Morgunblaðið - 05.01.1977, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1977
VfK>
kaffinu \\ 1
Vel efnuð kona ákvað að
bjóða börnum f fyrsta bekk
barnaskóla nokkurs upp f sveit.
Fór hún sjálf með þeim og var
mjög ræðin við þau.
— Sjáið þið furutréð þarna,
hrópaði hún. Ég hefði gaman af
að vita, hvað það mundi segja
við mig, ef það gæti talað?
— Ég hefd ég viti, hvað tréð
mundi segja, vogaði Iftil stúlka
f hópnum sér að skjóta inn f,
það mundi segja:
Afsakið frú mfn góð, en ég er
bara birkitré.
Sjóari einn átti þessa
hugmynd. . .!
Þú þarft ekki að vera að
kynna okkur, mig og konuna
þfna, ég þekkti hana áður en
þið giftuð ykkur.
— Ja, það er meira en hægt
er að segja um mig.
Væri ekki athugandi að klára
að tyggja matinn fyrst og halda
sfðan áfram reiðifestrinum um
kynslóðabilið!
GRANI göslari
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
SPILIÐ í dag var lagt fyrir hóp
sænskra spilara nýlega. Fáir
þeirra gátu skýrt bestu úrspils-
leið fyrir sagnhafa. Ef til vill geta
lesendur þessa þáttar gert betur.
Norður gefur, allir á hættu.
Norður
S. K5
H. 742
T. D76543
L. Á3
Suður
S. Ád7
H. ÁK63
T. ÁG
L. D942
Suður er sagnhafi í 3 gröndum.
Vestur spilar út spaðatiu.
Það var nokkuð vel gert að
reyna ekki við slemmu en hvaða
spilaaðferð gefur mestu vinnings-
líkur.
Hve oft á ég það þurfa að endurtaka, að við giftum okkur um
leið og við fáum einhverja ódýra fbúð á leigu!
Nokkrar fyrirspurnir
Eftirfarandi bréf hefur borizt
frá Hafliða Péturssyni og er það
varðandi áramótaflugelda og sitt-
hvað í framhaldi af þeim. Eru
þetta fimm spurningar og beinir
hann þeim til lögreglustjórans í
Reykjavík.
„1. Hefur Hjálparsveit skáta
einkarétt á sölu sprengjugosa hér
í Reykjavík? Ég hef hér í höndun-
um sprengjugos uppfullt af kin-
verjum keypt hjá Hjálparsveit
skáta.
2. Eru hvellir ekki jafnhættu-
legir heyrn manna séu þeir keypt-
ir hjá Hjálparsveit skáta?
3. Ef skátar haf ekki leyfi fyrir
slíkri vöru hvers vegna er hún þá
ekki gerð upptæk hjá þeim eins
og öðrum?
4. Er leyfilegt að selja svokall-
aðar hurðarsprengjúr, (pulling
fireworks) ?
5. Telur lögreglustjóri hugsan-
legt að Hjálparsveitir skáta séu
lögbrjótar?
Hafliði Pétursson."
Eins og fyrr segir beinir Hafliði
þessum spurningum sínum til lög-
reglustjóra og standa honum að
sjálfsögðu dálkarnir opnir til
svara.
0 Má ekki eiga
sér stað
Undir þessari yfirskrift
sendi 11 ára drengur myndina
sem hér er birt. Hafði hann teikn-
að hana í framhaldi af þeim
bruna sem var nú milli jóla og
nýárs í einu af stóru fjölbýlishús-
unum í Breiðholtinu í Reykjavík.
í fréttum af brunanum sagði að
grunur léki á að um íkveikju
hefði verið að ræða og því vill
drengurinn koma þessari aðvörun
á framfæri til barna og annarra
að vera ekki að fikta með eld og
segir efst á myndinni: Þetta má
alls ekki eiga sér stað og það sízt í
kjallara.
í háslögum standa 7 slagir beant
og áttundi slagurinn er auðfeng-
inn á tigul. Það er líka greinilegt,
að tígulliturinn gefur mesta
mörguleika á níunda slagnum og
jafnvel meir, ef hann skiptist
3—2 á höndum andstæðinganna.
Til að eiga innkomu á borðið síðar
tökum við fyrsta slag á spaðaás,
spilum síðan tígulás og gosa. Láti
vestur lágt í gosann setjum við
drottninguna frá blindum. Hend-
ur austurs og vesturs gætu verið
þannig:
Vestur
S10986
H.G
T. K1092
L. K1076
Austur
S. G432
H. D10985
T. 8
L. G85
Á þennan hátt höfum við tryggt
okkur spilið þrátt fyrir þessa
slæmu legu í tíglinum. Enn eru
nægar innkomur á blindan til að
frfa og síðan taka tígulslagina og
vinna 4 grönd.
Hefði austur átt fjóra tígla í
upphafi, mættum við ekki láta
drottninguna á gosann. Austur
þyrfti þá einnig að eiga laufkóng-
inn til að drottningin okkar yrði
níundi slagurinn.
Maigret og þrjózka stúlkan
Framhaldssaga eftir Georges
Simenon
Jóhanna Krist/ónsdóttir þýddi
48
En hún gerir sér Iftið fyrir og
gefur honum á-ann.
Og daginn eftir, á mánidegin-
um, er Lapie gamii myrtur f
herberginu sfnu. Músfkantinn
verður að leggja á flótta án
þess að hafa náð peningunum.
— Hvað var klukkan þegar þeir
hremmdu Adele?
— Það var ekki nema hálfur
kiukkutfmi sfðan.. .þeir
hringdu að bragði.
— Farðu.. .taktu bflinn.
— Haidið þér að hann...
— Flýtu þér,. .farðu segi ég...
Maigret lokar vandlega dyr-
unum á eftir honum, sezt aftur
f körfustólinn við gluggann eft-
ir að hafa slökkt Ijósið.
8 KAFLI
Augun eru galopin. Hún veit
ekki hvað klukkan er, þvf að
kvöldið áður hefur hún gleymt
að stilla vekjaraklukkuna sfna.
Enn er rökkvað f herberginu og
þó sér hún að örlitlir sólargeisl-
ar reyna að þröngva sér inn um
hlerana.
Felicíe hlustar. Hún veit ekk-
ert. Hún er næstum þvf þreytt
af of djúpum og værum svefni
og getur ekki að bragði skilið
draum og virkileika frá hvort
öðru. Hún var að rffast.
Hún man hún var að rífast
víð þennan rólega mann, sem
hún hatar frá innstu hjartans
rótum og sem vill henni allt
illt. ó, hvað hún hatar hann!
Hver var það sem opnaði
dyrnar? Þvf að hún er sannfærð
um að einhver opnaði dymar
hjá henni I nótt. Hún beið böð-
uð f angistarótta. Það var
dimmt. Svo var dyrunum lokað
gætilega aftur og f fjarska
heyrði hún einhvern tfma bfia-
hljóð...
Hún hreyfir sig ekki, þorir
ekki að bæra á sér. Hún hefur á
tiifinningunni að hætta ógni
henni.. henni er illt f magan-
um og finnst hvfla á sér
farg.. .kannskí hún hafi borðað
of mikinn humar.. ,og svo fékk
hún svefntöflu.. .HANN
neyddi hana til að taka svefn-
töflu...
Hún leggurhvið hlustir. Hvað
er þetta? Einhver er að stússa f
eldhúsinu. Hún finnur kaffiilm
berast að vitum sér. Hana er að
dreyma. Það getur ekki verið
að einhver sé að mala kaffi...
Hún starir upp f loftið og
reynir að einbeyta sér. Nú er
sjóðandi vatninu hellt á könn-
una. Hún heyrir að hann er að
ná f bolla inn f skáp og hún
heyrir að sykur ér settur f
krukkuna og að borðstofuhurð-
inni er hrint upp....
Einhver kemur upp stigann.
Kvöldið áður læsti hún ekki
dyrunum, hún man það. Hvers
vegna gerði hún það ekki? Af
stolti; Til að sýna ekki þessum
manni að hún væri hrædd. Hún
haíði hugsað sér að læðast á
eftir, hljóðlaust, og snúa l.vklin-
um f skránni, en svo hafði
svefninn leitað á hana aftur.
Barið er að dyrum. Hún rfs
upp við dogg og starir angistar-
fuii f áttina til dyra og taugar
hennar eru þandar. Aftur er
bariö.
Hver er það?
— Ég er hér með morgunverð
frökenarinnar...
Hún skimar eftir sloppnum
sfnum, en sér hann ekki og fer
iengra undir ábreiðuna um leið
og dyrnar eru opnaðar. Fyrst
sér hún bakka með blárri sér-
vfettu og doppóttan bláan boiia.
—Hvernig haf ið þér sofið?
Þarna stendur Maigret ró-
legri en nokkru sinni áður.
Honum virðist lftt til þess hugs-
að að hann er staddur f svefn-
herbergi ungmeyju, að hún
liggur fáklædd f rúmi sfnu.
— Hvað viljið þér mér?
Hann ieggur bakkann frá sér
á náttborðið. Hann virðist
ósköp vef upplagður, hress og
sprækur. Hvar hefur hann
snyrt sig. Senniiega niðri f eld-
húsi. Hann hefur rennt blautri
greiðu um hárið.
Kaffi og mjólk. Þer drekkið
það á morgnana. Þvf miður,
þorði ég ekki að fara til Mel-
anie Choichoi og ná f nýtt
brauð. En fáið yður bita. Viijið
þér að ég snúi mér fráFelicie
iitla, á meðan þér finnið slopp-
inn yðar
Ósjalfrátt hlýðir hún og fær
sér af sjóðheitu kaffinu.
— Hver er niðri? segir hún
skyndilega.