Morgunblaðið - 22.02.1977, Síða 32

Morgunblaðið - 22.02.1977, Síða 32
 32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1977 Borgin kaupir fleiri verk eftir Kjarval — Skipulag listaverkakaupa í athugun Viðgerðir á tog- urum BÚR og utan- ferðir vegna þeirra — deiluefni í borgarstjórn SIGURJÓN Pétursson (Abl) gerði að umtalsefni á síðasta fundi borgarstjórnar 17. febrúar utanferð formanns útgerðarráðs vegna viðgerðar á b.v. Snorra Sturlusyni, en sem kunnugt er sigldi skipið til Þýzkalands I við- gerð vegna skemmda sem orðið höfðu á þvl f haffs í lok síðastlið- ins árs. Sigurjón Pétursson sagð- ist ekki hafa verið á þeim fundi útgerðarráðs sem um málið fjall- aði og því vildi hann ræða málið hér. í máli Sigurjóns kom fram að framkvæmdastjóri BÚR fór til Cuxhaven til að fylgjast með við- gerð á skipinu. En síðan sagði Sigurjón: „formaður útgerðar- ráðs brá sér líka til Þýzkalands", hægt hefði verið að senda tækni- mann en hann gæti ekki séð að Ragnar Júliusson hefði þurft að fara til Þýzkalands líka. Formað- ur útgerðarráðs Ragnar Júlfusson (S) svaraði og sagði að fimm skip hefðu laskast f ísnum í lok sfðasta árs. Svo illa hefði viljað til þegar verið var að taka eitt skipið upp hér f Reykjavfk að slippsleðinn hafði brotnað. í Slippstöðinni á Akureyri voru tvö skip tekin upp vegna þessa og það sem var f sleðanum hér sigldi til Cuxhaven. Hann kom að veið- um snemma morguns 12. jan og var þegar fenginn kafari til að skoða skemmdirnar. Dagana áður hafði Marteinn Jónasson fram- kvæmdastjóri BÚR kannað markaðsmöguleika f Þýzkalandi með sölu á fiski í huga og umboðs- maður og konsúll í Cuxhaven Ernst Stabel hafði einnig kannað möguleika á að fá viðgerð á skip- inu. Hvort tveggja reyndist í lagi og lagði Snorri Sturluson úr höfn fyrir hádegi miðvikudaginn 12. janúar. Marteinn Jónasson fram- vkæmdastjóri BÚR fór svo utan og kom til Cuxhaven 16. jan. Þann 17. seldi Snorri Sturluson 222 tonn á 132.85 pr. kfló. Síðari hluta dags 18. janúar var Snorri Sturlu- son tekinn á land og var þá þegar haldinn fundur sem sátu Mart- einn Jónasson, Ernst Stabel, um- boðsmenn Loyds og fulltrúar frá tryggingarfélagi skipsins og yfir- verkfræðingur skipasmfða- stöðvarinnar. Á fundinum upp- lýstist að sex þýzkir togarar sem byggðir eru eftir mjög svipaðri BORGARFULLTRÚAR Fram- sóknarflokksins lögðu fram eftir- farandi tillögu á sfðasta fundi borgarstjórnar. A. Borgarstjórn samþykkir að kjósa hlutbundinni kosningu þriggja manna nefnd, er annast skuli kaup á lista- verkum fyrir borgarsjóð I sam- ræmi við fjárhagsáætlun hverju sinni. Jafnframt geri þessir aðiiar tillögur til borgarráðs um staðsetningu þeirra listaverka, sem sett kunna að verða upp á útisvæði f borginni. Kjörtfmabil nefndarinnar verði til næstu borgarstjórnarkosninga, en sfðan fari kosning fram á næsta fundi og gildi I 4 ár. Nefndin veiji sér sjálf formann. Kristján Benediktsson (F) fylgdi tillögunni úr hlaði og sagði að kostnaður ætti ekki að verða mikill. Þá fylgdi borgarfulltrúinn annarri tillögu úr hlaði sem hljóðar: Borgarstjórn telur, að borgin þurfi að eignast fleiri verk eftir Jóhannes S. Kjarval, einkum olíumálverk. Þetta sjónarmið beri því að hafa í huga í sambandi við kaup á listaverkum. Kristján sagðist ekki telja að um tillögur þessar þyrftu að verða miklar deilur. Hann sagðist vilja taka það fram að embættis- maður sá sem ákveðið hefði kaup eða séð um þau hefði unnið af samviskusemi og vfðsýni. En ástæða væri til að koma betra og fastara skipulagi á þessi mál en verið hefði. I framhaldi af þess- um tillögum var lfka rædd tillaga frá Þorbirni Broddasyni (Abl)svohljóðandi: Borgarstjórn samþykkir að ráða sérmenntaðan starfskraft til að vinna að skrán- ingu og skýrslu um verk Jóhannesar Kjarvals. Þorbjörn fylgdi tillögu sinni úr hlaði og sagði að ágætur rithöfundur, Indriði G. Þorsteinsson, hefði verið ráðinn til ritunar sögu Kjar- vals þó ekki hefði það gengið hljóðalaust fyrir sig. Þorbjörn sagðist vona að Indriði ynni gott verk. Ræddi hann síðan nokkuð um álitsgerðir sem fram komu í sambandi við þetta mál fyrr í vetur. Þorbjörn sagðist styðja til- lögu borgarfulltrúa Framsóknar- flokksins heils hugar en vildi um leið taka fram að stuðningur sinn byggðist ekki á vantrausti á embættismanninn. Olafur B. Thors (S) sagðist geta tekið undir þau orð sem fallið hefðu um sam- viskusemi embættismannsins og ræddi nánar um verksvið stjórnar og listráðs Kjarvalsstaða. Hann lagði siðan til að tillögunni um skipan nefndar um kaup á lista- verkum yrði vfsað til borgarráðs og tillagan um að borgin þurfi að eignast fleiri verk Kjarvais yrði samþykkt. — I máli Ölafs B. Thors kom fram að i næsta mánuði verður opnuð sýning á verkum Kjarvals að Kjarvalsstöð- um og er ætlunin að hún verði opin um lengri tfma. Davfð Odds- son (S) sagði að ekki væri annað hægt að segja en Kjarval væri hér mikið á dagskrá. Hann minnti á heiður sem listamaðurinn hefði sýnt borginni með gjöf sinni og sagði síðan; „Okkur ber öllum að sýna Kjarval ræktarsemi." Davíð gat þess að öll verk Kjarvals í eigu borgarinnar hefðu verið skráð og lagði síðan til að tillögu Þorbjörns Broddasonar yrði vfsað til hússtjórnar Kjarvalsstaða. Elfn Pálmadóttir (S) sagðist sam- mála umræddri málsmeðferð. Albert Guðmundsson (S) sagðist sammála málsmeðferð tillagna Framsóknarflokksins. Varðandi tillögu Þorbjörns tók hann undir áður fram komin orð Davíðs Oddssonar að borgin hefði þegar látið skrá verk Kjarvals sem f hennar eigu eru eftir tillögu sem hann (AG) hefði flutt. Um allt verkefnið sagði Albert telja að hér væri alfarið um ríkisverkefni að ræða. Tillaga um kjör nefndar til listaverkakaupa var samþykkt að vísa til borgarráðs með 15 at- kvæðum. Tillaga um að borgin þurfi að eignast fleiri verk eftir Kjarval var samþykkt samhljóða. Þá var samþykkt að vísa tillögu Þorbjörns Broddasonar til hús- stjórnar Kjarvalsstaða. Borgarstjórn Reykjavíkur: Að dregið verði úr mengun frá álverinu Meira flúormagn í Hljómskálagarði en annar staðar - leitað að orsökum KRISTJÁN Benediktsson (F) lagði fram eftirfarandi tillögu á fundi borgarstjórnar 17. febrúar: Þar sem rannsóknir benda ein- dregið til þess, að fluormengun frá álbræðslunni í Straumsvík fari ört vaxandi, leggur Borgar- stjórn Reykjavfkur rfka áherslu á, að viðkomandi stjórnvöld fylgi því fast eftir, að gerðar verði ráðstafanir f verksmiðjunni til að draga úr þeirri mengun, sem frá henni stafar. — Jafnframt felur borgarstjórn borgarlækni og garðyrkjustjóra að fylgjast sérstaklega með þeim athugunum, sem gerðar eru hjá Rannsóknastofnun iðnaðarins, um magn og útbreiðslu fiuors frá verksmiðjunni, og láta borgar- stjórn í té eigi sjaldnar en tvisvar á ári skýrslu um ástand þeirra mála. Flutningsmaður ræddi nokkuð mengunarmál og sagði svo að fagna bæri samþykkt bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um þessi mál. Kristján tók fram að sér hefði ekki verið kunnugt um hana er hann samdi tillögu sfna. Elfn Pálmadóttir (S) sagði að það væri full ástæða til að fylgjast með allri þeirri mengun sem vart yrði við í borginni. Hún sagði að samkvæmt reglugerð væri það skylda náttúruverndarnefnda að hafa gát á að gróðri sé ekki spillt og það væri þvi hér hlutverk heil- brigðismálaráðs og umhverfis- málaráðs. Fram kom að rannsókn- ir á þessu sviði eru með fluor hjá fluornefnd og eiturefnanefnd fylgist með köfnunarefnisoxfði frá áburðarverksmiðju og út- blæstri bila. Skýrslur koma ár- lega frá Fluornefnd sagði Elín og sem betur færi hefðu rannsókn- irnar ekki enn gefið tilefni til óróa í Reykjavík en ef svo yrði myndi snarlega tekið til höndunum. í landi Reykjavfkur eru nú tekin sýni á níu stöðum af fluornefnd. Reynslan hefði sýnt að magn hefði verið mjög óveru- legt og langt neðan hættumarka. En f Hljómskálagarðinum hefði fundist meira magn en annars staðar þó langt neðan hættu- marka væri og svo væri að það hefði þegar verið það áður en álverið tók til starfa en nú væri unnið að þvf að finna orsök þessa. Elín sagði að ekki væri sfður ástæða til að fylgjast með mengun frá áburðarverksmiðjunni en álverinu. Elín sagði að með þessum málum þyrfti að fylgjast náið og sjálfsagt væri að ganga hart eftir að hreinsitæki yrðu sett upp. Elfn lagði síðan til að fyrri hluti tillögunnar yrði samþykktur en sfðari hlutanum yrði vísað til umhverfismálaráðs og heil- brigðisráðs. Adda Bára Sigfús- dóttir (Abl) ræddi nokkuð um ísl. álfélagið og samskipti þess við ísl. stjórnvöld. Hún sagði m.a. að hér væri um að ræða fyrirtæki sem ekki væri skylt að hlíta ísl. lögum og þvf væru ekki komin upp hreinsitæki. Páll Gíslason (S) sagði rétt að beita þeim þrýstingi sem til væri og sagðist geta fallist á málsmeð- ferð um fyrri hluta till. en um seinni hlutann gilti, að þar spil- uðu mörg atriði inn í og þvf væri sú málsmeðferð sem hér hefði komið fram eðlileg. Kristján Benediktsson samþykkti fram komnar tillögur um máls- meðferð en vakti um leið athygli á því að sffellt þyrfti að hafa vakandi auga með mengun f Reykjavfk. Fyrri hluti tillögunnar var samþykktur með 15 sam- hljóða atkvæðum og þá var sam- þykkt að vfsa síðari hlutanum til umhverfis- og heilbrigðismálarás með sömu atkvæðatölu. teikningu (á skrokk) og Spánar- skipin höfðu orðið fyrir svipuðum tjónum og höfðu nokkrar viðgerð- ir farið fram f þessari skipasmíða- stöð; verklýsingar og vinnu- teikningar voru því allar til staðar sagði Ragnar. Á fundinum var sfðar ákveðið af öllum að fram- kvæma viðgerð þessa með þeim breytingum sem teikningarnar fólu í sér. Ragnar sagði að þetta kvöld hefði Marteinn haft síma- samband við sig og skýrt frá. Hann hefði farið þess mjög ein- dregið á leit við sig að koma til Cuxhaven og sjá með eigin augum hvað fram færi með tilliti til þess Framhald á bls. 42. Afmælis BÚR minnzt ÞRÍR borgarf ulltrúar minntust afmælis Bæjarútgerðar Reykja víkur á fundi borgarstjórnar 17. febrúar slðastliðinn. Þetta voru borgarfulltrúarnir Björgvin Guðmundsson (A), Sigurjón Pétursson (Abl) og formaður útgerðarráðs Ragnar Júllusson (S). í máli þeirra allra kom fram hlýhugur I garð fyrirtækisins og árnaðaróskir til þess og Reykvik- inga I tilefni afmælisins. Björgvin Guðmundsson minnti á að aðal- hvatamenn að stofnun BÚR hefðu verið Bjarni Benediktsson þáverandi borgarstjóri og Jón Axel Pétursson. Hann sagði að komið hefði fram I fjölmiðlum að bezta gjöf til BÚR frá borginni væru tveir nýir togarar, af minni gerðinni. Björgvin sagði, að nú væri unnið að þessum málum I útgerðarráði með samstöðu allra flokka þ.e. að efla fyrirtækið. » i 4, í 1 I 3 ' -u

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.