Morgunblaðið - 22.02.1977, Page 41

Morgunblaðið - 22.02.1977, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRUAR 1977 41 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10 — 11 . FRÁ MÁNUDEGI nt !w (/JAmtVí''att'u n áður en sorpið fer í mulningsvél- arnar. Eða væri kannski betra að flytja eingöngu næringarmikla gróðurmold f beðin hér í borg og örlítið af húsdýraáburði eða fram- leiddum áburði þótt það sé eitt- hvað dýrara? Það er slæmt að sóða út höíuðborg okkar um leið og við þykjumst vera að fegra hana og bæta. Stuðlum að aukinni umhverfisvernd. Með þökk fyrir birtinguna. Einar Yngvi Magnússon.*1 Það fer ekki hjá því að manni verði hugsað til vorsins við lestur þessa bréfs, ekki sízt þegar þetta mál er til umræðu, þar sem þetta er eitt af hinum sígildu vorverk- um sem við höfuðborgarbúar missum aldrei af þótt við gjarnan vildum, því þessi umrædda lykt fer varla framhjá neinum. % Veröugt umhugsunarefni „Fimmtudaginn 17. febr. var flutt i Ríkisútvarpinu leikrit eftir ungan mann, örn Bjarnason. Ég vil ekki láta hjá líða að þakka honum fyrir leikritið og ríkisút- varpinu fyrir flutning þess. Það flutti okkur verðugt umhugsunar- efni. Dagblaðið þann dag eyddi aftur á móti heilli sfðu, bls. 2, undir efni sem ég tel ekki neinu blaði til sóma. Vita ekki þessir veslings menn hver reynsla annarra þjóða er af áfengu öli? I skýrslum frá Finnlandi segir að þegar sala öls hafi verið leyfð þar f rúm 2 ár hafi ofbeldisglæp- um og árásum fjölgað um 51% og hinum alvarlegustu þeirra glæpa, morðunum, um 61%. I Svfþjóð var leyfð sala milliöls árið 1965. Þeir héldu það myndi draga úr neyzlu sterkra drykkja. Reynslan varð allt önnur, svo sala þess verður bönnuð frá júlfmánuði 1977. Hvað svo með öllandið Dan- mörku? Þar eykst neyzla sterkra drykkja jafnt og þétt. Þar er öl- drykkja vandamál á vinnustöð- um, f skólum, ofneysla bjórs er þar algeng meðal barna og of- drykkja skólabarna stórfellt vandamál. Og svo eru til ábyrgir menn uppi á íslandi sem vilja kalla þennan ófögnuð yfir okkur. Á Sólnes einhverra hagsmuna að gæta? Hann hlýtur að vera skyn- samari en frumvarp hans bendir • til. Ég skora á hann að draga breytingartillögu sfna til baka. íslenzkar konur, takið nú hönd- um saman og mótmælið bjórfrum- varpinu, ef ekki ykkar vegna, þá vegna barna ykkar. Sigrún Sturludóttir." Þessir hringdu . . % Hægfara hraðbréf Ein sem fær stundum hraðbréf: — Það hefur komið fyrir í nokkur skipti að undanförnu að ég hef fengið hraðbréf erlendis frá og er það f sjálfu sér ekki f frásögur færandí. Ég bý f Reykja- vík og f hverfinu, sem ég bý f er borinn út póstur á morgnana. Yf- irleitt er hann kominn heim um kl. 10. En í þau skipti sem ég hef fengið hraðbréf bregður svo við að sá póstur kemur ekki fyrr en um og eftir hádegi. Þetta finnst mér undarlegt, þvf nú er pósturinn oft flokkaður á morgnana, áður en póstburðar- fólkið fer út, þannig að varla ætti það að vera seinlegra að flokka hraðbréfin. Og tæpast eru þau svo mörg að flokkun þeirra taki meiri tfma en venjulegra bréfa. Manni verður því hugsað sem svo hvort ekki sé eitthvað ábóta- vant í skipulagningu dreifingar hraðbréfa hér á höfuðborgar- svæðinu. Það væri í þessum tilvik- um nær að senda hraðbréfin með þeim „venjulega“ pósti, sem kem- SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á heimsmeistaramóti stúdenta 1976, sem haldið var f Caracas í Venezúela í ágúst, kom þessi stað'a upp i skák Rigan, sem hafði hvftt og átti leik, gegn Diaz: 15. Hxb7! Hd8, (Eftir 15.. Bxb7, 16. Da4+ — Kd8,17. Bxb7 — Hb8, 18. Hdl+ verður svartur mát.) 16. Db3! — Bxb7 (Svartur átti engra kosta völ. T.d. 16. . .Dc5, 17. Be3), 17. Dxc3 — Bxe4,18. Bg5 og svart- ur gafst upp. Sigurvegari á mót- inu varð sveit Sovétríkjanna, næstir komu Bandaríkjamenn og í þriðja sæti varð sveit Kúbu. ís- lenzka sveitin á mótinu lenti í 12. sæti, en sveitir frá 21 þjóð tóku þátt f mótinu. ur alltaf klukkan 10 á morgnana. Það væri þvf gaman að spyrja póstfróða menn hvort of fáir séu í útburði hraðbréfa — eða hvort þau sitji hreinlega á einhvern hátt á hakanum — hvort skorti eitthvað á skipulagningu dreif- ingarinnar eða hverju þetta yfir- leitt sætir. Þetta er annars ekkert stórmál, en mér finnst það undar- legt þar sem það hefur komið fyrir oftar en einu sinni. HÖGNI HREKKVÍSI V* 1 s Fleira til greiðslutryggingarinnar? Margar góðar gjafir til Hallgrímskirkju BYGGINGARFRAMKVÆMDUM við Hallgrfmskirkju hefur miðað vel áfram f góðviðrinu f vetur segir f fréttatilkynningu frá kirkjunni. Á ártfðardegi Hallgrfms Péturssonar 27. okt. s.l. var steyptur áfangi ofan á kór kirkjunnar og 25. jan. s.l. var steypt ofan á stuðla-gaflinn milli kórs og skips og sfðan hefur í góða veðrinu verið hægt að halda áfram mótasmfði þar uppi. Góðar horfur munu vera á þvf að bygg- ingu kirkjunnar miði vel áfram á næstunni. Kirkjunni hafa borizt góðar gjafir að undanförnu. Góðvinur hennar, sem ekki vill láta nafns sfns getið, sendi í annað sinn pen- ingagjöf að upphæð 500 þúsund kr. Þá hefur fr. Guðfinna Skag- fjörð, Snorrabraut 42 Reykjavík, sent kirkjunni 100 þús. kr. sem 100 ára minningargjöf um Sigurð Skagfjörð húsasmíðameistara og fyrri konu hans Sigríði Guðrúnu Halldórsdóttur. Annar hollvinur kirkjunnar, sem ekki vill láta nafns síns getið sendi kr. 100 þús. með blessunaróskum og þ. 11. þ.m. afhenti Ásbjörn Ólafsson stórkaupmaður í Reykjavík gjöf að upphæð 1 millj. kr. í minningu foreldra sinna, Vigdisar Ketils- dóttur frá Kotvogi i Höfnum og Ólafs Ásbjarnarsonar frá Innri Njarðvík. Gjöfin skal notuð til að kosta gerð skírnarfonts Hallgrímskirkju þegar þar að kemur. Fjölmargar aðrar góðar gjafir og áheit hafa kirkjunni einnig borizt að undanförnu, sem allar hjálpa til og flýta fyrir kirkjubyggingunni, segir í lok fréttatilkynningarinnar. Dórothea Ólafsdóttir — Afmæliskveðja Sjötug er í dag frú Dórothea Ólafsdóttir, Skúlagötu 76. Fyrir tuttugu og fimm árum síðan hlotnaðist okkur sú mikla ánægja að kynnast Dórotheu eða Doddu eins og hún er ávallt kölluð, og hefur ekkert skyggt á þá vináttu okkar öll þessi ár. Dodda er glæsi- leg og tíguleg kona, hún er ekki aðeins glæsileg í útliti heldur hef- ur hún til að bera flesta þá kosti sem ein kona getur haft, gott hjartalag og glaðlyndi e'ru ein- kenni Doddu. Þó oft hafi á móti blásið, þá hefur hennar góða og glaða lund jafnan verið öðrum til uppörvunar enda alltaf fyrst hugsað um að styðja og styrkja aðra. Ávallt stendur hið hlýja og vist- lega heimili hennar opið fyrir ættingjum og vinum, jafnt ungum sem gömlum, enda gestrisni mikil og ekki spillir húsbóndinn neinu þar um. Það er ávallt gaman að koma í heimsókn til þeirra hjóna, þiggja kaffi og brúna (því enginn getur bakað brúna eins og Dodda) og spjalla saman og heyra hinn dillandi hlátur húsmóður- innar, þá er gleði, og þaðan er líka farið léttari \ lund en komið var. Heimilið ber þess merki að þar er mikil húsmóðir sem áldrei fellur verk úr hendi enda sýnir það handavinnan sem hún hefur unn- ið um dagana af vandvirkni og smekkvísi og það eru ekki svo fá heimilin sem hafa notið þess að fá að gjöf handavinnu frá Doddu. Það er erfitt að trúa því að hún Dodda okkar hafi sjötlu ár að baki, svo ungleg er hún, en af því að kirkjubækur segja það þá verð- um við að trúa því. Dodda giftist 9. maí 1930 Gunn- ari Jónassyni sem starfaði mörg ár í Vélsmiðjunni Héðni. Þau eignuðust fjögur börn, en urðu fyrir þeirri sorg að missa elsta son sinn á besta aldri, tveir synir eru giftir og búsettir hér, og dóttir þeirra er gift og búsett erlendis. Við óskum Doddu innilega til hamingju með þennan merkisdag og biðjum henni og fjölskyldu hennar alirar blessunar um ókom- in ár. Dórothea verður I dag stödd á heimili sonar slns og tengda- dóttur að Smáraflöt 46, Garðabæ. Tvær vinkonur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.