Morgunblaðið - 07.01.1977, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 1977
Ný stífla gerð
í Elliðaánum
Gamla stíflan hriplek og talin stórhættuleg
BORGARYFIRVÖLD hafa
heimilað Rafmagnsveitu Reykja-
vfkur að ganga til samninga við
fyrirtækið Istak um gerð nýrrar
stfflu f Elliðaánum f stað þeirrar
sem þar er fyrir, en að sögn Aðal-
steins Guðjohnsens rafveitu-
stjðra er gamla stfflan orðin hrip-
lek og jafnvel talin hætta á að
hún kunni að bresta f flóðum með
þá ófyrirsjáanlegum afleiðingum
varðandi ýmis mannvirki neðar f
dalnum.
Aðalsteinn sagði, að það hefði
smám saman verið að koma í ljós
að eidri stíflan hefði bilað i þeim
flóðum sem komið hafa í ánni á
síðustu árum og menn óttuðust nú
Handtökumálið:
Meidyrða-
mál vegna
ummæla í
Dagblaðinu?
STEINGRtMUR Gautur Krist-
jánsson, setudómari f hand-
tökumálinu, staðfesti við Mbl.
f gærkvöldi, að f athugun væri
hvort ummæli, sem Jón E.
Ragnarsson lögfræðingur við-
hafði um stjórn hans á hand-
tökumálinu f blaðafrétt f gær,
brytu gegn 108. grein al-
mennra hegningarlaga um
meiðyrði við opinbera starfs-
menn.
„Ákæruvaldið er f höndum
ríkissaksóknara. Ég hef ekki
rætt við saksóknara um um-
mæli þau, sem höfð eru eftir
Jóni E. Ragnarsyni í Dagblað-
inu, en ég mun væntanlega
gera það eit^ivern næstu daga.
Við fyrstu yfirsýn sýnist mér
að ummælin gætu gefið tilefni
til höfðunar f meiðyrðamáls,"
sagði Steingrímur Gautur.
I fréttinni í gær sagði Jón E.
Ragnarsson m.a. að samkvæmt
því sem hann hefði frétt teldi
hann framkvæmd sakbending-
arinnar í handtökumálinu
hreina lögleysu og sér virtist
það hreint réttarhneyksli þeg-
ar verið væri að rannsaka
meint lögbrot lögreglumanna á
rannsóknaraðferðum með þvf
að framkvæma önnur brot á
sömu lögum.
að hún kynni að gefa sig við frek-
ari flóð. Stífla þessi væri enda
orðin allgömul, hún væri jarð-
vegsstífla en í henni væri tré-
kjarni, og væri skemmst frá þvf
að segja, að hún væri orðin hrip-
lek og jafnvel minksmogin. Það
væri álit sérfræðinga, að stífla
þessi væri orðin hættuleg, þar
sem hún kynni að bresta í flóðum
og þá með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum fyrir ýmis mannvirki
neðar í dalnum, ekki aðeins
mannvirki rafmagnsveitunnar
heldur einnig ýmis önnur. Þess
vegna teldi Rafmagnsveitan sér
skylt að ráðast í gerð nýrr ar
stíflu og raunar hafi það áður
verið á dagskrá en jafnan verið
frestað. Nú væri hins vegar
fengin heimild til að hefja smíði
stíflunnar og væri ætlunin að
ljúka henni þegar á þessu ári.
Skal stíflan rísa rétt neðan við
eldri stffluna.
Aðalsteinn kvað gerð stíflunar
vera kostnaðarsamt fyrirtæki, en
að vfsu hefði þó borizt lægra til-
boð í verkið frá ístaki en
kostnaðaráætlunin hljóðaði upp
á. Var kostnaðaráætlunin 166,8
milljónir króna en tilboð Istaks
hljóðar upp á 127,1 milljón króna.
Úr hríðarkófinu f fyrradag kl. 16.44.
Framkvæmdir við Hraun-
eyjarfoss hefjast á næsta ári
ENGAR framkvæmdir eru ráð-
gerðar við Hrauneyjarfossvirkj-
un á þessu ári — segir í fréttatil-
kynningu, sem Morgunblaðinu
barst f gær frá Landsvirkjun.
Hins vegar verður stefnt að því að
búa nokkuð í haginn á virkjunar-
stað, en unnt verður að nýta að
verulegu leyti margvíslega að-
stöðu, sem þegar er fyrir hendi
við Sigöldu. (Jtgjöld vegna þessa
undirbúnings eru innifalin f
Hótel Hof hœttir starfsemi sinni:
„Ástæðan tap á rekstrinum
11
— segir formaður húsbyggingarsjóðs Framsóknarfélaganna
Ástæðan óvissa með húsnæði”
— segir lögfrædingur hótelsins
12% hækkun
á stílabókum
RÍKISSTJÓRNIN staðfesti á
fundi sfnum f gærmorgun sam-
þykkt verðlagsnefndar um 12%
hækkun á stílabókum. Nær
hækkunin einungis til stflabóka,
sem framleiddar eru hér inna-
lands hjá fyrirtækinu Ekkó.
HÓTEL Hof, Rauðarárst fg 12,
hætti starfsemi sinni um s.l. ára-
mót. Að sögn Ingvars Björnsson-
ar, lögfræðangs hótelsins, er
ástæðan óvissa, sem rfkir um það
hvort hótelið fær að vera áfram f
núverandi húsnæði, en það er f
eigu húsbyggingarsjóðs Fram-
sóknarfélaganna. Formaður þess
sjóðs, Jón Aðalsteinn Jónasson
kaupmaður, sagði hins vegar f
gær, að ástæðan væri taprekstur
hótelsins, og hefðu aðstandendur
þess óskað eftir að verða leystir
undan leigusamningi og hefðu
samningar tekizt um það 5.
desember s.l. Sagði Jón það vera
áhugamál stjórnar húsbyggingar-
sjóðsins, að Dagblaðið Tfminn
fengi inni f húsinu með rit-
stjórnarskrifstofur sfnar. Er uppi
ágreiningur milli aðilanna
tveggja, húsbyggingarsjóðsins og
Hótels Hofs, eins og fram kemur f
svörum talsmanna þeirra hér á
eftir.
Ekki leiga þótt
Tíminn flytji inn
Morgunblaðið ræddi f gær við
Jón Aðalstein Jónasson, formann
húsbyggingarsjóðs Framsóknar-
félaganna. Sagði hann það vera
mikinn vilja sjóðsins að Dag-
blaðið Tíminn fengi inni f húsi
Framsóknarflokksin að Rauðarár-
stfg 18 enda væri blaðið og flokk-
urinn eitt það sama, og núverandi
húsnæði blaðsins væri alveg óvið-
unandi. Þetta væri á döfinni, og
yrði að öllum líkindum endanlega
ráðið í næstu viku. Jón Aðal-
steinn sagði að samkomulag hefði
orðið milli húsbyggingarsjóðsins
og Hótels Hofs 5. desember s.l.
um að hótelið hætti rekstri um
áramótin. Hefði það veirið beiðni
aðstandenda hótelsins að það yrði
leyst frá leigusamningi f húsinu,
sem þó hefði verið til margra ára.
Ástæðan væri sú að reksturinn
bar sig ekki. Staðreynd væri að
rekstrinum hefði verið hætt en
hótelið hefði áfram forleigurétt
að húsnæðinu ef ávkeðað væri að
leigja það áfram og gæti þá geng-
ið inn í hæsta tilboð. Hins vegar
kvaðSl Jón Aðalsteinn ekki telja
það leigu, þótt flokkurinn flytti
inn í húsið með starfsemi sfna, í
þessu tilfelli útgáfu Tímans, þótt
reiknuð væri húsaleiga. Það væri
tvennt ólíkt frá bæjardyrum hús-
byggingarsjóðsins að leigja
flokknum húsnæðið eða einhverj-
um óviðkomandi aðila. Þegar leit-
að var álits á þeim ummælum
Ingvars Björnssonar, að ekki
hefði verið um að ræða lokun
hótelsins vegna rekstrarörðug-
Framhald á bls. 18
framkvæmdaáætlun Lands-
vikjunar fyrri 1977, sem byggt
hefur verið á við undirbúning
lánsf járáætlunar rfkisstjórnar-
innar. A þessu ári er fyrst og
fremst ætlunin að undirbúa verk-
samninga f þágu virkjunarfram-
kvæmdanna og ljúka ýmsum
tæknilegum og f járhagslegum
undirbúningi.
í frétt Landsvirkjunar segir, að
hún lfti svo á, að eigi að vera unnt
að ná því markmiði, að Hraun-
eyjarfossvirkjun geti verið komin
f rekstur á árinu 1981, þurfi að
bjóða út byggingarvinnu við
virkjunina, svo og vélar og raf-
búnað fyrir hana á fyrri helmingi
þessa árs. Astæðan fyrir þessu er
sú, að áætlað er, að það taki 9 til
10 mánuði að bjóða verkið út, þ.e.
frá útboði og þar til verk-
samningar yrðu gerðir.
Um tilhögun framkvæmdanna
við Hrauneyjarfossvirkjun segir í
frétt Landsvirkjunar, að stefnt
Framhald á bls. 18
Drangsnes:
Frystihúsið fokhelt
Borgarstjóri efnir til við-
talstíma í Breiðholtshverfi
NYSTOFNAÐ félag ungra sjálf-
stæðismanna f Breiðholti, Þór
F.U.S., hefur ákveðið að gangast
fyrir viðtalstfmum með borgar-
fulltrúum og alþingismönnum
Sjálfstæðisflokksins I Reykjavfk.
Fyrsti viðtalstfminn verður á
laugardag, 8. janúar n.k., kl.
14—15.30 að Seljabraut 54 (hús-
næði Kjöts og fisks) og þar
verður borgarstjóri, Birgir tsleif-
ur Gunnarsson, til viðtals.
í fréttatilkynningu frá félaginu
segir, að markmið þessarar starf-
semi sé að auka tengsl íbúa
hverfisins við kjörna fulltrúa
þess á þingi og í borgarstjórn.
Fyrirhugað er að viðtalstfmar
þessir verði hálfsmánaðarlega f
vetur en félagið hyggur einnig á
fjölbreytta félagsstarfsemi og
verður meðal annars efnt til
félagsmálanámskeiðs, stjórnmála-
fræðslu og kynningarkvölds.
ATVINNUÁSTAND er lélegt hjá
kvenfólki á Drangsnesi og úr þvf
rætist ekki fyrr en nýja frystihús-
ið verður tekið f notkun. Nær
allir karlmenn hafa atvinnu, ým-
ist á bátunum eða við byggingu
frystihússins, sagði Jón Alfreðs-
son, kaupfélagsstjóri á Hólmavfk,
er blaðið ræddi við hann um
hvernig byggingarframkvæmd-
um við frystihúsið á Drangsnesi
miðaði.
Jón sagði, að húsið væri nú fok-
helt, en menn stæðu frammi fyrir
þvf að betur þyrfti að huga að
fjármögnun þeirra framkvæmda,
sem eftir væru. Sagði Jón, að nú
væri búið að verja rúmlega 40
milljónum króna til framkvæmda
við húsið en áætlað hefði verið að
heildarkostnaður yrði um 120
milljónir króna. Upphaflega var
áætlað að frystihúsið yrði tekið í
notkun í júní eða júlí f sumar og
sagði Jón, að ekki væri útilokað
enn að það tækist.
Þeir fimm bátar, sem áður
lögðu upp á Drangsnesi, leggja nú
afla sinn upp á Hólmavfk og landa
þar um þessar mundir, alls 13
bátar, en aflabrögð hafa, að sögn
Jóns verið sæmileg að undan-
förnu.
Sjór komst
í rafmagnstöflu
Arnar KE
ÞEGAR loðnuskipið Örn frá
Keflavfk var að loðnuveiðum
NA af Kolbeinsey f fyrrinótt
vildi það til. að sjór komst f
gegnum röralagnir f aðalraf-
magnstöflu skipsins og varð
skipið að leita hafnar f Siglu-
firði f gær með 150 tonn af
loðnu, sem það var búið að fá
áður.
Örn Erlingsson skipstjóri á
Erni sagði i samtali við
Morgunblaði í gærkvöldi, að
byggt hefði verið yfir aðalþil-
far Arnar f Noregi í sumar og
um leið hefði þurft að breyta
hinum ýmsu röralögnum í
Framhald á bls. 18
Loðna finnst á stóru svæði:
Fjórir bátar með
1400 lestir í gær
FJÖRIR loðnubátar tilkynntu um
afla til Loðnunefndar f gærdag,
samtals tæpar 1400 lestir. Fóru
tveir bátanna til Siglufjarðar og
að Ifkindum tveir til Raufarhafn-
Loðna hefur nú fundizt á Stóru
svæði NA af Kolbeinsey, en í
fyrrinótt fann rannsóknaskipið
Árni Friðriksson loðnutorfur um
80 mflur NA af Kolbeinsey og
virtist nokkuð mikil loðna vera
þar á ferð. 1 gærmorgun voru 8
vindstig á svæðinu NA af
Kolbeinsey og frost og kvörtuðu
skipstjórar undan fsingu. Sögðu
þeir að minna hefði komið út úr
köstunum f fyrrinótt en efni
stóðu til, en bæði stóð loðnan
djúpt, veður var frekar slæmt og
mikill straumur er um þessar
mundir.
Þessi skip tilkynntu afla til
Loðnunefndar: Grindvíkingur
GK 480 lestir, Ásberg RE 340 lest-
ir, Pétur Jónsson RE 420 lestir og
Örn KE 150 lestir. Loðnuveiðin þá
tvo daga, sem hún hefur staðið, er
nú um 3300 lestir, en fyrsta loðn-
an barst á land 1 fyrra þann 17.
janúar.