Morgunblaðið - 20.11.1976, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.11.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 20. NOVEMBER 1976 Verðmæti hundruða milljóna króna hent í sjóinn Sigurlaug Bjamadóttir og Jón Árnason hafa flutt tillögu til þingsályktunar um fullnýtingu lifrar og hrogna. í greinargerB kemur fram, aS heildar- magn lifrar úr árlegum fiskafla fslendinga (þorski, ufsa og ýsu) sé allt að 15.000 tonn. Af þvi magni er um 10 þús- und tonnum fleygt. Var- lega áætlað er verðmæti þessa hráefnis 250 m.kr. á ári að sögn Sigurlaugar og margfalt það ef full- unnið væri. Sigurlaug sagði 1 framsögu fyrir til- lögunni að verð á hreins- uðu lýsi væri kr. 67.000 á tonnið. Flutningsmenn telja nauðsynlegt að könnun fari tafarlaust fram á þvi, hvem veg megi nýta þessi verð- mæti. sem óverjandi sé að fleygja. bæði með tilliti til gjaldeyrisstöðu þjóðar- búsins og ekki síður með tilliti til þess næringar- vanda, sem hrjárir stóran hluta mannkyns. Lýsi og niðursoðin lifur Sigurlaug sagði að lýsisframleiðendur teldu að hægt væri að selja mun meira af meðalalýsi á erlendan markað, ef meira framboð væri á góðri og ferskri lifur hér heima. Aukin framleiðsla fóðurlýsis gæti og létt eitthvað á útgjöldum bænda I rándýran fóður- bæti, sem er einn út- gjaldafrekasti rekstrar- liður landbúnaðarins. i V- Þýzkalandi er vaxandi áhugi á niðursoðinni þorsklifur. Mengun sjávar viða um heim (lifur er sér- staklega viðkvæm fyrir mengun) veldur þvi. að fsland og N-Noregur eru talin liklegust framleiðslu- svæði neyzluvara úr lifur. Lifur úr Eystrasalti er t.d. ekki talin gjaldgeng til vinnslu vegna mengunar. Framkvæmd bókunar sex auðveldar okkur sölu á Evrópumarkað fyrir allar sjávarafurðir, en ekki sizt rækju. hrogna og lifrar. Sigurlaug sagði mikinn áhuga fyrir þessu máli bæði hjá Rannsóknastofn- un fiskiðnaðarins og lýsis- framleiðendum. Þessu máli þyrfti þvi að fylgja fast eftir. Geymsluþol lifrar Sigurlaug sagði að tvennt hefði verið fært fram til afsökunar þvi, að lifur væri. ekki hirt. Geymsluþol hennar væri takmarkað og mikið feit- metisframboð á heims- markaði hefði haldið lýsis- verði það lágu. að vinnsla hennar væri vafasöm i verðlægðum. Rannsóknir á geymsluþol lifrar hafi hinsvegar sýnt að með réttum aðferðum megi auka það í allt að 10 daga. Markaðsaðstaða virðist og batnandi. eftir upplýsingum sem hún taldi áreiðanlegar. i þessu sambandi megi heldur ekki gleyma framlögum svokallaðra velmegunar- þjóða til þrónuarlanda. þar sem hqndruð milljóna líði af næringarskorti. Hér sé þvl ekki einvörðungu um það að ræða, hvort við stöndumst það efnahags- lega að fleygja í sjóinn fæðuverðmætum fyrir hundruð milljóna króna. heldur líka hitt, hvort það sé siðferðilega verjandi eða sæmandi menningar- þjóð. Að nýta verð- mætin við fætur okkar í ræðu Sigurlaugar var m.a. vitnað til fróðlegs er- indis dr. Bjöms Dagbjarts- sonar, sem öðrum þræði fjallaði um nauðsyn þess að kanna grundvöll fyrir lyfja- og Itfefnavinnslu úr sjávarafla. en þeirri iðn- grein er spáð vaxandi gengi á næstu áratugum. Það þykir Ijóst að notkun fiskúrgangs i lifefna- vinnslu er að mestu óplægður akur og þarfn- ast mikillar undirbúnings- vinnu og rannsókna. Ýms- ar aukaafurðir fiskiðnaðar eru nær framleiðslustig- inu. Má þar nefna rækju- skel og humarúrgang. Ár- iega falla til um 5000 tonn af þess konar úr- gangi frá vinnslustöðvum i landi, auk þess sem fleygt er i sjóinn af humarbátum. Litarefni i rækjuskel Contaxantin, er sama eðlis og litarefnið i holdi laxa og bleikju, og er sett i blöndur fiskafóðurs til eldisstöðva. Súpukraft má vinna úr humarklóm. hydrosiöt úr fiskslógi og fleira mætti til tina úr fróðlegri ræðu þing- mannsins, sem vakið hefur verðskuldaða at- hygli. Guðspjall dagsins: Skattpeningurinn. (Matt. 22, 15,—22.) Litur dagins er grænn: Táknar vöxt, einkum vöxt hins andlega lífs. DÓMKIRKJAN Messa kl. 11 árd. Séra Hjalti Guðmundsson. Klukkan 2 siðd. messa með breyttu formi. Kristinn Halls- son verður forsöngvari og syng- ur einsöng. Foreldrar og að- standendur fermingarbarn- anna eru vinsamlegast beðnir að koma ásamt börnunum. Séra Þórir Stephensen. Barnasam- koma kl. 10.30 i Vesturbæjar- skólanum við Öldugötu. Séra Þórir Stephensen. LAUGARNESKIRKJA Messa kl. 2 siðd. Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd. Séra Garðar Svavars- son. BUSTAÐAKIRKJA Barnasam- koma kl. 11 árd. Guðþjónusta kl. 2 síðd. Barnagæzla meðan á messu stendur. Séra Ólafur Skulason. DÓMKIRKJA KRISTS Konungs Landakoti Lágmessa ki. 8.30 árd. hámessa kl. 10.30 árd. og lágmessa kl. 2 síðd. KIRKJA ÓHÁÐA SAFNAÐ- ARINS Messa kl. 2 siðd. Séra Emil Björnsson. NESKIRKJA Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Guðþjónusta kl. 2 e.h. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Kirkjukvöld kl. 8.30. 35 ára afmæli Kvenfélagsins, vandað verður til dagskrár. Einsöngur og tvisöngur. Erindi Þórarinn Þórarinsson f. skóla- stjóri. Orgelleikur. Afmælis- veitingar í Félagsheimilinu. FRtKIRKJAN Barnasamkoma kl. 10 30 árd. Guðni Gunnars- son. Messa kl. 2 síðd. Séra Þor- steinn Björnsson. FELLA- OG HÓLASÓKN Barnasamkoma í Fellaskóla kl. 11 árd. Guðþjónusta í skólanum kl. 2 siðd. Séra Hreinn Hjartar- son. LANGHOLTSPRESTAKALL Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Guðþjónusta kl 2 síðd. Séra Árelius Níelsson. HÁTEIGSKIRKJA Barnaguð- þjónusta kl. 11 árd. Séra Tómas Sveinsson. Messa kl. 2 síðd. Séra Arngrímur Jónsson. H ALLGRtMSKIRKJA Messa kl. 11 árd. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. Fjölskyldumessa kl. 2 siðd. Séra Karl Sigurbjörns- son. LANDSPÍTALINN Messa kl. 10 árd. Séra Karl Sigurbjörns- son. ÁSPRESTAKALL Messa kl. 2 siðd. að Norðurbrtin 1. Séra Grimur Grímsson. GRENSÁSKIRKJA Barnasam- koma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2 siðd. Altarisganga. Séra Hall- dór S. Gröndal. ÁRBÆJARPRESTAKALL Barnasamkoma í Árbæjarskóla kl. 10.30 árd. Guðþjónusta i skólanum kl. 2 síðd. Æskulýðs- félagsfundur á sama stað klukkan 8 síðdegis. Séra Guð- mundur Þorsteinsson. HJÁLPREÆÐISHERINN Helgunarsamkoma kl. 11 árd. Sunnudagaskóli kl. 2 síðd. Hjálpræðissamkoma kl. 8.30 síðd. Hermannavígsla. Prédikun flytur major Hiorth. Kaft. Daníel Óskarsson. FtLADEILFtUKIRKJAN Al- menn guðþjónusta kl. 8 siðd. Einar J. Gislason. GRUND elli- og hjúkrunar- heimili. Messa kl. 10 árd. Séra Magntis Guðmundsson fyrrv. prófastur messar. DIGRANESPRESTAKALL Barnasamkoma í Safnaðar- heimilinu við Bjarnhölastíg kl. 11 árd. Guðþjónusta i Kópa- vogskirkju kl. 2 síðd. Séra Þor- bergur Kristjánsson. KÁRSNESPRESTAKALL Barnasamkoma í Kársnesskóla kl. 11 árd. Guðþjónusta í Kópa- vogskirkju kl. 11 árd. Séra Árni Pálsson. GARÐAKIRKJA Barnasam- koma í skólasalnum kl. 11 árd. Séra Bragi Friðriksson. HAFN ARFJARÐARKIRKJ A Barnasamkoma kl. 11 árd. Rún- ar Egilsson guðfræðinemi. Messa kl. 2 siðd. Séra Þorvald- ur Karl Helgason prédikar, séra Bragi Friðriksson þjónar fyrir altari. Aðalsafnaðarfund- ur að messu lokinni. Sóknar- nefnd. NJARÐVtKURPRESTAKALL Sunnudagaskóli i Innri- Njarðvíkurkirkju kl. 11 árd. og i Stapa kl. 1.30. Guðþjónusta í Innri-Njarðvíkurkirkju kl. 2 síðd. Séra Páll Þórðarson. KEFLAVtKURKIRKJ A Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Guð- þjónusta kl. 2 síðd. „Kristað æskufólk" sér um kvöldvöku kl. 8.30. Séra Ólafur Oddur Jónsson. STOKKSEYRARKIRKJA Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd. Sóknarprestur. GAULVERJABÆJARKIRKJA Almenn guðþjónusta kl. 2 siðd. Sóknarprestur. ÚTSKÁLAKIRKJA Messa kl. 2 siðd. Séra Erlendur Sigmunds- son. STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA Messa kl. 2 siðd. Barnaguðþjón- usta kl. 3 siðd. Séra Stefán Lár- usson. AKRANESKIRKJA Barnasam- koma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2 síðd. Jóhannes Ingibjartsson sóknarnefndarformaður prédikar. Kristniboðsins minnzt. Séra Björn Jónsson. Verkamannafélagið Dagsbrún Félagsfundur verður í Iðnó sunnudaginn 21. nóv. 1976 kl. 2. e.h. Dagskrð: 1. Félagsmál (kosning í starfsnefndir samkv. lögum). 2. Breyting á innheimtu félagsgjalda, samkvæmt samþykkt aðalfundar. 3. Málefni ASÍ þingsins. Fjölmennið og sýnið skírteini við innganginn. Stjórnin. Standard 'Patkfíhder Eigum fyrirliggjandi hin viðurkenndu reykköfunartæki frá SABRE SAFETY LTD, Mjög hagkvæm verð. Öll tækin afgreidd með lásum og festingum úr ryðfríu stáli og hylkjum úr léttmálmi. Vélsmiðjan Dynjandi S/F Skeifunni 3 H Símar 82670 og 82671. ItfH 'th kvokl verður sunnudagskvöld 21. nóvember að Hótel Sögu Súlnasal Austurlandakynning Kl. 19.00. Húsiðopnað. Kl. 19.30. — Hátlðin hefst stundvislega. Matseðil: Kinverskur fiskiréttur CHO LOW YU. Indverskt KABAB karrý. Arablskur kjúklingur Djedjag imer Matarverð aðeins kr. 1650.— Kl. 20.30. Skemmtiatriði. Myndasýning — Austurlönd. Tizkusýning m.a. pelsar frá Pelsinum. Ferðabingó: Spilað verður um 3 sólarferðir með Útsýn til Spánar og italiu. Fegurðarsamkeppni ungfrú Útsýn 1977 __________ forkeppni. Dans: Hin vinsæla hljómsveit Ragnars Bjarna- sonar. Ath.: Gestir sem koma fyrir kl. 20.00 fá ókeypis happdrættis- miða og vinningurinn er ókeypis Útsýnarferð til Spánar og Ítaliu. Munið að panta borð snemma hjá yfirþjóni. Hjá Útsýn komast jafnan færri aðen vilja. Útsýnarkvöld eru skemmtanir I sérflokki þar sem fjörið og stemmn- ingin bregzt ekki. FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.