Morgunblaðið - 22.02.1977, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUPAGUR 22. FEBRÚAR 1977
3
Vasili Smyslov, aðstoðar
maður Spasskys, og eigin-
kona hans við komuna til
Reykjavíkur á sunnudaginn.
Engar pólitísk-
ar spurningar
í upphafi blaSamannafundarins imt
skékmönnunum i gmt sagSi Eínar S.
Einarsson, að béSir hafSu skék-
mennimir beðiS um aS þeir yrðu ekfci
beðnir aS svara pótitlsfcum spurning-
um. Þé vildu þeir ekki léta trufla sig
dagana fram aS einviginu, né moSen
é þvi st»8i. Myndatökur vtaru
aSeins leyfSar fyrstu fimm minútur
hverrar skékar.
„Vil ekki f órna
öllu lífi mínu
fyrir skákina”
— segir tékkneski stórmeistarinn Hort
og telur að Fischer ynni Karpov
Vlastimil Hort á fundi með fréttamönnum í gær, við hlið hans er Einar Einarsson, forseti
Skáksambandsins, Guðmundur Arnlaugsson, yfirdómari í einviginu. og Gunnar Gunnars
son, aðstoðardómari.
— segir Boris Spassky fyrrverandi heimsmeistari,
vel undirbúinn fyrir einvígid og fullur sigurvilja
— Spassky er ef til vill sterkari
núna en þegar hann tefldi við Fisch-
er ‘hér í Reykjavík, en hann er sjö
árum eldri en ég og ég held, að ég
þekki hann betur en hann þekkir mig
og þar liggja mfnir möguleikar, sagði
Vlastimil Hort á fundi með frétta-
mönnum á Hótel Loftleiðum I gœr.
Tékkinn var hress i bragði, brosti
mikið og hló, sagði gamansögur af vini
sínum Bobby Fischer og lék á als oddi
Eina skiptið, sem hann varð vandræða-
legur, var er hann hitti Spassky í
anddyri hótelsins og þar þvertók hann
fyrir að tekin yrði mynd af honum með
Spassky Aðrar myndatökur leyfði
hann fúslega og svaraði greiðlega öll-
um spurningum blaðamanna
Hort var spurður á fundinum hver
yrði næsti heimsmeistari í skák og
svaraði þvl til, að hann teldi, að Karpov
ætti eftir að verma sæti heimsmeistar-
ans í mörg ókomin ár. — Karpov hefur
fengið allt á silfurfati, beztu þjálfara,
beztu aðstöðu og allt hefur verið lagt í
hendurnar á honum, sagði Hort. —
Hann er orðinn mjög sterkur skákmað-
ur og lifir fyrir skákina. Hann reykir
ekki, hann drekkur ekki og ég veit ekki
hvort honum líkar nokkuð vel við kon-
ur. Hann er eins og Mecking Þeir lifa
bara í heimi skákarinnar Ljubojevic er
sama manngerðin, og Anderson
sænski. Þetta eru skrýtnir menn, svona
er Fischer líka og margir fleiri skák-
menn.
— Þeir eru eins og apar, sagði
Hort, en leiðrétti sig þó fljótlega og
sagði, að þessir skákmenn væru eins
og munkar. Ruglaðist stórmeistarinn
þarna I annars ágætri ensku sinni,
sagði „monkeys", en ætlaði að segja
„monks". — Ég vil ekki fórna öllu lífi
mínu fyrir skákina og ég held ekki að
það sé nauðsynlegt til að ná árangri í
skákinni. Ef þeir settust að skákborðinu
Karpov og Fischer þá held ég að
Karpov ynni ekki. Fischer með alla sína
reynslu held ég að hefði vinninginn,
sagði Hort
Hort sagði á fundinum, að hann
hefði undirbúið sig síðastliðna tvo
mánuði fyrir einvigið Aðstoðarmaður
hans verður landi hans, doktor Alster,
en hann er alþjóðlegur meistari i skák
og varð fyrir nokkrum árum
Tekkóslóvakiumeistari Sagði Hort að
hann og Alster væru miklir vinir og auk
þess að vera góður skákmaður væri
hann yfirvegaður og reyndur og hefði
góð áhrif á sig sálfræðilega.
Kvast Hort vera mjög ánægður með
að vera kominn til íslands og tók fram,
að hann hefði neitað að tefla i Frakk-
landi, þar sem kona Spasskys væri
frönsk og þau hjónin byggju þar
— Ég er ekki hræddur við Spassky
og tel mig eiga góða möguleika á sigri,
sagði Hort — Ef Spassky tapar þessu
einvigi þá held ég að ferill hans sé á
enda. Hann hefur örugglega undirbúið
sig mjög vel og sigraði Kavalek 4:2 í
einvigi fyrir skömmu Kavalek er Tékki
eins og ég af sama skákskóla, það
segir kannski nokkra sögu um að
Spassky ætlar sér sigur i þessu einvigi,
en ég er hvergi hræddur og vona
auðvitað að ég vinni í einvíginu, sem
vonandi verður spennandi og skemmti-
legt fyrir áhorfendur, sagði Vlastimil
Hort að lokum.
—áij
mannafundinum I gær, sagði að margt
hefði breytzt síðan hann hefði verið hér
síðast og þá sérstaklega eftir að hann
fluttist frá Sovétrikjunum i ágústmán-
uði á síðasta ári. Hefur hann látið sér
vaxa mikið hár og sagði um aldur sinn
að tíminn væri sinn vinur og þvi óttað-
ist hann ekki þó árin færðust yfir hann.
Aðstoðarmaður Spasskys verður
Sovétmaðurinn Vasili Smyslov og kom
hann til landsins á sunnudaginn rétt á
eftir Spassky.
— Ég er mjög ánægður með að
Smyslov skuli verða mér til aðstoðar i
einvíginu hér, sagði Spassky. — Hann
er góður vinur minn, fyrrverandi
heimsmeistari og i eina tið konungur
skáklistarinnar Ég kynntist Smyslov
ungur piltur og tókst meira að segja að
sigra hann á móti i Búkarest 1953, þá
1 5 ára gamall
Sagði Spassky að lif sitt hefði breytzt
mjög eftir að hann tapaði heimsmeist-
aratitlinum til Fischers árið 1972. —
Mánuðirnir eftir einvigið hér í Reykja-
vik voru erfiðir og ég var langt niðri
eftir einvígið. í 9 mánuði tók ég ekki
þátt í skákmóti, en varð síðan meistari í
Sovétríkjunum 1973 og það lyfti mér
aftur upp Árið 1 974 lenti ég i útistöð-
um við sovézka skáksambandið og er
þeir sendu skeyti til mótshaldara i
Solingen í V-Þyzkalandi og sögðu að
ég gaeti ekki tekið þátt i mótjnu þar
sem ég væri þreyttur. Það var ekki rétt
og ég fékk að tefla i mótinu.
— Eftir það var allt lokað fyrir mér,
þangað til ég fluttist til Frakklands á
síðasta ári Nú er allt opið fyrir mig og
ég verð Hort hættulegur andstæðing-
ur, sagði Spassky og brosti. — Ég
held ég verði ekki heimsmeistari aftur,
en vissulega vildi ég það gjarnan, ég er
ekki bjartsýnismaður lengur Það er
margt annað i skákinni en að sigra
Meðan Fischer
— ÉG VEIT að þetta verður erfitt og
spennandi einvígi, en ég er ekki
hræddur við andstœðing minn. Ég er
aldrei hræddur vi8 nokkurn mann,
aðeins vi8 sjálfan mig. En nú er ég
vel upplagður og sigurviljinn er fyrir
hendi. Ég er ekki bjartsýnismaSur
lengur, en tel mig eiga góða mögu-
leika í þessu einvígi.
Þannig mæltist Boris Spassky, fyrr-
um heimsmeistara i skák, á fundi með
fréttamönnum í gær, en Spassky kom
hingað til lands á sunnudaginn, ásamt
hinni frönsku eiginkonu sinni Marinu,
til einvígisins við Tékkann Vlastimil
Hort. Sagðist Spassky vera mjög
ánægður með að vera kominn aftur til
íslands, þrátt fyrir „sinn glæsilega
ósigur" gegn Fischer hér í Reykjavík
fyrir fimm árum, eins og hann orðaði
það. — Mér líkaði vel á íslandi árið
1 972 og bæði ég og kona mín höfum
yndi af að ferðast, kynnast nýju fólki
og nýjum stöðum, sagði Boris
Spassky
Spassky talaði ensku við blaða-
menn, en kona hans aðstoðaði hann i
málinu þegar hann rak í vörðurnar
Saman töluðu þau á rússnesku
Spassky var mjög frjálslegur á blað-
andstæðinginn. Ég vil skapa meira i
skákinni, sem er þó ekki bara list,
heldur einnig íþrótt. Gróf iþrótt at-
vinnumannsins.
— Hort er vel þjálfaður skákmaður
og sterkur um þessar mundir Hann
hefur góða tækni og hans still er
kannski ekki við mitt hæfi Hann teflir
ekki ósvipað og Tigran Petrosjan, sem
ég tapaði fyrir árið 1966, en náði
síðan heimsmeistaratitlinum af árið
1969
var „normal”
ÞAÐ var létt yfir stórmeistaranum
Hort é fundinum f gær og sagði hann
meðal annars skemmtilegar sögur af
Bobby Fischer fré þvf a8 hann var
„normal" eins og Hort orðaði það.
Sagði Hort m.a sögu af þvi er þeir
fóru saman að tina sveppi. Sagði Hort,
að Fischer hefði aldrei áður gert slíkt
og hefði hann haft einstakt lag á að
tína þá sveppi, sem eitraðir voru
— Ég hafði nóg að gera við að
henda eitruðu sveppunum úr körfunni
og sagði Fischer að ef hann æti svona
svepp tefldi hann aldrei framar, sagði
Hort. — Þegar heim var komið voru
sveppirnir matreiddir, en þegar komið
var með tvo diska, annan fyrir mig,
hinn fyrir Fischer, sagði hann að fyrst
skyldi ég borða sveppina Hann ætlaði
sjálfur að horfa á mig borða og ef ég
væri lifandi eftir 2 tima þá borðaði
hann kannski sveppina. sagði Hort og
hló innilega
Þá sagði hann frá þvi, að hann hefði
einu sinni hitt Fischer i Bandaríkjunum
og á heimilinu þar sem Fischer dvaldi
hefði verið ungur drengur. sem hefði
haft gaman af að tefla — Fischer vann
að sjálfsögðu alltaf, en ég tók eftir þvi
að hann var taugaóstyrkur svitnaði
mjög og skalf Þegar ég spurði hann
hvað væri að honum sagðist hann ekki
vita hvort hann ætti að leyfa drengnum
að ná einu sinni jafntefli eða vinna
hann alltaf Þetta hafði svo mikil áhrif á
hann, að hann varð mjög tauga-
óstyrkur en ekki gat hann tekið
ákvörðun um þetta atriði, sagði Hort
og endurtók Þetta var meðan Fischer
var „normal".
— Ég er ekki í vafa um að Karpov
er bezti skákmaðurinn núna, þar sem
Bobby Fischer teflir ekkert Ef einvígi
færi fram á milli þeirra yrði það stór-
kostlegt fyrir skákíþróttina Það var
eðlilegt að Fischer ynni mig, hann var
einfaldlega sterkari. Karpov var mjög
heppinn þegar hann varð heimsmeist-
Framhald á bls. 42.
„Ég er ekki bjartsýnis-
madur lengur, en tel mig
eiga góða sigurmöguleika”