Morgunblaðið - 20.11.1976, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.11.1976, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NOVEMBER 1976 Brown vill vera áfram í starfi herráðsforseta Einn sovézku kafbátanna i Stórabelti. Sex sovézkir kafbát- ar með kjarnorku- flaugar í Eystrasalti DANSKA blaðið Ber- lingske Tidende skýrir frá því, að Sovétríkin hafi í síðasta mánuði stefnt sex stórum kafbát- um sem bera kjarnorku- eldflaugar inn á Eystra- salt. Tveir þeir síðustu fóru um Stórabelti á mánudaginn var. Ekki var vitað hvort kafbát- arnir voru með kjarn- orkueldflaugar þegar þeir fóru um dönsku haf- svæðin. Blaðið spyr hvað hér sé á ferðinni og segir, að þetta sé í fyrsta skipti, sem kafbátar, sem geti borið slík vopn, hafi verið í þessu „friðarins hafi“. Bátar þessir eru af svo- kallaðri „Golf-II“ gerð. Fram að þessu hafa bát- arnir einkum verið í grennd við Murmansk og átt þar heimahöfn. Vænta má þess, að sögn Berlingske Tidende, að aðrir kafbátar af nýrri lerð hafi leyst þessa af. Koma bátanna sex hefur vakið upp spurningar f röðum Atlantshafsbandalagsins um, það hvað Sovétar séu að vilja með þá í Eystrasalti. Þetta eru mjög stór skip og ekki sérlega vel fallin til aðgerða á hinu flatbotna Eyrarsundi. Aðeins á örfáum stöðum er nægilegt dýpi til að bátarnir geti kafað. Golf-II skipin voru endurbyggð og færð til nútimá- legra horfs árið 1967 og var þá kommið furir aðtöðu til að þau gætu borið kjarnorkuflaugar. Washington Reuter GEORGE Brown, hershöfðingi og opinskár yfirmaður herráðs Bandarfkjamanna, sagði að hann hefði ekki I hyggju að iáta af embætti, þegar Jimmy Carter tekur við starfi forseta Banda- rfkjanna f janúar. Hershöfðing- inn sætti harðri gagnrýni af hálfu Walters Mondale í kosningabar- áttunni fyrir að segja að Israel væri hernaðarleg byrði á Banda- rfkjunum. Mondale sagði, að þessi yfir- lýsing leiddi í ljós, að hershöfð- inginn væri ekki hæfur til að gegna stöðunni og ætti að reka hann. Þegar hershöfðinginn var svo inntur eftir því hvort hann myndi verða áfram undir Carter- stjórn og Mondale þá sem varafor- seti sagðist Brown álíta, að ekki bæri að taka alltof mikið mark á þeim yfirlýsingum sem gefnar hefðu verið í hita kosningabar- áttunnar. I>orp- arar þrasa Kobe, Japan 11. nóv. AP. ÞEKKTASTI glæpahringur Japans, Yamaguchi-gumi, hef- ur borið fram opinbera kvört- un, þar sem mótmælt er ein- dregið þeim áróðri sem uppi hefur verið hafður f landinu gegn starfsemi og ýmiss konar skuggalegri iðju glæpahrings- ins. Var sent bréf til lögregluyf- irvalda og ýmissa samtaka sem berjast gegn glæpum þar sem sagt er að þessi hópur sé ekki fjandsamlegur samfélaginu og að meðlimum hans sé neitað um grundvallarmannréttindi og birtist andúðin gegn þeim í ýmsum myndum. Krefjast þeir þess að fá að njóta sannmælis og réttinda á við aðra borgara. Sovés flaug sprakk í loft upp SOVÉZKI vfsindamaður- inn og andófsmaðurinn Zhares Medvedev segir að tugir helztu geimvís- indamanna Rússa hafi beið bana þegar tungl- flaug sprakk f loft upp 1960 og að hundruð manna hafi týnt Iffi f sprengingu sem varð f úrgangsefnum frá kjarnaofnum 1958. Nikita Krúsjeff hafði fyrir- skipað að tunglflauginni yrði skotið þegar hann kæmi til New York að sitja Allsherjar- þingið um borð f Baltika til að sýna fram á tæknilega yfir- burði Rússa og allir helztu geimvisindamenn og verkfræð- ingar Rússa komu saman til að horfa á geimskotið. „Allir á svæðinu biðu bana. Slysið kost- aði beztu geimvfsindamenn Rússa lffið, “ segir Medvedev f viðtali við Observer. Skömmu sfðar var tilkynnt að yfirmaður tilraunarinnar, Marshel Nedelin, hafði farizt f flugslysi, en dauða hinna var ekki getið. Seinna var sams konar tunglflaug skotið án erf- iðleika. Urgangsefnið sem sprenging- in varð í hafði verið grafið grunnt í jörðu á eyðisvæði ná- lægt Blagoveshensk í Uralfjöll- um og viðvaranir um hættu sem frá þvf gæti stafað höfðu verið að engu hafðar þar sem talið var of dýrt að koma því fyrir annars staðar, til dæmis á Kyrrahafi eða Indlandshafi. Medvedev líkir sprengingunni við eldgos og geislavirkt efni barst mörg hundruð kflómetra vegalengd. Fólk frá nálægum bæjum og þorpum var ekki flutt burtu fyrr en einkenni geislavirknisjúkdóma komu f Ijós. Medvedev segir að tugir þús- unda hafi orðið fyrir barðinu á þessu slysi og hundruð manna hafi beðið bana en engar tölur hafi verið birtar og ekki sé vit- að hversu víðtækt slysið var. Slysasvæðið er enn talið hættu- legt og vegir um það eru lokað- ir. Nokkrar athugunarstöðvar hafa verið reistar til að kanna geislavirkni á svæðinu. Yfirmaður brezku kjarnorku- nefndarinnar, Sir John Hill, hefur kallað skýrslu sem Medvedev hefur birt um málið f New Scientist þvaður og „hreina vfsindaskáldsögu", en Medvedev segir í viðtali við Guardian að hann standi við frásögn sfna og krefst þess að Hill biðji hann afsökunar. Medvedev segir að sprengingin í Uralfjöllum hafi ekki verið kjarnorkusprenging heldur „venjuleg sprenging af völdum gasefna sem söfnuðust saman umhverfis heit kjarnorkuúr- gangsefni." Filippus ætti að hyggja að íþróttum — en láta efnahagsmálin eiga sig London 16.nóv. NTB FILIPPUS drottningarmaður í Bret- landi fékk I dag kurteislega ábend- ingu frí ýmsum brezkum blöðum um að hann ætti að halda sér að málum sem væru lltt pólitisk, svo sem póló og öðrum iþróttum. Var þetta eftir að prinsinn gaf yfirlýsingar um vel ferðarriki og efnahgsmál i Bretlandi i viðtali við bandariskt timarit. Um- mæli hans voru á hvers manns vör- um i Bretlandi I dag og voru margir heldur ánægðir með hversu prinsinn væri oft opinskár og skeleggur i máli, en öðrum þótti við hæfi að hann héldi sig utan við svo viðkvæm mál sem efnahagsmál o.þ.u.l. „Velferðarrikið er vernd gegn mis- tökum og misnotkun, en þjóðin getur þvi aðeins komizt á réttan kjöl eftir efnahagskreppuna er hugmyndasnjallir og iðjusamir sérfræðingar fá tóm til að skipuleggja og notfæra sér möguleik- ana, sem eru fyrir hendi, " sagði prins- inn meðal annars I þessu umrædda viðtali Bæði blöð og stjórnmálamenn virt- ust nokkuð á eitt sátt um að drottning- in ætti að láta það ógert að tjá sig nm stjórnmál, en fjölskylda hennar mætti þó stöku sinnum láta í sér heyra, svo fremi að ekki væri þar um beina stuðningsyfirlýsingu að ræða við einn ákveðinn stjórnmálaflokk Ofan af f jöllum og utan úr ey komu íslendingar til ad votta Kínverjunum samúð EFTIRFARANDI fregn birtist í Peking Review 29. október s.l.: íslenzka þjóðin lét í Ijós djúpa sorg vegna andláts Maós Tse-tungs formanns. Yfir eitt þúsud manns heimsótti kín- verska sendiráðið dagana 9.— 18. september til að sýna samúð sína. Sumir komu frá fjarlægum fjallahéruðum eða örlitlum eyjum, sumir komu með alla fjölskyldu sína. Verka- menn komu í samfestingum, margir þeirra síðla nætur eftir vinnuvaktina Ung móðir hjálp- aði syni sínum að stafa nafnið hans í bókina, sem lá frammi fyrir mynd af Maó formanni. Gamall maður, sem kom tvisv- ar til sendiráðsins ásamt barna- barni sfnu, sagði: „Ég votta samúð mína með allri kín- versku þjóðinni og óska þess, að hún megi áfram ganga til góðs, götuna sem Maó vísaði henni á." í Peking Review, 22. októ- ber s.l. var enn fremur eftirfar- andi tilkynning: „Forsætisráðherra íslands, Geir Hallgrímsson, sendi þ. 9. september s.l. Hua Kuo-feng forsætisráðherra svohljóðandi skeyti: „Með Maó Tse-tung hefur horfið leiðtogi fjölmennustu þjóðar heimsins. Hann var hinn eini leiðtogi kínversku þjóðar- innar — hernaðarlegur, stjórn- málalegur og andlegur forystu- maður. Hann hefur líklega haft meiri alþjóðleg áhrif með störf- um sínum og kennslu en nokk- ur annar samtímamaður. ís- lenzka ríksistjórnin vottar sam- úð sína með kínversku þjóðinni og óskar þess um leið, að hún megi bregðast við missi sínum af því jafnaðargeði og þeirri hughreysti, sem einkennir hana."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.