Morgunblaðið - 05.01.1977, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR 1977
19
Olafur Arnason
sjómaður -
Ólafur Árnason sjómaður, er nú
dvelur á Hrafnistu er 90 ára í dag.
Hann er fæddur að Stóru Býlu,
Innri-Akraneshreppi 5. jan. 1887,
sonur hjónanna Vilborgar Páls-
dóttur og Árna Magnússonar frá
Efraskarði, er þar bjuggu. Ólafur
er næstelztur fimm systkina. Með-
an hann var enn barn að aldri
slitu foreldrar hans sambúð sinni
og var hann sfðan á ýmsum stöð-
um og varð að vinna fyrir sér allt
frá 10 ára aldri. Snemma hneigð-
ist hugur Ólafs til sjómennsku og
fór hann fyrst á skútu 15 ára
gamall en frá 17 ára aldri var
sjómennska hans óslitin 1 um 40
ár. Fyrst var hann á skútum en
síðar á togurum og var hann m.a.
á togaranum Geir I 23 ár. Árið
1943 hætti Ólafur sjómennsku og
stundaði landvinnu eftir það. Var
hann lengst hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur eða um 19 ára skeið
og vann fulla vinnu til áttræðis-
aldurs.
Árið 1913 kvæntist Ólafur Guð-
Níræður
rúnu Þórarinsdóttur ættaðri úr
Borgarfirði, hinni mætustu konu.
Þau bjuggu nær allan sinn bú-
skap í Reykjavfk. Voru þau hjón
barnalaus en ólu upp fósturdótt-
ur, Petru Þóru Jónsdóttur, sem
gift er Pétri Auðunssyni fram-
kvæmdarstjóra I Hafnarfirði.
Guðrún lézt fyrir 15 árum. Nú
sfðustu 9 árin hefur Ólafur dvalið
á Hrafnistu og unir þar vel hag
sfnum. Allt fram á sfðasta ár hef-
ur hann unnið við áhnýtingu
öngla o.fl., sem að sjómennsku
lýtur.
Ólafur er mjög heilsteyptur
maður. Hann hefur alla tfð metið
mikils þær góðu dyggðir, að vera
trúr sjálfum sér og öðrum, vinna
vel, vera reglusamur í lífi og
starfi, vera sannorður, orðheldinn
og orðvar, vera hreinskilinn og
einarður, vera góður og traustur
vinur vina sinna. Hann er höfð-
ingi f lund og fús að rétta hjálpar-
hönd og gleðja og vel hefur hann
gætt þess að láta ekki sinn hlut
eftir liggja í einu eða neinu. Hann
hefur ávallt kappkostað að vera
fremur veitandi en þiggjandi og
farsæld hefur fylgt honum í lífi
og starfi.
Ólafur hefur verið eftirsóttur
til starfa og hafa vinnuveitendur
hans kunnað að meta trúmennsku
hans og tryggð. Hlaut hann m.a.
heiðursskjal fyrir langa og dygga
þjónustu á togaranum Geir. Ólaf-
ur gekk f Sjómannafélag Reykja-
víkur skömmu eftir að það var
LYKKJULOK er á dósunum
Þú opnar það með einu handtaki
hitar kornið og berð fram
með steikinni öllum til Æk
óblandinnar ánægju. Æ
Svona auðvelt er það.
Síðbúin afmæliskveðja:
Elberg Guðmunds-
son Grundarfirði
Gamansamur vinur minn varð
allt í einu 75 ára þ. 10. des. án
þess að maður yrði þess var, enda
fannst manni ekki kominn tfmi
til, og enginn trumbusláttur sé
lúðragjali var samfara þessum
tímamótum í ævi Elbergs Guð-
mundssonar, þótt ærin ástæða
væri til. — Ekki má minna vera
en að ég óski þér til hamingju.
Frá 9 ára aldri hefi ég r.otið
þess meir og minna að eiga sálufé-
lag við Elberg eða nær 25 ár. Það
var svo sannarlega gaman að vera
trúgjarn strákur f fiskvinnu og
vinnufélagi Elbergs, því hann sá
svo um að þrátt fyrir einhæfa
vinnu varð lífið annað og meir en
eintómur saltfiskur. Elberg
fræddi okkur yngra fólkið um
mannlífið, eins og það gekk til í
Eyrarsveit hér á árum áður, að
vfsu kryddaði hann efnið þannig,
að ef til vill hefur sannleiksgildi
frásagnanna eitthvað goldið fyrir
góðan texta, en það náði eyrum
hlustandans. Ef marka má fræði-
menn hafa frásagnir Elbergs þó
ekki verið meira ýktar en sjálfar
Islendingasögurnar, sem teljast
óbrotgjarnasti auður okkar Is-
lendinga.
Elberg og Ása kona hans flutt-
ust frá Kvíabryggju 1943 og
byggðu sér hús inni f Grundar-
firði og eru því í hópi frumbyggja
þessa kauptúns. Eiga þau snaran
þátt í vexti þess og viðgangi.
Börn þeirra átta að tölu búa hér
öll að einu undanskildu, og eiga
það sammerkt með foreldrum sín-
um að vera mikið dugnaðarfólk.
Elberg er nánast ímynd hins
raunverulega „Bryggjara“ og
kemst maður ekki hjá því að
álykta, að nú sé hún Kvfabryggja
stekkur, því hætt er við að hið
fjölskrúðuga og sumpart kómiska
mannlíf á Kvíabryggju fyrri tíma
hafi útþynnst í heldur bragðlitla
naglasúpu hjá kokkum meðal-
mennskunnar.
Þrátt fyrir það að Elberg væri
og sé annálaður dugnaðarmaður
hefur hann ekki alltaf haft úr of
miklu að moða, einkum á meðan
hann hafði fyrir stórum barna-
hópi að sjá. Þá komu sér vel eigin-
leikar hans, sem eru að geta séð
tilveruna í broslegu ljósi, brosað
öllu drasli mót. Þótt Elberg sé
sannur Eyrsveitungur og upp-
fræddur af séra Jens á Setbergi,
þá segist hann raunar geta rakið
ættir sínar til franskra og má mik-
ið vera ef hann er mjög fjarskyld-
ur sjálfum De Gaulle.
Víst er um það, þegar grannt er
skoðað, að báðir rúlla þeir
skemmtilega á errinu og síst er
Elberg verr nefjaður en þessi
stórbrotni frakki. En það sem
einkum skilur þá að, er að Elberg
hefur aldrei sóst eftir mannvirð-
ingum, heldur unnið störf sín f
kyrrþey með slfkum sóma, að
einsdæmi er, enda virtur af
vinnuveitanda og vinnufélögum.
Hitt ætla ég, að Elberg sé jafn
eðlisgreindur og De Gaulle, en
miklu skemmtilegri og sennilega
að upplagi meiri pólitfkus.
Hann lætur sér ekki muna um
Framhald á bls 22.
Kornið er:
”Golden Sweet Corn” frá Banda-
ríkjunum, frábært á bragðið.
stofnað og átti hann lengi sæti f
stjórn þess. Vann hann þar sem
annarsstaðar heils hugar og þótti
vænt um félag sitt. Var vel fyrir
hverju þvf verki séð, sem honum
var falið.
Ólafur er barngóður maður og
hefur fósturdóttirin og börn
hennar fengið að njóta þess í rfk-
um mæli og hefur fjölskylda
hennar reynst honum vel.
Ólafur er enn vel ern. Hann fer
daglega út að ganga og lætur þá
jafnan ekki veður né færð aftra
sér. Hann hefur lesið mikið og
gerir enn og er því fróður um
marga hluti einkum þjóðlega. En
nú er sjónin farin nokkuð að bila.
Mikið hlustar hann á útvarp og
fylgist þvf vel með öllu, sem er að
gerast enda þótt sumt af því sitji
ekki eins f minni hans og atburðir
fyrri ára. Þótt sjá megi merki
þess að Elii kerling hafi heimsótt
hinn nfræða öldung, erfiðsvinnu-
manninn frá barnsaldri, þá er
hann heilsugóður og beinn f baki
og annað verður ekki séð en að
velli muni hann halda f átökunum
við hana enn um sinn.
Ég færi Ólafi innilegar
hamingjuóskir á nfræðisafmæl-
inu.
Páll V. Danfelsson.
ólafur verður f dag að heimili
dðttur-dóttur sinnar að Hraun-
hvammi 8 f Hafnarfirði.
Trésmiðir — Trésmiðir
Kaupaukanámskeið
Námskeið í notkun véla, rafmagnshand-
verkfæra og yfirborðsmeðferð viðar, hefst
í Iðnskólanum, mánudaginn 10. janúar
1977 og stendur í 3. vikur.
Kennsla fer fram mánudaga, þriðjudaga,
miðvikudaga, fimmtudaga kl. 17—21,
og laugardaga kl. 14—18.
Þátttaka tilkynnist fyrir 7. janúar til skrif-
stofu Trésmiðafélags Reykjavíkur, Hall-
veigarstíg 1, sími 27600.
Þátttökugjald er kr. 10.000.-.
Trésmidafélag Reykjavíkur,
Meistarafélag húsasmiða.
Odýrar
utanlandsferðir
Lissabon verð frá 29.800
5. febrúar (7 nætur).
Einstakt tækifæri — Gisting í íbúðum og
hótelum — Veljið um dvöl í Lissabon eða
Estoril (baðstrandarbær)
Vín, vorferð
Fyrirhuguð er ferð til Vínar í maí n.k. Nánari
upplýsingar koma í byrjun ársins.
Nánari upplýsingar:
Ferðaskrifstofan Úrval, sími 26900
Skrifstofu Varðar sími 82900
Landsmálafélagið Vörður