Morgunblaðið - 22.02.1977, Side 1
44 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
41. tbl. 64. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Amin ásakar
biskupinn af
Kantaraborg
Nairobi 21. febrúar
— Reuter
Svíar bjóda
til vidrædna
um fiskveiðar
Stokkhólmi 21. febrúar — Reuter.
SVÍAR hafa lagt til við Sovét-
raenn, Pólverja og Austur-
Þjóðverja, að viðræður um fisk-
veiðiréttindi I Eystrasalti verði
haldnar i Stokkhólmi I apríl eða
maf. Svlar tilkynntu þann 3.
febrúar, að þeir ætluðu að færa út
fiskveiðilögsögu sfna að miðlínu i
Eystrasalti og Kirjálabotni. 200
milna fiskveiðilögsaga er ekki
möguleg vegna þess hve Eystra-
saltið er mjótt. Sviar hafa sagt að
þeir muni miða miðlínu slna við
eyna Gotland. Sovétríkinn hafa
ekki viljað fallast á það og telja að
miða eigi við sænska fastlandið.
Það opnaði Gotlandsvæðið fyrir
skipum annarra þjóða en Sviar
hafa flotastöðvar á Gotlandi.
Kínverjar
segja Rússa
beita pyntingum
Hong Kong 21. febrúar —
Reuter
KÍNVERJAR ásökuðu I dag
Sovétmenn um að pynda andófs-
menn I geðsjúkrahúsum „af
miklu meiri grimmd en var I
fangabúðum Hitlers". Opinbera
fréttastofan Nýja-KIna sagði, að
þær þúsundir manna, sem settar
væru á sjúkrahús, væru
byltingarsinnar, andófsmenn,
Framhald á bls. 42.
Jmnani Luwum. Erinayo Oryema,
erkíbiskup. riðherra — Mrst I
bflslysi, segir Am-
in.
Owens skipaður
utanríkisráðherra
Korzhnoi
spáir köldu
stríði gegn
Petrosjan
Mílanó 21. febrúar — AP
SOVÉZKI stórmeistarinn Victor
Korchnoi, sem er landflótta, lét f
dag f ljós ótta yfir hugsanlegum
óskilgreindum „hættum“ á ftalfu,
en hann er kominn þangað til að
keppa um réttinn til að skora á
heimsmeistarann f skák.
Korchnoi, sem er 46 ára gamall,
flúði til Vesturlanda fyrir sex
mánuðum. Hann sagði að félagar
hans fyrrverandi úr sovézka skák-
sambandinu myndu gera allt sem
I þeirra valdi stendur til að koma
honum sem fyrst út úr keppni til
að forðast frekari óþægindi vegna
flótta hans.
Hann sagði I viðtali að sovézk
yfirvöld „reiddust" ef hann
kæmist I úrslit gegn Anatoly
Karpov, heimsmeistara, 1978,
eftir að hafa komið sér undan
sovézku oki. Hann býst við að
einvígi hans við fyrrverandi
félaga sinn og nú keppinaut,
Tigran Petrosjan, sem standa
mun I mánuð, verði einhvers
konar kalt stríð. Einvígi þeirra
byrjar á mánudag.
Korchnoi hefur krafizt sér-
stakrar verndar og ítalir hafa
fallizt á að láta hann fá einkalíf-
vörð og að náið eftirlit verði haft
með hótelinu, þar sem þeir
Petrosjan tefla.
Framhald á bls 30
Færeyingar og Norð-
menn semja um veiðar
Ósló 21. febrúar — NTB.
Færeyingar og Norðmenn kom-
ust f dag að samkomulagi um
gagnkvæmar fiskveiðar innan 200
mflna fiskveiðilögsögu hvors
lands. Aðalatriði samkomulags-
ins er að aðilarnir skuldbinda sig
til að leyfa hvorir öðrum að
stunda veiðar fyrir utan 12 sjó-
mflna mörk frá grunnlfnu sam-
kvæmt kvótakerfi. Samningar um
kvótana hefjast f lok marz.
1. marz rennur út samkomulag
frá 1973 um fiskveiðar við
Færeyjar sem veitir Norðmönn-
um veiðiheimildir þar. I yfirlýs-
ingu frá samningafundinum I
Ósló segir að aðilar hafi orðið
sammála um bráðabirgðafyrir-
komulag á gagnkvæmum réttind-
um til fiskveiða þar til kvótar hafi
verið ákveðnir. Allur afli reiknast
upp I þá kvóta, sem ákveðnir
verða.
Formaður samninganefndar
Norðmanna var Jens Evensen,
hafréttarráðherra Noregs, en Atli
Dam, lögmaður, stjórnaði fær-
eysku samninganefndinni.
Samkvæmt upplýsingum Even-
Amalrik meinað
að hitta Giscard
Parfs, 21. febrúar. Reuter.
RCSSNESKI andófsmaðurinn
Andrei Amalrik neitaði f dag
að hitta að máli starfsmenn
franska utanrfkisráðuneytisins
og ræða við þá mannréttindi f
Sovétrfkjunum samkvæmt
áreiðanlegum heimildum.
Amalrik kom f gær til
Parfsar frá Amsterdam þar
sem hann hefur setzt að og
kvaðst vonast til að geta hitt að
máli Valery Giscard d’Estaing
forseta.
Talsmaður forsetans sagði
hins vegar í dag, að Amalrik
yrði boðið að hitta þá starfs-
Andrei Amalrik
menn franska utanríkisráðu-
neytisins sem sjá um undirbún-
ing ráðstefnu sem verður hald-
in I Belgrad I sumar I framhaldi
af Helsinki-ráðstefnunni 1975.
Giscard d’Estaing er I skíða-
ferð og talsmaðurinn sagði ekk-
ert hvort forsetinn mundi hitta
Amalrik eða ekki en svo virtist
sem Amalrik væri boðið að
ræða við starfsmenn' utanrfkis-
ráðuneytisins I stað þess að
ræða við forsetann.
Eftir að talsmaðurinn sendi
frá sér yfirlýsingu sfna afhenti
Amalrik bréf til Elysee-hallar
Framhald á bls. 42.
sens veiða Norðmenn um 22.000
tonn við Fæeyjar, aðallega þorsk,
keilu, lúðu og kolmuna. Atli Dam
sagðist vera ánægður með að
Færeyingar skyldu hafa komizt
að samkomulagi við tslendinga og
Norðmenn. „Það sýnir að það er
skilningur á vandamálum okkar,“
sagði hann. „Fiskveiðar eru
undirstaða efnahags okkar og mið
okkar eru lftil. Þess vegna hafa
veiðar okkar á fjarlægum miðum
orðið hefð."
Lögmaðurinn sagði, að Færey-
ingar gætu ekki sætt sig við að
Bretar miðuðu efnahagslögsögu
slna við skerið Rockall. „Við
stöndum frammi fyrir erfiðu
alþjóðavandamáli eftir að Bretar
gerðu tilkall til Rockall og ákváðu
að skerið, sem er óbyggt, yrði
grunnllnu punktur I efnahagslög-
sögu þeirra. Þannig sneiða þeir
góðan hlut af okkar fiskveiðilög-
sögu og við munum aldrei fallast
á það".
Kommúnistar
birta fram-
boðslista
Madrid 21. febrúar Reuter
SPANSKIR kommúnistar juku t
dag þrýsting sinn á rlkisstjórnina
með þv( að birta framboðslista
sinn f væntanlegum þingkosning-
um, en flokkurinn er ólöglegur.
Kommúnistaflokkurinn var hann-
aður opinberlega eftir borgara-
strfðið 1936—39, en hann sótti
þann 11. febrúar um að fá að
Framhald á bls. 42.
Dr. David Owen
I málefnum Efnahagsbandalags-
ins og var formaður samninga-
nefndar EBE I viðræðunum við
Sovétmenn um fiskveiðar.
Owen er yngsti utanrlkisráð-
herra Breta, næst á eftir sir
Anthony Eden, sem varð utanrlk-
isráðherra 35 ára gamall. Flestir
álitu að Denis Healey, fjármála-
ráðherra, tæki við embætti utan-
ríkisráðherra, en hann mun halda
Korchnoi stórmeistari fyrir framan dómkirkjuna f Mflanó f gærmorg-
Un. Slmamynd AP.
IDI AMIN, forseti Uganda,
segir að allt sé nú með kyrrum
kjörum f landinu eftir að
vopnaðir innrásarmenn hafi
reynt að fremja valdarán, og
ásakaði hann erkibiskupinn af
Kantaraborg um að hafa átt
þátt f gerð „óþokkalegrar áætl-
unar um að skapa öngþveiti" f
Uganda.
Hann nefndi æðsta mann
ensku biskupakirkjunnar, dr.
Donald Coggan, sem samsæris-
mann ásamt Burgess Carr,
vfgslubiskupi, sem er ritari Af-
rlska alkirkjuráðsins. Carr
sagði i Nairobi I slðustu viku,
að erkibiskup ensku biskupa-
kirkjunnar I Uganda „Janani
Luwum, hefði fallið fyrir
„morðingjahöndum I Uganda".
Amin sagði i skeyti til Ein-
Framhald á bls. 42.
áfram I sfnu embætti, sagði I til-
kynningu frá skrifstofu James
Callaghans, forsætisráðherra.
Annar möguleiki, sem talinn var
koma til greina, var sá að Healey
tæki við utanrikisráð-
herraembættinu eftir að hafa lagt
fram fjárlög þann 29. marz, en
samkvæmt heimildum innan rlk-
isstjórnarinnar er skipun Owens
ekki til bráðabirgða.
Dr. Owen er taugafræðingur, og
tók hann við störfum Croslands
þegar hann veiktist. Owen er tal-
inn hægfara i stjórnmálum, en
Framhald á bls. 42.
4t
‘ 1
London 21. febrúar — Reuter.
DR. DAVID Owen, aðstoðarutan-
rfkisráðherra, var f kvöld skip-
aður utanrfkisráðherra Bretlands
f stað Anthony Croslands, sem
lézt af heilablóðfalli á laugardag.
Skipum dr. Owens, sem er 38 ára,
kom mjög á óvart.
Hann hefur verið aðstoðarutan-
rlkisráðherra nokkra slðustu
mánuði og hefur hann sérhæft sig