Morgunblaðið - 22.02.1977, Síða 24

Morgunblaðið - 22.02.1977, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUUAGUR 22. FEBRUAR 1977 sigur, þar sem aðstæðurnar hjá okkur eru mjög erfiðar, bæði hvað varðar húsnæði og áhöld. Staðið hefur til að félagið keypti tæki, en þau eru óheyrilega dýr. Sem dæmi um áhuga og dugnað Gerplustúlknanna má nefna að félagið hefur æfingu í Iþróttahúsi Kennaraháskólans kl. 9 á sunnu- dagsmorgun. Þegar stúlkurnar þurfa að leggja af stað heiman að frá sér eru strætisvagnar ekki byrjaðir að ganga, og þær sem ekki geta krækt sér í far hafa einfaldlega hlaupið úr Kópavogi og verið mættar stundvislega klukkan 9. — Við stöndum jafnfætis fim- leikastúlkum á hinum Norður- Iöndunum í öllum greinum nema tvíslánni, sagði Margrét, en þar er ástandið vægast sagt slæmt. Væri raunar nauðsynlegt að fá erlend- an þjálfara hingað okkur til að- stoðar. Að lokum sagði Margrét, að það væri sérstaklega ánægjulegt að þetta væri í þriðja sinn sem keppt væri um bikarinn og Gerpla væri þriðja félagið sem ynni til hans. Sýndi þetta hversu liðin væru jöfn. Guðni Sigfússon, þjálfari Ár- mannspiltanna, sagði að æfinga- sókn hefði verið mjög góð hjá félaginu. — Við búum einnig við ágæta aðstöðu, sagðu Guðni, — eigum flest þau tæki sem við þurfum að nota sjálfir. Einnig hefur það tvímælaiaust komið til góða að ég hef sótt námskeið fyrir fimleikaþjálfara í Svíþjóð, og mikið af þeim lært. Guðni sagði að hann teldi nauð- synlegt að bæjar- og sveitarfélög ættu þau áhöld sem nota þarf til fimleika, og gæfu síðan félögun- um frjálsan aðgang að þeim. Tækjaskorturinn er víðast mjög mikill og stendur íþróttinni fyrir þrifum, sagði Guðni. Áhorfendur á bikarkeppninni voru um 500 talsins og ríkti oft mikil stemmning er fólk hvatti sín lið. Fimleikafólkið var á aldr- inum 7 £ 16 ára og gáfu hinir yngri þeim eldri oft á tíðum lítið eftir. (Jrslit í kvennaflokki urðu þau að Gerpla hlaut 134.0 stig, Björk 131.9 stig, IR 108.4 stig, Ármann 96.1 stig, Fylkir 93.1 stig og KR 90.9 stig. í karlaflokki hlutu Ármenning- ar 185.8 stig, KR 127.6 stig og Gerpla 125.3 stig. Æfingar á tvfslá reyndust mörgum erfiðar, enda erfið aðstaða til æfinga. — Þannig er mál með vsxti, sagði Sigurður, að af okkur sex sem æfðum og kepptum saman I fyrra hafa aðeins tveir æft nú í vetur, og töldum við, ásamt þjálf- ara okkar, Inga Sigurðssyni, rétt að leyfa hinum yngri og áhuga- samari að spreyta sig frekar en að fara að smala hinum eldri saman og mæta með það lið til keppninn- ar. Þeir yngri koma til með að taka við af okkur, og ekki ráð nema 1 tíma sé tekið að þeir öðlist einhverja reynslu. Ingi Sigurðsson, þjálfari Sig- urðar, sagði að Sigurð skorti til- finnanlega tækifæri til þess að keppa við jafnoka sína en til þess þyrfti hann að fara utan. — Ég tel, sagði Ingi, að Fimleikasam- band Islands ætti að sjá sóma sinn í því að senda Sigurð utan til æfinga og þátttöku í mótum. Það gæti orðið til þess að hann yrði enn betri. Morgunblaðið ræddi einnig stuttlega við þjálfara hinna ný- bökuðu bikarmeistara í kvenna- flokki, Margréti Bjarnadóttur: — Ég þakka öðru fremur dugn- aði og áhuga stúlknanna að við skyldum ná svo góðum árangri og sigra í mótinu, sagði Margrét. — Við stefndum að öðru sæti, en létum okkur aldrei dreyma um FIMMTUDAGINN 17. febrúar s.l. fór fram Bikarkeppni Fimleika- sambands Islands og var þetta f þriðja sinn sem sllkt mót fer fram. Að þessu sinni varð Kópa- vogsfélagið Gerpla sigurvegari í kvennaflokki, eftir harða og tvf- sýna keppni við Fimleikafélagið Björk í Hafnarfirði, en f karla- flokki urðu Ármenningar sigur- vegarar með talsverðum yfir- burðum. Mótið tók mjög langan tíma, og var nokkurrar þreytu tekið að gæta hjá keppendum undir lokin. Að spurður sagði einn af forráða- mönnum mótsins, Ólafur Sigur- jónsson, mótið ganga of hægt, og kenndi einkum um seinagangi í dómum og aðstöðuleysi. Taldi ÓI- afur að æskilegra hefði verið að hafa mótið á tveimur dögum: Pilt- ana annan daginn og stúlkurnar hínn, en ekki láta bæði kynin keppa sama daginn eins og gert var. — En inn í þetta spilar að mjög kostnaðarsamt er að halda húsinu í tvo daga. Það vakti talsverða athygli að íslandsmeistari karla, Sigurður T. Sigurðsson, KR, var ekki meðal keppenda en hann er án alls efa langbezti fimleikamaður lands- ins. Sigurður var hins vegar með- al áhorfenda og var hann spurður um ástæðu þess að hann keppti ekki: Al Oerter segist munu H f ■■ ■■ m m qA nnHnrl/n sigra i Moskvu J(J, MÉR er mikil alvara með þessu. Og ég fer heldur ekkert dult með það, að ég ætla mér að vera með f Moskvu til þess eins að vinna gullverðlaunin. Þann- ig mælti nýlega hinn frægi bandarfski kringlukastari AI Oerter, en sem kunnugt er sigr- aði hann í kringlukasti á fjór- um Olympfuleikum f röð, fyrst f Melbourne 1956, sfðan Róm, þá Tókyó og loks í Mexikó 1968. Er það algert einsdæmi, að sami maðurinn vinni til gull- verðlauna á fjórum Ól. f röð, og það í sömu greininni. Landi Oerters, Mac Wilkins, sigurvegari í kringlukastinu í Montreal og jafnframt heims- methafi í greininni, segist ekki hafa nokkra trú á því að draum- ar Oerters um fimmta gullið rætist. Hann sagði nýlega: „Ég er hræddur um að hann sé að kasta kringlunni núna svona rétt til að trimma svolítið og það er alls enginn möguleiki á því að hann geti unnið til fimmtu gullverðlaunanna hér eftir. 1 Moskvu verður hann 44 ára, og ég fæ ekki séð að slíkur öldungur geti kastað kringl- unni um 67 metra án þess að mikill vindur komi til hjálpar. Oerter vann sitt fyrsta gull árið 1956, sem fyrr segir, en þá hefur Wilkins sennilega verið enn á þrfhjóli því hann er ekki nema 26 ára að aldri. Wilkins þykir líklegastur til þess að sigra í kringlunni í Moskvu, svo komist Oerter í bandaríska Ól- ympíuliðið 1980, verður fróð- legt að sjá hvort „gamli maður- inn“ tekur Wilkins á taugum þá, en menn hafa margir viljað útskýra afrek Oerters í kringlu- kasti á leikunum fjórum með því að segja, að hann hafi með framkomu sinni tekið andstæð- ingana á taugum. Oerter segist nú vera í um 90% formi, þegar miðað er við þegar hann var upp á sitt bezta. Hér á hann við lyftikrafta, en segist vera von- góður um að honum takist að umbreyta þessum kröftum i út- kast. Bezti árangur Oerters var um 64.5 metrar og hann vonast til að kasta um 61 metra þegar i sumar, þó svo hann hafi ekki keppt í um 8 ár i Bandarikjun- um. Segist hann þó ekki vilja lenda í einvígjum við karla sem Wilkins fyrr en 1978 eða 1979. Það verður athyglisvert að fylgjast með endurkomu Oerters, en hann hefur gífur- lega trú á sjálfum sér í sam- bandi við næstu Ólympiuleika. Segist hann aldrei hafa þurft að leggja hart að sér við æfing- ar eða keppni á ferli sínum. Hann sagði jafnframt: „en nú er mér ljóst að ég þarf að leggja hart að mér, enda hafa framfar- ir orðið miklar I kringlukastinu síðustu ár. Ég mun því líta á næstu ár sem hálfgerð einvigi við sjálfan mig“. —ágás Al Oerter. Myndin var tekin er hann sigraði á Olympfuleikunum 1960. Nú ætlar hann sér ekkert annað en gull f Moskvu. ÁRMANN VARÐ BIKARMEISTARI FSÍ í KARLAFLOKKI OG GERPLA í KVENNAFLOKKI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.