Morgunblaðið - 20.11.1976, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NOVEMBER 1976
Áformuð framtfðarbyggð f Reykjavfk sem teygir sig í austurátt norðan Vesturlandsvegar. tbúðasvæðin eru fimm merkt Ijósgrá,
Geidinganesið, Gufunesmelar, Korpúlfstaðasvæðið, Keldnaholt og Hamrahlíðarlönd. Útivistarsvæði, sem eru græn, tengja helztu svæðin
og liggja m.a. með strandlengjunni í Geldinganesi og Korpúlfsstöðum og meðfram Clfarsá. Við Grafarvog norðanverðan og umhverfis
ferskvatnstjörn þar. Umfangsmeiri atvinnustarfsemi er afmörkuð frá íbúðarbyggð, eins og við áburðarverksmiðjuna og á fyllingu við
öskuhauga, en önnur atvinnusvæði aftur á móti í rfkari mæli en áður tengd inn f íbúðarsvæðin og á milli þeirra. Hafnarsvæði eru t.d. við
suðurströnd Grafarvogs, á uppfyllingu við öskuhaugana í Gufunesi.
50 þúsund manna framtíðarbyggð
áformuð austan við Reykjavík
Að undanförnu hefur verið
unnið að aðalskipulagi fyrir
Reykjavik til næstu 20 ára.
Birgir tsl. Gunnarsson kynnti
nýlega á hverfafundum sinum
tillögur að framtíðarbyggð sem
muni teygjast f austurátt frá
Reykjavfk. Verða þær tillögur
á sýningu á Kjarvalsstöðum f
næstu viku. Byggðasvæði, sem
voru áætluð til byggðaþróunar
fram yfir 1983, eru nú senn að
verða fullbyggð og má ætla að
lokið verði við að úthluta bygg-
ingarlóðum á þessum svæðum
1980, að þvf er borgarstjóri
sagði, áður en hann sneri sér að
þvf að útskýra hvað þá er
áformað. Fer það hér á eftir:
1 núgildandi aðalskipulagi
var gert ráð fyrir þvf, að fram-
tíðarbyggð myndi þróast f suð-
ur á öllu höfuðborgarsvæðinu,
þ.e.a.s. reiknað var með, að
sveitarfélögin f Reykjavík,
Kópavogi, Garðabæ og Hafnar-
firði myndu meira og minna
byggjast saman f náinni fram-
tíð. Þessar hugmyndir hafa að
miklu leyti raskazt, að hluta
vegna þess, að nágrannasveitar-
félög okkar hafa ekki verið við
því búin að mæta svo örri
byggðaþróun. Enn fremur hlýt-
ur það að vera sjónarmið
Reykjavfkurborgar að geta séð
fbúum borgarinnar fyrir bygg-
ingarlóðum innan borgarmark-
anna, og að því hlýtur borgar-
stjórn að stefna. Þá má enn
geta þess, að með tilkomu Vest-
urlandsvegar breyttist mjög af-
staða manna til byggðamögu-
leika í Mosfellssveit. Þar hefur
byggð mjög vaxið, og þvf ekki
óeðlilegt að hugsa sér, að
Reykjavik stefni nú til austurs,
og Mosfellshreppur og Reykja-
vík byggist saman á næstu
áratugum.
Af þessum ástæðum beindi
skipulagsnefnd borgarinnar at-
hygli sinni að svæðum austur af
borginni og hóf þegar á árinu
1973 mikla undirbúningsvinnu
að tillögugerð um, hvernig haga
mætti byggð á þessu svæði. Sú
undirbúningsvinna verður ekki
rakin hér, en þess þó getið, að
mjög miklar rannsóknir hafa
farið fram á þessu svæði. Al-
hliða náttúrufarslýsing hefur
verið gerð á svæðinu, jarðvegs-
athuganir, veðurfarsathuganir,
athuganir á fjörum á þessu
svæði, svo og hvernig svæðið
liggur við sól og skuggum.
Þann tfma, sem undirbúnings-
vinna hefur staðið, hafa að
sjálfsögðu komið fram margvís-
legar hugmyndir um skipulagn-
ingu svæðisins, svo og umferð-
arkerfi að því og innan þess, en
skipulagsnefnd hefur nú að
undanförnu takmarkað umræð-
ur sínar við eina tillögu.
Svæðið afmarkast af Grafar-
vogi að sunnan, strandlengj-
unni að vestan og að norðan af
lögsögumörkum við Blikastaða-
kró og síðan að austanverðu af
lögsögu og vatnsverndunar-
mörkum. A svæðinu er að sjálf-
sögðu tekið tillit til núverandi
athafna og þeirra samþykkta,
sem þegar er búið að gera bind-
andi til frambúðar, og má sem
dæmi nefna staðsetningu rann-
sóknarstofnunarinnar við Keld-
ur og Keldnaholt, ákvörðun um
kirkjugarð, áburðarverksmiðju
og staðsetningu Korpúlfsstaða-
bæjarins.
Hafnarsvæði
Fyrst er rétt að lfta á, hvaða
svæði á þessum slóðum er ætlað
undir framtfðarhafnarsvæði:
1. Höfnin takmarkast nú af
suðurströnd Grafarvogs, en
með tengingu yfir voginn, sem
verður hluti fersksvatnstjarnar
innst f voginum. Þess ber að
gæta, að ekki verði teknar
ákvarðanir um byggingar á
tengingunni, fyrr en endanlegt
deiliskipulag liggur fyrir og
fyrirsjáanlegt er, að byggingar-
þörf hafnarinnar verði ekki
fullnægt á annan hátt.
2. Þá er einnig gert ráð fyrir að
mynda megi hafnarbakka með
uppfyllingu við öskuhaugana í
Gufunesi, og myndi sá hafnar-
bakki geta þjónað hafnsæknum
iðnaði, sem koma má fyrir á
þessu svæði.
3. Haldið verði opnum mögu-
leika við norðvesturodda Geld-
inganess fyrir umsvifamikla at-
vinnu og flutningastarfsemi.
Næst er þá rétt að líta á, hvar
ætluð eru svæði fyrir aðra at-
vinnustarfsemi.
1. Gert er ráð fyrir takmörkun
iðnaðarsvæða við strandlengj-
una, og er það breyting frá nú-
gildandi aðalskipulagi, en at-
vinnusvæði eru aftur á móti í
rfkari mæli tengd inn f fbúða-
svæðin og á milli þeirra.
2. Gerterráðfyrirsvæðumfyr-
ir umfangsmeiri atvinnustarf-
semi, sem eru afmörkuð frá
fbúðabyggð, eins og svæðið við
áburðarverksmiðjuna og fyll-
ingin við öskuhaugana, svo og
svæðið á Geldinganesi, eins og
fyrr segir.
tbúðabyggð
Þá er rétt að líta á fbúða-
byggðina á þessu svæði. Svæð-
inu er skipt i fimm ibúðasvæði,
sem samtals eiga að geta rúmað
50 þús. fbúa.
1. Geldinganesið. Geldinganes-
ið er mjög gott byggingarsvæði.
Jarðvegsdýpi þar er hentugt,
megin hluti nessins hefur góð-
an halla til suðurs og vesturs og
útsýni er mjög fagurt til allra
átta. A nesiriu er að vísu nokk-
uð vindasamt. Hér mun rúmast
eitt skólahverfi með u.þ.b. 5
þús. manns.
2. Gufunesmelar. Hér er um að
ræða melana. sem loftskeyta-
stöðin stendur nú á. Svæðið er
gott byggingarsvæði og útsýni
er gott út á sundin og út til
Esjunnar. Hér rúmast eitt
skólahverfi með u.þ.b. 5 þús.
manns.
3. Korpúlfsstaðasvæðið. Svæði
þetta er allstórt, en nokkuð af-
langt. Það liggur vel við útivist-
arsvæðum, svo sem Korpúlfs-
staðafjörunni, Úlfarsá og fyrir-
huguðum kirkjugarði. Undir-
staðan er mest jökulruðningar.
Hér rúmast tvö skólahverfi með
u.þ.b. lOþús. manns.
4. Keldnaholt. Svæðið er gott
byggingarsvæði. J arðvegsdýpi
er hentugt. Otsýni er mest til
suðurs og austurs. Hér rúmast
þrjú skólahverfi fyrir u.þ.b. 15
þús. manns.
5. Hamrahlfðarlönd. Þetta er
stórt svæði, sem nær frá Úlfars-
felli að Vesturlandsvegi og Úlf-
arsá. Svæðið er gott byggingar-
svæði og jarðvegsdýpi er hent-
ugt. Svæðið liggur vel við úti-
vistarsvæðum, svo sem Olfars-
felli og Úlfarsá. Útsýni er gott
yfir bæinn og út á sundin. Rétt
er að miða skipulagið við teng-
ingu við frekari íbúðabyggð
austur með Úlfarsfellinu. Hér
rúmast þrjú skólahverfi fyrir
u.þ.b. 15 þús. manns.
Byggðamöguleikar
fram yfir aldamót
Þessi skipulagsáætlun, sem
hér hefur nú í stórum dráttum
verið gert grein fyrir, er áætlun
um byggðamöguleika fyrir
Reykjavíkurborg fram yfir
aldamót. Þessi tillaga gerir ráð
fyrir mun dreifðari byggð held-
ur en t.d. í þeim nýju hverfum,
sem við höfum nú byggt, þ.e.a.s.
tiltölulega meira verður af ein-
býlishúsum, raðhúsum og
keðjuhúsum, en minna af stór-
um fjölbýlishúsum, eins og t.d.
þeim, sem mesta hafa einkennt
byggðina I Breiðholti I og III.
Sem dæmi má nefna, að
skipulagstillagan gerir ráð fyr-
ir 52% nýtingu lands, en á
svæðinu vestan Elliðaáa er nýt-
ingnú64%:
Utivistarsvæði
Að þvl er útivistarsvæði
Framhald á bls. 19
I