Morgunblaðið - 22.02.1977, Side 28

Morgunblaðið - 22.02.1977, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1977 Mjög gód rækju- veidi í Djúpinu RÆKJUAFLI hefur verið mjög góður I tsafjarðardjúpi að undan- förnu, að sögn Péturs Bjarna- sonar eftirlitsmanns á tsafirði. Hefur vikuaflinn hæst orðið 200 tonn hjá þeim 42 bátum, sem gerðir eru út á rækju frá tsafirði, Bolungarvfk og Súðavfk. Að sögn Péturs er heildaraflinn orðinn 1892 tonn en leyfilegt er að veiða 2400 tonn á vertiðinni. Á sama tima í fyrra var heildar- aflinn um 1400 tonn. Rækjan hefur verið stór og góð á vertíðinni og mikil atvinna hefur verið í plássunum við Djúp við vinnslu rækjunnar. Bjórinn eitt sinn sam- þykktur í efri deild en féll í hinni neðri t Morgunblaðinu sl. sunnudag voru rakin þau 9 bjórmál sem upp hafa komið f þingsölum á sl. 30 árum eða frá 1947, og þess getið að nokkrum sinnum hefði verið mjótt á mununum að þessi mál næðu fram að ganga. Sfðan hefur balðið komizt að því að skömmu fyrir 1947 hafi þó bjórmálið komizt næst þvf að hljóta náð fyrir augum þing- heims, þar sem var breytingar- tillaga við þágildandi áfengis- lög frá þingmönnunum Lárusi Jóhannessyni og Bernharði Stefánssyni um að lögleiða bruggun áfengs öls hér á landi. Morgunblaðið sneri sér til Lárusar og innti hann nánar eftir þessu máli. Lárus sagði, að það hefði verið einhvern tíma á tímabilinu frá 1943—47 að hann bar fram þessa breyt- ingartillögu við áfengislögin ásamt vini sínum, Bernharði Stefánssyni, og hafi þeir gert ráð fyrir því að hér skyldi heimilað að brugga áfengt öl i samsvarandi styrkleikahlut- föllum og tíðkaðist I Danmörku. Lárus sagði, að þessi tillaga hefði þá verið samþykkt f efri deild Alþingis, en það hefði síðan verið fellt f neðri deild. Ástæðan fyrir því, að málið hefði verið fellt þar, hefði fyrst og fremst verið sú, að Eysteinn Jónsson hefði þá barizt hat- rammlega gegn breytingartil- lögunni. Andstaða Eysteins við málið hefði eingöngu stafað af því að hann óttaðist að þetta minnkaði sölúna og þá um leið tekjurnar af Áfengisverzlun- inni, en Eysteinn var fjármála- ráðherra á þessum tíma. G jafir til heilsu- gæzlustödvar ÞinKeyri. 19. febrúar. Heilsugæzlustöðinni á Þingeyri hafa borizt marg- ar veglegar gjafir. Þar má nefna smásjá, en gefendur V atnsskort- ur víða í Miðfirði StaAarbakka. Mlðfirói 21. teb. SlÐASTLIÐINN laugardag, á þorraþræl fór Einar Danfelsson frá Bjargshóli I eftirleit fram á afrétt Miðfirðinga á snjósleða. Fór hann upp úr Vesturárdal og við Lambá fann hann 6 kindur, tvær ær og fjögur lömb, þar af tvö hrútlömb. Kom hann öllum kindunum samdægurs til byggða. Voru þær I ágætum holdum og höfðu sjáanlega aldrei liðið skort. Tvö lömbin voru norðan úr Vatns- dal en hinar kindurnar héðan úr Miðfirðinum. Óvenjulegt tíðarfar hefur verið hér í vetur, stöðugar stillur og úrkoma varla teljandi allt frá þvi í ágústlok. Víða er farið að bera á vatnsskorti. Uppsprettur og lækir hafa þornað. Frost i jörðu mun vera orðið talsvert enda hefur snjórinn ekki verið til að skýla jörðinni. — Benedikt. Ljósm. Mbl.ÓI. K. Mag. ÞYRLA Landhelgisgæzlunnar, TF-GRÓ, fór á sunnudaginn f sjúkraflug til Akra- ness. Sótti þyrlan þangað barn, sem fæðzt hafði fyrir tímann, og nauðsyn þótti að koma til Reykjavíkur sem fyrst. Gekk flugið mjög vel og lenti þyrlan við Landspítal- ann innan hálftíma frá því beiðni um flugið barst frá Akranesi. Á myndinni sést þyrlan lenda við Landspítalann. Engin loðnuskýrsla Fiskifélagið óánægt með fréttamiðlun Loðnunefndar voru afkomendur Sólborg- ar Matthíasdóttur og Þor- valds Kristjánssonar frá Svalvogum, í tilefni af ald- arafmæli Sólborgar. Kven- félagið Von gaf stöðinni neyðartösku og blóðskil- vindu og Kvenfélagið Von og kvenfélag Mýrarhrepps gáfu í sameiningu súrefnis- kassa fyrir ófullburða börn. Þá má geta þess að Kven- félagið Von varð 70 ára 17. feb. sl. og við höfum einn karlmann í félaginu, en við munum minnast þess síðar. — Hulda. FISKIFÉLAG Islands gef- ur ekki út neina loðnu- skýrslu í þessarri viku eins og undanfarnar vikur. Að sögn talsmanns félagsins, þótti ekki ástæða til að gefa skýrsluna út fyrst ekki tókst að ganga frá henni í gær, þar sem töl- urnar væru orðnar úreltar ef útkoma skýrslunnar drægist enn meira. Morgunblaðiö hefur það eftir ábyggilegum heimildum, að ein ástæðan fyrir því að skýrslan kemur ekki út sé óánægja Fiski- félagsmanna með fréttamiðlun Loðnunefndar af veiðunum. Eru Fiskifélagsmenn mjög óánægðir með að Loðnunefndin skuli gefa upp jafnóðum aflatölur efstu bát- anna og skapa þannig samkeppni, sem gæti haft það I för með sér að öryggisreglur yrði ekki virtar sem skyldi. Þá mun Fiskifélagsmönn- um hafa gramizt, að aðeins eitt blað, Morgunblaðið, birti skýrslu þeirra I heild eftir síðustu helgi. Mývetningar leita að eftirlegukin dum Annríki hjá lögreglunni MIKIÐ annrfki var hjá lög- reglunni og rannsóknarlög- reglunni ( Reykjavfk um helg- ina. Mikið var um innbrot, en þau voru flest smávægileg. Alls fékk rannsóknarlögreglan 30 útköll um helgina, sem er með mesta móti. Björk, Mývatnssveit 21. febr. SÍÐAN um áramót hafa fundizt sjö kindur á Mývatnsfjöllum, þar af þrjú lömb. í byrjun janúar fóru þeir Hermann Kristjánsson og Jakob Stefánsson á vélsleða til leitar á Norðurfjöllum, þ.e. á svæðinu öllu austur af Jökulsá og norður að Detti- fossi. Fundu þeir í þessari ferð þrjár kindur, tvær ær og eitt lamb, og fluttu til byggða. Fyrir nokkru fór Árni Halldórs- Fimm menn 1 gæzluvarðhaldi FIMM ungir menn sitja í gæzlu- varðhaldi vegna fíkniefna- málanna, sem verið hafa i rann- sókn. Áður sátu sex menn inni, en einum var sleppt á laugardaginn. Þarna mun vera um að ræða mjög umfangsmikið mál og hafa rannsóknarmenn ekki enn talið sér fært að skýra fjölmiðlum frá málavöxtum. Hóf í tilefni afmælis BÚR: Að BÚR megidafnaog eflast” 99 BIRGIR lsleifur Gunnarsson borgarstjóri hélt hóf I Höfða s.l. föstudag til að minnast þess að 30 ár voru liðin hinn 17. þ.m. frá því að fyrsti togari Bæjarút- gerðar Reykjavikur kom til landsins, en stofnun BÚR hefur verið miðuð við þann dag. Borgarstjóri rifjaði upp að- dragandann að stofnun Bæjar- útgerðar Reykjavíkur og sagði að þegar ákveðið var að kaupa nýsköpunartogarana eftir stríð- ið hefði bæjarstjórn Reykja- víkur samþykkt að beita sér fyrir því að Reykjavík héldi hlut sfnum í togaraútgerð eins og hann hefði verið fyrir strfð. Þegar útgerðaraðilar í borginni treystu sér ekki til að kaupa þá togara sem samkvæmt þessu komu til Reykjavíkur var Bæjarútgerð Reykjavíkur stofnuð til að annast rekstur þeirra. Togaraútgerð myndaði grundvöll að vexti og viðgangi borgarinnar og þvf hefur borgarstjórn ávallt haft þá stefnu að yiðhalda togaraút- gerð í borginni. Borgarstjóri sagði að BÚR væri eitt stærsta fyrirtæki Reykjavikur, en þar vinna nú að staðaldri rúmlega 500 manns til sjós og iands. Enn meiri fjöldi fólks hefur óbeina framfærslu sfna af útgerðinni með alls konar þjónustu sem tengd er rekstrinum. Borgarstjóri sagði að togara- floti BÚR hefði nú nýlega verið efldur og fyrir dyrum stæði að bæta aðstöðuna í landi, fyrst með því að koma upp fiskmót- töku í Bakkaskemmu í Vestur- höfninni og væntanlega síðar með byggingu frystihúss. Borgarstjóri þakkaði forystu- mönnum BÚR og starfsfólki öllu fyrr og síðar mikil og góð störf f þágu fyrirtækisins og lét í ljós þá von að BÚR mætti dafna og eflast í framtíðinni. Ragnar Júlíusson formaður stjórnar BÚR, óskaði eftir þvi við Svein Benediktsson, sem annan af tveimur fyrstu fram- kvæmdastjórum fyrirtækisins og stjórnarformann um árabil, að hann segði nokkur orð í til- efni af ræðu borgarstjóra. Sveinn Benediktsson þakkaði stuðning Birgis Isleifs borgar- stjóra við Bæjarútgerð Reykja- vfkur fyrr og síðar og þafin skilning sem komið hefði fram hjá honum í ræðunni, að efla útgerðina sem mest. í lok ávarps Sveins óskaði hann þess að viðstaddir hrópuðu ferfalt húrra fyrir borgarstjóra og stuðningi hans við Bæjarútgerð Reykjavíkur, og var tekið kröftuglega undir það. son f Garði austur fyrir Nýja- hraun og leitaði þar allviða. Fann hann tvær kindur, sem honum tókst að ná og flytja til byggða. t gær fór Hermann Kristjánsson á vélsleða og leitaði á svokölluðum Miðfjöllum og nágrenni. Hann fann tvær kindur. Gekk honum greiðlega að handsama þær og flytja heim. Þrátt fyrir þessar leitir vantar enn fé. Til dæmis er vitað um eina forystuá, er sást f göngum f haust en tókst ekki að ná. Ef veður og færð leyfir um næstu helgi er áformað að hópur vaskra vélsleðamanna haldi til leitar suður með Jökulsá á Fjöll- um allt inn í Grafarlönd og Herðubreiðarlindir og ef til vill lengra. Að undanförnu hefur verið fiér ágæt færð fyrir vélsleða og veður bjart og fagurt. í gær óku þeir Haraldur Helgason á Grænavatni og Gylfi Yngvason á Skútustöðum langt suður á öræfi. Ekki urðu þeir kinda varir, en á heimleið- inni óku þeir upp á Sellandafjöll, sem er 988 metra yfir sjó. Þykir það vel gert og hefur ekki áður verið gert á vélsleðum. Kristján. Allir í loðnu sem vettlingi geta valdið.. Eskifirði 21 febr. STANZLAUS loðnufrysting hef- ur verið hér á staðnum sfðan á föstudag og unnið nótt og dag. Eru allir í vinnu, sem vettlingi geta valdið. I morgun kom skut- togarinn Hólmanes inn með 150 tonn af þorski, sem togarinn fékk á Austfjarðarmiðum. —/Evar intf rnitmiit nu < * * jt Jt-JB JC J* JK Jl Jt ,T f» 4 9 IMtlMKIIIM e •» ■,»»*.*>.*

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.