ljósi og sfðan horfið af slysstað áður en lögreglan kom á vettvang. Talsmaður danska utanrfkisráðu- neytisins sagði, að þetta mál yrði litið mjög alvarlegum augum, ef það sannaðist, að rétt væri með farið. Mennirnir þrír voru nýkomnir til Danmerkur til að taka þar við störfum af þremur öðrum dipló- mötum, sem reknir voru úr landi í fyrra mánuði vegna þess að þeir voru sagðir hafa staðið fyrir eitur- lyfja- og áfengissölu í stórum stíl. Lögreglan segir, að maður á vél- hjóli hafi skýrt frá því, að bifreið hafi ekið á sig á miðvikudags- kvöld. Hann lagði á minnið skrá- setningarnúmer bílsins og kom í ljós, að bifreiðin var í eigu norður-kóreanska sendiráðsins I Höfn. Maðurinn, sem slasaðist, liggur á sjúkrahúsi. Hann gaf all- greinargóða lýsingu á mönnunum í bílnum. Talsmaður sendiráðsins staðfesti að bíll þess hefði lent í árekstri, en annar bíll hefði ekið á hann og því hefðu Norður- Kóreumennirnir haldið á braut. Neitaði hann siðan að segja nokkuð frekar. Pólitísk skotárás 1 Jamaica Kingston, 2. nóv. Reuter. LEIÐTOGI stjórnarandstöðunnar á Jamaica, Edward Seaga, og Hugh Shearer, fyrrverandi for- sætisráðherra, urðu fyrir skotárás þegar bilalest stuðningsmanna þeirra f kosningunum f desember ók framhjá aðalstöðvum stjórnar- flokksins PNP. Hvorki Seaga né Shearer urðu fyrir skoti en 10 særðust, þar af sex alvarlega. Stuðningsmenn þeirra flæmdu burtu árásarmenn- ina og brenndu til ösku skrifstofu PNP í York Town, 70 km frá höfuðborginni Kingston. ■ ■■ \f/ ERLENT Mannræn- ingi tekinn Milanó, 2. nóv. Reuter. LÖGREGLAN f Mflanó kvaðst f dag hafa handtekið 28 ára gamla vestur-þýzka konu sem leitað hef- ur verið sfðan f fyrra f sambandi við ránið á stjórnmálamanninum Peter Lorenz. Stúlkan heitir Susanne Marlene Mordhost og ,er hún talin félagi I stjórnleysingja- samtökunum Bader-Meinhof. Hún náðist þegar hún var að fara á fund með þekktum skæru- liðaforingja ftölskum að sögn lögreglu. Hún mun ekkí hafa veitt viðnám við handtökuna. Fylgzt hefur verið með stúlkunni um skeið. Italska lögreglan hefur leit- að hennar að beiðni Interpol um alllanga hríð, eftir að grunur kom upp um að hún hefði komist til ltaliu. Bjóðum nú dönsk kjólfót í öllum algengustu stœrðum,einnig vesti, slaufur og annað það, sem þeimfylgir. KÓRÓNA <SS3> BÚÐIRNAR*** Herrahúsið Aóalstræti4, Herrabúðin við Lækjartorg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.