Morgunblaðið - 20.11.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.11.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 20. NÓVEMBER 1976 3 HINN kunni danski ljóðaþýðandi Poul P.M. Pedersen er um þessar mundir staddur á tslandi i boði menntamálaráðuneytisins og mun hann verða hérlendis i rúm- ar tvær vikur. Hefur Norræna húsið boðið Pedersen að dveljast í húsinu þennan tfma. Poul P.M. Pedersen Poul P.M. Pedersen er hingað kominn vegna útgáfu fslenzks ljóðasafns, sem hann hefur verið að þýða á dönsku. Verða þar sýn- ishorn af verkum 50 islenzkra ljóðskálda frá þessari öld. Verður bókin um 500 blaðsfður og hafa 90% ljóðanna þegar verið þýdd. Að sögn Pedersens mun hann ljúka þýðingum, skýringurti við ljóðin og ritstjórn verksins eftir um það bil ár og mun bókin koma út upp úr því. Pedersen sagði i samtali við Morgunblaðið f gær, að hann vænti þess, að Norræna þýðingar- miðstöðin veitti aðstoð við útgáfu verksins, en á meðan hann dvelst hér hefur hann f huga að hafa samband við skáld og kynna sér ný markverð ljóðasöfn frá árinu 1975. Þess má geta að Poul P.M. Ped- ersen hefur oft komið til Islands áður og er hann handgenginn ís- lenzkum bókmenntum og þá sér- staklega ljóðlist, enda hefur hann gefið út ljóðasöfn fjögurra ís- lenzkra skálda á dönsku, Steins Steinars, Hannesar Péturssonar, Matthfasar Johannessens og Jóhannesar úr Kötlum, auk lftils ljóðaúrvals, „Fra hav til jökel", sem út kom 1961. Hefur þessum bókum yfirleitt verið vel tekið f Danmörku. „Þessum bókum hef- ur yfirleitt verið vel tekið f dönsk- um blöðum," sagði Pedersen, „sem sýnir að islenzk skáld hafa mikla og sérstæða hæfileika, sem vekja athygli erlendis og ástæða er til að kynna öðrum þjóðum." Þess má að lokum geta, að Fé- lag, fslenzkra rithöfunda mun efna til sérstaks fundar með Poul P.M. Pedersen, þar sem hann mun spjalla um íslenzka nútfma- ljóðlist. Arnarflug boðið Flugleiðum til kaups? MORGUNBLAÐIÐ hefur fregnað að meðal forráðamanna Ollu- félagsins og/ eða annarra aðila innan samvinnuhreyfingarinnar, sem hlut eigi I Arnarflugi, hafi komið til tals að bjóða Flug- leiðum þennan hlut til sölu og haft hafi verið samband við for- ráðamenn Flugleiða i þvf sambandi. Ekki hefur tekizt að fá þetta staðfest hjá forráðamönnum Flugleiða. Morgunblaðið hafði samband við Alfreð Elfasson, for- stjóra Flugleiða sem vísaði á Sig- urð Helgason, forstjóra, sem hefði haft með málið að gera. Morgunblaðið spurði þá Sigurð, hvort komið hefði formlegt eða óformlegt tilboð frá for- ráðamönnum Olíufélagsins og/eða annarra aðila innan sam- vinnuhreyfingarinnar um, að Flugleiðir keyptu hlut þeirra f Arnarflugi. Sigurður kvað ekkert slfkt tilboð hafa komið fram. Hann var þá spurður að því, hvort sömu aðilar hefðu þreifað fyrir Framhald á bls. 30 Ljósm. Mbl. RAX. Frá blaðamannafundi, sem Landssamtökin Þroskahjálp efndu til f gær. Á myndinna eru talið frá vinstri: Hólmfrfður Gunnarsdóttir, Eggert Jóhannesson, Gunnar Þormar, Jón S. Alfonsson, Ingibjörg Sfmonardóttir og fyrir enda borðsins þær Helga Finnsdóttir og Margrét Margeirsdóttir. Landssamtökin Þroskahjálp: Brýn nauðsyn aó setja nýja heildarlöggjöf um málefni þróskaheftra LANDSSAMTÖKIN Þroska- hjálp, sem stofnuð voru fyrir rúmum mánuði, boðuðu til blaðamannafundar f gær. Tilgangur samtakanna er að berjast fyrir réttindum og vinna að málefnum þroska- heftra f landinu. Að sam- tökunum standa foreldrafélög, styrktarfélög, starfsmanna- féfög, stéttarfélag sérkennara og starfsmannafélög þroska- þjálfa og þroskaþjálfanema. Eru félagsmenn alls 5500. For- maður samtakanna er Gunnar Þormar en ásamt honum skipa Jón S. Alfonsson og Eggert Jóhannesson framkvæmdaráð stjórnarinnar. Auk þeirra eru f stjórn Helga Finnssdóttir, for- maður menntamáfanefndar samtakanna. Kristján Ing- ólfsson, fulltrúí Austurlands, sr. Gunnar Björnsson, fyrir Vestfirði, og Einar Sigbjörns- son Akureyri. Tilgangur blaðamanna- fundarins var að skýra frá niðurstöðum fjölmenns fundar, sem samtökin héldu að Hótel Esju fyrr í vikunni að viðstödd- um menntamálaráðherra og nokkrum þingmönnum. Að þvi er stjórn samtakanna sagði, tóku margir til máls á fundi þessum auk þeirra er fluttu framsöguerindi. Kom þar skýrt í ljós mikil óánægja með ástand mála og þungar deilur á ráðherra og þingmenn fyrir sinnuleysi hvað málefni þroska- heftra snertir. A fundinum var eftirfarandi tillaga samþykkt: Fundur landssamtaka Þroska- hjálpar, haldinn að Hótel Esju 18. nóvember 1976, samþykkir að skora á alþingi að samþykkja nú þegar, að hafinn verði undirbúningur frumvarps til laga um málefni þroskaheftra. Lög þessi samþykki kennslu-, heilbirgðis- og félagslega þjónustu við þroskahefta svo vel fari og taki mið af framför- um og nýrri vitneskju, sem felur í sér það meginatriði, að þroskaheftir búi við sömu lffs- skalyrði og annað fólk Reglugerð um sérkennslu, sem gerð verður samkvæmt lög- um um grunnskóla frá árinu 1974, á að koma menntunar- málum þroskaheftra í eðlilegt horf og þá miðað við, að þeir njóti sama réttar og aðrir um framkvæmd kennslu og þjálf- unar þeim til handa. Ef vikið verður frá þvf telur fundurinn að reglugerðin sé ófullnægjandi. Fundurinn gerir þá skilyrðis- lausu kröfu, að fulltrúar Þroskahjálpar hafi hönd i bagga með lögum og reglum, sem sett eru um málefni þroskaheftra. Loks vill fundurinn gera alþingi ljóst, að þetta mál þarf að hafa algjöran forgang, ef um verkefnaval er að ræða vegna fjárskorts. Þar til ný heildar- löggjöf um málefni þroska- heftra kemst til framkvæmda verður að efla styrktarsjóð vangefinna verulega, þannig að hægt verði að fjármagna þau verkefni, sem mest eru að- kallandi. Gunnar Þormar, formaður samtakanna, gat þess á blaða- mannafundinum að fjárfram- lag rfkisins til þessara mála væri á fjárlögum 1977 fjörutfu milljónir og sagði hann að það Framhald á bls. 30 Vinsælu„Blasé”ilmvötnin frá MAX FACTOR eru fáanleg í helstu snyrtivöruverslunum. íslenzk skáld hafa sérstæða hæfileika, sem vekja athygli — segir Poul P.M. Pedersen, sem kominn er til íslands vegna út- gáfu íslenzks ljóðasafns á dönsku Aðalfundur Norðfirðinga félagsins AÐALFUNDUR Norðfirðingafé- lagsins f Reykjavfk og nágrenni verður haldinn á morgun, sunnu- dag. Fundurinn hefst f Snorrabæ við Snorrabraut kl. 20.30, með venjulegum aðalfundarstörfum. Að þeim loknum verða skemmti- atriði. Baldur Karlsson frá Skála- teigi í Norðfirði syngur einsöng, lesin verða tvö kvæði eftir Marfu Bjarnadóttur og að lokum verður spilað bingó. Vinningar eru fjöl- margir og góðir, en þá hafa Norð- firðingar f fyrirtækjarekstri i Reykjavík gefið. Perfume Perfume Spray Essence Perfumed Cologne Concentrate Ólafur Kjartansson, Heildverzlun, Lækjargötu 2 J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.