Morgunblaðið - 22.02.1977, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 22.02.1977, Qupperneq 21
21 Ég var sem ofurlítið peð þegar ég kom inn á leikvanginn f Stokkhólmi f fyrsta landsleikinn minn, segir Franz Beckenbauer. minn. Fritz Walter horfði á þetta með öðrum augum Knattspyrnan var öllu ofar hjá honum, fjárhagurinn skipti engu máli. Herberger hafði útvegað honum starf sem sölumaður hjá Adidas-fyrirtækinu og það var honum meira en nóg. Til allrar hamingju fengum við leyfi til þess að leggja okkur aftur eftir morgunverðinn. Horst sat á rúminu sínu og las glæpasögu. Þegar hann var vakandi var sem ekkert raskaði ró hans. Þess vegna hafði Schön sett hann i herbergi mbð mér. Þegar við lögðum af stað frá hótel inu til leiksins tók ég fyrst verulega eftir því hvað allir voru gífurlega taupatrekktir. Dettmar Cramer lét þjónustustrákinn á hótelinu færa sér freyðivín og drakk fullt glas í heilum teyg. Schön hljóp fram og til baka og taldi okkur a.m.k. fimm sinnum. í langferðabifreiðinni sem flutti okkur til vallarins gekk Brunnmeier fram og til baka og talaði án afláts. Hann sagði frá öllu sem fyrir augun bar, og rak upp gleðióp I hvert einasta sinn sem bifreiðin ók framhjá stúlkum. — Úlla-la, kallaði hann, — sáuð þið þessa strákar. Þessi læti Brunnmeier komu okkur f gott skap, og fengu okkur til þess að slaka örlítið á. Samt var svolltill krampi I hálsinum á okkur, þegar við vorum að horfa til hliðar á eftir stelpunum. Áður en viðfórum til leiksins hafði þýzki ambassadorinn heimsótt okk- ur. Hann hélt ræðu sem við höfðum reyndar heyrt áður. — íþróttafólk kemur fram fyrir hönd þjóðar sinnar. Það er stolt þjóðarinnar, og mesta hjálp „diplómatanna" til þess að kynna land sitt. Best þykir mér þegar leikir verða jafntefli, bætti hann svo við, — jafntefli skaðar okkur ekki, og Svfarnir verða ánægðir. Schön hafðiþá tekið framf fyrir honum. — Þú álftur það, sagði Schön, — en ég er annarrar skoðun ar. — Jafntefli í þessum leik þýðir það að Svfamir fara f lokakeppnina en ekki við. Við verðum að sigra í dag. Það gildir ekkert annað. Þess vegna vil ég biðja þig að vera svo vinsamlegur að leyfa okkur það. Schön fékk undirtektir með dynjandi lófataki frá leikmönnunurh. og ambassadorinn roðnaði. Það var greinilegt að hann var ekki alveg klárá stöðunni f riðlinum. í búningsklefanum. Við höfðum allir klætt okkur f keppnisbúningana og vorum tilbúnir f leikinn. Þá skeði nokkuð sem ég átti ekki von á, og hafði haldið að tfðkaðist ekki hjá landsliðum. Schön og Cramer báðu okkur að standa upp, mynda hring og takast f hendur. Þarna stóðum við allir, eins og við ætluðum að fara að dansa kringum jólatré. Var ég á Rásunda leikvangingum f Stokk- hólmi, eða var ég í leikhúsi? Áttum við að fara að leika knattspyrnu, eða hlutverk í leikriti? Ég var svo slæmur á augum, að ég átti erfitt með að átta mig á því hvað var að gerast. Kreisti bara hendur þær er ég hélt f fastar og fastar. . . og við heitum þvf að við skul- um berjast til sfðasta blóð- dropa. . enginn má gefast upp. . .við leggjum : llt okkar f leikinn. . einn fyrir alla og allir fyrir einn. . . Ég heyrði þessi orð einhvers stað- ar úr fjarlægð, og þegar menn loks- ins hættu að tala, reif ég mig lausan og ætlaði að þjóta út. Cramer stöðv- aði mig. — Þessi athöfn virðist virka undarlega á þig, sagði hann, — en ég ætla að segja þér að slfkt tíðkast fyrir hvem'einasta landsleik. Lands- liðið okkar hefur gert þetta sfðan 1954, sagði Cramer, — og þá urð- um við heimsmeistarar. Svo lagði ég af stað út á völlinn. Það var ekki vandratað þangað — maður þurfti bara að renna á hljóðið. Hvert einasta stæði á vellinum var skipað. Ég sá sænska fána hvarvetna og eitthvert heia-heia kall enduróm- aði um völlinn. Andartak fékk ég það á tilfinning- una að landsleikurinn væri aukaat- riði. Aldrei á ævi minni hef ég fengið það eins á tilfinninguna og þarna úti á vellinum, áður en leikurinn hófst, að ég væri eitthvert peð. Þegar þjóð- söngvarnir voru leiknir fór mér alt f einu að Ifða betur. Ég skipti einhvern veginn um gýr. Ég veit ekkert hvað gerðist f fyrri hálfleiknum. Ég fylgdist bara með gulum búningi Svfanna, og stundum fannst mér furðulegt að mennirnir sem voru í þeim skyldu heita ein- hverjum nöfnum. Hvort þeir hétu Hamrin eða Grahn, það hafði ég ekki hugmynd um. Ég reyndi að hafa auga með þeim öllum og þó sérstak- lega leikmanninum númer átta, sem við vissum að var hættulegastur allra. Mér fannst ég hafa góð tök tök á honum, og allur óstyrkur hvarf smátt og smátt. — Gott Franz, heyrði ég einhvern hrópa nokkrum sinnum, og það varð til þess að ég varð öruggur með sjálfan mig. Og þegar staðan var 1—1 um miðjan seinni hálfleik, fór ég að heyra að Cramer kallaði æ oftar — Sæktu, sæktu. Vertu með í sókninni. Leiktfminn var að renna út. Ég náði knettinum og sendi hann út á hægri kantinn. Kantmaðurinn okkar náði að leika á sænskan leikmann og senda knöttinn fyrir markið. Ég sá eins og í þoku, að sænski markvörð- urinn var of seinn niður og knöttur- inn fór framhjá honum, fyrir fætur Uwe Seeler sem var staddur við vítapunktinn. Seeler lagði knöttinn fyrir sig og skot hans hafnaði í mark- inu. 2—1, fyrir okkur. Einhver kom og faðmaði mig, en mitt í gleðilátun- um heyrði ég æðislegt öskur frá Cramer. — Aftur strákar. Komið þið ykkur aftur. í vörnina! Ég þaut aftur að vftapunktinum hjá okkur. Bak við mig öskraði mark- vörðurinn okkar, Hans Tilkowski. — Haltu þig þarna, ef þú ferð fram, sparka ég f rassgatið á þér, það fast að þú munir eftir því. Og það veit Guð að ég hélt mig þarna. Úrslitin urðu 2—1 og við höfðum áunnið okkur rétt til þess að leika f lokakeppni heimsmeistara- keppninnar f Englandi 1966. í búningsherberginu kom Helmut Schön til mfn. Ég sá að augu hans voru full af tárum. Herbergið var fullt af Ijósmyndurum og blaðamönn um. Samt sem áður tók Schön báð- um höndum um höfuð mitt og sagði brostinni röddu: „Frábært! Frá- bært!" ÍMA rauf veldi Víkingsstúlkna UM þessa helgi fór fram úrslitakeppni meistaraflokks kvenna í blaki og áttust þá við lið Menntaskólans á Akureyri, Þróttur og Vfkingur frá Reykjavfk. Öllum á óvart urðu stúlkurnar frá ÍMA öruggir sigurvegar- ar og voru þær miklum mun betri en hin liðin. Þróttur varð svo f öðru sæti og Vfkingur f þriðja, en Vfkingsstúlkurnar urðu fslandsmeistarar bæði í fyrra og hitteðfyrra og hafa nú orðið talsverðar breytingar frá því að Víkingsstúlkurnar unnu hvern einasta leik sem þær spiluðu. Eins og áður sagði voru stúlkurnar frá IMA miklum mun betri en andstæðingar þeirra og unnu þær bæði Þrótt og Víking örugglega, Þrótt unnu þær 3—0 (15—7, 15—8 og 15—8) og Víking 3—1 (15—6, 12—15, 15—2 og 15—8) og hefur Vikingur aldrei hlotið aðra eins útreið og i þetta sinn, það er blátt áfram ótrúlegt hve miklum framförum IMA- stúlkurnar hafa tekið á aðeins einu ári og voru þær svo sannar- lega vel að sigrinum komnar. Þróttur sigraði svo Víking i leikn- um um annað sætið f hörkumikl- um baráttu leik, 3—2, og stóð leikurinn i tæpar tvær klukku- stundir, en úrslit einstakra hrina urðu sem hér segir. 16—14, 15—13, 9—15, 13—15 og 15—9, og eins og sjá má af þessum tölum hefur leikurinn verið geysilega tvísýnn og spennandi. Um þessa helgi voru einnig leiknir 2 leikir í 1. deild karla og áttust þá við Þróttur og Víkingur annars vegar og UMSE, og IS hins vegar. Um leik Þróttar og Víkings er það að segja að honum lauk með öruggum sigri Þróttar 3—0 (15—10, 15—10 og 15—3). Þrótt- arar sýndu það i þessum leik að það verður fátt sem getur komið f veg fyrir að þeir verði Islands- meistarar í ár og léku þeir af miklu-öryggi allan leikinn ef frá er skilið upphaf fyrstu hrin- unnar., þegar Víkingar höfðu for- ystuna lengst framan af. Þróttar- liðið átti góðan leik, þegar á heild- ina er litið, en enginn skar sig sérstaklega úr og þvi er réttast að segja að góð barátta og öryggi hafi fært þeim sigur gegn afar slöku Vkingsliði, sem líklega hef- ur aldrei verið eins slakt og í þetta sinn og er ljótt að sjá hve liðið er fljótt að brotna niður ef eitthvað bjátar á og illa gengur, og jafnvel þó að liðinu gangi vel, eins og i upphafi fyrstu hrin- unnar er það komst i 9—4, er eins og það hreinlega geti alls ekki unnið hrinu. Um frammistöðu einstakra leikmanna þarf ekki að fjölyrða, allir áttu slakan dag. Stúdentar unnu UMSE einnig 3—0 (15—11, 15—12 og 15—10) og var sá leikur talsvert skemmti- legur og mátti sjá þar margt fall- egt og sérstaklega er vert að geta þess hve góð hávörn eyfirðing- anna var, en þrátt fyrir góðan leik þeirra Gunnars Jónssonar, Jón Steingrímssonar og Aðalsteins Bernharðssonar tókst eyfirðingunum aldrei að ógna sigri stúdentanna verulega, én þeir léku af talsverðu öryggi og yfirvegun með Sigfús Haraldsson og Júlíus Birgi Kristjánsson sem beztu menn. Leikinn dæmdi Gísli Haraldsson og gerði hann það vel. HG. IMA Islandsmeistarar I blaki kvenna 1977. Fremri rö8 frá vinstri: GuSrún Sigurjónsdóttir, GuSrún Hreinsdóttir, Margrét Ólafsdóttir og Erna Þórarinsdóttir. Aftari röðfrá vinstri: Björgúlfur Jóhannsson fararstjóri. Sólveig Jónsdóttir. Helga Jónsdóttir. Sólveig Anna Jónsdóttir, Anna GuSný Eirlksdóttir og H : ukur Valtýsson þjálfari. Erlendir punktar Á MIKLU alþjóðlegu skfðastökksmóti í Vikersund í Noregi um helgina sigraði Walter Steiner frá Sviss mjög örugglega. Fékk hann 564,5 stig, en Toni Innauer frá Austurrfki fékk 547 stig. Þriðji varð sfðan Henry Glass frá A-Þýzkalandi með 541,5 stig. Norðmönnum gekk illa í þessu móti og áttu þeir engan meðal 10 beztu en f 10. sæti varð Skoda frá Tékkóslóvakíu. Klaus Klammer, yngri bróðir heimsmeistarans í bruni, Franz Klammers, slasaðist í brunkeppni í Austurríki á sunnudaginn. Missti hann af sér skfði og féll illa í beygju, en keppendur náðu þar 130 km hraða. Var Klammer fluttur á sjúkrahús með þyrlu, en var ekki talinn alvarlega slasaður. Mótinu var þegar aflýst. Alexander Grigoryev frá Sovétrfkjunum setti Evrópumet f hástökki innanhúss er hann stökk 2,28 m á meistaramóti Sovétrfkjanna innanhúss á sunnu- daginn. Sjálfur átti Grigoryev eldra metið ásamt landa sínum Molotilov og var það 2,27 m, sett í Minsk f sfðasta mánuði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.