Morgunblaðið - 20.11.1976, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 20.11.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1976 5 Merk tímamót Kven félags Neskirkju Háskólatónleikarnir eru í dag 1 dag, laugardag, verða haldnir Háskólatónleikar ( Félags- stofnun stúdenta við Hring- braut. Þar verður fiutt frönsk kammertónlist eftir Fauré, Duparc, Roussel, Gaubert, Chausson og Ravel. Flytjendur eru Rut Magnússon, mezzósópran, Jónas Ingi- mundarson, pianóieikari, Jósef Magnússon, flautuleikari. og Páll Gröndai, sem leikur á selló. Tónleikarnir hefjast kl. 17 og eru aðgöngumiðar seldir við innganginn. Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar á þvi að frétt um tónleikana birtist i blaðinu i gær, en hún átti að sjálfsögðu ekki að birtast fyrr en í dag. Breyttir messuhætt- ir í Dómkirkjunni Það hefur löngum þótt góðra gjalda vert að minnast merkra tímamóta í starfsævi félagasam- taka, sem hafa góð málefni að markmiði. Það er staðreynd, sem ekki verður hrakin, að kvenfélög innan kirkjusafnaða eru bæði burðarás og driffjöður hins fórn- andi safnaðarstarfs hverrar þeirr- ar sóknar, er nýtur þess að eiga kvenfélag sem grein á sínum stofni. Kvenfélagskonur skipa sér jafnan í fylkingarbrjóst með fjár- öflun, þegar leggja þarf til atlögu, hvort heldur er til byggingar nýrrar kirkju og öflunar nýrra kirkjumuna til prýðis eða nota. Til þessa hefur hlutur þeirra að AA-samtök- in með opinn fund í dag AA-SAMTÖKIN efna til fundar I Austurbæjarbfói f dag kl. 14. Gestur fundarins verður James S. Cusack, forstöðumaður endur- hæfingarheimilisins Veritas Villa i Bandarfkjunum, og verður erindi hans fslenzkað. A fundinum fara fram umræð- ur og fyrirspurnum verður svar- að, auk þess sem Alanon, samtök aðstandenda áfengissjúklinga, kynna starfsemi sína. Kjörorð fundarins er: „Hvað gera AA-samtökin fyrir mig?“ Fundurinn er öllum opinn og væntir samstarfsnefnd AA- samtakanna á Islandi þess, að þar verði samankomið fjölmenni, að því er fram kemur i fréttatilkynn- ingu. þessu leyti verið bæði stór og góður, jafnframt því sem þær eru ávalt vakandi um framgang margskonar líknarmála. Kvenfélag er stöðugt á varð- bergi til hjálpar bágstöddum, ungum jafnt sem öldnum. Fórn- fýsi og líknarlund þessara kvenna eru lítil takmörk sett. Nú ber svo við, að eitt af eldri kvenfélögum innan Þjóðkirkju- safnaða hér i Reykjavlk minnist merkra tfmamóta I starfssögu sinni, þ.e.a.s. Kvenfélag Nes- kirkju, sem á um þessar mundir 35 ára afmæli. A slikum timamótum er oft á tíðum staldrað við, litið til baka og horft til minningamynda, er fram í hugann koma. En fyrst og fremst skal horft fram á leið til þess ókomna, og þá vilja koma fram hugarsýnir um marga góða hluti, sem gera þarf að veruleika kirkjunni og söfnuði til hagsbóta. Kvenfélag Neskirkju hefur frá byrjun sýnt í verki, hvað góður hugur og vilji geta áorkað miklu, þegar kærleiksrfkar konur taka höndum saman af logandi áhuga. Kvenfélagskonur Neskirkju minnast á morgun, sunnudag, af- mælisins með kvöldvöku f kirkjunni kl. 8.30. Þar verður gott efni flutt í tali og tónum. Hinn kunni skóla- maður Þórarinn Þórarinsson, fyrrum skólastjóri að Eiðum flytur þar erindi, auk þess sem mikill söngur verður í heiðri hafður, svo sem einsöngur og tvisöngur að ógleymdum einleik á kirkjuorgelið. Að lokinni dagskrá f kirkjunni býður Kvenfélagið kirkjugestum til afmælisfagnaðar f félagsheimili kirkjunnar. Það er öllu Nessóknarfólki alkunnugt að kvenfélagskonur Framhald á bls. 30 A MORGUN, sunnudaginn 21. nóvember kl. 2 e.h., verður gerð tilraun með nýtt messuform f Dómkirkjunni. Kirkjukórinn verður ekki við þessa messu, en treyst er á almenna þátttöku kirkjugesta f sáimasöngnum, og Kristinn Hallsson óperusöngvari verður forsöngvari, þ.e. leiðir sönginn. Hann mun einnig syngja eitt einsöngsiag. Vixlsöngur prests og kirkjukórs fellur niður í þessari messu, en í staðinn verður vfxllestur prests og safnaðar, og fá kirkjugestir fjölritaða messuskrá f hendur. Hana höfum við sr. Hjalti Guðmundsson unnið úr tveamur messuformum, sem hér hafa verið notuð á æskulýðsdegi og almennum bænadegi, og gert nokkrar breytingar á. Ætlunin er að reyna þetta messuform f sfðdegismessunum á næstunni, þ.e. kl. 2 e.h. I morgun- messunum kl. 11 f.h. verður allt óbreytt frá þvf, sem venja hefur verið. Þessi tilraun er gerð vegna síaukinna erfiðleika við að fá fólk til starfs í kirkjukórunum. Ég býst við að ýmsir sakni víxlsöngs- ins, aðrir aftur á móti, og einkum þeir, sem talað hafa um of litla þátttöku safnaðarins í guðs- þjónustunni, hljóta að fagna þessari tilraun, sem öll veltur á þvf, að söfnuðurinn sé þátt- takandi. Og þar sem morgun- messan verður óbreytt áfram, verður báðum sjónarmiðum gert jafnhátt undir höfði. Reynt verður að fá ýmsa okkar bestu söngvara til að skiptast á um að gegna forsöngvarahlut- verkinu og syngja jafnframt ein- söng. Framhald á bls. 30 OUMDEILDIR YFIRBURÐIR Marantz 7 G hátalari. Verð kr. 53.500. stk. Marantz höfuötól kr. 9.900. Um flest er deilt og sjaldnast eru menn á eitt sáttir. Fáir hafa þó orðið til að véfengja gæði og tækni- snilld MARANTZ hljóm- tækjanna. Þótt enn sé biðlisti og nokkur afgreiðslutími,þá hvetjum við þig til að kynna þér MARANTZ hljómtækin og kaupa þau. SAMVALDAR NESCO HUÓMTÆKJASAMSTÆÐUR Leiðandi fyrirtæki á sviði sjónvarps útvarps og hljómtækja VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 27788,19192,19150.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.