Morgunblaðið - 03.11.1976, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1976
19
Arni Elísson Hafn-
arfirði — Minning
Fæddur 23. október 1904
Dáinn 24. október 1976
I dag kveðjum við afa og lang-
afa okkar, Árna Elísson, er andað-
ist á heimili sínu, Tjarnarbraut 9 í
Hafnarfirði, að morgni 24. okt. sl.
Það er erfitt að trúa þvl, að afi sé
ekki lengur á meðal okkar, því
glaður og kátur var hann, er við
hittum hann á afmælisdegi hans
daginn áður; þar var hann með
öllum litlu börnunum I fjölskyld-
unni. Hann var mikill barnavin-
ur, öll börn hændust að afa og
langafa.
Afi var fæddur I Gíslakoti á
Álftanesi 23. okt. 1904, sonur
hjónanna Vilborgar Vigfúsdóttur
og Elísar Arnasonar. Fjögra ára
gamall flyzt hann með foreldrum
sínum til Hafnarfjarðar og átti
heima þar til dauðadags. Afi var
13 ára, er hann fer fyrst á sjó, og
sjómannsstarf var hans atvinna
til ársins 1953. Lengst var hann á
togurunum Surprise og Garðari.
Eftir að afi hætti á sjónum, starf-
aði hann lengst hjá Oiíustöðinni I
Hafnarfirði. Afi kvæntist 10. nóv.
1928 Guðlaugu Ólafsdóttur og
varð þeim 5 barna auðið, 4 þeirra
lifa föður sinn, son misstu þau á
bezta aldri fyrir sex árum, sem
þau syrgðu mjög.
Nú er afi horfinn okkur yfir
móðuna miklu. Við kveðjum hann
með innilegri þökk fyrir allt, er
hann gerði fyrir okkur, og óskum
honum góðrar heimkomu til þess
staðar, er okkur öllum er ætlaður.
Við sendum þér innilegar samúð-
arkveðjur, elsku amma, og biðj-
um góðan guð að blessa þig I
veikindum þínum. Við geymum
minningar um góðan afa í hugum
okkar. Blessuð sé minning hans.
Far þú í friði,
friður guðs þig blessi,
haf þú þökk fyrir allt
og allt.
Barnabörn og barnabarnabörn.
Fyrir skömmu var ég að blaða í
barnablaðinu Æskunni frá því
fyrir aldamót. Þar rakst ég á eftir-
farandi spakmæli; „Það er betra
að eiga nágranna, sem auðsýnir
manni daglega góðvild, heldur en
þó hann geri manni einhvern
mikinn greiða einu sinni á ári.“
Ég stanzaði við, er ég las þetta.
Það kom svo vel heim við það,
sem ég hef lært á lífsleiðinni.
Nú rifjaðist þetta upp fyrir
mér, þegar nágranni minn, Árni
Elísson á Tjarnarbraut 9 í Hafn-
arfirði er kvaddur. Hann lézt
snögglega á heimili sínu sunnu-
dagsmorguninn 24. þ.m., 72 ára
gamall, fæddur í Gíslakoti á Álfta-
nesi 23. október 1904, en fluttist
fjögurra ára gamall til Hafnar-
fjarðar með foreldrum sínum,
Elís Arnasyni verkamanni og Vil-
borgu Vigfúsdóttur konu hans.
Tók Árni að stunda sjómennsku
jafnskjótt og hann hafði aldur til
og var það lengstum starf hans.
Hann þótti ágætur maður i störf-
um og hinn bezti félagi. Mörg
seinustu árin eftir að hann kom í
land vann hann hjá Olíustöðunni
í Hafnarfirði.
Arni Elfsson var einn þeirra
manna, sem bæði sá Hafnarfjarð-
arbæ vaxa og breytast og tók sjálf-
ur þátt í þeim vexti og breyting
um.
Arni giftist 10. nóvember 192f
eftirlifandi konu sinni, Guðlaugu
Ólafsdóttur sjómanns í Grinda
vík, Magnússonar, einstakleg£
þrifinni og myndarlegri húsmóð-
ur. Hún hefur átt Við mikla van
heilsu að stríða undanfarin ár, er
borið það með fágætu þreki og
hugprýði. Þau eignuðust fimm
börn. Þau eru: Sigríður kona
Hjálmars Ingimundarsonar húsa-
smiðs i Hafnarfirði, Elis mat-
reiðslumaður (Iátinn) kvæntur
Helgu Sigurðardóttur, Ólöf kona
Þorvalds Ólafssonar vélstjóra i
Garðabæ, Kristín kona Hauks
Sölvasonar vélstjóra og nú kenn-
ara á Hvanneyri, og Vigfús mat-
reiðslumaður i Hafnarfirði,
kvæntur Aðalheiði Kristjánsdótt-
ur, allt dugnaðarfólk og nytsamir
þegnar í sínu sveitarfélagi svo
sem þau eiga ætti til.
Ekki tók Árni mikinn þátt i
félagsmálum. Hann var i Frið-
kirkjusöfnuðinum í Hafnarfirði,
enda er útför hans gerð frá Fri-
kirkjunni i dag. Hann sótti fundi i
Verkamannafélaginu Hlif eftir að
hann kom í land og lét þar stund-
um álit sitt i ljós, einkum þegar til
umræðu voru þau mál, sem hann
þekkti bezt, útgerðarmál og kjör
sjómanna.
Árni var ágætur heimilisfaðir
og mikið snyrtimenni. Oft mátti
sjá hann hin síðari árin vera að
laga til I garðinum umhverfis hús
sitt og huga þar að gróðri, — og
raunar þau hjónin bæði.
í meira en 40 ár vorum við Arni
nágrannar — að fráteknum árun-
um, sem ég var i Flensborgarskól-
anum. Þess vegna minntist ég orð-
anna, sem vitnað er til í upphafi
þessara kveðjuorða, urti gildi þess
að eiga nágranna, sem auðsýnir
manni daglega góðvild. Þau lýsa
Árna Elíssyni, viðmóti hans og
framkomu við nágranna sína.
Honum var þetta eiginlegt. Það
var eðli hans.
Það er ekki að ástæðulausu, að
ég og kona mín kveðjum Árna
Elísson með mikilli eftirsjá og þó
meira þakklæti.
Ólafur Þ. Kristjánsson.
Níu tilraunir í
„Sverrisbraut”
BLAÐINU hefur borizt eftir-
farandi frá Sverri Runólfssyni.
Vegna ummæla í fjölmiðlum
um tilrauna-kafla minn, vil ég
upplýsa. í skýrslu Vegagerðarinn-
ar segir.„verður sennilega að
leggja nýtt lag yfir það (veginn)
bráðlega", en ekki að „Sverras-
braut" verði „jörðuð" né að slit-
lagið allt sé ónýtt. Það eru níu
mismunandi tilraunir i gangi i
kaflanum og engin leið að sjá
hvað hefur heppnazt og hvað
„misheppnazt", fyrr en eftir
veturinn. Mun ég þá gefa mitt álit
á útkomunni í heild. Ennfremur
mun ég upplýsa allt, frá byrjun til
enda, sem gert var til að gera
þetta erfitt og dýrt. Þá fyrst er
hægt að dæma hvort ég hafi
staðið mig vel eða illa. Eitt dæmi
af tugum skal ég þó nefna núna.
Valtari undirverktaka mins hafði
bilað, hann fékk loforð frá öðrum
verktaka fyrir valtara, en þegar
átti að flytja valtarann, þá kom
náttúrulega I ljós hvert hann átti
að fara. Þegar eigandi valtarans
frétti það, sagði hann að það
kæmi ekki til greina, að Sverrir
Runólfssoon fengi valtara frá sér.
Varð ég þá að senda öll tæki og
menn heim.
Vegna þessa varð margra daga
töf, auka—flutningar og
kostnaður. Eins og einn vinur
sagði, með kimni vil ég segja. Það
er ekki auðvelt að standa einn á
móti heilli „mafiu“. Þegar ég segi
mafía, meina ég vitaskuld, undir-
föruls (two faced) hagsmunahóps
af verstu tegund. GUÐ blfssi
heimilið.
Sverrir Runólfsson.
Sumir versla
dýrt - aðrir versla
hjá okkur.
Okkar verð eru ekki tilboð
heldur árant»ur af
hagstæðum innkaupum.
c4taJií$
Odýru kínversku
niðursuðuvörurnar
eru komnar aftur:
Bakaðar baunir (227 gr.) kr. 98.—
Grænar baunir (397 gr.) kr. 127.—
Blönduð ávaxtasulta (340 gr.) kr. 142.. —
Sveppir (284 gr) kr. 197.—
10. kg.sykur ... kr. 1050.-
50 kg. sykur .... kr. 4900.
1 kg. egg .....kr. 420.-
(105 kr. kg.)
( 98 kr. kg.)
CTv]ffiiö>
Austurstræti 17 starmýri 2