Morgunblaðið - 22.02.1977, Side 44

Morgunblaðið - 22.02.1977, Side 44
f ak;lysin(;asimi\n er: 22480 BlorflimbTntiivi ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1977 Góð færð GÓÐ færð var um mest allt land f gær nema á helztu fjall- vegum á Vestfjörðum, á Norð- austurlandi og á fjallvegum austanlands. A Vestfjörðum var vfðast hvar fært innan f jarða, góð færð um allt vestan- vert Norðurland og þá bæði til Siglufjarðar og til Ólafsfjarðar um Múlann. Cr Eyjafirði var fært austur á bóginn um Dals- mynni. Þegar komið er austur fyrir Tjörnes fer þó færð að þyngjast en engu að sfður mun stórum bflum fært út frá Þórs- höfn til Vopnafjarðar. Á Aust- fjörðum eru flestir fjallvegir ófærir en fært var suður með fjörðunum og yfir Lónsheiði til Suðurlands. Meðfylgjandi mynd er frá þvf er Lónsheiði var mokuð á dög- unum. (Ljósm. Hermann Stefánsson). M jög góður afli fæst í flottroll á Kögurgrunni Afbragðs línuafli Vestfjarðabáta SKUTTOGÁRARNIR hafa fengið mjög góðan afla f flottroll undan Vestfjörðum undanfarna daga, að sögn Jóns Páls Halldórssonar, framkvæmdastjóra á Isafirði. Fiskurinn, sem togararnir hafa fengið, er stór og fallegur. I gær voru allir Vestfjarðatogararnir að tveimur undanskildum að landa afla sfnum, en þeir voru með 120—170 tonn eftir 4—7 daga veiðiferðir. Er geysimikið að gera f frystihúsunum á Vestfjörðum þessar mundir, að sögn Jóns Páls. Það var um miðja síðustu viku að togararnir fóru að fiska svona vel á Kögurgrunni, um 60 mílur frá landi. Er nú fjöldinn allur af skipum á þessum slóðum og nota þeir flottroll enda varla hægt að nota botnvörpu á þessum slóðum. Sem fyrr segir hafa togararnir fengið mjög fallegan fisk, aðal- lega þorsk í flottrollið, og sagði Jón Páll að stór hluti aflans væri hrygningarfiskur. Þá hafa línubátar frá Vestfjörð- um einnig aflað mjög vel að undanförnu. Hafa þeir verið með 7—11 lestir í róðri af afbragðs góðum fiski. Hefur aflinn verið mjög lítið steinbftsborinn, en nú fer sá timi f hönd á Vestfjörðum, þegar mikið aflast af steinbít. 99 Stefnir í metvertíð” segir formadur Loðnunefndar — Aflinn í gær 15,250 lestir SlÐASTI sólarhr-ingur var sá næst bezti á loðnuvertfðinni. Samtals tilkynnti 41 bátur afla til loðnunefndar frá miðnætti f fyrrinótt til klukkan 23 f gær- kvöldi og var afli þeirra samtals 15,250 lestir. Vitað var um fleiri báta sem voru að fá afla, t.d. Albert, Flosa og ef til vill Loft Baldvinsson. Er heildaraflinn á vertfðinni þá orðinn tæpar 300 þúsund lestir. „Það stefnir f met- vertfð", sagði Gylfi Þórðarson, formaður Loðnunefndarinnar, f samtali við Morgunblaðið f gær- kvöldi. Árið 1974 var metvertfð en þá komu á land 462 þúsund lestir, en að öilu óbreyttu bjóst Gylfi við þvf að aflinn á þessri vertfð færi yfir 500 þúsund lestir. í gær var fremsta loðnugangan komin að Skaftárós og voru bátarnir þar 'á veiðum. Þeir dreifðust með aflann á margar hafnir, allt frá Seyðisfirði vestur til Akraness. Að sögn Gylfa Þórðarsonar hefur loðnuvertíðin gengið mjög vel að þessu sinni. Veður hefur verið hagstætt og aflinn dreifzt, þannig að bátarnir hafa sjaldan þurft að bíða lengi eftir löndun. „Það hafa engin vandræði verið og þessi vertíð hefur gengið bezt af þeim sem Loðnunefndin hefur haft afskipti af,“ sagði Gylfi. Hæstu bátarnir eru nú Guðmundur RE með 11,700 lestir, Börkur NK með 11,500 lestir, Sigurður RE með 11,000 lestir og Grindvíkingur GK með 9,700 lestir. 41 bátur hafði tilkynnt Loðnu- nefnd afla frá miðnætti í fyrri- nótt til klukkan 23 í gærkvöldi, samtals 15,250 lestir: Sæberg SU 260, Hringur VE 100, Klængur ÁR 200, Glófaxi VE 70, Flfill GK 540, Faxl GK 80, Asberg RE 380. Gullberg VE 580, Gunnar Jónsson VE 300, Siguróur RE 1300, BJarni Ólafsson AK 510, Steinunn SF 100, Freyja RE 240, Skfmir AK 420, Steinunn RE 175, Skarðsvfk SH 400, Hilmir SU 530, Kap II Framhald á bls. 42. Norglobal væri búinn að bræða um 40 þús- und lestir —NORGLOBAL hefði líklega verið búinn að bræða um 40 þúsund tonn af loðnu ef hann hefði fengizt hingað til íslands á vertíðina, sagði Gylfi Þðrðarson, formaður Loðnunefnd- ar, f samtali við Morgun- blaðið í gær. Eins og kom fram á sínum tíma, Vildu Norð- menn ekki leigja skipið að þessu sinni og er það nú við Noregsstrendur og bræðir þar loðnu. Að sögn Gylfa er afkasta- geta skipsins 13—1400 lestir á sólarhring, og mánaðarafköstin því um 40 þúsund lestir. Austur-þýzka endur- skoðunin endursend- ir bréf frá íslandi Bréfið átti að fara til austur- þýzka skáldsins Reiners Kunze JÓHANN Hjálmarsson, skáld, sem m.a. hefur þýtt ljóð austur- þýzka skáldsins Reiner Kunze, sendi honum hinn 30. desem- ber sfðastliðinn ábyrgðarbréf með nokkrum úrklippum úr Morgunblaðinu, þar sem fjall- að er um Kunze og list hans. Einnig er f greinunum fjallað um þær þrengingar, sem hann hefur þurft að ganga f gegnum vegna aðgerða austur-þýzkra stjórnvalda gegn honum. Jóhann hefur nú fengið bréfið endursent. Það hefur verið opn- að af austur-þýzkum stjórn- völdum og Ifmt aftur með lfm- bandi. Framan á umslagið er Ifmdur miði, sem númeraður er A 019219, en á honum stendur: „Endursendið! Innihaldið brýt- ur gegn grein 1.1.1. á lista yfir Reiner Kuuze „Bannaða hluti“: Á miðann er jafnframt skrifað 28.1. Utan- áskriftin til Reiner Kunze er yfirstrikuð á umslaginu, en nafn hans er eitt ekki yfirstrik- að. í nóvember síðastliðnum var Kunze rekinn úr austur-þýzku rithöfundasamtökunum að því er talið er fyrir bók sfna Die Wunderbaren Jahre, sem fjall- ar einkum um austurþýzk og tékknesk efni í stutt im þáttum. Fjallar Kunze þar m.a. um þíð- una í Tékkóslóvakíu á valda- tfma Alexanders Dubceks. Hef- ur Kunze yfirleitt haft talsvert mikil samskipti við tékkneska rithöfunda, þýtt verk þeirra á þýzku og ritað um þá. Hann er kvæntur tékkneskri konu. Þótt þetta efni hafi verið Kunze hugleikið hefur hann aldrei tekið ákveðna afstöðu gegn stjórnvöldum i Austur- Þýzkalandi, nema að því leyti, sem menn hafa þótzt lesa úr verkum hans. Hefur hann UMSLAGID upp rifið með miðanum frá ritskoðuninni austur- þýzku, þar sem segir að innihaldið brjóti í bága við austur-þýzk lög og úrklippur úr Morgunblaðinu séu á lista yfir bannaða hluti. aldrei tjáð sig opinskátt um ástandið í heimalandi sínu, en menn hafa sagt hann tali undir rós — eins og sagt er. Samkvæmt upplýsingum jóhanns Hjálmarssonar hefur hann staðið f talsverðum bréfa- skriftum við Kunze og hafa sendingar hans jafnan komizt til skila. Bréfaskiptin hafa ávallt farið fram i ábyrgðar- pósti, því að með því móti geta bréf ekki týnzt og komizt þau ekki til viðtakanda verður að endursenda þau. Síðasta kveðja, sern Jóhann fékk frá Kunze, barst 22. desember og var jólakveðja og staðfesti hún m.a. að Kunze hafði fengið sendingar frá Jóhanni, sem áð- ur höfðu verið sendar. Reiner Kunze er eitt af þekktustu skáldum Austur- Þýzkalands. I nóvember síðast- liónum var honum vikið úr austur-þýzku rithöfundasam- tökunum, að því er talið er fyrir áð irnefnda bók, „Hin dásam- Framhald á bls. 42.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.