Morgunblaðið - 19.03.1977, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.03.1977, Qupperneq 1
40 SÍÐUR OG LESBÖK 63. tbl. 64. árg. LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. VANTRAUST Á BREZKU STJÓRNINA Lundúnum — 18. marz — Reuter. MARGARET Thatcher, formaður brezka íhaldsflokksins, lagði fram vantrauststillögu á stjórn Callaghans f dag, og bregður til beggja vona hvort stjórnin stend- ur þessa hrfð af sér eða hvort stjórnarandstöðuflokkarnir sam- einast um að greiða tillögunni atkvæði á miðvikudaginn kemur. Verkamannaflokkurinn hefur nú 314 þingmenn en andstöðu- flokkarnir samtals 315. Þar af eru 278 þingmenn ihaldsflokksins. Vantrauststillagan kemur i kjölfar þess að í gær var felld án umræðna tillaga stjórnarinnar um niðurskurð ríkisútgjalda i samræmi við skilyrði Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins fyrir 3.9 mill- jarða dala láni fyrir skömmu. Mikil spenna rikti i brezka þinginu i dag, og sögðu sumir að þar yrði nú vart kosningaskjálfta. Þinglið Verkamannaflokksins hefur þegar hafið atkvæðaveiðar, og er helzt talið að stuðnings sé að vænta meðal 10 þing- manna frá Norður-lrlandi eða þingmanna Frjálslynda flokksins, sem eru 13 að tölu. í kvöld var haft eftir áreiðanlegum heimild- um að viðræður milli Verka- mannaflokksins og Frjálslynda flokksins hefðu farið fram bak við tjöldin, og almennt er talið að Frjálslyndi flokkurinn vilji koma i veg fyrir kosningar nú, þar sem hann hefur yfirleitt tapað fylgi i aukakosningum að undanförnu einsog Verkamannaflokkurinn. Frakkar auka hern- aðaraðstoð við Zaire Jimmy Carter ávarpar fastafulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum f fyrrakvöld. Hann fjallaði mjög um mannréttindamál f ræðu sinni, og f fréttum frá Sameinuðu þjóðunum f gær sagði, að greinilega hefði hún mælzt vel fyrir meðal fastafulltrúanna og væri almennt litið svo á að orð forsetans væru upphafið að nýju tfmahili f samskiptum Sameinuðu þjóðanna og stjórnarinnar f Washington. Kinshasa — 18. marz — AP. Reuter FRAKKAR hafa ákveðið að auka hernaðaraðstoð við Zaire vegna tilmæla stjórnarinnar f Kinshasa. Fulltrúi franska utanrfkisráðu- neytisins skýrði frá þessu f dag og sagði, að á næstu dögum yrðu send skotfæri og eldflaugar, en hann vfsaði á bug fregnum um að hernaðarlegir ráðgjafar væru þegar komnir til Zaire. Svo virðist sem hlé hafi orðið á sókn innrásarhersins frá Angóla, sem sótt hefur fram um 300 kfló- metra leið á einni viku. Yfirvöld f Zaire segja, að fregnir um að Kol- wesi, sem er miðstöð kopar- vinnslu, hafi fallið f hendur inn- rásarliðsins, hafi ekki við rök að styðjast og ber flestum heimild- um saman um að það sé enn í 150 kflómetra f jarlægð þaðan. Þá var haft eftir opinberum heimildum i Brussel í dag, að enn virtist allt með kyrrum kjörum i Kolwesi, en ástandið væri ótryggt, og enn lægju ekki fyrir áreiðan- legar heimildir um bardaga í Shaba, sem áður hét Katanga. Óljósar fregnir hafa borizt af bar- dögum þar og á að hafa orðið mikið mannfall i her Zaire, en yfirvöld visa á bug þeim fregnum. Bandaríska utanrikisráðuneyt- ið sagði i dag, að stjórnin í Angóla Framhald á bls 22. Nýtt hlerunarmál í V-Þýzkalandi Bonn — 18. marz — Reuter NYTT hlerunarmál er komið upp f Vestur-Þýzkalandi, og er skrifstofu- stjóri Helmut Schmidts kanslara sakaður um að bera ábyrgð á málinu, sem leitt getur til þess að hefja verði að nýju réttarhöld f morðmáli Baader—Meinhof-hópsins, sem þegar hafa staðið f tvö ár. Málavextir eru þeir, að f gær staðfesti Traugott Bender, dómsmála- ráðherra f Baden-Wurtenberg, að hleruð hefðu verið samtöl sakborn- inga f Baader—Mcinhofmálinu við verjendur þeirra en til þess hefði borið brýna nauðsyn til að koma í veg fyrir árás hryðjuverkamanna. Hefði markmiðið með árásinni fyrirhuguðu verið að fá lausa sakborn- ingana þrjá. Hleranir af þessu tagi brjóta i bága við lög, og eru viðurlög allt að fimm ára fangelsi. Fulltrúar þriggja helztu stjörn- málaflokkanna i V-Þýzkalandi voru þegar kallaðir til Bonn þegar staðfesting dómsmáiaráðherrans i Baden-Wurtenberg lá fyrir i gær, og til marks um hversu alvarlegs eðlis málið er sneri utanrikisráð- herra stjórnarinnar, Hans Dietrich Genscher, þegar heim á leið, en hann hefur verið í opin- berri heimsókn á Spáni. Fulltrúi Schmidts kanslara sagði I dag, að hleranirnar hefðu verið samþykktar eftir ofbeldis- öldu, sem kom í kjölfar brottnáms stjórnmálamanns í Berlín og árás- arinnar á v-þýzka sendiráðið i Stokkhólmi. Þá hefur forsætisráð- herra Bande-Wurtenbergs, Hans Fiibinger, sagt að ákvörðun um hleranir þessar hafi verið neyðar- úrræði, sem gripið hefði verið til í almannaþágu. Sakborningarnir þrír, Gudrun Ensslin, Jan-Carl Raspe og Andreas Baader, eru í fangelsi í Stuttgart, og er fyllsta öryggis gætt við gæzlu þeirra. Þau eru ákærð fyrir þrjú morð að yfir- lögðu ráði, sex sprengjutilræði, sem urðu samtals fimm manns að bana og þar sem 54 særðust, auk sex bankarána. 200 myrtir í hefnd- arskyni í Líbanon Beirút — 18. marz — AP — NTB. MÖRG hundruð kristnir Líbanir lokuðu í dag aðaldyrum forsetahallarinnar í Líbanon til að leggja áherzlu á kröfu sína um vernd vegna hefndarráðstafana eftir morðið á Kamal Jumblatt, leiðtoga vinstri manna. Fjölgað hefur verið um 4 þúsund manns i sýrlenzku friðargæzlusveitunum í fjallahéruðunum þar sem flestir hafa verið myrtir siðustu daga, en i dag var haft eftir opinberum heimildum, að þeir væru yfir 200 talsins. Þar af voru 30 myrtir í þorpinu Barouk, flest konur og börn. Kyrrð var komin á að mestu í lenzku friðargæzlusveitirnar hafa fjallahéruðunum í dag, en þar hert á eftirliti I borginni í dag og ríkti þó mikil spenna. Snemma í þar hefur verið unnið að því að morgun heyrðust vélbyssuskot- rýðja burt vegatálmunum, sem stuðningsmenn Jumblatts höfðu komiðfyrir. hríð og sprengingar i Beirút, en er liða tók á daginn var ástandið að komast i eðlilegt horf. Sýr- Haft var eftir málsvara krist- inna hægri manna i dag, að um 7 þúsund manns hefðu flúið heimili sin í þorpum í nánd við heimili Jumblatts af ótta við hefndarað- gerðir. Bráðabirgðasamningur EBE og Færeyinga: Fá að veiða 1.250 tonn við Færeyjar til 30. apríl Frá fréttaritara Mbl. f Færeyjum, Jögvan Arge. LÖGÞING Færeyja samþykkti í gær tillögu landstjórnarinnar um veiðiheimildir til handa fiski- skipum frá aðildarrfkjum Efna- hagsbandalagsins. Samkomulagið gildir frá 22. marz til 30. aprfl n.k. og kveður á um að EBE- þjóðunum skuli heimilt að veiða 1.250 tonn af þorski og ýsu innan 200 mflna fiskveiðilögsögu Fær- eyinga. Samkomulagið er í sam- ræmi við rammasamning þann, sem Færeyingar og EBE undirrit- uðu fyrr f vikunni, en samkvæmt Handtökur í Leningrad Leningrad — 18. marz — NTB, ÞRÍR andófsmenn hafa verið handteknir f Leningrad, að því er haft er eftir áreiðanlegum hcimildum. Þar á meðal er Vladimir Borisov, sem sleppt var af geðsjúkrahúsi hinn 4. þessa mánaðar. Þá voru handteknar skáld- konan Julia Vosnesenskaja og Natalia Kazarinova, sem er í Helsinki-nefndinni svokölluðu. Kazarinovu hefur verið sleppt, en hún verður kölluð til yfir- heyrslu innan skamms. Vosnesenskaja var handtekin eftir að yfirvöldum hafði borizt vitneskja um að hún dveldist i Leningrad enda þótt hún hefði verið dæmd til fimm ára Síberíuvistar i desember s.l. fyrir að ófrægja Sovétrikin. honum eiga að fara fram viðræð- ur á næstunni þar sem stefnt verður að þvf að koma á samning- um til frambúðar. Samkomulagið kveður á um frekari takmörkun veiðisvæða en verið hefur í gildi að undanförnu, en umsamið aflamagn bráða- birgðasamkomulagsins er 60 af hundraði heildarafla EBE- þjóðanna við Færeyjar fyrstu fjóra mánuði ársins 1976, að frá- dregnu því sem veitt hefur verið frá áramótum. Tillaga landsstjórnarinnar var samþykkt með 22 atkvæðum af 26. Erlendur Patursson greiddi atkvæði gegn tillögunni, en hinir voru annaðhvort fjarverandi eða sátu hjá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.