Morgunblaðið - 20.11.1976, Blaðsíða 32
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JHareunblabit)
LAUGARDAGUR, 20. NÓVEMBER 1976
Byrja Vængir að
fljúga um helgina?
Flugráð hefur mælt með flugrekstr-
arleyfi fyrir Islander-vél félagsins
FLUGRÁÐ samþykkti á fundi I
gær að mæla með þvi við sam-
gönguráðuneytið að veita
Vængjum hf flugrekstrarleyfi
fyrir 9 sæta Islander-flugvél
félagsins. Er ákvörðunarvald nú (
höndum Halldörs E. Sigurðssonar
samgönguráðherra, en hann er
væntanlegur til landsins f dag.
Þar sem flugráð hefur gefið
Geirfinnsmálið:
Nú beinist
athyglin að
Álftanesi
RANNSÓKNARMENN f Geir-
finnsmálinu hafa nú beint
augum sfnum að Álftanesi,
sem hugsanlegum felustað
jarðneskra leifa þeirra
Guðmundar Einarssonar og
Geirfinns Einarssonar. 1 fyrra-
dag voru rannsóknarmenn að
leita á nesinu og var
skurðgrafa notuð við verkið.
Ekkert fannst við þessa fyrstu
leit og er áformað að leita
frekar á Álftanesi á næstu dög-
um.
Leitin á Álftanesi mun vera
til komin vegna ábendinga
þeirra ungmenna. sem nú sitja
Framhald á bls. 18
grænt ljós á umsókn Vængja, er
allt útlit fyrir að ráðuneytið veiti
flugfélaginu flugrekstrarleyfið.
Viðar Hjálmtýsson, flugmaður
hjá Vængjum, sagði við Mbl. í gær
að félagið myndi hefja áætlunar-
flug strax og leyfið kæmi, jafnvel
strax um helgina. Guðjón Sigur-
geirsson, flugvirki, sem starfar
sjálfstætt, hefur gert
Islandervélina flughæfa en að
sögn Viðars er bandarískur flug-
virki væntanlegur til landsins
eftir helgina, og mun hann strax
hefjast handa um að yfirfara
báðar Twin-Otter flugvélar
Vængja og gera þær flughæfar.
Ljósm. Jens Mikaelsson.
Heildarsöltun Suðurlandssfldar nálgast nú 100 þúsund tunnur. Verulegur hluti hennar er reknetasfld
og hefur hlutur Hornfirðinga verið þar stærstur. Myndin sýnir reknetabátinn Gissur hvfta koma inn
til Hornaf jarðar fyrir helgina með 50 tonn af sfld.
Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra:
Opinberar framkvæmdir
18—19% minni næsta ár
t DRÖGUM að fjármuna-
myndunarspá fyrir árið
1977, sem nú er unnið að,
kemur fram að samdráttur
í heildarfjárfestingu ts-
lendinga verður 4 til 5%.
Munar þar mestu um sam-
Þegar búið að panta 3 1000
hestafla vélar frá Bronx-
verksmiðjunni á Ólafsfirði
SEM kunnugt er, þá er fyrirtækið
Nonni h.f. á Ólafsfirði og véla-
verksmiðjan Bronx f Hollandi að
reisa f sameiningu samsetningar-
verksmiðju á Ólafsfirði og á hún
að taka til starfa á næsta ári. Eftir
þvf sem Þórir Hall hjá Nonna
tjáði Morgunblaðinu f gær, er
þegar búið að panta þrjár vélar
frá hinni nýju samsetningarverk-
smiðju.
Þórir sagði, að unnið væri af
miklum krafti við að koma verk-
smiðjunni upp, og vonazt væri til
að hún gæti tekið til starfa seint á
næsta ári. — Það er þegar búið að
panta hjá okkur þrjár 1000 hest-
afla vélar, en alls á að vera hægt
að setja saman 5 vélar á ári til að
byrja með, eða 5000 hestöfl alls.
Þá sagði hann að gert væri ráð
fyrir að 10—15 manns myndu
drátt opinberra fram-
kvæmda, sem mun á næsta
ári verða um 18 til 19%.
Kom þetta fram f ræðu,
sem Geir Hallgrfmsson,
forsætisráðherra, hélt f
gær á ráðstefnu Stjðrnun-
arfélags tslands um fjár-
festingarmál.
Kom það fram í ræðu Geirs, að
meginviðfangsefni I efnahagsmál-
um næstu mánuðina verður að
halda áfram viðleitni til að draga
úr verðbólgu og jafna viðskipa-
hallann, án þess að atvinnuöryggi
sé fórnað. Taldi Geir að það gæti
aldrei tekizt án verulegs aðhalds
að vexti þjóðarútgjaldanna. Því
væri það stefna ríkisstjórnarinn-
ar, að hlutur samneyzlu ykist ekki
á næsta ári heldur yrði dregið úr
opinberum framkvæmdum f
heild.
„Nokkur samdráttur opinberra
framkvæmda hlýtur því að setja
svip á horfur f fjárfestingamálum
næstu misserin," sagði Geir. „I
drögum að fjármunamyndunar-
spá fyrir 1977 kemur fram um 4
til 5% samdráttur 1 heildarfjár-
festingu. Þessi samdráttur verður
fyrst og fremst vegna aðhalds f
opinberum framkvæmdum, þar
sem mjög mun draga úr raforku-
framkvæmdum, enda Sigöldu-
virkjun að mestu lokið og Kröflu-
virkjun langt komin, án þess að
aðrar opinberar stórframkvæmd-
ir taki þegar við.“
Sagði Geir, að á grundvelli til-
lagna fjárlagafrumvarpsins og
nokkurri vitneskju um fram-
kvæmdaáform sveitarfélaga,
benti fjármunamyndunarspáin til
um 18 til 19% samdráttar opin-
berra framkvæmda á næsta ári.
Samdráttur í raforkuframkvæmd-
um skapaði samt nokkurt svigrúm
til aukningar á öðrum sviðum.
Kvað forsætisráðherra einkum
mikilvægt að unnið yrði að hita-
veituframkvæmdum og væri gert
ráð fyrir að þær ykjust um fjórð-
ung á næsta ári. Þá sagði hann að
Framhafd á bls. 18
Hátt verð fæst fyr-
ir rækju 1 Hollandi
AÐ UNDANFÖRNU hefur feng-
izt mjög gott verð fyrir frysta
rækju f Holiandi eða sem sam-
svarar 22.50 sænskum krónum á
kfló, og er hér um lausfrysta
rækju að ræða.
Pólverjar hóta að rifta
samningum við Loðskinn hf.
stæðan er deila SÍS og Loðskinns í gærumálinu
MRANB klpn7kra cam. —.. 1 —-- —
SAMBAND fslenzkra sam-
vinnufélaga hefur eins og
kunnugt er neitað sútunar-
verksmiðjunni Loðskinn
h.f. á Sauðárkróki um
gæruskinn til vinnslu eins
og undanfarin ár (213 þús.
skinn s.I. ár frá Búvöru-
deild StS), en f haust hóf
Iðnaðardeild StS að selja
forsútaðar gærur á Pól-
Iandsmarkað. Hingað til
hefur Loðskinn hins vegar
verið eini fslenzki söluaðil-
inn á þeim markaði f Pól-
landi. Það er þvf allt útlit
fyrir, eins og málið stend-
„Eigum á hættu ad missa sölu-
samninga vegna hráskinnaleiks
SÍS,” segir forstjóri Loðskinns
ur, að Loðskinn verði að
hætta rekstri sínum, en
fyrirtækið er orðið snar
þáttur f atvinnulffi Sauðár-
króks með 20 fasta starfs-
menn og er verulegur
gjaldandi til bæjar-
félagsins.
1 gær barst Loðskinni h.f. skeyti
frá pólsku kaupendunum,
SKORIMPEX, en það er inn-
flutningsfyrirtæki pólska ríkisins
og dreifir hráefni til fjölmargra
verksmiðja. I skeytinu segir
pólska rfkisinnkaupafyrirtækið
að það muni verða að endurskoða
alla samninga um vörukaup frá
Loðskinni, þar sem þeir hafi frétt
að Loðskinn sé að reyna að hindra
útflutning á hráum gæruskinnum
til Póllands. Mbl. leitaði upp-
lýsinga um málið hjá Jóni
Asbergssyni forstjóra Loðskinns.
I skeytinu segir m.a. í lauslegri
þýðingu: „Við höfum heyrt að
upp séu ráðagerðir um að stöðva
útflutning á hráum gærum til Pól-
lands. Okkur þykir leitt að heyra
að yðar fyrirtæki ber ábyrgð á
þessum ráðagerðum. Við verðum
því að tilkynna yður að breyt-
ingar á gerðum samningum um
sölu á söltuðum skinnum til Pól-
lands munu óhjákvæmilega leiða
af sér endurskoðun á kaupunum
frá yður í ár og framvegis. Við
erum of heiðarlegir kaupendur til
að láta hafa okkur að leiksoppi f
valdaleik milli þeirra sem útvega
okkur hráefni."
Morgunblaðið spurði Jón As-
bergsson að þvf hvað hann vildi
segja um þá stöðu sem upp væri
komin, annars vegar með tilkynn-
ingu StS að selja Loðskinni ekki
Framhald á bls. 18
Þórir Hall hjá Nonna h.f. tjáði
Morgunblaðinu að fyrirtækið
hefði byrjað á að flytja rækju f
smáum stíl til Holland á s.l. ári og
þegar fengið sæmilegt verð fyrir
hana. A þessu ári hefði verið Áutt
út yfir 30 lestir og 22—22.50 s. kr.
fengizt fyrir kílóið. Sagðist hann
eiga von á, að á næstu árum yrði
hægt að auka þennan útflutning
töluvert mikið. Umboðsaðili
þeirra í Hollandi væri stórt dreif-
ingarfyrirtæki, sem hefði aðstöðu
víða I Hollandi.
Þórir sagði, að rækjan, sem þeir
hefðu flutt út, kæmi frá nokkrum
stöðum á landinu, en kaupendum
í Hollandi likaði bezt við rækjuna
sem kæmi frá Dalvík.
Lá við alvar-
legu slysi á
••
Oxnadalsheiði
Akureyri 19. nóv.
HARÐUR árekstur varð milli
tveggja bfla á öxnadaisheiði um
klukkan 18.30 f kvöld. Fólksbfll
úr Skagafirði var á vesturleið en
Bronco-jeppi frá Akureyri á
austurleið þegar þeir skullu
harkalega saman á brúnni yfir
Reiðgil, vestarlega á heiðinni.
Bflarnir köstuðust vestur af
Framhald ábls. 18