Morgunblaðið - 22.02.1977, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1977
19
- ■
HREINN Halldórsson —
Strandamaðurinn sterki — er I
miklum ham þessa dagana og
skammt er stórra högga á milli
hjá kappanum. Á sunnudaginn
setti hann nýtt íslandsmet i
kúluvarpi innanhúss er hann
varpaði 19.84 metra. Sjálfur
átti hann eldra metið — að
sjálfsögðu — og var það 19.68.
Kappinn gerði f raun enn betur
þvf f upphitun flaug kúlan
20.15 metra hjá honum og f
sfðasta kastinu f keppninni fór
kúlan 20.22 metra, en Hreinn
gerði ógilt er hann datt fram
fyrir sig og út úr hringnum. Má
búast við miklu af Hreini á
Evrópumeistaramótinu. sem
fram fer innan skamms.
I
KLAMMER TEKUR FORYSTU
— RÚSSI sigrar í þessu móti,
sagði Austurríkismaðurinn Franz
Klammer, áður en keppni hófst i
bruni í Laax I Sviss á laugardag-
Klammer f keppninni f Laax
inn, en keppni þessi var liður i
heimsbikarkeppninni á skiðum.
En spá Klammers stóðst ekki.
Hann var sjálfur i sérflokki i
keppninni, og hefur sennilega
aldrei sýnt annað eins öryggi og
leikni og I móti þessu. Fór hann
3600 metra langa brautina á
1:59,10 mín., meira en hálfri mín-
útu betri tíma en Vestur-
Þjóðverjinn Sepp Ferstl sem fór
brautina á 1:59,51 min. Þriðji I
keppninni varð svo Svisslending-
urinn Bernhard Russi, sem
Klammer spáði sigri og var tími
hans 1:59,54 min.
Með þessum sigri tók Franz
Klammer forystu í stigakeppni
heimsbikarkeppninnar. Hefur
hann nú hlotið samtals 195 stig.
Svíinn Ingemar Stenmark er í
öðru sæti með 175 stig, Klaus
Heidegger, Austurríki, i þriðja
sæti með 151 stig, en siðan koma
Bernhard Russi, Sviss, með 122
stig, Gustavo Thoeni, ttaliu, með
108 stig, Piero Gros, Italiu, með
101 stig, Heini Hemmi, Sviss, með
98 stig, Sepp Ferstl, V-
Þýzkalandi, með 97 stig og Josef
Walcher, Austurriki, með 84 stig.
r ”1"" N
„Titillinn á að vera okkar
nema ehthvað óvænt geríst"
- segir Jóhannes Eðvaldsson, en Celtic hefur nú 5 stiga forystu í Skotlandi
inu. Ayr komst í 2:1 og þannig
var í hálfleik en í seinni hálf-
leik skoruðu Andy Lynch og
Kenni Daglish (2) og Celtic
vann 4:2.“
Jóhannes bjóst við því að
verða i liðinu áfram fyrst að
svona vel gengi, en McDonald,
sem vék úr stöðu fyrir Jóhann-
esi vegna meiðsla, hefur ekki
náð sér fullkomlega ennþá. í
kvöld leikur Celtic gegn
Patrick Thistle á útivelli i úr-
valsdeildinni. Jóhannes sagði
að Celtic-liðið væri betra núna
en I fyrra og baráttan um
stöður i liðinu geysihörð. Hann
kvaðst að lokum vera mjög
ánægður með frammistöðu sína
í leikjunum að undanförnu og
hann taldi að hann hefði sýnt
það, að hann ætti alveg eins
heima i aðalliðinu og hver ann-
„CELTIC hefur nú náð
fimm stiga forystu og
hefur leikið tveimur
leikjum færra en næstu
lið, svo að titillinn ætti
að vera okkar nema eitt-
hvað óvænt gerist,“ sagði
Jóhannes Eðvaldsson, í
samtaii við Mbl. á sunnu-
daginn.
aftur og skaut að markinu og
boltinn var að fara yfir mark-
linuna þegar Graig spyrnti i
' boltann og „stal“ af mér mark-
Lið Jóhannesar, Celtic, lék á
laugardaginn gegn Ayr United
á útivelli, og lék Jóhannes
stöðu miðvarðar. „Við vorum
full kærulausir i byrjun," sagði
Jóhannes. „Ayr skoraði fyrsta
markið en Joe Graig jafnaði
fyrir Celtic. Það var tekin horn-
spyrna og ég fékk boltann. Ég
skaut að markinu en markmað-
urinn varði, ég fékk boltann
ÁGÚST AFTUR TIL
MALMBERGET?
ALLAR Ilkur eru á þvl að ÍR-risinn Ágúst Svavarsson haldi beint til
Svfþjóðar að lokinni keppninni I Austurríki og fari að leika með
Malmberget frá Norður-Sviþjóð. Eins og kunnugt er lék Ágúst með
liðinu viðgóðan orðstir I fyrravetur og vilja forráðamenn liðsins ólmir
fá Ágúst til sln aftur. Ágúst mun þó ekki hafa verið ánægður með
tilboð Svfanna og ekki látið tilleiðast fyrr en nú nýverið, og ástæðan
aðallega sú að hann hefur átt erfitt með að fá vinnu hér á landi.
Ólafur Benediktsson heldur beint til Svfþjóðar að lokinni keppninni
I Austurrfki til liðs við leikmenn Olympfa, sem berjast á toppi 2.
deildarinnar. Hefur Olafur gert samning við félagið og verður þar
einnig næsta vetur a.m.k. Verða þvf þrfr Íslendingar í Svíþjóð að
lokinni b-keppninni, þvf Jón Hjaltalfn leikur með Lugi eins og
kunnugt er.
Úr FH í Leikni
- þaðaní Hauka
FH-INGURINN Andrés Kristjánsson hefur sent HSÍ tilkynningu
um félagaskipti og hyggst hann ganga f Leikni f Breiðholti. Að
þvf er fregnir herma hyggst hann ekki vera þar lcngi, heldur
aðeins einn mánuð og fara sfðan yfir f raðir Hauka. Ástæðan fyrir
þvf að hann fer f Leikni er sú að með þvf að fara milli héraða —
úr Hafnarfirði f Reykjavík — telur hann sig geta byrjað að leika
með Haukum eftir tvo mánuði. Ekki er þó lfklegt að stjórn HSt
samþykki seinni félagaskiptin þegar þau berast þar eð þau séu
ekki f anda laga HSÍ. Á þctta á þó eftir að reyna.
Þá hefur Elfas Jónasson gengið á ný f Hauka, en hann kom
fyrir skömmu frá Akureyri, eftir að hafa hætt þjálfun Þórsliðs-
ins. Elfas þjálfaði Haukana f fyrravetur og hefur f nokkur ár
verið einn bezti leikmaður Haukaliðsins.
Heimsmet
TÉKKNESKA stúlkan Helena Fibing
erova setti nýtt heimsmet I kúluvarpi
kvenna innanhúss á móti sem fram
fór f Prag um helgina. Varpaði hún
kúlunni 22.50 metra og bætti þar
með eigið heimsmet um hvorki
meira né minna en 84 sentimetra.
Á móti sem fram fór i Dortmunt !
Vestur Þýzkalandí um helgina setti
svo brezka stúlkan Mary Steuvart
nýtt heimsmet i 1500 metra hlaupi
kvenna innanhúss er hún hljóp á
4:08,1 mln. Eldra metið átti Francie
Larrieu Lutz frá Bandarlkjunum og
var það orðið rösklega tveggja ára
gamalt.
Sovétmaðurinn Alexandr Grigor-
jev bætti svo ! þriðja sinn I vetur
Evrópumet sitt I hástökki innanhúss
er hann stökk 2.28 metra á móti I
Moskvu. Eldra met hans var 2,27
metrar.
Eitt met var svo sett á innanhúss-
móti I San Diego f Bandarikjunum.
Rosalyn Bryant frá Bandarikjunum
setti heimsmet i 500 yarda hlaupi
kvenna, hljóp á 1 43.3 min.
Meistaramót
MEISTARAMÖT íslands f frjáls-
um fþróttum innanhúss fer fram f
Laugardalshöll og f Baldurshaga
dagana 26. og 27. febrúar n.k.
Samhliða mótinu fer fram keppni
f kúluvarpi og stangarstökki
drengja. Þátttökutilkvnningar
þurfa að berast hið fyrsta til
Frjálsfþróttasambandsins, auk
skráningargjalds sem er kr.
100,00 fyrir skráningu og kr.
200,00 fyrir boðhlaup.