Morgunblaðið - 15.01.1977, Síða 2

Morgunblaðið - 15.01.1977, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JANUAR 1977 14% skuldaaukning FÍkis og ríkisstofn- ana við Seðlabanka Verulegur stöðubati opinberra sjóða AL'KNING heildarskuldar ríkis- sjóds og ríkisstofnana á sl. ári nam um fjórðungi aukningar- innar árið áður og sðð sem hlut- fall af stöðunni I ársbyrjun varð skuldaaukning 14%, samkvæml upplýsingum Seðlabankans. Skuldaaukningin var 838 milljónir króna sé gengis- uppfa’rsla dregin út úr. Tölur þessar ná yfir allt 1 senn, reikningsskuld, verðbréf og rlkis- vlxla. I fréttatilkynningu fjármála- ráðuneytisins 11. þ.m. hafa þegar komið fram nánari skýringar á afkomu og stöðu ríkissjóðs er koma að sínu leyti heim við ofan- greindar upplýsingar. OPINBKRIR SJÓÐIR Sé jafnframt litið til þeirra opinberu sjóða, sem tengjast fjár- málum ríkisins í viðari skilningi, þ.e. sjóðá i opinberri vörzlu og Framhald á bls. 18 STAÐA RIKISSJÓÐSOG RÍKISSTOFNANA VIÐ SEÐLABANKANN. Millj kr. Staða I árslok Ilreyfingar 1975 1976 1975 1976 Rlkissjóður 9932 11419 6066 1487 þ.a. gengisuppfærsla (-258) (-699) Ríkisstofnanir, nettó 2128 2389 642 261 þ.a. gengisuppfærsla (-68) (-211) Loðnan heldur austur á bóginn: 12 skip með 4300 lestir t gærmorgun lægði nokkuð á loðnumiðunum og þá fengu 12 bátar alls 4300 lestir af loðnu. Er leið á morguninn hvessti aftur og héldu þá flest skipin í var. Loðnan, sem veiddist í gærmorgun var 50—60 mílum austar en loðnan sem veiddist fyrir bræluna og voru skipin að veiðum norður af Þistilsfirði í gærmorgun. Þau skip , sem fyrst voru að tilkynna um afla héldu til Siglufjarðar og í Krossnes, en hin héldu til Austfjarðahafna og kemur fyrsta ioðnan á vertíðinni því til Austfjarða í dag. Skipin, sem tilkynntu um afla í gær voru þessi: Eldborg GK 530 lestir, Gísli Árni RE 500, Grind- víkingur GK 540, Skarðsvfk SH 380, Huginn VE 350, Súlan EA 450, Þórður Jónasson EA 350, Svanur RE 200, Rauðsey AK 300, Börkur NK 450, Örn KE 300 og Fífill GK 350 lestir. Það sem af er vertiðinni hafa veiðst um 26 þúsund lestir af loðnu, en í fyrra barst fyrsta loðn- an á land hinn 17. janúar. Athuga með kaup á rækjutogara Morgunblaðinu er kunnugt um að aðilar á Dalvík eru nú að at- huga með kaup á skutrækjutog- ara frá Italíu. Togari þessi mun vera nokkurra ára gamall, en ekki er blaðinu kunnugt um að hve stór hann er. Forráðamenn Dal- víkinga munu nú vera farnir til Italíu til að skoða skipið. Skildu jafnir FYRSTA umferð alþjóðlega skák- mótsins I Wijk Aan /ee 1 IIol- landi var tefld 1 gær. Þá mættust fslenzku stórmeistararnir, Friðrik og Guðmundur, og skildu jafnir. Guðmundur hafði hvítt og jafntefli varð í 18. leik. Þrátt fyr- ir þetta notuðu skákmeistararnir talsverðan tfma. Skákmótið f Ilol- landi hefur samkvæmt Elo- stigatöflu 11 stig. Framhald á bls. 18 V iðskiptabankarnir: Hlutfallslega meiri aukning innlána en útlána á sl. ári Unnið var að þvf í gær að gera gott skautasvell á Tjörninni í Reykjavfk. Starfsmenn Reykjavfkurborgar fluttu dælu í bíl út í hðlmann og sprautuðu sfðan vatni yfir fsinn. Myndin er af bílnum f hólmanum. — Ljðsm.: Kr. Ól. AUKNING heildarinnlána viðskiptabankanna á árinu 1976 nam 32,7% og er það talsvert meiri aukning en árið áður, og kemur hér einkum til aukning spari- innlána. Utlán viðskipta- bankanna fðru um 6% fram úr þvf marki sem Seðlabankinn f samvinnu við viðskiptabankana hafði sett til takmörkunar á aukningu útlána á árinu en á mðti kemur að þrðun spariinnlána reyndist mun hagstæðari en undanfarið ár segir í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands. Bráðabirgðatölur eru nú tilbún- ar um útlán og innlán viðskipta- banka, en um innlánsstofnanir í heild eru enn aðeins til tölur um stöðuna gagnvart Seðlabankan- um, en þær sýna lítilsháttar bata I Iausafjárstöðu þeirra. Hins vegar fara hér á eftir tölur um innlán og útlán viðskiptabankanna, en um 81% heildarinnlána er hjá þeim, svo að þessar tölur eiga að gefa góða mynd af þróuninni hjá inn- lánsstofnunum i heild. Aukning heildarinnlána nam 32,6% á árinu 1976 og er það talsvert meiri aukning en árið áður, er hún nam 28,3%. Einkum er aukning spariinnlána um 36,3%, til samanburðar við 26,4% árið áður, athyglisvert batamarki. Að nokkru leyti virðist mega þakka þennan árangur hinu nýja vaxtaaukareikningsfyrirkomu- lagi, en i árslok höfðu safnazt 8.651 millj. kr. á vaxtaaukareikn- inga bankans. Utlán viðskiptabankanna juk- ust um 12.587 millj. kr. á árinu, eða um 25,8:, en árið áður hækk- uðu útlánin um 26,2% að með- töldum lánum til breytilegra lausaskulda sjávarútvegsins í löng lán. Hin svokölluðu þaklán jukust til muna minna en heildar- útlánin, eða um 21,6%, en þá eru undanskilin afurðalán og reglu- bundin viðbótarlán bankanna. Varð útlánaaukningin mun minni en á horfðist fram eftir árinu, þar sem veruleg útlánalækkun varð i desember. Stefnt hafði verið að því, að útlánaaukning bankanna yrði um 20% á árinu, en þótt ofangreindar tölur sýni, að farið hafi verið um 6% fram úr því marki, kemur þar á móti, að þróun spariinnlána hef- ur eynzt mun hagstæðari en undanfarin ár. Sæmilegt jafn- vægi náðist því í heildarviðskipt- um bankanna á árinu. ÚR REIKNINGUM VIÐSKIPTABANKA Millj. kr. Staða í árslok Hreyfingar 1975 1976 1975 1976 Heildarútlán 48817 61404 10542 12587 Heildarínnlán 42578 56448 9393 13869 Veltiinnlán og geymslufé 11595 14223 2931 2628 Spariinnlán 30983 42225 6463 11242 Falla tölvuúr undir verksvið úrsmiða eða útvarpsvirkja? AÐ undanförnu hefur aukizt nokkuð innflutningur á svonefnd- um tölvuúrum og hafða Morgunblaðið af þvf tilefni samband við Garðar Olafsson úrsmið og spurðist fyrir um hvort aukin notkun tölvuúra myndi smám saman gera úrsmiði óþarfa. Garðar sagði að Svisslending- ar væru komnir langt á þessari braut og taldi að þjónusta með slík tölvuúr yrði áfram í hönd- um úrsmiða. Við þurfum að læra eitthvað meira í sambandi við þetta, sagði Garðar, en ég reikna ekki með því að stéttin muni deyja út. Það er með okk- ur eíns og aðra iðnaðarmenn að við þurfum að bæta sífellt við okkur, fara utan eða fá sérfræð- inga hingað til að leiðbeina og ég geri ráð fyrir að svo verði einnig í þessu tilviki. Við eigum frekar við önnur vandamál að stríða, sagði Garðar, það eru margir um söluna á þessum úr- um, þeir aðilar sem hafa selt vasatölvur og önnur skrifstofu- tæki bjóða fram þessi tölvuúr, séu þeir umboðsmenn fyrir sama fyrirtæki. Ennfremur leitaði Mbl. álits Sigurðar Ölafssonar útvarps- virkja á því hvort þessi tölvuúr heyrðu undir útvarpsvirkja fremur en úrsmiði. — Þetta er álitamál, sagði Sigurður, og öll rafeindatækni hefur til þessa tilheyrt okkur, en hún er hins vegar komin inn á mörg svið núna, t.d. í bíla. Varðandi tölvuúrin má segja að oftast er skipt um allt verkið í þeim eða meginhluta þess og úrsmiðir hafa ekki mjög mikla þekkingu á því, en þó veit ég ekki hvað þeir hafa lært í þess- um fræðum. Það er stundum leitað til útvarpsvirkja með svona úr. En mér fyndist ekki óeðlilegt að úrsmiðir bættu þessum þætti inn í sína menntun og það er mjög margt sem flokka má und- ir okkar stétt að lagfæra þarf og endurbæta t.d. námið í grein- inni. I því sambandi má nefna að nú er starfandi nefnd til að endurskoða nám í útvarpsvirkj- un og sagði Sigurður að gamla starfsheitið útvarpsvirkjun væri ekki lengur rétt nafn á faginu. Talað væri um að um leið og námstilhögun yrði breytt, t.d. á þann veg að fyrstu tvö — þrjú árin væri sameigin- legt námsefni, sem síðar greindist í nokkur sérsvið, myndi það verða kannski nefnt rafeindavirkjun, eða eitthvað í þá átt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.