Morgunblaðið - 22.02.1977, Síða 27

Morgunblaðið - 22.02.1977, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRUAR 1977 27 Anthony Crosland og Henry Kissinger á utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins f BrUssel I desember s.l. Þá var vitað, að þetta yrði síðasti utanrfkisráðherrafundur sem Kissinger tæki þátt f, en þá grunaði engan að Crosland hyrfi einnig af sjónarsviðinu þótt með öðrum hætti yrði. Anthony Crosland t HUGUM tslendinga hefur Anthony Crosland eflaust fyrst og fremst verið maðurinn sem undirritaði fyrir Breta hönd óslóarsamninginn skuldbind- ingu Breta um að stunda aldrei framar veiðar á tslandsmiðum nema f samræmi við það sem tslendingar sjálfir kynnu að samþykkja. Crosland var jafnframt sá brezki ráðherra, sem fyrstur orðaði að brezkir togarar kæmu aftur á tslandsmið þegar samn- ingar rynnu út um veiðar þeirra f 50 mflna lögsögunni f nóvember 1975. Nokkrum dög- um eftir þessa yfirlýsingu var tslenzka fiskveiðilögsagan færð út f 200 mflur, og f hönd fóru viðræður Breta og tslendinga og átök þeirra á miðunum. Það var svo hinn 1. júnf 1976 að Óslóarsamningurinn var udnir- ritaður, og gilti hann til 1. deseber s.l. Frá þeim tfma hafa brezkir togarar ekki verið að veiðum við tsland. Þegar Óslóarsamningurinn var undirritaður lýsti Crosland þvf yfir að samningurinn væri sigur heilbrigðar skynsemi og f samræmí við heimshreyfingu sem stefndi að 200 mflna efna- hagslögsögu. t Bretlandi var samningurinn ákaft gagnrýnd- ur, og Crosland átti ekki sfzt f vök að verjast þar sem hann var þingmaður fyrir Grimsby, sem er einn mesti útgerðarbær f Englandi. Samningurinn við tslendinga var eitt fyrsta embættisverk Anthony Croslands eftir að hann tók við embætti brezka utanrfkisráðherrans f aprfl- mánuði 1976. en áður hafði hann gegnt embætti aðstoðar- efnahagsmálaráðherra, menntamálaráðherra umhverf- ismálaráðherra og verið forseti brezka verzlunarráðsins, sem er sérstakt ráðuneyti f Bret- landi. Það var draumur hans að verða fjármálaráðherra, og þegar hann lézt voru góðar horfur á að sá draumur rættist sfðar á þessu ári. Anthony Crosland var fædd- ur I Lundúnum 29. ágúst 1918. Faðir hans var embættismaður, og fjölskyldan tilheyrði sértrú- arflokki, þar sem vinnusemi og fábrotnir lifnaðarhættir sátu í öndvegi. Anthony Crosland lauk hagfræðiprófi frá Trinity College I Oxford, og kenndi þar síðar fræði sín. Hann gekk í Verkamannaflokkinn er hann var 16 ára að aldri, og var orð- inn virkur í stjórnmálum þegar styrjöldin hófst árið 1939. í strfðinu barðist hann I Norður- Afríku, Austurrlki, Italíu og Frakklandi. Hann tók sæti á þingi árið 1950, fyrst fyrir Suður-Glochesterskíri, en frá 1959 var hann þingmaður fyrir Grimsby. Crosland var einn helzti hug- myndafræðingur Verkamanna- flokksins. Árið 1956 kom út eft- ir hann bók, sem bar titilinn „Framtíð sósfalismans" og nú — tveimur áratugum slðar — er þessi bók enn talin gagn- merkt framlag til umræðu um þetta efni. Þannig sagði stjórn- málafræðingurinn John Grigg nýlega í hinu óháða vikuriti „Spectator": „Um bjartsýni varðandi framtíð brezkra stjórnmála getur ekki verið að ræða þegar spurt er hvaða ungi þingmaður gæti nú ritað bók á borð við „Framtfð sósíalismans". I bókinni lýsir Crosland þeirri skoðun sinni, að Verka- mannaflokknum bæri að víkka sjóndeildarhring sinn en tak- marka hann ekki við hagsmuni verkalýðsins, skilgreinir hug- takið sósfalismi á þá leið, að eðli hans sé barátta fyrir raunveru- legum jöfnuði. Hann telur hag- kvæmustu leiðina til að ná þess- um jöfnuði vera þá að auka hlutdeild ríkisins í ráðstöfun fjármagnsins, en er um leið fylgjandi blönduðu hagkerfi. Crosland var alla tfð fylgjandi aðild Breta að Efna- hagsbandalaginu, og þegar hann lézt var hann forseti ráðherranefndar bandalagsins. Hann var þekktur fyrir raun- sæi og sanngirni, og var jafnan fús til að leysa ágreiningsmál með málamiðlun. Þessir eigin- leikar hans öfluðu honum vin- sælda innan flokksins, og þegar Harold Wilson dró sig f hlé f fyrra var hann einn af fimm þingmönnum, er komu til greina við kjör formanns Verkamannaflokksins. Vitað er, að Wilson hafði áhuga á honum sem eftirmanni sfnum, en reynsluleysi hans í utan- ríkismálum er talið hafa verið honum fjötur um fót í því að ná kosningu að þessu sinni, en hann var einn þeirra leiðtoga flokksins sem lfklegastir hafa þótt til forystu og margir töldu hann standa næstan þvf að taka við af James Callaghan er fram liðu stundir. Vinsældir Croslands og traust innan flokksins voru engan veginn einhlft. Vinstri öflin f flokknum brugðu honum oft um tvískinnung. Hann talaði með ósviknum yfir- stéttarhreim og hélt sig eins og höfðingja — átti vandað ein- býlishús í Lundúnum og sveita- setur í námunda við Oxford. Andstæðingar hans innan flokksins áttu bágt með að sætta sig við þetta og sögðu sumir að hann talaði eins og sósialisti en lifði eins og kapítalisti. Árið 1955 tapaði hann f þingkosningum, og við það tækifæri var haft eftir honum: „Ég nenni ekki að standa í þessu þrasi um strit- andi alþýðu. Ég er hag- fræðingur en ekki stjórnmála- maður,“ Þessi ummæli urðu fleyg, og þau urðu sannarlega vatn á myllu andstæðinga hans í stjórnmálum. Þegar hann varð utanríkis- ráðherra í aprfl í fyrra sagði Lundúnablaðið The Times: „Hann er mjög hæfur maður og afar geðþekkur, en jafnvel hans nánustu vinum dytti aldrei í hug að segja að hann væri ,,diplómat“.“ Anthony Crosland var ein- lægur stuðningsmaður Atlants- hafsbandalagsins, og gerði ség grein fyrir nauðsyn þess að Bretar einangruðu sig ekki frá samstarfi við þær þjóðir, sem þeir ættu menningarlega og stjórnmálalega samleið með. Hann var fulltrúi þeirrar kyn- slóðar sem tók stjórnmálalega afstöðu ekki fyrst og fremst á grundvelli uppeldis og tilfinninga, heldur byggði hana á þekkingu og raunsæju mati á viðfangsefnum Ifðandi stundar. Það er skarð fyrir skildi þegar Anthony Crosland, sem var einn helzti leiðtogi og hug- myndafræðingur Verkamanna- flokksins, er nú látinn fyrir aldur fram, en hann þótti einna líklegastur til að taka við forystu flokksins, meðal annars vegna þess að hann var ekki þátttakandi f þeim deilum innan flokksins þar sem menn skiptust f hægri og vinstri fylkingar. Hann skipaði sér á bekk með þeim sem stóðu næst miðju og hafa f raun og veru sameinað þennan sundurleita stjórnmálaflokk. Við undirritun samningaanna f Ósló hinn 1. júnf s.l.: Matthfas Bjarnason sjávarútvegsráðherra, Einar Ágústsson utanrfkisráðherra og Anthony Crosland. Einn helzti leidtogi og hugmyndafrædingur brezka Verkamannaflokksins — látinn fyrir aldur fram V í ðtækar vinnudeilur í vændumí Danmörku Kaupmannahöfn, 21. febrúar. NTB. KOMIÐ getur til stórfelldrar vinnudeilu f Danmörku ef ekki koma fram nýjar samningatillög- ur eða fhlutun rfkisstjórnarinnar. Slitnað hefur upp úr viðræðum aðila vinnumarkaðarins. Forseti verkalýðssambandsins, Thomas Nielsen, segir að bilið milli samn- ingsaðila sé breiðara en nokkru sinni fyrr. Verkalýðssambandið hefur ekki I hyggju að biðja ríkissátta- semjara að skerast í leikinn. Verkalýðssambandið telur, að stórátök á vinnumarkaðnum sé það eina sem geti fengið vinnu- veitendur til að sýna samnings- vilja. Alvarlegasti ágreiningurinn er um lágmarkslaun. Verkalýðssam- bandið krefst þess að þau verði hækkuð f 30.60 kr. á klukkustund en vinnuveitendur vilja ekki fall- ast á nema 27 kr. á fyrsta samn- ingsári og 28 kr. á hinu næsta. Aðilarnir eru einnig ósammála um túlkun samkomulags þess um kaup og kjör er tókst í þinginu í fyrra. Þar var gert ráð fyrir 2% rauntekjuhækkun. Aðilar vinnumarkaðarins búast nú til átaka. Nokkur verkalýðs- félög hafa þegar boðað verkföll. Vinnuveitendur hafa svarað með þvf að boða vinnustöðvun. ERLENT Frakkar reka Rússa París, 21. febrúar, Reuter YFIRVÖLD í Frakklandi hafa vísað sovézkum diplómat úr landi vegna iðnaðarnjósna Öryggislögreglan stóð diplómatann Vladimír Ryabshenko að verki þegar hann tók við leyni- legum skjölum um nýja tölvuvél. Rybashenko var starfsmaður UNESCO, Menningar- og vísinda- stofnunar Sameinuðu þjóðanna Hann er þriðji Rússinn sem hefur verið rekinn frá Frakklandi á einu ári. Vinir Agees teknir London, 21 febrúar Reuter ÞRÍR menn voru i dag úrskurðaðir i sjö daga varðhald fyrir brot á lögum um opinber leyndarmál Mennirnir þrlr voru John Berry, fyrr- verandi hermaður. og blaðamennirnir Duncan C C mpell og Crispin Aubrey Þeir höfðu allir stutt baráttuna gegn þvi að Philip Agee. fyrrverandi starfs- maður CIA, og blaðamanninum Mark Hosenball yrði vlsað úr landi þar sem þeir væru hættulegir öryggi Cambell og Aubrey starfa við timarit- ið Time Out sem birti i fyrra grein þar sem rætt var um brezk fjarskiptar- leyndarmál, meðal annars aðferðir Breta til að stöðva kallmerki sem irskir skæruliðar nota til að sprengja útvarps- sprengjur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.