Morgunblaðið - 20.11.1976, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.11.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1976 31 Leikið í 2. deild og 1. deild kvenna VEGNA undirfoúnings Islenzka landsliðsins I handknattleik fyrir B-heimsmeistarakeppnina I Austurrlki verSur nú gert langt hlé á 1. deildar keppninni. Mun hún ekki hefjast aftur fyrr en I marz. Hins vegar verSur leikiS á fullu I 1. deild kvenna og 2. deild karla og fara samtals sex leikir fram I þessum deildum um helg- ina. Leikirnir I 2. deild karla verSa eftirtaldir: Kl. 16.00 I dag leika á Akureyri Stjarnan og Þór og kl. 14.00 á morgun leika Stjarnan og KA. Kl. 15.15 á morgun leika svo I NjarSvlk ÍBK og KR. Leikirnir I 1. deild kvenna verSa eftirtaldir: Á Akureyri kl. 17.15 I dag leika Þór og KR. kl. 15.25 á morgun leika I Hafnar- firSi FH og Ármann og kl. 17.30 á morgun leika UBK og Valur I GarSabæ. Blakið um helgina ÞAÐ verSa fjórir leikir háSir I blakinu nú um helgina. Á laugar- dag fara Þróttarar upp á Laugar- vatn og leika viS Stlganda og verSur leikurinn klukkan 14.00. Á sunnudagskvöldiS leika svo fS og Vlkingur og ætti aS geta orSiS um verulega spennandi og skemmtilegan leik, ef báSum liSum tekst aS sýna hvaS I þeim býr. Þessi leikur hefst klukkan 19.00 og verSur I Iþróttahúsi Hagaskólans. aS honum loknum leika svo kvennaflokkur þessara liSa. SlSasti leikur kvöldsins verSur svo á milli b-li8s Vlkings og a-liðs UBK og hefst hann klukkan 21.30 H.G. Pri álitinn líklegur heimsmeistari en er samt ekki öruggur með sigur í Norðurla nda mótinu um helgina NORÐURLANDAMEISTARA- MÓTIÐ I badminton sem fram fer f Laugardalshöllinni nú um helg- ina verður að teljast einn merkasti fþróttaviðburður ársins hériendis. Hingað koma nokkrir af fsrustu fþróttamönnum heims f þessari fþróttagrein og reyna með sér. Meðal þeirra er Daninn Svend Pri, sem orðið hefur heimsmeistari f badminton og álitinn er mjög sigurstranglegur f komandi heimsmeistarakeppni. Pri er þó engan veginn öruggur með sigurinn f þessu móti, þvf bæði landar hans, Flemming Delfs og Elo Hansen, eru frábær- ir badmintonmenn, svo og Svfinn Sture Johannsson, sem er núver- andi Norðurlandameistari. Hætt er við að hlutur Is- lendinga f þessu móti verði ekki ýkja stór, en alls ekki er loku fyrir það skotið að þeir geti unnið leiki, eða veitt mótherjum sfnum harða keppni. Undankeppnin fer fram f dag, en á morgun verða svo úrslitaleik- ir keppninnar, svo og landsleikur milli Islendinga og Finna. I einliðaleik karla verða mótherjar tslendinganna f 1. um- ferðinni eftirtaldir: Sigurður Kolbeinsson — Svend Pri, Danmörku Knud Engebretsen, Noregi — Jóhann Kjartansson Thomas Kihlström, Svíþjóð — Ottó Guðjónsson Friðleifur Stefánsson — Elo Hansen, Danmörku Sigurður Haraldsson — Martti Suokari, Finnlandi Reynir Þorsteinsson — Thomas Angarth, Svfþjóð Sigfús Ægir Arnason — Stefan Karlsson, Svfþjóð Morten Frost Hansen, Danmörku — Hörður Ragnarsson Jóhann Möller — Flemming Delfs Petter Thoresen, Noregi — Jóhannes Guðjónsson. Einn íslendinganna, Eysteinn Björnsson, situr hjá í fyrstu umferð. Þeir tslendinganna sem helzt er talið að eigi sigurmöguleika í leikjum sfnum eru Siguröur Haraldsson sem mætir bezta Finnanum, Martti Suokari, Jóhann Kjartansson, sem leikur við Knud Engebretsen, og Jóhannes Guðjónsson, sem leikur við Petter Thoresen. Mun athygli einkum beinast að viðureign Sigurðar og Suokari, en Sigurður er frægur fyrir keppnishörku sina og lætur fráleitt hlut sinn fyrir Finnanum fyrr en i fulla hnefana. Þá verður einnig fróð- legt að sjá hvernig hinum unga en bráðefnilega Jóhanni Kjartans- syni vegnar í leiknum við Norð- manninn, en Engebretsen hefur keppt áður hérlendis og vann þá nauman sigur f leik sfnum við Harald Kornelíusson. Svend Pri Flemming Delfs Stórleikir í körfuknattleiknum inni í dag og sennilega verður enginn svikinn af þvf að sjá þann leik. Þá er það hinn stórleikurinn, Armann — KR. Armann hefur leikið tvo leiki og hlotið 4 stig en KR-ingar hafa aðeins leikið við ÍR og unnu þeir þá í miklum baráttu- leik með einu stigi. Þá er rétt að geta þess að KR-ingar urðu Reykjavfkurmeistarar og unnu þeir þá alia mótherja sína, þar á meðal Armann. Það má búast við afar skemmtilegum leik og ef þeim Jóni Sigurðssyni og Jimmy Rogers tekst vel upp verða KR- ingar að taka á honum stóra sfn- um til að stöðva þá. Þá verða leiknir tveir leikir í meistara- flokki kvenna, ÍS leikur gegn Fram og verður sá leikur í fþróttahúsi Kennaraskólans og hefst klukkan 19.00 á laugardag. Á Akureyri leika svo Þórs- stúlkurnar við KR og verður sá leikur f íþróttaskemmunni og hefst klukkan 15.00 á sunnudag. Einnig verða nokkrir leikir í 2. og 3. deild og yngri flokkunum leiknir nú um helgina. H.G. Kraftlyftinga- mót KR HIÐ árlega kraftlyftingamót KR fer fram á morgun, sunnudaginn 21. nóvember, í æfingahúsnæði Lyftingadeildar KR við Reykja- veg og hefst kl. 14.00 Keppt verður um farandbikar sem Björn Lárusson, fyrrverandi lyftingamaður, gaf til þessarar keppni, og hlýtur sá, er nær hæstri tölu samkvæmt stigatöflu, gripinn. Núverandi handhafi er Gústaf Agnarsson, KR. Flestir beztu kraftlyftingamenn landsins munu taka þatt i mótinu, m.a. Friðrik Jósefsson frá Vest- mannaeyjum, sem að undanförnu hefur stórbætt íslandsmetin f þungavigtarflokknum. FYRSTA stórmót vetrarins I sundi, 1. deildar keppni Bikar- keppni Sundsambands Islands, hófst f Sundhöll Reykjavfkur I gærkvöldí. Var þá keppt I fjórum greanum, 400 metra bringusundi karla og kvenna og 800 metra skriðsundi karla og kvenna. Aðal- hluti keppnínnar fer svo fram nú um helgina. Verður keppt f 11 sundgreinum f dag og 11 greinum á morgun, þannig að keppnis- greinar f mótinu eru alls 26. Þetta er f fyrsta sinn sem Bikar- keppni Sundsambandsins fer fram eftir nýrri reglugerð, þar sem kveðið er á um deildaskipt- ingu. Keppa fjögur lið f 1. deild, og hefur hvert félag rétt til þess að senda tvo keppendur í grein. Neðsta liðið f 1. deildar keppninni nú fellur f 2. deild, en sigurvegar- inn f 2. deildar keppninni sem fram mun fara 3.—5. desember n.k. öðlast þátttökurétt f 1. deild að ári. Keppnin f dag hefst kl. 17,00 en á morgun hefst keppni kl. 15.00. Keppnisgreinar f dag: 200 m fjórsund kvenna 200 m flugsund karla 100 m skriðsund kvenna 100 m baksund karla 200 m bringusund kvenna 100 m bringusund karla 100 m flugsund kvenna 200 m skriðsund karla 200 m baksund kvenna 4x100 m fjórsund karla 4x100 m skriðsund kvenna Sunnudagur: 200 m fjórsund karla 200 m flugsund kvenna 100 m skriðsund karla 100 m baksund kvenna 200 m bringusund karla 100 m bringusund kvenna 100 m flugsund karla 200 m baksund karla 4x 100 m f jórsund kvenna 4x 100 m skriðsund karla. Ársþing FRÍ ÁRSÞING Frjálsfþróttasambands tslands verður haldið í Vfkingasal Hótel Loftleiða dagana 27. og 28. nóvember n.k. HELGINA UMFN-ÍR og Ármann-KR í dag á sviðsljósinu f Bikarkeppni sundsam- SSÍ UM ÞAÐ verða örugglega hörkuleikir f Islandsmótinu f körfuknattleik nú f dag þar sem Njarðvfkingar fí lR-inga f heimsókn og Ármann leikur við KR. Þá leika Valsmenn við UBK og lS við Fram. Leikur- inn f Njarðvfk hefst klukkan 14.00 og leikur Armanns og KR, sem verður f fþróttahúsi Haga- skólans, hefst einnig klukkan 14.00. Klukkan 15.00 hefst svo leikur ts og Fram og verður hann f fþróttahúsi Kennaraskólans. Klukkan 16.30 hefst svo leikur Vals og UBK og verður hann þá á sama stað. Það er erfitt að spá með nokkru öryggi um þessa leiki, en þó verð- ur að teljast líklegt, að bæði Fram og Breiðablik tapi leikjum sínum, Fram fyrir IS og Breiðablik fyrir Val, og ættu því Valsmenn og stúdentar að fá sín fyrstu stig um helgina, en þó er ekki gott að segja hvað Framarar gera gegn stúdentum og ætti sá leikur að geta orðið nokkuð tvísýnn. Um leik Njarðvíkinga og IR er það helzt að segja, að Njarðvík- ingar verða að teljast nokkuð sig- urstranglegri, þar sem þeir leika á heimavelli sínum, ljónagryfj- unni, og þar tapa þeir sjaldan leikjum. tR-ingar verða hins veg- ar að berjast vel og helzt þyrftu þeir að vinna til að vera með í baráttunni um efsta sætið, en þeir hafa nú tapað 2 stigum og mega ekki tapa miklu fleiri. Það ætti því að verða um skemmtilegan baráttuleik að ræða í Njarðvík- Þróunn Alfreðsdóttir verður örugglega mikið bandsins um helgina. BIKARKEPPNI Norðurlandamót í badminton LAUGARDALSHOLL Laugardagur kl. 11.00 — 1 8.30 undanrásir Sunnudagur kl. 9.00 undanúrslit Sunnudagur kl. 14.00 úrslit.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.