Morgunblaðið - 03.11.1976, Side 31

Morgunblaðið - 03.11.1976, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1976 31 Margir erfiöir leikir GETRAUNAÞÁTTUR MORGUNBLAÐSINS ÁRANGURINN af sfðasta seðli gefur ekki tilefni til nokkurs for- mála að þessu sinni og er öll um- ræða um hann hér með úr sögunni. Arsenal — Birmingham. Tvöfaldur 1 eða X Arsenal hefur tapað mörgum af síðustu leikjum sfnum, en þess ber þó að geta, að flestir hafa þeir verið á útivelli. Spáin er sú að þeir rétti nokkuð úr kútnum og sigra Birmingham (2—1) en til vara tippum við á jafntefli (1—1) Aston Villa — Manchester Utd. Tvöfaldur 1 eða X Aston Villa er með erfiðari liðum heim að sækja en gestum þeirra að þessu sinni hefur lítið gengið f deildinni undanfarið og er þvf aðalspáin heimasigur (3—2). Til vara er jafntefli (2—2) ef Manchester liðinu gengur illa gegn Juventus f miðri viku, gæti það orðið hvatning ti! að gera betur í deildakeppninni. Bristol C. — Coventry X Þetta er jafnteflislegur leikur. Bristol-liðinu gengur illa að knýja fram sigra og Coventry er vand- sigrað. Jafntefli (0—0). Everton — Leeds Utd. X Þessi leikur er sömuleiðis jafn- teflislegur en aðeins tvö sig skilja á milli þessara liða í deildinni. Jafntefli en varla verður mikið skorað (1—1) Ipswich — WBA 1 Ipswich hefur nú unnið fimm leiki f röð og ógna þeir nú efstu liðunum. Spáin er sú að sigur- ganga liðsins rofni ekki á laugar- dag. Heimasigur (2—0) Leicester — Norwich 1 Á pappfrnum ætti Leicester ekki að eiga í erfiðleikum með slakt lið Norwich þar eð þeir hafa tekið upp á þeirri nýlundu að sigra í leikjum sfnum í stað jafn- teflanna. Heimasigur (3—0) Manchester C. — Newcastle 1 Manchester City er nokkuð tryggt heimalið og er spáin sú að þeir sigri annars nokkuð gott lið Newcastle en varla þó eins stórt og nágrannar þeirra í deilda- bikarnum f sfðustu viku. Heima- sigur (3—2) QPR — Derby 1 Bæði þessi lið hafa valdið áhangendum sfnum nokkrum vonbrigðum með misjafnri frammistöðu og alveg sérstaklega Derby. Bæði eiga þessi lið erfiða leiki á heimavöllum sfnum í UEFA-keppninni, QPR gegn Slovan Bratislava og Derby gegn AEK frá Aþenu. Spáin er sú, að QPR nái toppleik og vinni Derby örugglega. Heimasigur (4—1). Stoke C. — Middlesboro. Tvö- faldur 1 eða X Það er erfitt að skella Stoke á heimavelli þeirra og er vafasamt að M.boro geri það en þeir gætu klórað í jafntefli með sinni ellefu manna vörn. Heimasigur eða jafn- tefli, og þá hinar sfgildu M.boro tölur 1—0 eða 0—0. Sunderland — Liverpool. Tvö- faldur 1 eða 2 Þeir gerast varla tvísýnni. Leik- menn Sunderlands, sem á laugar- daginn var unnu sinn fyrsta deildasigur á vetrinum, munu leggja mikið á sig til að fylgja eftir þeim sigri. Liverpool er hins vegar frægt orðið fyrir seigluna og heppnina á útivöllum og er það mikil óheppni Sunderlands að þurfa endilega að mæta Liver- poool á þessu stigi. Spáin er sú að ekki verði jafntefli, heldur vinni annað liðið naumlega. Heimasig- ur eða útisigur, i báðum tilvikum 1—0. West Ham — Tottenham 2 Maður er farinn að halda, að West Ham kunni ekki að vinna leiki, en Tottenham hefur þó að minnsta kosti sýnt tilburði annað veifið og varla fá þeir betra tæki- færi til að skora slatta af mörkum heldur en gegn þvf ginnungagapi sem West Ham „vörnin" er. Uti- sigur (1—3). Hull C. — Blackpool. X Það er erfitt að segja eitthvað spaklegt um þessa viðureign og ætla ég þvf að sleppa þvf en spá um leið jafntefli (1—1) —gg- Jóhann Kjartansson sigraöi á Akranesi HINN ungi og efnilegi badmin- tonmaður úr TBR, Jóhann Kjartansson, sannaði um helgina að sigur hans f úrtökumótinu á dögunum var engin tilviljun, er hann bar sigur úr býtum f einliða- leik á opnu móti sem Badminton- ráð Akranes gekkst fyrir f Iþróttahúsinu á Akranesi. Sigraði Jóhann félaga sinn Sigfús Ægi Arnason f úrslitaleik 15—3, 5—15 og 15—12. A mótað á Akranesi vantaði reyndar nokkra úr hópi beztu badmintonspilaranna, þeirra á meðal Islandsmeistarann Sigurð Haraldsson og þá Harald Korne- lfusson og Steinar Pedersen. Mættu aðeins sex keppendur úr Reykjavfk til mótsins á Akranesi, og olli það nokkrum vonbrigðum ekki sfzt vegna þess að búist var við góðri þátttöku. Nú styttist óð- um til Norðurlandamótsins og þvf hefði mátt teljast lfklegt að bad- mintonfólkió notaði hvert tæki- færi til þess að fá keppni. A mótinu á Akranesi sigraði Jóhann Kjartansson fyrst Hörð Ragnarsson, lA 15—2 og 15—9 og síðan Friðleif Stefánsson 15—12 og 15—lO.Sigfús Ægir keppti fyrst við Eirík Ólafsson, KR og vann 15—4 og 15—10 og síðan Jóhann Kjartansson — sigraði á opna mótinu á Akranesi keppti Sigfús við Jóhannes Guðjónsson og sigraði eftir tvf- sýnan leik 17—15 3—15 og 15— 12. 1 tvíliðaleik báru hins vegar Akurnesingrnir Hörður og Jóhannes sigur úr býtum. Sigruðu þeir Friðleif Stefánsson og Eirík Ólafsson í úrslitaleik 16— 17 15—3 og 15—12. Fyrirhuguð var keppni í kvennaflokki, en hún féll niður vegna þátttökuleysis. Næsta laugardag 6. nóvember vefur haldið opið unglingamót á Akranesi. Keppt verður f einliða og tvfliðaleik í öllum flokkum ef næg þátttaka fæst. Mótið hefst kl. 11.30 og stendur fram eftir degi. Má f þvísambandi geta þess að Akraborgin fer frá Reykjavfk kl. 10 um morguninn og kl. 17 frá Akranesi. Þátttökugjald í móti þessu er kr. 600,00 fyrir einliða- leik og kr. 300,00 fyrir tvíliðaleik og verða allir þeir sem^láta skrá sig að greiða þátttökugjaldið. Úrslitin tvísýn Framhald af bls. 1. sigurvegari við blaðamenn þegar hann fór flugleiðis til Atlanta frá Plains í Georgíuríki í flugvél sinni „Peanut One“. Hann talaði um áætlanir sem ríkisstjórn Carters mundi vinna að og sagði að hann yrði að að velja ráðherra úr hópi 75 manna sem kæmu til greina. Starfsmenn kosningabaráttu Carters voru bjartsýnir á að sigur í þremur mikilvægum ríkjum: New York þar sem kosið er um 41 kjörmann, Pennsylvaníu þar sem kjörmennirnir eru 27 og f Ohio þar sem kjörmennirnir eru 25. Tölur bentu til þess að Carter hefði forskot f öllum landshlut- um: á austurströndinni, í Suður- ríkjunum og í miðvesturríkjun- um og vesturríkjunum þar sem forskotið var minna. Þegar 14% atkvæða höfðu verið talin var staðan þessi: Ford 5.700.000, Carter 6.200.000 og McCarthy 32.000. Carter hafði þá fengið 127 kjörmenn en Ford 20 (til að fá meirihluta að kjör- mannasamkundunni sem form- lega kýs forsetann þarf 270 at- kvæði.) I ríkisstjórakosningunum voru repúblikanar kosnir í stað demó- krata f lllinois og Delaware en demókratar í stað repúbikana í West Virginia og North Carolina. Sigur John D. Rockefellers í West Virginia vakti hvað mesta athygli. í kosningunum til öldunga- deildarinnar héldu Edward Kennedy frá Massachusctts og Lloyd Bentsen frá Texas sætum sínum. 1 kosningunum til fulltrúa- deildarinnar höfðu demókratar tryggt sér 285 sæti samkvæmt spám en rcpúblikanar 149. Þar með bæta repúblikanar við sig fjórum sætum. 1 kosningunum til öldunga- deildarinnar sigraði Patrick Moynihan í New York og Hubert Humphrey íMinnesota. 0 Metkjörsókn Samkvæmt síðustu skoðana- könnun Gallups hafði Ford 1% meira fylgi en Carter, en sam- kvæmt skoðanakönnun Louis Harris hafði Carter 1—4% meira fylgi en Ford. Metkjörsókn var víða spáð og það var talið góðs viti fyrir demókrata. I Kaliforníu var búizt við að kjörsóknin yrði 85% og kbsningastarfsmaður í Hollywood sagði: „Þetta er mesta kjörsókn sem ég hef séð." Kjörsókn var líka mikil f New York-borg, þar sem kosningastarfsmaður tók f sama streng og félagi hans í Kaliforniu. Hann kvaðst „ekki hafa séð aðra eins kjörsókn árum saman.“ 1 IUinois var því spáð að kjör- sókn yrði 74% og kosningarnar gengu greiðlega í fjölmennustu borginni þar, Chicago. Sömu sögu var að segja frá Cleveland i Ohio, en bæði þessi ríki voru talin mikilvæg báðum frambjóðendum. Embættismaður i Massaehusetts sagði að kjörsókn þar hefði verið „ótrúlega mikil" og gæti slegið fyrri met. Fréttir um mikla kjörsókn bárust einnig frá New Jersey og Washington D.C. 0 Táraðist Ford forseti og Betty kona hans kusu í skólahúsi i Grand Rapids í Michigan og forsetinn sagði: „Við erum mjög bjartsýn." Hann grét þegar hann var viðstaddur af- hjúpun veggmyndar í flugstöð bæjarins er á að sýna lífsferi hans og kvaðst ekki eiga nógu sterk orð til að lýsa þakklæti sínu. Reyndir fréttamenn minnast þess ekki að hafa séð forsetann eins viðkvæman. Carter og Rosalynn kona hans kusu ásamt vinum og nágrönnum í Plains i Georgíu. „Ég kaus Walt- er Mondale og meðframbjóðanda hans,“ sagði Carter. Mondale kaus í Afton, Minnesota og kvaðst hafa kosið „Jimmy Carter og meðfram- bjóðanda hans.“ Carter kvaðst feginn því að kosningabaráttunni væri lokið og taldi sig og Mondale hafa gert sitt bezta. Talsmaður Carters lét í ljós ánægju með kjörsóknina, sem er ólíkt meiri en í forsetakosningun- um 1972, þegar aðeins 55% kós- enda neyttu atkvæðisréttar síns. I kosningunum í dag var jafnframt kosið um alla 435 þingmenn full- trúadeildarinnar, 33 þingmenn öldungadeildarinnar af 100, 14 rikisstjóra og embættismenn á ýmsum stöðum. Danmörk: Ráðstafanir verði gerð- ar í atvinnumálum Kaupmannahöfn 2. nóv. NTB. FORMAÐUR í dönsku verkafýðs- satökunum, Thomas Nielsen, lagði til í dag, að Danir leiddu í lög kreppulöggjöf sem gilti i þrjú ár og gæti tryggt atvinnu fyrir þúsundir atvinnuleysingja í landinu með þvi að ríkið legði frarn fjármagn til styttingar vinnutimanum og lengingar leyfa. „Það verður að grípa til sérstakra ráðstafana og það fyrr en sfðar,“ segir Nielsen i samtali við Berlingske Tidende í dag. „I staðinn fyrir atvinnuleysisbætur verður að reyna að koma fólki í starf. En gæta verður þess að fjár- magn sem veitt yrði í þessu skyni rynni aðeins til fyrirtækja sem "b HÁHYRNINGSDÝNUR — Starfsmenn Péturs Snæ- lands hf. unnu í gær að framleiðslu á stærstu dýn- um, sem þeir hafa gert til þessa. Þetta eru háhyrn- ingsdýnur, sem nota á við flutning háhyrnanganna tveggja í Sædýrasafninu til Hollands og Bandarikj- anna. Dýnurnar eru 5 metra langar, Vá metri á breidd og 40 cm. þykkar. geta aukið umsvif sín. Þá er upplýst að dönsku verkalýðssam- tökin hafa kvatt til fundar þar sem tillögudrögin verða lögð fram til umfjöllunar. — Systkin Framhald af bls. 32. götu. 1 gærkvöldi var vitað, að pilturinn hafði hlotið lærbrot og handleggsbrot, en hjálmur kom í veg fyrir höfuðmeiðsl. Stúlkan var ekki með hjálm, og hlaut hún höfuðmeiðsl og handleggsbrotn- aði. Hvorugt þeirra er talið lífs- hættulega slasað. Ljósm. RAX. Ford vann á Harry’s Bar Parfs, 2. nóvember. Reuter. FORD forseti vann nauman sigur á Harry’s Bar, frægum stað f Parfs sem Bandarfkja- menn búsettir erlendis sækja mikið. Forsetinn fékk 277 af 558 sem greidd voru, þremur fleiri en Jimmy Carter sem fékk 274 atkvæði. Eugene McCarthy fékk sjö. Urslit f slfkum kosningum á Harry’s Bar, sem Ernest Hemingway sótti á eina tíð, hafa alltaf verið samhljóða úrslitum sjálfra for- setakosninganna. ... og í Dixville Washington, 2. nóvember. Reuter FORD forseti sigraði f þrop- inu Dixville f New Hampshire þar sem sigur- vegarar f öllum forseta- kosningum nema kosn- ingunum 1972 hafa tapað. Ford hlaut 12 atkvæði, Jimmy Carter 11 og Eugene McCarthy eitt atkvæði en eitt atkvæði var ógilt. Kjör- sókn var 100%. — Rhódesía Framhald af bls. 1. Chatanga. Sjöundu búðarnar sem ráðizt var á voru í Changara, bæ við aðalveginn meilli hafnar- borgarinnar Beira og orkuversins Cabora Bassa við Zambesi-fljót. 1 Genf komust viðræðurnar um framtíð Rhódesíu á mikilvægt stig í dag er reynt var í fyrsta skipti að ákveða dagsetningu valdatöku meirihlutastjórnar blökkumanna. Fundirnir i dag voru taldir geta ráðið úrslitum um afdrif ráðstefn- unnar. Ian Smith forsætisráðherra hefur verið tregur til að fallast á ákveðna dagsetningu og ætlar heimleiðis á morgun en brottförin getur dregizt. Hann lofaði í dag að koma aftur ef tekizt yrði á við vandann f Genf. Leiðtogar blökkumanna krefjast þess að blökkumenn fái sjálfstæði 1. september 1977. Eftir fundina í dar vu fulltrúarnir ekkert segja um dag- setningu sjálfstæðisins. Blökku- mannaleiðtogarnir Sithole og Nkomo sögðu að ekkert hefði mió- að f samkomulagsátt, en Mugabe og Muzorewa voru lá öðru máli. — 92 millj. kr. Framhald af bls. 32 4.5 millj. kr., Grindvikingur GK seldi 101 lest fyrir 6.9 millj. kr„ Hilmir SU seldi 96.6 lestir fyrir 6.6.millj. kr„ Sæbjörg VE seldi 74.4 lestir fyrir 5.1 millj. kr„ Al- bert GK seldi 101 lest fyrir 6.9 millj. kr„ örn KE seldi 95.7 lestir fyrir 6.6 millj. kr„ Svanur RE seldi 38.7 lestir fyrir 2.6 millj. kr„ Sæberg SU seldi 68.6 lestir fyrir 4.5 millj. kr„ Hákon ÞH seldi 114.4 lestir fyrir 7.7 millj. kr. og Reykjaborg RE seldi 105.7 lestir fyrir 7 millj. kr. I gær seldu Svanur RE 39.6 lestir fyrir 2.7 millj. kr. (afgangur frá í fyrradag), Bjarni Ólafsson AK 116 lestir fyrir 8.1 millj. kr„ Keflvíkingur KE 67 lestir fyrir 4.6 millj. kr. og óskar Halldórsson RE 83 lestir fyrir 6 millj. kr. LJósm. Mbl. Ól. K. Magn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.