Morgunblaðið - 19.03.1977, Síða 1
40 SÍÐUR OG LESBÖK
63. tbl. 64. árg.
LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
VANTRAUST
Á BREZKU
STJÓRNINA
Lundúnum — 18. marz — Reuter.
MARGARET Thatcher, formaður
brezka íhaldsflokksins, lagði
fram vantrauststillögu á stjórn
Callaghans f dag, og bregður til
beggja vona hvort stjórnin stend-
ur þessa hrfð af sér eða hvort
stjórnarandstöðuflokkarnir sam-
einast um að greiða tillögunni
atkvæði á miðvikudaginn kemur.
Verkamannaflokkurinn hefur
nú 314 þingmenn en andstöðu-
flokkarnir samtals 315. Þar af eru
278 þingmenn ihaldsflokksins.
Vantrauststillagan kemur i
kjölfar þess að í gær var felld án
umræðna tillaga stjórnarinnar
um niðurskurð ríkisútgjalda i
samræmi við skilyrði Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins fyrir 3.9 mill-
jarða dala láni fyrir skömmu.
Mikil spenna rikti i brezka
þinginu i dag, og sögðu sumir að
þar yrði nú vart kosningaskjálfta.
Þinglið Verkamannaflokksins
hefur þegar hafið atkvæðaveiðar,
og er helzt talið að stuðnings
sé að vænta meðal 10 þing-
manna frá Norður-lrlandi eða
þingmanna Frjálslynda flokksins,
sem eru 13 að tölu. í kvöld var
haft eftir áreiðanlegum heimild-
um að viðræður milli Verka-
mannaflokksins og Frjálslynda
flokksins hefðu farið fram bak
við tjöldin, og almennt er talið að
Frjálslyndi flokkurinn vilji koma
i veg fyrir kosningar nú, þar sem
hann hefur yfirleitt tapað fylgi i
aukakosningum að undanförnu
einsog Verkamannaflokkurinn.
Frakkar auka hern-
aðaraðstoð við Zaire
Jimmy Carter ávarpar fastafulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum f fyrrakvöld. Hann fjallaði mjög um
mannréttindamál f ræðu sinni, og f fréttum frá Sameinuðu þjóðunum f gær sagði, að greinilega hefði hún
mælzt vel fyrir meðal fastafulltrúanna og væri almennt litið svo á að orð forsetans væru upphafið að nýju
tfmahili f samskiptum Sameinuðu þjóðanna og stjórnarinnar f Washington.
Kinshasa — 18. marz — AP. Reuter
FRAKKAR hafa ákveðið að auka
hernaðaraðstoð við Zaire vegna
tilmæla stjórnarinnar f Kinshasa.
Fulltrúi franska utanrfkisráðu-
neytisins skýrði frá þessu f dag og
sagði, að á næstu dögum yrðu
send skotfæri og eldflaugar, en
hann vfsaði á bug fregnum um að
hernaðarlegir ráðgjafar væru
þegar komnir til Zaire.
Svo virðist sem hlé hafi orðið á
sókn innrásarhersins frá Angóla,
sem sótt hefur fram um 300 kfló-
metra leið á einni viku. Yfirvöld f
Zaire segja, að fregnir um að Kol-
wesi, sem er miðstöð kopar-
vinnslu, hafi fallið f hendur inn-
rásarliðsins, hafi ekki við rök að
styðjast og ber flestum heimild-
um saman um að það sé enn í 150
kflómetra f jarlægð þaðan.
Þá var haft eftir opinberum
heimildum i Brussel í dag, að enn
virtist allt með kyrrum kjörum i
Kolwesi, en ástandið væri ótryggt,
og enn lægju ekki fyrir áreiðan-
legar heimildir um bardaga í
Shaba, sem áður hét Katanga.
Óljósar fregnir hafa borizt af bar-
dögum þar og á að hafa orðið
mikið mannfall i her Zaire, en
yfirvöld visa á bug þeim fregnum.
Bandaríska utanrikisráðuneyt-
ið sagði i dag, að stjórnin í Angóla
Framhald á bls 22.
Nýtt hlerunarmál
í V-Þýzkalandi
Bonn — 18. marz — Reuter
NYTT hlerunarmál er komið upp f Vestur-Þýzkalandi, og er skrifstofu-
stjóri Helmut Schmidts kanslara sakaður um að bera ábyrgð á málinu,
sem leitt getur til þess að hefja verði að nýju réttarhöld f morðmáli
Baader—Meinhof-hópsins, sem þegar hafa staðið f tvö ár.
Málavextir eru þeir, að f gær staðfesti Traugott Bender, dómsmála-
ráðherra f Baden-Wurtenberg, að hleruð hefðu verið samtöl sakborn-
inga f Baader—Mcinhofmálinu við verjendur þeirra en til þess hefði
borið brýna nauðsyn til að koma í veg fyrir árás hryðjuverkamanna.
Hefði markmiðið með árásinni fyrirhuguðu verið að fá lausa sakborn-
ingana þrjá.
Hleranir af þessu tagi brjóta i
bága við lög, og eru viðurlög allt
að fimm ára fangelsi.
Fulltrúar þriggja helztu stjörn-
málaflokkanna i V-Þýzkalandi
voru þegar kallaðir til Bonn þegar
staðfesting dómsmáiaráðherrans i
Baden-Wurtenberg lá fyrir i gær,
og til marks um hversu alvarlegs
eðlis málið er sneri utanrikisráð-
herra stjórnarinnar, Hans
Dietrich Genscher, þegar heim á
leið, en hann hefur verið í opin-
berri heimsókn á Spáni.
Fulltrúi Schmidts kanslara
sagði I dag, að hleranirnar hefðu
verið samþykktar eftir ofbeldis-
öldu, sem kom í kjölfar brottnáms
stjórnmálamanns í Berlín og árás-
arinnar á v-þýzka sendiráðið i
Stokkhólmi. Þá hefur forsætisráð-
herra Bande-Wurtenbergs, Hans
Fiibinger, sagt að ákvörðun um
hleranir þessar hafi verið neyðar-
úrræði, sem gripið hefði verið til í
almannaþágu.
Sakborningarnir þrír, Gudrun
Ensslin, Jan-Carl Raspe og
Andreas Baader, eru í fangelsi í
Stuttgart, og er fyllsta öryggis
gætt við gæzlu þeirra. Þau eru
ákærð fyrir þrjú morð að yfir-
lögðu ráði, sex sprengjutilræði,
sem urðu samtals fimm manns að
bana og þar sem 54 særðust, auk
sex bankarána.
200 myrtir í hefnd-
arskyni í Líbanon
Beirút — 18. marz — AP — NTB.
MÖRG hundruð kristnir Líbanir lokuðu í dag aðaldyrum forsetahallarinnar í
Líbanon til að leggja áherzlu á kröfu sína um vernd vegna hefndarráðstafana eftir
morðið á Kamal Jumblatt, leiðtoga vinstri manna.
Fjölgað hefur verið um 4 þúsund manns i sýrlenzku friðargæzlusveitunum í
fjallahéruðunum þar sem flestir hafa verið myrtir siðustu daga, en i dag var haft
eftir opinberum heimildum, að þeir væru yfir 200 talsins. Þar af voru 30 myrtir í
þorpinu Barouk, flest konur og börn.
Kyrrð var komin á að mestu í lenzku friðargæzlusveitirnar hafa
fjallahéruðunum í dag, en þar hert á eftirliti I borginni í dag og
ríkti þó mikil spenna. Snemma í þar hefur verið unnið að því að
morgun heyrðust vélbyssuskot- rýðja burt vegatálmunum, sem
stuðningsmenn Jumblatts höfðu
komiðfyrir.
hríð og sprengingar i Beirút, en
er liða tók á daginn var ástandið
að komast i eðlilegt horf. Sýr-
Haft var eftir málsvara krist-
inna hægri manna i dag, að um 7
þúsund manns hefðu flúið heimili
sin í þorpum í nánd við heimili
Jumblatts af ótta við hefndarað-
gerðir.
Bráðabirgðasamningur EBE og Færeyinga:
Fá að veiða 1.250 tonn
við Færeyjar til 30. apríl
Frá fréttaritara Mbl. f Færeyjum, Jögvan
Arge.
LÖGÞING Færeyja samþykkti í
gær tillögu landstjórnarinnar um
veiðiheimildir til handa fiski-
skipum frá aðildarrfkjum Efna-
hagsbandalagsins. Samkomulagið
gildir frá 22. marz til 30. aprfl n.k.
og kveður á um að EBE-
þjóðunum skuli heimilt að veiða
1.250 tonn af þorski og ýsu innan
200 mflna fiskveiðilögsögu Fær-
eyinga. Samkomulagið er í sam-
ræmi við rammasamning þann,
sem Færeyingar og EBE undirrit-
uðu fyrr f vikunni, en samkvæmt
Handtökur í Leningrad
Leningrad — 18. marz — NTB,
ÞRÍR andófsmenn hafa verið
handteknir f Leningrad, að því
er haft er eftir áreiðanlegum
hcimildum. Þar á meðal er
Vladimir Borisov, sem sleppt
var af geðsjúkrahúsi hinn 4.
þessa mánaðar.
Þá voru handteknar skáld-
konan Julia Vosnesenskaja og
Natalia Kazarinova, sem er í
Helsinki-nefndinni svokölluðu.
Kazarinovu hefur verið sleppt,
en hún verður kölluð til yfir-
heyrslu innan skamms.
Vosnesenskaja var handtekin
eftir að yfirvöldum hafði borizt
vitneskja um að hún dveldist i
Leningrad enda þótt hún hefði
verið dæmd til fimm ára
Síberíuvistar i desember s.l.
fyrir að ófrægja Sovétrikin.
honum eiga að fara fram viðræð-
ur á næstunni þar sem stefnt
verður að þvf að koma á samning-
um til frambúðar.
Samkomulagið kveður á um
frekari takmörkun veiðisvæða en
verið hefur í gildi að undanförnu,
en umsamið aflamagn bráða-
birgðasamkomulagsins er 60 af
hundraði heildarafla EBE-
þjóðanna við Færeyjar fyrstu
fjóra mánuði ársins 1976, að frá-
dregnu því sem veitt hefur verið
frá áramótum.
Tillaga landsstjórnarinnar var
samþykkt með 22 atkvæðum af
26. Erlendur Patursson greiddi
atkvæði gegn tillögunni, en hinir
voru annaðhvort fjarverandi eða
sátu hjá.