Morgunblaðið - 07.01.1977, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANUAR 1977
lðja,félag
verksmiðjufólks.
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat-
kvæðagreiðslu við stjórnarkjör í Iðju félagi
verksmiðjufólks fyrir næsta starfsár. Frestur til
að skila tillögum rennur út kl. 1 1 f.h. mánudag-
inn 10. janúar n.k. Tillögur eiga að vera um 7
menn í stjórn og 3 til vara, 2 endurskoðendur
og 1 til vara.
Tillögum skal skila til kjörstjórnar félagsins í
skrifstofu þess að Skólavörðustíg 16, 2. hæð,
ásamt meðmælum 100 fullgildra félags-
manna. Félagsstjórn.
jazzBaLieccafcóLi Búru
■o Jazzballett
fyrir alla
b
N
N
6 vikna námskeið __
Byrjum aftur 10. janúar.
Framhaldsnemendur fyrir a
jól mæti á sama tíma og
vanalega.
Byrjendahópar síðan í
haust hafi samband við
skólann vegna hugsan-
legra breytinga á tímum.
Nýir nemendur innriti sig í
síma 85090, frá kl. 1 —6.
Siðasti innritunardagur.
jazzBaLLedtsKóLí Bóru
2
S
œ
Q
2
Framhaldsnemendur í
Jitterbug og Rokk
og aðrir hafið samband
sem fyrst við skólann
vegna niðurröðunar á
tímum.
Kennt
Sérstakir í
tímar í
Jitterbug \
og Rokk
verður: Kennslustaðir:
Barnadansar (yngst 2ja . .... .
ára), Táningadansar, Reykjav.k, Hafnarfjorður
Stepp, Jazzdans. Sam- °9 Akranes^ Ath. kennt
kvæmis- og gömlu- "e'ður ' Bre.ðholt. II.
dansarnir. Seljahverh.
ATH.: JITTERBUG OG ROKK KEPPNI VERÐUR í LOK
JANÚAR Á VEGUM SKÓLANS.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
Lceland banned
f rom new
200-mile UK
fishing zone
fceland will be banned from Britain's 200-mile
fishing zone when it comes into effect tomorrow.
Xhe t Union will be allowe^^^j*''
'200-MILE
FISHING BAN
ON ÍCELAND
E É Ctalks may
Brezku stórblöðin The Times og The Daily Telegraph höfðu svipaða
sögu að segja á gamlársdag, þegar þau skýrðu frá útfærslu brezku
fiskveiðilögsögunnar f 200 mflur daginn eftir. Fyrirsagnir beggja
biaða lögðu sem sé áherzlu á að nú væri tslendingum bannaður
aðgangur að nýju lögsögunni. Fréttirnar birtust á forsfðum beggja
blaða.
Bíldudalur og Ólafsvík:
Mun bjartari horf-
ur í atvinnumálum
BRUGÐIÐ hefur til hins betra f
atvinnumálum bæði á Bfldudal
og f ólafsvfk, en sem kunnugt er
voru menn mjög uggandi yfir
dökkum horfum f þessum efnum
f haust. Á báðum stöðum hefur
útgerð og fiskvinnsla séð fólki
fyrir nægilegri atvinnu, þannig
að nú þykir bjartara yfir.
Að sögn Teodórs Bjarnasonar,
sveitarstjóra á Bfldudal er ástand-
ið í atvinnumálum að verða viðun-
andi, en um næstu helgi er vænt-
anlegur til Bíldudals vb. Sædfs,
200 tonna bátur, sem keyptur hef-
ur verið til þorpsins. Kvaðst
Theodór telja, að þegar báturinn
hefði hafið veiðar ásamt vb. Haf-
rúnu, sem fyrir er á staðnum, þá
mundi þorpsbúum vera tryggð
nægilega atvinna að mestu. Haf-
rún var keypt til Bíldudals í aprfl
á sl. ári, en lagði þá ekki upp á
Bfldudal fyrst í stað en var síðan
mestan hluta sumars og hausts
frá veiðum vegna viðgerða og hóf
ekki veiðar að nýju fyrr en vika
var af desember. Sfðan hefur bát-
urinn þó aflað allvel og aflinn
allur verið lagður upp í frystihús-
inu á Bíldudal. Theodór sagði, að
viðhorfin í atvinnumálum Bfld-
dælinga nú væru þannig allt önn-
ur og bjartari en þau voru í haust.
Alexander Stefánsson, oddviti á
Ólafsvfk, hafði svipaða sögu að
segja. Hann kvað ekkert atvinnu-
leysi vera í þorpinu svo heitið
gæti. Bátarnir sem róa eru á lfnu
og hefur verið reytingsafli hjá
þeim. Ef vertíð yrði góð og þegar
fleiri bátar hæfu róðra mætti bú-
ast við mjög þokkalegu atvinnu-
ástandi og afkomu fólks. „Eg held
að það megi segja að við höfum
sloppið betur en leit út fyrir f
haust. Það urðu ekki þau algjöru
vandræði sem við óttuðumst að
núna erum við mun bjartsýnni.
Við vonumst til að fá hingað tog-
ara á vertfðina og er verið að
vinna að þvf núna en með því
teljum við tryggt að hér verði næg
atvinna," sagði sveitarstjórinn.
Nýr dýralækn-
ir á Húsavík
FORSETI Islands hefur að tillögu
landbúnaðarráðherra skipað Bárð
Guðmundsson, héraðsdýralækni á
ísafirði f embætti héraðsdýra-
læknis á Húsavík frá 1. janúar
1977 að telja. Bárður hefur verið
dýralæknir á Isafirði sl. 7 ár.
Keramik-námskeið
í Kirkjustræti
SÆNSK listakona Birgit Lund-
Larsen, er væntanleg hingað til
lands f vikulokin. Mun hún kenna
keramfk á námskeiði, sem haldið
verður á vegum Vefnaðar- og
listaskóla Sigrúnar Jónsdóttur f
verzlun Sigrúnar, Kirkjumunum
f Kirkjustræti.
Birgit Lund-Larsen er búsett f
Hernösand í Svíþjóð og hefur hún
um árabil lagt stund á kennslu f
keramfk-gerð. Sagði Sigrún
Jósdóttir að hér yrði um eins
konar fullorðinsfræðslu að ræða,
en hún kemur einnig til með að
SÍMAR 21150 - 21370
Til sölu og sýnis m.a.
2ja herb. glæsileg íbúð
við Hraunbæ á 1 hæð um 65 ferm Vönduð harðviðar-
innrétting, góð teppi, fullgerð sameign. Útsýni. Geymsla
í kjallara.
4ra herb. íbúðir við
Álfheima, 3 hæð 105 ferm. endatbúð mjög góð
Hrafnhóla, 7. hæð 100ferm 1 háhýsi, fullgerð, útsýni
Hraunbæ, 3. hæð lOOferm. úrvalsíbúð í enda, útsýni.
Húseign 1 Túnunum
Timburhús á steyptum kjallara, ný álklætt og ný ein-
angrað. með 3ja herb. íbúð á hæð og 3ja herb. íbúð i
kjallara. Trjágarður. Tilboð óskast.
3ja herb. íbúðir við
Mjóuhlfð 85 ferm, samþykkt fbúð i kjallara.
Safamýri, 87 ferm. úrvals séríbúð í kjallara.
Háaleitisbraut 80 ferm. mjög góð samþykkt kjallara-
íbúð
Verzlunarhúsnæði á úrvalsstað
í Austurborginni fyrir búsáhöld, tilbúinn fatnað og
fleira. Stærð á hæð 105 ferm (2 verzlanir) og 30 ferm. i
kjallara.
Sænska llstakonan Birgit Lund-
Larsen.
Þurfum að útvega
gott skrifstofuhúsnæði um 100 ferm. helzt við Laugaveg
eða náqrenni
AIMENNA
Ný söluskrá heimsend FASTEIG WASAL AN
LAUGAVEGI49 SÍMAR 21150-21370
L.Þ.V. S0LUM JÓHANN ÞOROARSON HDL
leióbeina á námskeiðinu. Á nám-
skeiðinu verður einnig kennd
postulfnsmálning og leiðbeint um
gerð blýrúða.
Birgit Lund-Larsen kemur með
efni með sér en eigi þátttakendur
efni sjálfir geta þeir notað það.
Állar nánari upplýsingar
varðandi namskeiðið fást í verzl-
uninni Kirkjumunir þar stendur
innritun yfir þessa dagana.