Morgunblaðið - 05.01.1977, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR 1977
11
Ein aðalorsök þess að menn ótt-
ast vatnsskort I heiminum er hin
öra fjölgun íbúa jarðarinnar. Tal-
ið er að eftir 25 ár muni fbúafjöldi
þróunarlandanna hafa tvöfaldast.
Þá verður ekki aðeins þörf á mjög
auknu magni af drykkjarvatni,
heldur þarf lfka verulegt vatns-
magn til landbúnaðar. Þar við
bætist svo, að stöðug íbúaf jölgun f
bæjum og borgum hefur í för með
sér vandamál af ýmsum toga í
sambandi við frárennsli og klóak,
fyrir utan það að þetta skapar
stóraukna þörf á neyzluvatni.
Iðnvæddu löndin eiga þarna vað
sérstakt vandamál að stríða, þvf
þar stóreykst vatnsnotkun í iðn-
aði og jafnframt er vatnið í mik-
illi hættu vegna mengunar. Fái sú
mikla mengun að halda áfram
eins og ekkert hafi í skorist, mun
það að sögn sérfræðinganna ekki
aðeins hafa það i för með sér að
gífurlegt vatnsmagn verði ónot-
hæft sem drykkjarvatn, heldur
verði það einnig óhæft til notkun-
ar f iðnaði. Ekki má heldur
gleyma notkun efna í landbúnaði,
svo sem tilbúins áburðar og skor-
dýraeiturs af ýmsu tagi, sem veld-
ur og verulegri mengun f vatni.
Og því eru Sameinuðu þjóðirn-
ar nú að freista þess að fá fram
tillögur til lausnar þessum vanda,
tillögur um aðferðir sem beita
skal, tillögur um stofnanir til að
hafa eftirlit og umsjón með vatns-
bólum og tillögum um heildar-
stefnu í þessum málum f heimin-
um. Reynt er að beina í auknum
mæli athygli yfirvalda að vatninu
og va 'damálum, sem tengd eru
vatni og notkun þess. Það er mjög
mikilvægt, því vfða og þá ekki sfzt
f auðugu löndunum, er gffurleg
sóun á vatni, sem ekki fer í
minnstum mæli fram á heimilun-
um. Þá rísa stundum deilur milli
rikja vegna þess að tvö eða fleiri
lönd liggja að sameiginlegum
vatnsbólum, svo sem að fljóti, sem
rennur á landamærum. Og með
vaxandi vatnsskorti eru sívaxandi
líkur á að slikar deilur harðni svo
mjög að til átaka komi.
Það er því ekki út í loftið sagt,
að vatnið þekki engin landamæri
og að vatnið sé sammannlegt
vandamál. Það eru ein af hinum
mörgu hlunnindum, sem við njót-
um hér á Islandi að hafa gnægð
vatns. Það er tslands lag, þegar
fljót á flúðum dunar og foss f
klettaskorum brunar, eins og
Grímur Thomsen orðaði það. En
við þurfum lfka að fara að gæta að
okkur, og það gera ýmsir forsjálir
menn sér ljóst. I haust hafði
Landssamband stangaveiðifélaga
t.d. forgöngu um ráðstefnu, sem
ýmsir aðrir aðilar tóku þátt f, um
mengun ferskvatns. Þar voru
fluttir margir merkir fyrirlestrar
um vatnið og vatnsbúskapinn og
það sem i vatninu býr, svo sem líf,
gerla og mengunarefni. Og fjallað
var um varnir gegn mengun. Þar
sagði Guðmundur Pétursson for-
stjóri t.d. í upphafi erindis um
áhrif mengunar á heilbrigði
vatnafiska: „Með vaxandi fólks-
fjölda og iðnvæðingu hefur alls
kyns mengun aukist í ám og vötn-
um víða um heim, en þó hvað
mest í ýmsum löndum Evrópu og
Norður-Ameríku. Áhrif mengun-
ar á lífríki vatna hafa verið mjög
mikil og vakið mikla almenna at-
hygli, enda hefur hún valdið stór-
felldu tjóni á nytjafiskum í fersk-
vatni. Sums staðar hafa viðkvæm-
ar tegundir, eins og lax, horfið
gersamlega. Hérlendis er almennt
talið að mengunar gæti tiltölulega
lítið og fátt er vitað um tjón af
hennar völdum. Nauðsynlegt er
þó að vera vel á verði, enda eru
margar islenzkar ár ótrúlega við-
kvæmar fyrir mengun, einkum
þær sem vatnsminni eru. Gera
þyrfti sérstaka rannsókn, þar sem
skólpi frá þéttbýli og afrennsli
frá verksmiðjum, iðnfyrirtækjum
og sláturhúsum er veitt beint í
fslenzkar ár.“
1 vatninu synda fiskarnir, en
hér er meira í húfi. Fyrsta greinin
í stefnuskrá Evrópuráðsins um
ferskvatn segir: Ekkert lff getur
þrifist án vatns. Það er auðlind,
sem er ómissandi allri mannlegri
starfsemi. — E.Pá.
SAMKVÆMT heimild-
um, sem blaðinu hafa
borizt, munu 75 milljónir
lesenda í 60 löndum lesa
myndasöguna um Ljósku
og Dag I 1600 blöðum.
Þetta þýðir það, að þessi
teiknimyndasyrpa er ein
mest lesna og útbreidd-
asta myndasaga i heimin-
um og leggja lesendur
Morgunblaðsins sitt af
mörkum í þessu efni. Að-
eins er hægt að segja
svipaða sögu af vinsæld-
um einnar annarrar
teiknimyndasyrpu, en
það er smáfólk, eða
Peanuts.
Höfundur myndasögunnar,
Chic Young.
Fæddist með
penna I hendi
Höfundur Ljósku og Dags er
bandarfskur og heitir Murat
Bernard „Chic“ Young. Hann
fæddist árið 1901 og varð því 75
ára á síðasta ári. Það hefur ver-
ið sagt um hann að hann hafi
allt að því fæðzt með penna í
hendinni og sjálfur hefur hann
sagt að fjölskylda hans hafi
frekar sett hugsanir sfnar og
hugmyndir fram í myndum en
orðum. Ferill hans sem teikni-
myndahöfundar var þó heldur
erfiður f fyrstu, en f september
1930 byrjaði hann á nýrri
myndasögu, Ljósku og Degi og
var það upphafið að velgengni
hans.
Þannig litu Ljóska og Dagur út þegar þau giftu sig árið 1933.
Ljóska og Dagur mest
lesna myndasaga í heimi
Bárust 400.000
heillaóskir
þegar
dóttirinn fæddist
Ljóska og Dagur eru flestum
að góðu kunn, en hins vegar er
ekki eins víst að fólk viti hvern-
ig lífsferill þeirra hófst. Það
gekk á ýmsu á árunum fram að
hjónabandi þeirra, eins og jafn-
an síðan, því Dagur er komin af
forrfkri fjölskyldu, sem ekki
sætti sig við að hann gengi að
eiga óbrotna og fátæka stúlku,
sem hafði gaman af þvf að
dansa. En þrátt fyrir mótmæli
fjölskyldunnar og að hann ver
gerður arflaus giftist Dagur
Ljósku sinni í febrúar 1933.
Þau eignuðust tvö börn og til
gamans má geta þess að þegar
þeim fæddist dóttir árið 1941
bárust þeim 400.000 heillaóskir
frá hrifnum lesendum.
þA£> VAK NÁKVÆMLEGA ^
SVOMfK, SEM pETTA
BYR3AÐI ALLT J
Hefur gerzt á næst-
um hverju heimili
Sjálfur hefur höfundurinn,
Chic Young, sagt: „Allt, sem
gerist í myndasögunni, er satt
og hefur gerzt á næstum hverju
einasta heimili. I henni fjalla
ég um og lýsi þvi stærsta og
einfaldasta sem til er, nefnilega
lífinu sjálfu og krydda lýsing-
arnar með kryddi lífsins, sem
er kímni.“
Kvikmyndir um
Ljósku og Dag
Fjölmargar leiknar kvik-
myndir hafa verið gerðar um
þau skötuhjú, Ljósku og Dag.
Columbia-
kvikmyndafyrirtækið gerði
fjölda kvikmynda um þau á ár-
unum 1938—50 með Arthur
Lake og Penny Singleton f aðal-
hlutverkum. Fleiri kvikmynda-
félög hafa gert kvikmyndir um
þau og einnig hafa verið gerðir
fjölmargir sjónvarpsþættir um
þessar vinsælu teiknimynda-
ffgúrur
Aðalumboð, Suðurgötu 10, sími 23I30
Halldóra Ólafsdóttir, Grettisgötu 26, sími 13665
Hreyfill bensínsala, Fellsmúla 24, sími 85632
Versl. Straumnes, Vesturbergi 76, sími 72800
Félagið Sjálfsvörn, Reykjalundi, Mosfellssveit
Borgarbúðin, Hófgerði 30, sími 40180
Bókabúðin Gríma, Garðaflöt 16,
Garðahreppi, sími 42720
Sigríður Jóhannesdóttir, c/o Bókabúð
Olivers Steins, Strandgötu 31,
Hafnarfirði, sími 50045.