Morgunblaðið - 20.11.1976, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1976
Anna Ur sýningu Leikfélags Ilornaf jarðar á Kardimommubænum
Ljósm.: Jens Mikaelsson
Leikfélag Hornafjardar
sýnir Kardimommubæinn
Höfn í Hornafirði 19. nóvember.
LEIKFELAG Hornafjarðar frum-
sýnir f dag kl. 15 f Sindrabæ hið
vinsæla barnaleikrit Kardi-
mommubæinn eftir Thorbjörn
Egner. Leikstjóri er Sunna Borg.
Haukur Þorvaldsson leikur
Kasper, en bræðurnir Emil Þor-
steinsson og Ari Þorsteinsson
leika Jesper og Jónatan. Sofffa
frænka er leikin af Sigrúnu
Eirfksdóttur, Bastian bæjarfógeti
af Asgeiri Gunnarssyni, Hrollaug-
ur Marteinsson leikur bakarann
og Berg kaupmann leikur Geir
Bjarnason.
Alls starfa um 40 manns við
sýninguna. Forráðamenn leik-
félagsins gera sér vonir um að
margt fólk frá Austfjörðum komi
til Hornafjarðar til að sjá
sýninguna og eins vestan úr
Skaftafellssýslu.
Jens
Nýtt fasteignamat á
að taka gildi 1. des.
FÉLAGSMALARÁÐUNEYTIÐ
hefur samkvæmt heimildum f
lögum ákveðið að álag á aðalmat
fasteigna, sem gílda tók 31. des-
ember 1971, skuli vera 236%, að
þvf er tekur til notkunar fast-
eignamatsins til ákvörðunar
gjalda til sveitarfélaga á árinu
1977, sem reiknuð eru sem hlut-
fall af fasteignamati. Hér er um
að ræða 23.1 % hækkun frá fyrru
ári.
Að sögn Magnúsar Guðjónsson-
ar, framkvæmdastjóra Sambands
fsl. sveitarfélaga, þarfnast þessi
auglýsing félagsmálaráðuneytis-
ins nokkurra skýringa við. Sam-
kvæmt lögunum um skráningu og
mat fasteigna eru ákvæði þar f þá
veru að fyrir 1. desember 1976
HLYR loftstr isimur sunnar úr
gekk yfir la > f gær og fyrri-
nótt. Komst inn l>á f 13 stig
mest um midr »s ■■ gær komst
hitinn f 14 ?. ? ureyri og f
Vopnafirði. einnig
Tveir ar
sækjí
Styk n
— einr;
Saud
UTRUNN; nar-
frestur u a-
kall og >11.
Séra Sigfús J. Arnason, prestur á
Miklabæ . um
Sauðárkróksprestakall og um
Stykkishólmspi • s<>4 > ' sóttu séra
Hörður Þ. Ásbjörnsson prestur á
Bfldudal, og scra (,-isli H.
Kofbeins, presiur á Meisiað í
Húnavatnssv .iu
skuli ganga f gildi nýtt fasteigna-
mat. Þetta nýja mat verður þá
viðmiðun þeirra gjafda sem við
fasteignamat eru miðuð.
Magnús sagði hins ve£ar, að í
eldri lögum um breytingar á
tekjustofnalögum væri bráða-
birgðaákvæði, þar sem segði að
þar til nýtt aðalmat fasteigna
hefði tekið gildi, skuli félagsmála-
ráðuneytið fyrir 15. nóvember ár
hvert framreikna fasteignamatið
sem grundvöll til álagningar
gjalda sem við það eru miðuð.
Magnús sagði, að auglýsing fé-
lagsmálaráðuneytisins nú væri
þannig fyrst og fremst varnagli á
því tilfelli, að ekki væra komið
nýtt fasteignamat hinn 1. desem-
sunnanlands og vestan og komst
hitinn t.d. f 10 stig f Reykjavík
um miðnættið í fyrrinótt.
Þessum hlýindum fylgdi mikil
úrkoma um vestanvert landið en
norðanlands og austan var raki
sáralitill, því á leið sinni yfir
landið þéttist rakinn og féll til
jarðar.
Morgunblaðið spurði Guðmund
Hafsteinsson veðurfræðing um
veðurhorfur um helgina. Sagði
Guðmundur að vindátt myndi
liklega snúast úr suðri i norð-
vestur og myndi þá kólna og élja-
veður verða um norðan- og
austanvert landið.
Seldi í
Danmörku
EINN bátur seldi sfld f Hirtshals f
gær. Var það Albert GK sem seldi
47 lestir fyrir 4.1 millj. kr., meðal-
verð í kfló var kr. 86.80.
ber næstkomandi, eins og kveðið
væri á um í lögum, en að öðrum
kosti félli framangreind auglýs-
ing úr gildi um næstu mánaðamót
um leið og nýja matið tæki gildi.
Sagði Magnús, að yfirfasteigna-
matsnefnd væri einmitt að vinna
að hinu nýja mati um þessar
mundir.
Fasteignaskatturinn sem mið-
aður er við fasteignamatið rennur
óskiptur til sveitarfélaganna sem
tekjustofn. Verði hið nýja mat
ekki komið fyrir 1. desember nk
munu fasteignaskattar hækka
samsvarandi í prósentum og fram
kemur f auglýsingunni um hækk-
un álagsins á aðalmatið eða um
23,1%. Þessi hækkun er miðuð
við hækkun byggingavísitölu
milli ára.
Opid hús
hjá Glit
I tilefni Iðnkynningar er ákveðið
að verksmiðja Glits að Höfða-
bakka 9 verði f fullu starfi laugar-
daginn 20. nóvember og opin fyrir
almenning milli klukkan 10 og 16.
Þar gefst kostur á að skoða hin
ýmsu framleiðslustig við gerð
leirmuna svo sem mótun leirsins,
skreytingu, gferjun og brennslu.
Glit framleiðir f dag meira úrval
leirmuna en nokkru sinni fyrr.
T.d. handunna nytjahluti, matar-
stell, kaffi og tesett, jóla og
skrautmuni, popkeramik og
fleira.
— Spánn
Framhald af bls. 1.
Ociente f Madrid. Lögreglunni
hefur verið skipað að vera við öllu
búin.
Opinber minningarathöfn fer
jafnframt fram við gröf Francos f
Dal hinna föllnu skammt frá
höfuðborginni. Blöð hafa beðið
um lögregluvernd vegna hótana
sem kalla sig „Skæruliða Krists
konungs", Dreaft hefur verið flug-
miðum þar sem segir að „20 ár
fórna hafi verið að engu gerð á 11
mánuðum."
Utifundurinn f Madrid er
haldinn til að keppa við
minningarathöfnina um Franco.
Þeir sem að honum standa skora á
fólk að koma i veg fyrir „áfram-
haldandi tortfmingu föðurlands-
ins“.
Kólnar um helgina
eftir mikil hlýindi
EBE hækkar
verð á físki
Brdssel, 19. nóvember. AP.
FRAMKVÆMDANEFND Efna-
hagsbandalagsins hefur gert til-
lögur um hækkanir á lágmarks-
verði ýmissa fisktegunda á næsta
ári.
Þetta verðlag ræður þvf verði
sem rikisstjórnir aðildarlandanna
greiða fyrir afla sem ekki reynist
unnt á selja á almennum markaði.
Rfkisstjórnir landanna verða að
samþykkja verðhækkunina.
Nefndin segir að verðhækkan-
irnar muni ekki kynda undir
verðbólgu þar sem markaðsverð
verði sem fyrr yfirieitt hærra en
niðurgreiðslurnar, en þær hafa þó
sálfræðileg áhrif á markaðsverð-
ið.
Hæsta verðhækkunin sem
stungið er upp á er á skreið eða
14%. Kolkrabbi hækk um 10% og
sfld um 8%. Einnig er lagt til að
verð hækki á makrfl, ansjósum og
rækju.
— Búið að panta
Framhald á bls. 18
starfa við fyrirtækið fyrst um
sinn. Kvað hann þegar ljóst, að
vélasamsetningarverksmiðja á Is-
landi myndi hafa mikið að segja
fyrir þau skip sem notuðu Bronx-
vélar, en þær væru nú komnar í
nokkur skip hér. Allir varahlutir
yrðu ávallt til á lager, auk þess
sem sérfróðir menn yrðu ávallt til
staðar, og þvf yrði hægt að veita
mjög góða þjónustu.
— Lá við slysi
Framhald af bls. 32.
brúnni og fram á brún gilsins,
sem er mjög djúpt. Engu mátti
muna að Bronco-jeppinn hrykki
fram af brúninni og það mun
hafa afstýrt alvarlegu slysi, að
bflarnir kræktust saman. Ekki
urðu slys á fólki, nema hvað öku-
maður Bronco-jeppans meiddist
Ifilsháttar. Kranabfll frá Akur-
eyri fór vestur á heiðina í kvöld
til þess að draga bílana burt af
gilbarminum, en sfðar er ætlunin
að draga hvorn þeirra til sfns
heima en báðir eru mikið
skemmdir.
— Sv.P.
— Geir
Hallgrímsson
Framhald af bls. 32.
ríkisstjórnin reiknaði með að
hægt yrði að auka framkvæmdir
við samgöngumannvirki nokkuð
en að umsvif við opinberar bygg-
ingar yrðu svipuð og í ár.
A móti samdrætti f fjármuna-
myndun opinberra aðila á næsta
ári vega framkvæmdir, sem reikn-
að er með á Grundartanga. Vegna
byggingar járnblendiverksmiðj-
unnar einnar er fjárfesting at-
vinnuveganna talin aukast nokk-
uð í heild. Að henni frátálinni
dregst þó atvinnuvegafjárfesting-
in saman, þótt — búizt sé við
aukningu f nokkrum greinum, að
sögn forsætisráðherra. Þá er talið
að fbúðarbyggingar á næsta ári
verði að mestu óbreyttar frá
árinu f ár.
Sfðan sagði Geir Hallgrfmsson:
„Eitt meginmarkmið hins opin-
bera f fjárfestingarmálum næstu
árin hlýtur að vera að halda
áfram uppbyggingu í orkumálum,
annars vegar til þess að innlend
orka geti hvar sem hagkvæmt er
leyst innflutta orkugjafa af
hólmi, og hins vegar til þess að
innlent vatns- og gufuafl geti
orðið undirstaða iðnþróunar- og
atvinnuuppbyggingar.
M.a. f því skyni, að unnt sé að
meta slfkar framkvæmdaáætlanir
í samhengi annarra þarfa og orku-
markaðsmöguleika, en einnig f
samhengi við framleiðslugetu og
útgjaldagetu þjóðarbúsins næstu
árin, hefur rfkisstjórnin, falið
Þjóðhagsstofnun að vinna að
könnun á þjóðhagshorfum næstu
4 ára f samvinnn við aðrar opin-
.... __... á"»viði efnahags-
mála og aðra aðila. Að þvf er
stefnt, að skýrsla um niðurstöður
liggi fyrir á næsta ári.
Meginþættir þessarar könnunar
verða tveir, annars vegar mat á
útflutnings- og framleiðslugetu
og hins vegar á útgjaldaþróun."
— Pólverjar
Framhald af bls. 32.
hráefni eins og gert hefur verið
og búið var að staðfesta munnlega
fyrir skömmu og hins vegar með
tilkynningu pólska rfkisinnflutn-
ingsfyrirtækisins um að hætta
mögulega við kaup á framleiðslu
Loðskinns.
Jón sagði: „Við erum greinilega
mjög klemmdir. Það er verið að
kenna okkur um að þessar óunnu
gærur verði ekki sendar út, en við
teljum að SlS hafi lofað upp i
ermina í þessu máli og beri því að
sjálfsögðu ábyrgðina ef samið er
um og sent er út óunnið hráefni á
sama tfma og íslenzk verksmiðja
stendur frammi fyrir því að þurfa
að hætta rekstri vegna hráefnis-
skorts.
Haustslátrunin nú var 80—100
þús. gæruskinnum minni en gert
var ráð fyrir þegar SlS gerði
samninga við Pólverja og þar að
auki ætlar StS að auka sína
vinnslu um 250 þús. skinn. Þar
með fáum við ekki nema 70 þús.
skinn (272 þús. sl. ár), ef Pólverj-
ar fá sitt og SÍS framkvæmir ný-
tilkomna ákvörðun um þessa
vinnsluaukningu. Við höfum
aldrei selt óunnar gærur og get-
um því ekki borið ábyrgð á slfku.
SlS hefði þvf átt að berast kvört-
un SKORIMPEX, en ekki okkur.
Eins og málið stendur eigum
við engra kosta völ, það er bæði
verið að hafa af okkur innlent
hráefni og ef við náum í hráefnið
eigum við á hættu að missa sölu-
samningana vegna „hráskinns-
leiks" Sambands fslenzkra sam-
vinnufélaga. Það væri hins vegar
fróðlegt að fá að vita hverjir
hefðu tilkynnt hinum pólsku
kaupendum að við bærum ábyrgð
á þessari þróun mála".
— Geirfinnsmál
Framhald af bls. 32.
í gæzluvarðhaldi vegna hvarfs
þessarra tveggja manna. Aður
hefur farið fram vfðtæk leit í
Hafnarfjarðarhrauni og einnig
í Fossvogskirkjugarði, einnig
samkvæmt ábendingum ung-
mennanna.
Rannsókn Geirfinnsmálsins
er haldið áfram af fullum
krafti. Hæstiréttur mun nú
hafa fengið i hendur öll nauð-
synleg gögn vegna hins kærða
gæzluvarðhaldsúrskurðar f
málinu og er ákvörðunar
réttarins að vænta fljótlega
eftir helgina.
— Nýting Flugleiða
Framhald af bls. 2
farþegar, frakt og póstur f
áætlunar- og leiguflugi sinnum
fjarlægðin, sem flogin var, voru
samtals 166,4 milljónir fyrstu nfu
mánuði ársins en voru 151,3
milljónir f fyrra. Er hér aukning
um 10%, en 3,6% aukning varð á
framboðnum tonn-km á þessu
tímabili f ár miðað við árið 1975.
Námu þeir nú 210,2 milljónum.
Hleðslunýting var nú 79,2% en
var 74,6% á sama tfma f fyrra.
— Ljósmyndara-
félag
Framhald af bls. 2
Þó þetta sé fyrst og fremst
ljósmyndasýning, hefur einnig
verið komið fyrir ýmsum göml-
um ljósmyndatækjum f sýning-
arsölunum og m.a. hefur verið
sett upp ljósmyndastofa upp á
gamla móðinn.
Stofnendur Ljósmyndarafé-
lags Islands voru 18 og eru fjór-
ir enn á lífi, Sigurður. Guð-
mundsson, Óskar Gfsladson,
Jón Kaldal og Steinunn Thor-
steinsson, en hún varð einmitt
90 ára hinn 15. þessa mánaðar.
Eiga þeir Jón og Óskar myndir
á þessari sýningu.