Morgunblaðið - 03.11.1976, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.11.1976, Blaðsíða 18
1 g MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1976 SVOLURNAR halda markað á laugardag SVÖLURNAR félag fyrrverandi og núverandi flugfreyja, halda markað f Kristalssa! Hótels Loft- leiða n.k. laugardag. Allur ágóði af sölunni rennur til styrktar þroskaheftum, en frá upphafi hefur félagið starfað i þágu þeirra, sem minna mega sin í þjóðfélaginu, og hefur þegar á þessu ári lagt fram 1.3 milljónir króna i þessu skyni. A markaðnum á laugardaginn verður mikið af munum, sem m.a. eru ætlaðir til jólagjafa. Þar verða einnig seld jólakort félag- sins. Markaðurinn í Kristalssalnum verður opnaður kl. 2 eftir hádegi. — Setuverkfall' Framhald af bls. 32 yfir framfærslukostnað hans og barna. Töldu fulltrúar námsmanna einnig að misræmis gætti milli einstaklinga, sem búa I foreldra- húsum og þeirra, sem búa utan foreldraheimilis. Þannig eru t.d. frjálsar tekjur (þær tekjur, sem menn mega hafa án þess að lán skerðist) einstaklings utan heimahúss 234 þús, en fyrir ein- stakling í heimahúsum aðeins 39 þús. Þetta telja þeir að hvert tveggja i senn Ietji menn til vinnu og hvetji þá til að flytjast að heiman. 1 reglugerðinni um námslán eru taldir upp ýmsir verkmennta- skólar sem einungis eiga kost á námsaðstoð eftir þvi sem sérstök fjárveiting leyfir. Benda þeir á að þetta komi ákaflega hart niður á verkmenntunarskólunum á sama tíma og áherzla sé lögð á aukna verkmenntun í landinu. Sagði t.d. fulltrúi Stýrimannaskólans, sem staddur var á fundinum, að fyrir- Hér eru félagskonur önn- um kafnar við að pakka jólakortum félagsins, sem seld verða á markaðnum. sjáanlegt væri að þar yrðu margir að hætta námi fyrir áramót vegna slæmrar lánafyrirgreiðslu. Annað atriði bentu fulltrúar námsmsnna á, sem þeir telja að jaðri við lögbrot. I hinum nýju úthlutunarreglum er m.a. fjallað um rétt til námsaðstoðar: Þar segir m.a. svo: „Veitt er námsað- stoð til náms, sem tekur a.m.k. eitt námsmisseri, enda sé eigi skemmra til námsloka en tvö námsár." Sjötta grein laganna segir hins vegar: „Námsmaður skal að jafnaði hafa heimild til að taka lán á hverju misseri meðan hann er við nám." Samkvæmt áðursögðu segja úthlutunarreglur hins vegar að hann fái ekki lán, ef nám hans varir skemur en tvö ár. Bent var á ýmis fleiri atriði s.s. þa óreiðu.sem verið hefur I lána- málum námsmanna á fyrsta ári. Niðurstaðan var sú að yfirhöfuð telja námsmenn að hin nýju lög beinist að því að skerða kjör þeirra og að þau bendi að mörgu leyti til að ríkisvaldið sé fjand- samlegt námsmönnum. Náms- menn telja hins vegar að með visitölutryggingu lána ættu þeir að fá rýmri möguleika til náms- lána. — Yfir 80% Framhald af bls. 32 yfir 80% félaga í SÍB. Þá kvaðst Valgeir vita, að Sunnlendingar ætluðu að þinga um málin í gær- kvöldi en ekkert hafði hann heyrt um það hvað kennarar á Norður- landi og Vestfjörðum hygðust gera. Valgeir sagði að lokum, að Sam- band fslenzkra barnakennara hefði nýlega náð samningum við ríkið um leiðréttingar á misrétti, sem viðgengist hefði, en þó ekki nærri öllum atriðum. Sambandið hefði þó aflýst fyrirhuguðum að- gerðum, þ.e. fjöldauppsögnum. — 37 járn- bindingamenn Framhald af bls. 32 væri kannski á ákveðinn hlut og þremur til fjórum mönnum boðið að fjarlægja hann fyrir ákveðna upphæð. Þrír menn fjarlægðu sið- an hlutinn á 12 klukkustundum og fengju fyrir það á milli 500 og 600 þúsund krónur. Þannig eru fjölmörg dæmi. Menn hefðu t.d. haft 250 þúsund krónu tekjur á 11 dögum. Tekjur manna við Sigöldu eru i mörgum tilfellum i engu sam- ræmi við samninga verkalýðsfé- laganna og félögin eiga engan þátt I þessum sprengiboðum. A milli manna f verkalýðshreyfing- unni er talað um brennivínsbón- usa og er sú nafngift ekki gripin úr lausu lofti. Járnamennirnir hafa verið með góðar stöðugar normaltekjur. Járnabindinga- menn úr Rangárvallasýslu hafa fremur verið kyrrir en þeir af þéttbýlissvæðunum hafa frekar farið. Er jafnvel búizt við að þeir hafi verið að tryggja sér vinnu í vetur og að þeim hafi boðizt hún með þvi skilyrði að þeir kæmu strax. Sigurður sagði að brotthvarf mannanna gæti haft slæm áhrif á að tækist að komsta stöðinni í gang og sagði Sigurður að hann harmaði að þetta skyldi koma nú upp. Er það gjörsamlega gagn- stætt vilja stéttarfélaganna og i gær sendu félögin í Rangárvalla- sýslu sérstaka viðvörun tii sinna manna um að hugsa sig vel um áður en þeir tækju ákvörðun um að fara, þvi að á svæðinu væru slík verðmæti. Sigurður sagði að 10 manna harðsnúinn hópur járnamanna væri eftir á staðnum, fólk sem endurréð sig. Nú verður hins vegar reynt að fá vana járna- menn, en hvort það tekst, sagðist hann ekki vita eða hvort þessum 10 tækist að ljúka verkinu. Slíkt gæti líka verið háð veðri. Sigurð- ur tók fram, að ekkert athugavert væri við það að mennirnir hefðu farið, þar sem þeir hafi verið laus- ráðnir og þeir hafi ráðið þvf. Hins vegar sagðist Sigurður telja brott- hvarf þeirra bagalegt og ekki sízt þegar járnamenn eins og t.d. þeir úr Rangárvallasýslu hefðu ekki í neitt annað verk að fara. Mikið ríður á fyrir þjóðina alla að það takist að koma Sigölduvirkjum I gagnið á tilsettum tíma og það ræðst nú á næstu dögum, hvort það tekst. Pétur Pétursson, starfsmanna- stjóri Energoprojekt, kvaðst ekki vilja segja að málið væri mjög alvarlegt. Hann kvað mennina vera I rétti að því leyti að öllum hafi verið sagt upp frá og með 1. nóvember, en síðan hefði öllum boðizt að Iausráða sig til 18. nóvember. Langflestir hefðu tek- ið þvi boði, en ekki 37 járnabind- ingamenn. Pétur sagði að þeir hefðu borið fram nýjar kröfur sem voru þannig vaxnar að ekki var með nokkru móti unnt að ganga að þeim og þá tóku þeir uppsögnina og fóru. Pétur sagði að Energoprojekt-menn álitu að brotthvarf þessara manna gæti ekki haft úrslitaáhrif á það hvort orkuverið kemst í gagnið á réttum tíma. „Við erum að skipuleggja nýja flokka, sem við reiknum með að komist mjög fljótlega í gang, færa til menn og annað slíkt. Hér eru nú á fimmta hundrað menn, sem allir hafa samþykkt lausráðn- ingu til 18. nóvember. Pétur Pétursson sagði að kröfur járnabindingamanna hefðu verið um mjög hækkaðan bónus og m.a., sem gilti aftur i tímann. A það gátu júgóslavarnir ekki fall- izt, en gerðu mönnunum hins veg- ar tilboð um að þeir héldu sínum bónus alveg til 18. og það jafnvel þótt verkefnið entist ekki til þess tíma. Eftir eru smáverk hingað og þangað í járnabindingum. Lfkleg- ast kvað hann eftir að leggja um 100 tonn af járni. „Við erum alveg jafn bjartsýnir eftir sem áður,“ sagði Pétur, „hér er nú sól og sumar og verkið gengur ágætlega. Sjáum við enga ástæðu til annars en að unnt verði að ljúka þvi fyrir áramót, að svo miklu leyti, sem til var ætlazt." Halldór Jónatansson, aöstoðar- framkvæmdastjóri Landsvirkjun- ar, kvað brotthvarf járnabind- ingamannanna ekki hafa nein af- gerandi áhrif hvorki til né frá á það, hvort tækist að koma orku- verinu í gang fyrir áramót. Þegar hafa verið ráðnir aðrir menn í staðinn, vanir járnabindinga- menn og ekki síðri menn nema síður sé. Sagði Halldór að talið væri að ekki þyrfti eins marga menn og fóru á brott og þvf væri þegar búið að ráða nægilegan fjölda manna til þess að unnt yrði að ljúka þvi sem ljúka þyrfti á tilsettum tfma. Hefur því brott- hvarf mannanna ekki minnstu áhrif á endanleg lok þeirra verk- hluta, sem eftir eru. Halldór sagði að brýna nauðsyn bæri til að koma Sigölduvirkjun i gang nú, því að Landsvirkjun ætti nú orðið fullt í fangi með aó anna þörfinni í afli á álagstoppum, sem kæmu á veturna. Því væri brýnt að koma fyrsta hreyfli í gang fyrir áramót. OKKAR FRAMTÍÐ í REYKJAVÍK HVERFAFUNDIR BORGARSTJÓRA 1976 <- Birgir ísieifur Gunnarsson borgarstjóri flytur ræðu og svarar fyrirspurnum fundargesta Háaleitishverfi, Smáíbúða- Bústaða- og Fossvogshverfi Miðvikudagur 3. nóvember kl. 20.30. FÉLAGSHEIMILI TAFLFÉLAGSINS GRENSÁSVEGI 44—46 Fundarstjóri: Fundarritari: Jón Magnússon ^an 'ð/íum lögfræðingur lögfræðingur /------------------\ UMHVERFIÐ ÞITT Á fundunum verður: 1. Sýning á líkönum og upp- dráttum af ýmsum borgar- hverfum og nýjum byggóa- svæðum. 2. Litskuggamyndir af helztu framkvæmdum borgarinn- ar nú og að undanförnu. 3. Skoðanakönnun um borg- armálefni á hverjum hverfafundi og verða nið- urstööur birtar borgarbú- um eftir að hverfafundum lýkur V__________________J Reykvíkingar — tökum þátt í fundum borgarstjóra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.