Morgunblaðið - 07.01.1977, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JANUAR 1977
Landbúnaðarráðherra:
Nefnd kanni þörf á
fjárhagslegri fyrir-
greiðslu við bændur
á óþurrkasvæðunum
LANDBUNAÐ ARRAÐHERRA hefur
skipað nefnd fimm manna til að
athuga forðagæsluskýrslur af Vest-
fjörðum, Vesturlandi og Suðurlandi
og kanna á annan hátt, hve mikla
fjárhagslega fyrirgreiðslu þurfi að
veita bændum I þessum byggðarlög
um til þess að gera þeim kleift að
kaupa þann fóðurbætisauka, sem
þarf til að bæta upp fóðurgildi heyja
frá sl. sumri.
Sem kunnugt er hafa rannsóknir leitt
í Ijós. að vegna óþurrka á Suður- og
Vesturlandi sl sumar er heyfengur
bænda á þessum svæðum mjög rýr að
fóðurgildi Hey á þessu svæði eru
mjög misjöfn að gæðum og sam-
kvæmt niðurstöðum rannsókna
Rannsóknastofnunar landbúnaðarms á
sl hausti má gera ráð fyrir að % af
heyjum á fyrrnefndu svæði séu góð
hey, ’/? sæmileg en þó langt undir
meðallagi og % séu léleg eða ónýt
Samkvæmt niðurstöðum þessara
rannsókna þarf að meðaltali 2,56 kíló
af heyi í hverju fóðureiningu á óþurrka-
svæðunum en gert er ráð fyrir að alla
jafna þurfti ekki nema um 1.9 kíló af
heyi í fóðureininguna Þennan mismun
þurfa bændur því að bæta upp með
fóðurbætisgjöf en nokkuð bætir þar úr
skák fyrir bændur að verð á innfluttu
kjarnfóðri er nú mjög hagstætt og að
sögn kunnugra hefur verð á fóðurbæti
ekki verið jafn hagstætt sl. 20 ár
j nefnd þeirri. sem landbúnaðarráð-
herra hefur skipað. eiga sæti þessir
menn
Gisli Kristjánsson ritstjóri, sem hefur
verið skipaður formaður nefndarinnar.
Leifur Jóhannesson ráðunautur, vara-
formaður, Árni Jónasson erindreki,
Hjalti Gestsson ráðunautur og Haukur
Jörundarson skrifstofustjóri
Þetta einbýlishús f Siglufirði tók aðeins 2 daga að reisa, og smfði eininga tók aðeins um 3 mánuði en þær
eru þá fullfrágengnar með einangrun o.s.frv.
Húseiningar:
Timbureiningarhúsið til á
þrem til f jórum mánuðum
GarAar Erlendsson forsljóri tekur viö viöurkenningarskjali Félags
blikksmiða.
— Blikk & stál
Framhald af bls. 5
vökutímanum verður hann að
eyða á vinnustað til að þræla
fyrir þvf litla kaupi sem honum
er skammtað, sá skammtur á
svo að duga til að framfleyta
hans fjölskyldu. Á þessu sést að
vinnustaðurinn verður að upp-
fylla þær kröfur, sem þurfa að
vera til að starfsmaðurinn haldi
óskertri heilsu," sagði Kristján
Ottósson. Hann hvatti að lokum
sveina iðninnar til að leggja sitt
af mörkum til að uppfylla kröf-
ur til vinnustaðar með góðri
umgengni.
Að ræðu sinni lokinni afhenti
Kristján Garðari Erlendssyni,
forstjóra Blikks og stáls, viður-
kenninguna og þakkaði Garðar
fyrir hönd fyrirtækisins og
starfsmanna þess, en þeir eru
um 30 og voru viðstaddir
afhendinguna. Viðstaddir voru
auk þeirra Guðjón Jónson,
— Síldveiði
Framhald af bls. 1.
um og veitt jafnmikið og áður eða
allt þar til ráðherranefnd EBE
tekur afstöðu til framkominnar
tillögu um algert sildveiðibann í
Norðursjó í allt að fjóra mánuði.
Fundurinn verður haldinn síðari
hluta mánaðarins.
Bannið við síldveiði Svía f
Norðursjó hefur í för með sér að
um þriðjungur starfsmanpa i
fiskimjölsiðnaði á Norður-
Jótlandi missir atvinnuna að sögn
viðkomandi fyrirtækja. Norð-
menn fá að halda veiðunum
áfram.
Fiskimjölsverksmiðjurnar eru
á Skagen og Hirtshals og enga
aðra atvinnu er hægt að bjóða
þeim sem verða atvinnulausir.
Afleiðingin verður því stóraukið
atvinnuleysi á þessum slóðum.
Norður-Jótland er eitt þeirra
svæða EBE sem er lakast sett að
sögn Iver Espersens, forstjóra
fiskútflutningsfyrirtækis Skager-
aks. Hann krefst þvf bóta í ein-
hverri mynd fá EBE á sama hátt
og viss svæði á Italíu fengu skaða-
bætur þegar tómataframleiðsla
minnkaði.
form. Málm- og skiðasmiða-
sambands Islandsmiðjueig-
enda. Afhendingin fór fram í
vinnusal blikksmiðjunar.
TILGANGURINN meö stofnun
þessa fyrirtækis var fyrst og
fremst sá að reyna að ná almennt
fram lækkun byggingarkostnaðar
hérlendis, en þessu markmiði má
fyrst og fremst ná með því að
stytta byggingarfmann. Við
teljum okkur hafa náð töluverð-
um árangri f þessum efnum, en
þó er aðstöðu starfseminnar f
mörgu ábótavant. Þannig fórust
orð Matthfasi Sveinssyni fram-
kvæmdastjóra Húseininga hf. á
Siglufirði á blm. fundi f gær.
Húseiningar hf. framleiða ein-
ingahús úr timbri, en fyrsta húsið
sem fyrirtækið reisti var bæjar-
stjórabústaðurinn i Siglufirði.
Sfðan eru húsin orðin um 40, vfðs
vegar um landið. Matthfas sagði
að það liðu vanalega um 3—4
mánuðir frá því að byrjað væri á
sökkli þar til að hvert hús væri
orðið íbúðarhæft en með hinni
hefðbundnu byggingaraðferð er
sá tími 1—2 ár að sögn Matthías-
ar. Það eitt að reisa húsið eftir að
sökkull er tilbúinn tekur ekki
nema 4—5 daga og getur farið allt
niður í 2 daga.
Það kom fram á blm.fundinum
að þessari iðngrein væri illa búið.
Þannig er ekki nema 12% tollur
af tilbúnum, innfluttum timbur-
húsum frá EFTA-löndum, að sögn
Matthíasar, en framleiðendur ein-
ingahúsa hér verða að greiða
25.5% toll af timbrinu sem þeir
nota í húsin. Þá er framleiðend-
um einingahúsa gert að greiða
söluskatt af verði húsanna, þar
sem þau eru framleidd innan-
dyra, en þessu er öðru vfsi háttað
með íbúðir sem buggðar eru á
hefðbundinn hátt. Þá er f raun og
veru um að ræða að söluskattur sé
tviborgaður, að sögn Matthíasar,
því í verði húsanna er ýmiss kon-
ar fastakostnaður sem áður hefur
verið greiddur söluskattur af.
Það er ekki nóg að segja að við
höfum lækkað byggingarkostnað
heldur verðum við að geta sýnt
fram á það með tölum, sagði Matt-
hías. Samkvæmt síðustu útreikn-
ingum kostar rúmmetrinn af
timburhúsi frá okkur 22.580 krón-
ur, og er þá miðað við fullfrágeng-
Þjóðleikhúsinu barst nýlega höfð-
ingleg gjöf frá Andrési Þormar
leikritaskáldi og fyrrum gjald-
kera. Er það bók þar sem hann
hefur safnað öllum gögnum og
umsögnum I blöðum um vfgslu
Þjóðleikhússins, undirbúning og
starf þess á fyrstu mánuðum.
Bókin er fagurlega innbundin og
verður til sýnis á Kristalssal á
sýningum f leikhúsinu næstu vik-
urnar.
Andrés Þormar er gamall leik-
húsunnandi og kunnur bókasafn-
ið hús. Þetta má bera saman við
vfsitöluhúsið en í þvf kostar hver
rúmmetri 22.553 krónur. Sá rúm-
metri er þó miðaður við að vera í
10 fbúða stigahúsi í blokk, svo að
þarna er greinilegur munur á.
Okkar kostnaður i hverju húsi er
um 60% af heildarkostnaðiþess,
en frá okkur kostar 100 fermetra
hús 4,8 milljónir, svo að fullfrá-
gengið kostar það um 8 milljónir.
Af þessum 4,8 milljónum verðum
við svo að skila 800 þúsundum í
söluskatt.
I verði Húseininga er húsið full-
klárað, að undanskildum raflögn-
um, múrverki (sökkull og gólf),
hitalögnum, innanstokksmunum,
o.s.frv. Að sögn er hönnun hús-
anna og eininganna þannig háttað
að ekki er um að ræða staðlaða
gerð húsa, heldur eru margir
möguleikar með stærðir og fyrir-
komulag, jafnt utan húss sem inn-
an.
Greiðsluskilmálar húsanna eru
með þeim hætti, að við staðfest-
ingu pöntunar kemur greiðsla, og
síðan eru mögulegar jafnar af-
borganir á 12 mánuðum. Jafn-
framt tekur fyrirtækið, ef þess er
óskað, við Húsnæðismálastjórnar-
láninu, en um greiðslufyrirkomu-
lag verður þó að semja hverju
sinni.
ari og mun til dæmis eiga eitt
merkasta safn islenskra leikrita,
sem til er. Hann sést hér á mynd-
inni við gjöf sfna, en með honum
á myndinni eru nokkrir af leik-
urum og starfsmönnum, sem hafa
starfað við leikhúsopnun þess.
Þeir eru, talið frá vinstri: Valur
Gíslason, Róbert Arnfinnsson,
Herdís Þorvaldsdóttir, Ögmundur
Kristófersson, gefandinn Andrés
Þormar, Bjarni Stefánsson, Þor-
lákur Þórðarson og Kristinn
Daníelsson.
Snæfellsnes er vinsæll ferðamannastaður. Hér er mynd af Stapa-
felli og Snæfellsjökli.
Á 5. þúsund ferð-
uðust með Útivist
BLAÐINU hefur borizt eftir-
farandi frá Ctivist:
Nú er öðru starfsári okkar
lokið, og varð farþegatala fé-
lagsins 4055 árið 1976 í hátt á
annað hundrað ferðum. Er það
75% aukning frá árinu áður.
Þar af voru útlendingar 14.4%
að langmestu leyti í sér ferðum.
Um áramótin var um 100
manns f förum á vegum félags-
ins, þ.e.a.s. í Hveradali, Herdís-
arvík og Selvog og Strandar-
kirkju 2. janúar.
Ferðaáætlun 1977 er nú í
prentun og væntanleg innan
skamms. Er þar gert ráð fyrir
fjölmörgum ferðum, m.a.
kræklingafjörum, tunglskins-
göngum, stjörnuskoðun o.s.frv.,
svo sem var síðastliðið ár. Enn-
fremur verður boðið upp á
ódýrar utanlandsferðir fyrir fé-
laga Utivistar, en s.l. ár var
farið í 4 slíkar ferðir til Græn-
lands og Færeyja.
Fyrsta ársrit félagsins kom út
á síðastliðnu ári, blandað að
ferðaefni og prýtt fjölda mynda
í lit og svarthvftu. Annað ársrit
er nú í prentun og væntanlegt
seinna í þessum mánuði. 1 því
er einnig blandað efni um
ferðamál og útivist og prýtt
fjölda mynda.
Þess má geta, að félagið Uti-
vist er öllum opið, og geta menn
gerzt félagar og áskrifendur að
ritinu í Lækjargötu 6, sfmi
14606. Áskrift kostar nú 2000
krónur. Tilgangur félagsins er
að stuðla að útivist fólks f hollu
og óspilltu umhverfi.
Höfðingleg gjöf til
Þ j ódleikhússins