Morgunblaðið - 03.11.1976, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.11.1976, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1976 Lærið vélritun Ný námskeið eru að hefjast. Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar. Engin heimavinna. Innritun og upplýsingar ísímum41311 og 21719. Vélritunarskólinn, Suðurlandsbraut 20, ^ ÞórunnJH^Felixdóttir^^ ÚTHVERFI Blesugróf Breiðagerði Upplýsingar í síma 35408 Alger bylting í gerð myndlampa. Línukerfið gefur miklu skarpari mynd, jafnvel í birtu. Litstilling er auðveldari. Ánægjan að horfa á þessí nýju NORMENDE litsjónvörp e/ margföld. V_________________________________________________________7 Eigum til örfá litsjónvörp. 1800 tommu — Verð 210.430,9 1400 tommu — Verð 168.350,— NÓATÚNI, SÍMI 23800, KLAPPARSTÍG 26, SÍMI 19800. —ogbjóðasttil þess að koma FRÍ að kostnaðarlausu — ÉG TEL að þeir fundir Frjáls- íþróttasambands Evrópu sem fram fóru á hótel Loftleiðum um helgina eigi eftir að verða okkur til góðs þegar fram líða stundir. Allir fundar- menn létu I Ijós mikla ánægju með þetta þing. Okkur var óspart þökkuð framkvæmd þess sem allir útlending arnir sögðu að tekist hefði með ágætum. Ég held þess vegna að það megi fullyrða að þau kynni sem hér hafa skapast eigi eftir að verða okk- ur til góðs varðandi fyrirgreiðslu og samskipti almennt. Þetta þing. sem er fyrsta Evrópuíþróttaþing, sem haldið er hérlendis, tel ég einnig eiga eftir að verða til góðs fyrir islenzkt íþróttastarf almennt, ekki bara frjáls- iþróttirnar. Þetta byggi ég á því að þeir menn sem hingað komu eiga yfirleitt kunningja og vini innan ann- arra íþróttagreina, og því tel ég að þetta þing eigi eftir að hafa áhrif varðandi aðrar iþróttagreinar. Þessa hlið mála er náttúrulega ekki hægt að mæla. Efnislega mælti Örn Eiðsson, for- maður Frjálsíþróttasambands íslands, á þessa leið þegar við ræddum við hann í gær, og á Loftleiðum um helg- ina, en það var FRÍ sem annaðist framkvæmd þessa Evrópuþings. Örn sagði okkur að undirbúningur þingsins hefði staðið lengi yfir, enda væri hér á ferðinni mikið fyrirtæki. Þannig hefðu stjórnarmenn FRÍ vart gert annað síðan í ágúst en að undirbúa þingið Taldi Örn að undirbúningurinn hefði tekist nokkuð vel, allavega ef marka mætti ummæli þingfulltrúa. — Ég held þess- ir menn meini það sem þeir segja, því ánægja þeirra hefur verið alveg ein- stök. Það kemur oft fyrir að menn segjast vera ánægðir með svona þing, o.s.frv , en meina það kannski ekki, en ég tel þó að nú búi sannleikur að baki þessara yfirlýsinga Það voru alls um 115 fulltrúar frá 2 7 löndum sem sátu þingið. Auk þeirra voru svo gestir frá Bandaríkjun- um, Kanada, Alsír og Saudi-Arabíu, til að afla sambanda á íþróttasviðinu. Örn sagði að FRÍ hefði fengið ýmis boð um keppnir og mót, og á æstu dögum yrði fjallað um þessi mál í stjórninni, og afstaða tekin til þeirra Meðal þessa er að fulltrúinn frá Saudi-Arabiu bauð upp á landskeppni við þjóð utan Evrópu. Örn sagði að þetta mál yrði athugað, en það væri hagstætt þar sem hinn aðilinn býður upp á þetta FRÍ að kostnaðarlausu Ýmis stórmót voru kynnt á þessu þingi, og íslendingum boðin þátttaka í sumum þeirra. Þar á meðal kom boð frá Tékkóslóvakíu, en Tékkarnir báðu sérstaklega um þau Ágúst Ásgeirsson, Bjarna Stefánsson og Lilju Guðmundsdóttur í tilboði sínu Mót þessi verða 8 , 10., og 1 1 júní í Ostrava og Prag. Á þinginu var, sem áður er frá skýrt gengið til kosninga um embætti for- seta Evrópusambandsins en í þeim kosningum varð Bretinn Arthur Gold hlutskarpastur. Annað mál á þeim fundi var að ákveðið var að « framtið- inni yrði keppt í 800 metrum i fimmt- arþraut kvenna, og að keppni þrautar- innar færi fram á einum degi, á opin- berum mótum sambandsins. Þá var á þinginu raðað niður dómurum á Evrópubikarkeppnina, og það mark- verðasta við það var að Örn Eiðsson var valinn í yfirdómnefnd undanúrslita- keppninnar sem fram fer í Crystal Palace í London á næsta ári. Loks má geta þess að þeir fulltrúar sem Mbl. spjallaði við voru allir mjög ánægðir með þetta þing, og flestir þeírra sögðu það vera eitt bezt framkvæmda Evrópu- þing sem þeir hefðu setið, en flestir þeirra sem sitja svona þing hafa mikla reynslu í þeim efnum að sögn — ágás. Saudi-Arabar óska eftir landskeppni við íslendinga Frá Evrópuþinginu á Loftleiðahótelinu FARA LANDSLKjIÐ, VALUR OG FH í SAMEIGINLEGA HÓPFERÐ MEÐ ÞEIRRI hugmynd hefur skotið upp, að lands- liðið, Vaiur og FH fari f sameiginlega hðpferð um míðjan desember til Danmerkur, Pðllands og Sovétrfkjanna með Boeing flugvél Arnar- flugs. örn Höskuldsson, formaður handknattleiks- deildar Vals, staðfesti þetta í samtali við Mbl. í gær. Sagði örn að landsliðið ætti að leika lands- leik við Dani í Kaupmannahöfn 12. desember. Væri meiningin, ef af hópferðinni yrði, að flug- vélin færi frá Kaupmannahöfn til Moskvu, og Valur léki við Mai, Moskvu, í Evrópukeppninni 14. eða 15. desember. Frá Moskvu yrði farið til Póllands, þar sem FH léki við pólsku meistarana Slask Wraclaw í Evrópukeppni 16. eða 17. desember. ARNARFLUGI ? „Við höfum þá trú að þetta fyrirkomulag muni verða bezt fjárhagslega fyrir alla aðila, sérstaklega ef við getum fyllt vélina með stuðningsmönnum liðanna. Við erum búnir að hafa samband við Arnarflug og fáum frá þeim verðtilboð á næstu dögum. Það er ekkert ákveð- ið ennþá, en við ætlum að athuga þennan mögu- leika mjög gaumgæfilega," sagði Örn Höskulds- son. Valsmenn hafa staðið 1 samningum við Sovét- mennina um fyrri leikinn, sem lfklega fer fram hér f Laugardalshöll laugardaginn 13. nóvember n.k. FH-angar hafa líka staðið í samningum við sina mótherja, og eru mestar líkur á því að þeir leiki gegn þeim hér i Laugardalshöllinni sunnudaginn 14. nóvember, daginn eftir að Valur leikur sinn+eik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.