Morgunblaðið - 22.02.1977, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1977
+
Litli sonur okkar
GUÐJÓN ÓLAFSSON,
andaðist i Landsspítalanum 20 febrúar s I
Sigriður Sigurbjörnsdóttir, Olafur Grétar Guðjónsson,
Efstasundi 90, Reykjavík.
Maðurinn minn og faðir okkar,
GUÐMUNDUR EIRÍKSSON,
gullsmíðameistari.
er látinn
Amalía Þorleifsdóttir og dætur.
+
SÓLVEIG HVANNBERG
andaðist að Elliheimilinu Grund 1 9 febrúar
Fyrir hönd vandamanna,
Guðrún Hvannberg.
+
Móðir mín. tengdamóðir og amma
GUÐBJORG A SIGURÐSSON
fyrrverandi símakona
andaðist á heimili sinu Búlandi 8. 20 þessa mánaðar
Ester Haraldsdóttir
Ólafur Alexandersson
Haraldur Viggó Ólafsson
+
Faðir okkar og fósturfaðir
SIGURÐUR SIGURBJORNSSON,
frá Ekkjufelli,
lézt 1 8 febrúar í Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað
Jarðarförin fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju föstudaginn 25 febrúar
kl 2
Sölvi Sigurðsson, Guðný Sigurðardóttir,
Margrét Sigurðardóttir, Erlingur Sigurðsson,
Sigríður Ósk, Beck, Sigurður Ármannsson
+
Eiginmaður minn. faðir. tengdafaðir og afi
SIGURÐUR GUÐJÓNSSON,
bæjarfógeti
f Ólafsfirði,
lézt í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 1 8 febrúar s I
Jarðarförin sem fer fram í Reykjavik verður ákveðin síðar
Guðbjörg Egilsdóttir,
Hildur Sigurðardóttir, Stefán Brynjólfsson,
Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Zimsen,
Agla Sigurðardóttir, Matthías Sigurpálsson.
Þóra Jónsdóttir,
Bróðir okkar og mágur
SIGURÐUR SIGURÐSSON. Laufási. Þingeyri, andaðist á Borgarspítalanum 18 febrúar
Einar Sigurðsson, Þórunn Sigurðardóttif,
Ásta Sigurðardóttir, Jóhanna Bjarnadóttir,
Fjóla Sigurðardóttir Steingrlmur Guðmundsson,
Gunnhildur Sigurðardóttir, Gunnar Einarsson,
Hrefna Sigurðardóttir, Kjartan Ingimundarson,
Lilja Sigurðardóttir, Halldór Sigurbjörnsson,
og aðrir aðstandendur.
+ Maðurinn mmn, faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR MAGNUSSON,
bífreiðastjóri, Vesturbergi 2.
verður jarðsunginn í dag þriðjudaginn 22 febrúar kl 3 frá Fossvogs- kirkju Hólmfríður Brynjólfsdóttir,
Þór Guðmundsson, Brynja Guðmundsdóttir,
AldísÓ. Guðmundsdóttir, Hilmar Svavarsson,
Margrét Guðmundsdóttir, Jón Þ. Þorbergsson,
Magnús Guðmundsson, Inga H. Guðmundsdóttir.
og barnabörn
Minning:
Guðmundur Magnús-
son bifreiðarstjóri
Fæddur 13. október 1906
Dáinn 15. febrúar 1977
Þegar góður vinur og samferða-
maður á llfsins braut er nú kvadd-
ur að sinni, er efst í huga þakk-
læti fyrir trausta vináttu og hug-
ljúfar samverustundir um margra
áratuga skeið.
Guðmundur Magnússon, sem
nú er kvaddur hinstu kveðju, var
persóna sem gott er að hafa
kynnst. Hann var einn þeirra
traustu og ljúfu manna, sem
flytja með sér velvild og prúð-
mennsku hvar sem leið þeirra
liggur.
Skyldurækinn og hljóðlátur
gekk hann að störfum sinum
hvern dag, lengst af án hvildar-
daga með trúmennsku og heiðar-
leika í fyrirrúmi. Hann var maður
sem í engu mátti vamm sitt vita.
Þeir hinir mörgu sem við hann
Birting
afmælis-
og minning-
argreina
ATIIYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á í mið-
vikudagshlaði, að berast i síð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
lfnubili.
+
Maðurinn minn,
ELLERT JÓHANNSSON,
bóndi.
Holtsmúla,
lézt á Sjúkrahúsi Skagfirðínga
hinn 1 9 febrúar
Ingibjórg Sveinsdóttir
skiptu í hálfrar aldar starfi, munu
geta staðfest þessa umsögn, enda
báru menn óskorað traust til
hans, og mun hann aldrei hafa
skort viðskiptamenn, jafnvel ekki
á kreppuárum, svo vel varð hon-
um til vina.
1 atvinnugrein Guðmundar var
og er ekki um nein uppgrip að
ræða, heldur gildir þar þrotlaust
starf ásamt ráðdeildarsemi og
reglusemi. Hann bjó yfir þessum
kostum í rikum mæli og þess
vegna var hann farsæll í lifi og
starfi. Hann vann hörðum hönd-
um alla ævi og tókst, ásamt mikil-
hæfti konu sinni, Hólmfriði Bryn-
jólfsdóttur, að skil miklu og góðu
dagsverki og sjá farborða stórri
fjölskyldu svo vel, að til fyrir-
myndar er.
Ástkær eiginmaður, faðír og afi
er nú kvaddur með sárum sökn-
uði, en ljúfar minningar munu
milda sorgina.
Dýpstu samúðarkveðjur sendi
ég og fjölskylda min öllum að-
standendum.
Björgvin Schram.
Guðmundur Magnússon bifreið-
arstjóri er látinn. Hann var fædd-
ur að Eskiholti í Borgarhreppi;
13.10. 1906, sonur hjónanna
Maríu Ólafsdóttur og Magnúsar
Jóhannessonar sem þar höfðu þá
heimili, þar til þau fluttust að
Kárastöðum í sömu sveit og hófu
þar búskap.
Uppeldisstöðvar hans voru þó
aðallega i Borgarnesi þvi foreldr-
ar hans fluttust þangað árið 1914
og bjuggu þar þangað til þau
fluttust til Reykjavikur árið 1940.
í Borgarnesi ólst hann upp í
stórum, glöðum og hraustum syst-
kinahópi þvi hann átti sex syst-
kini sem öll eru á lífi og harma nú
sinn hreinlynda og góða bróður.
Ég kann þvi miður ekki nógu
vel að rekja ættir þessa trausta og
ágæta fólks, en ég veit af eigin
raun að það er af mjög sterkum
og dugmiklm ættum. Móðurafi
hans var hinn mæti stórbóndi
Ólafur Vigfússon sem lengi bjó að
Lækjarkoti í Borgarhreppi. Faðir
Guðmundar var fæddur að Lýsu-
hóli í Staðarsveit og er mér sagt
að frændur séu á mjög mörgum
bæjum þar í sveit, ættin er-afar
margmenn. Þetta er nú að vísu
mjög ófullkominn ættartala hins
látna vinar okkar.
Ég á nú eftir að tjá mínar eigin
þakkir fyrir tryggð hans og vin-
+
Eiginmaður minn og faðir okkar,
BJÖRN ÓLI PÉTURSSON
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju míðvikudaginn 23 febrúar kl
1 5 00
Blóm og kransar afbeðið en þeim sem vildu minnast hans er bent á
Krabbameinsfélag islands
Þuríður Guðmundsdóttir,
Haukur, Pétur Sigurður og Steingrlmur Björnssynir.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
ÞORLÁKUR GUÐBRANDSSON
frá Veiðileysu
til heimilis að Köldukinn 30, Hafnarfirði verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 24 febrúar kl 3 e h
Jarðsett verður i Hafnarfjarðarkirkjugarði
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir flytjum við öllum sem vottuðu okkur hluttekningu við
fráfall eiginmanns, föður, tengdaföður og afa
JAKOBS ÓLAFS PÉTURSSONAR
frá Hranastöðum.
Við biðjum þeim blessunar guðs
Margrét Jónsdóttir
Hrefna Jakobsdóttir Ingi R. Loftsson
Erna Jakobsdóttir Ólöf Jakobfna Þ.
Margrét og Nanna Guðrún Ingvadætur
skap sem ég varð alla tið aðnjót-
andi. Það mun hafa verið árið
1930 sem við kynntumst og var
alla tið sama hvenær ég leitaði til
hans-þá var sjálfsagt hjá honum
að leysa mín mál og alltaf tilbúinn
að rétta mér hjálparhönd.
Guðmundur Magnússon er öll-
um harmdauði, hann var sérstak-
iega vel liðinn hjá samstarfs-
mönnum sínum, og þeim mörgu
viðskiptavinum sem nutu aðstoð-
ar hans. Nú þýðir ekki lengur að
hringja í 11720 og biðja um Guð-
mund Magg.
Ég held ég megi þakka fyrir
hönd hinna mörgu viðskiptavina
hans fyrir prúðmannlega fram-
komu og örugga^þjónustu, ég held
að B.S.R. hafi við fráfall Guð-
mundar misst eitt af sínum aðals-
merkjum sem sú stöð hefur ætíð
borið.
Þótt okkur öllum sé erfitt að
viðurkenna, en verðum að gjöra
okkur að góðu að vinur okkar og
góður kunningi sé horfinn okkur
um stundarsakir vitum við að lát-
inn lifir, og þegar okkar stund
rennur upp mun hann taka á móti
okkur, leiðbeina okkur og vísa
okkur leiðina í þeirri för sen eng-
inn sleppur við að fara. Ég trúi að
hans góðu foreldrar taki nú á
móti sinum góða syni með opnum
örmum, og gleði þeirra, gæska og
höfðingsskapur sem aldrei brást
þeim hér í lífi, megi nú umvefja
þennan góða dreng við komuna á
land Iifenda. .
öll getum við þakkað Guð-
mundi fyrir sam/ylgdina og þeim
góða Guði sem skóp hann og gerði
hann slikan ágætisferðafélaga
sem hann var. Hann var alla tíð
mikill atorku og starfsmaður glað-
sinna og gleðimaður á gleðistund,
þegar nú heilsa hans brást, gerði
hans samhenta og góða fjölskylda
allt sem hún gat til að létta hon-
um og lífið og halda i horfinu.
Hinn 24. mai 1935 giftist Guð-
mundur hinni ágætustu konu,
Hólmfríði Brynjólfsdóttur, og
hafa þau alla tið verið mjög sam-
hent og samtaka í :ð efla og bæta
sitt hlýlega og fagra heimili. Þau
eignuðust 5 börn, 3 stúlkur og 2
drengi, mesta ágætis- og mann-
dómsfólk og eru þau öll búsett
hér í borg, ég veit þau líta til
liðins tima með mjög þakklátum
huga og þakka gjafaranum allra
gæða fyrir sinn góða föður.
Hólmfriði og börnum hennar,
tengdabörnum og barnabörnum
vottum við okkar dýpstu samúð
um leið og við biðjum góðan Guð
að styrkja þau og blessa.
Það hryggir mig að aðstæðurn-
ar urðu þannig að ég get ekki
verið við útför míns kæra vinar
en ég sendi mínar þakkir til hans
fyrir allt.
H.Kr.
S. Helgason hf. STCINIÖJA
llnholti 4 Slmar 24677 og 14254