Morgunblaðið - 05.01.1977, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR 1977
3
V estf jarðaf iskurinn:
60% 4 og 5
ára fiskur
Fleiri til Japans til að
semja um sölu á loðnu
— ÞORSKURINN, sem Islenzku
togararnir hafa fengið undan
Vestfjörðum síðustu daga, er yfir
60% 4 og 5 ára fiskur. Mest er þó
af 5 ára fiski, en það er árgangur-
inn frá 1972, sagði Sigfús
Schopka fiskifræðingur I samtala
við Morgunblaðið f gær.
Sigfús bætti við að I aflanum
Skjaldhamr-
ar í sigti á
N ordurlöndum
væri ennfremur nokkur fiskur af
árganginum frá 71 og eins 1970,
eitthvað af þessum fiski hrygndi í
fyrsta sinn á þessum vetri.
Sigfús sagðist vilja taka fram,
þar sem það væri mjög útbreidd-
ur misskilningur að þessi fiskur
kæmi frá Grænlandi, að svo væri
ekki. í fyrsta lagi mætti benda á,
að merkingar sýndu að þorskur,
sem gengi frá Grænlandi til Is-
lands, væri ávallt kynþroska er
hann gengi á Islandsmið og I öðru
lagi mætti benda á, að fyrrnefnd-
ir árgangar væru mjög veikir við
Grænland, það veikir, að þeirra
hefði lítið sem ekkert orðið vart í
afla.
Sigfús Schopka
Þá sagði Sigfús, að í nóvember-
mánuði s.l. hefði verið kannað
hvernig á því stæði að þorskur
þétti sig svona mikið.
Þær rannsóknir væru enn stutt
komnar, en yrði haldið áfram um
leið og rannsóknarskip yrði
aflögufært, en þau væru nú upp-
tekin við önnur störf.
TVEIR fulltrúar Sjávarafurða-
deildar Sambandsins, þeir Sig-
urðar Markússon framkvæmda-
stjóri deiidarinnar og Árni Bene-
diktsson framkvæmdastjóri,
halda til Japans n.k. föstudag til
að ræða við þarlenda aðila um
kaup á loðnu og loðnuhrognum
frá tslandi á komandi loðnuver-
tfð.
I samtali við Morgunblaðið í
gær sagðist Sigurður ekkert geta
sagt um horfurnar. Málin skýrð-
ust vart fyrr en í næstu viku.
Þá hafði Morgunblaðið sam-
band við Bjarna .Magnússon hjá
tslenzku umboðssölunni f gær, en
það fyrirtæki hefur selt nokkuð
af frystri loðnu til Japans á und-
anförnum árum. Sagði Bjarni, að
sér hefði aldrei reynzt erfitt að
selja loðnu til Japans. Vandkvæð-
in hefðu fyrst og fremst verið
bundin við að geta ekki framleitt
nógu mikið fyrir markaðinn þar.
Kvaðst Bjarni eiga frekari við-
ræður við Japani á næstu dögum
og að þeim loknum væri hægt að
segja hvernig málin stæðu nú.
Eins og Morgunblaðið skýrði
frá í gær fóru fulltrúar SH til
Japans í gærmorgun til að semja
um sölu á loðnu.
Vertíð aðhefj
ast í Ólafsvík
ólafsvík 4. jan.
BÁTAR eru að hefja vertfðar-
róðra hér um þessar mundir.
Flestir fara á Ifnu, en fáeinir á
net. Róið var með ifnu f haust
og var árangur sæmilegur.
Veðurfar hefur verið með ein-
dæmum gott, nema á nýársnótt
gerði fyrsta byl vetrarins.
Hér var friðsamt og gott um
jól og áramót.
—Helgi
MORGUNBLAÐIÐ spurði Jónas
Árnason alþingismann og rithöf-
und að þvi f gær hvernig mál
stæðu varðandi mögulega kvik-
myndun á leikriti hans, Skjald-
hömrum, í Bretlandi. Jónas kvað
þau mál myndu skýrast nánar á
næstu vikum, en hins vegar kvað
hann afráðið að leikritið yrði leik-
ið í finnska útvarpið og myndi
Kristín Olsoni, leikhússtjóri
Wasaleikhússins, stjórna verkinu.
Þá eru einnig miklar líkur á að
Skjaldhamrar verði settir á svið f
Noregi, Svíþjóð og Finnlandi og
komið hefur til tals að jafnvel
íslenzkur leikstjóri og íslenzkir
leikarar taki þátt f þeim uppsetn-
ingum. Nýlega var leikritið einnig
þýtt á pólsku og verður það birt i
pólsku leikhúsriti. Umsögn um
sýningu Skjaldhamra í Bretlandi
var fyrir skömmu í hinu kunna
bandarfska leikhúss- og kvik-
myndablaði Variety og fékk verk-
ið fremur jákvæða dóma þar að
sögn höfundar.
Loftleiðir
stefna á
Persaflóa
AÆTLUNARFLUG Loftleiða til
Bahrain við Persaflóa eða Araba-
flóa eins og heimamenn kalla
það, hefst 12. jan. n.k., en flogið
verður einu sinni f viku á leiðinni
Reykjavfk — Bahrain og er flugið
tengt flugi Loftleiða til Chicagó
og Luxemborgar.
Markmaðið með þessu farþega-
flugi Loftleiða er að komast inn á
markaðinn á þessu Arabasvæði
annars vegar og tengja það flugi
tii Bandarfkjanna.
Siglufjörður:
Ungur
skipstjóri
með mettúr
Siglufirði 4. jan.
SIGLUVlKIN landaði hér f
dag liðlega 200 tonnum af
ágætis fiski og er talið að afla-
verðmætið eftir 5 daga túr sé
um 15—16 millj.kr.
Þetta er mesti afli sem Siglu-
vikin hefur landað eftir einn
túr síðan skipið kom lands-
ins. Skipstjóri f þessum túr var
Jónas Sumarliðason, 25 ára
gamall, en þetta var fyrsti túr
hans með skipið.
—m.j.
Nú er LeeCooper fatnaður
einnig framleiddur á Islandi
LAUGAVEGI 47
SAMKV. EINKALEYFI FRA LEE COOPER* INTERNATIONAL