Morgunblaðið - 25.03.1977, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1977
C i ín
Klikkun í
kerfinu
Ljósmyndaranum brá heldur betur þegar hann gekk fram á þessa
bfla hlið við hlið á bflastæði ( gær. Það var ekki um að villast,
sama númerið er á þeim báðum. Þarna hefur greinilega orðlð
klikkun ( kerfinu, en væntanlega verður þvf kippt f lag hið fyrsta
og tölvan skömmuð, ef hún á sökina.
Bráðabirgða-
samkomulag um
kaup á Norglobal
FORRÁÐAMENN skipafélagsins
Hafskip h.f. hafa að undanförnu
rætt við eigendur norska bræðslu-
skipsins Norglobal, um kaup á
skipinu og sagði Magnús Magnús-
son, forstjóri Hafskips, f samtali
við Morgunblaðið, f gær, að bráða-
birgðasamningur hefði þegar ver-
ið undirritaður. Kaupverð skips-
ins yrði 16,5 milljónir banda-
ríkjadala eða rösklega 3,1
milljarður fsl. króna.
Þeir Jan Fossbakk, fram-
kvæmdastjóri Norglobal, og Rolf
Hjelseth, skipamiðlari f Ósló,
sögðu hins vegar f samtali við
Morgunblaðið f gær, að ekki væri
búið að ganga frá samningum um
sölu á skipinu til tslands, hins
vegar sögðust þeir hvorki geta
játað né neitað að slfkt stæði jafn-
vel til.
Magnús Magnússon sagði þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í
gær, að eigendur Hafskips hefðu i
febrúarmánuði s.l. farið að huga
að kaupum á bræðsluskipi. Fljót-
lega hefði komið í ljós, að aðeins
tvö skip kæmu til greina,
Norglobal og svo annað skip, sem
nýbúið var að selja er þeir könn-
uðu kaup á því.
„í fyrstu voru eigendur
Nórglobal ekki til viðræðu um að
selja skipið, en síðan breyttist af-
staða þeirra og hinn 16. marz s.l.
gerðum við bráðabirgðasamning
um kaup á skipinu, og höfum við
nú látið sjávarútvegsráðherra
vita af málinu. Kaupverð skipsins
er 3,150 milljónir króna eða 16,5
millj. dollara. Við höfum frest til
15. maí til að taka ákvörðun um
kaup eða ekki,“ sagði Magnús.
Þá sagði hann, að hann og fleiri
menn myndu brátt halda til Nor-
egs til að skoða skipið, en það er
nú við loðnubræðslu við N-Noreg.
Norglobal er 26. þúsund lestir
að stærð og getur brætt rúmlega
2000 lestir á sólarhring. Sem
kunnug er hefur skipið verið hér
við land í tvær loðnuvertíðir og
brætt loðnu með mjög góðum
árangri og komizt upp í að taka á
móti 80 þúsund lestum af loðnu á
vertíð.
Eyjar:
Tvíkviknaði í Fesinu
15-20 milljóna kr. tjón
ELDUR kom tvisvar upp í
Fiskimjölsverksmióju
Einars Sigurðssonar í Vest-
mannaeyjum í gær. Um
miðnætti í fyrrakvöld
kviknaði í einum af
þremur þurrkurum verk-
smiðjunnar og logaði um
tíma upp úr reykháfum
nokkrar skemmdir hlutust
af.
FESIÐ, eins og verk-
smiðjan er kölluð í daglegu
tali hefur tekið á móti
34700 tonnum af loðnu en
verksmiðjart bræðir um
800 tonn á sólarhring.
IJósmynd Mhl. SÍRurReir í Kyium.
Framkvæmdastjóri skipsins:
„Ekki búið að ganga
frásamningum,,
13 bátar með 3080 lestir
Sigvaldi Kaldalóns tónskáld.
Frá kl. 15 í fyrradag fram til kl.
18 í gær tilkynntu 13 loðnuskip
um afla samtals 3080 lestir, en
loðnuna fengu skipin í Reykjanes-
röst og í Faxaflóa. Enn hefur ekk-
ert bólað á loðnunni sem menn
vænta að komi að Snæfellsnesi.
Rannsóknarskipið Árni Friðriks-
son fór í lóðnuleiðangur í fyrra-
kvöld og var í gær staddur norður
af Snæfellsnesi, en ekkert hafði
frétzt um hvort einhver loðna
hefði fundist þar i gærkvöldi.
Skipin sem tilkynntu um afla i
gær voru þessi: Stapavík SI 280
lestir, Albert GK 360, Isleifur VE
380, Huginn VE 300, Sigurður RE
120, Gísli Árni RE 150, Gunnar
Jónsson VE 200, Jón Finnsson GK
140 Helga 2. RE 200, Börkur NK
370, Fífill GK 150, Kap 2. VE 100
og Örn KE 380 lestir.
Borgarráð samþykkir
að gera minnisvarða
um Sigvalda Kaldalóns
BORGARRÁÐ samþykkti á
fundi á þriðjudaginn til-
lögu um að láta gera
minnisvarða um Sigvalda
Kaldalóns tónskáld og setja
hann upp í Reykjavík. Enn-
fremur samþykkti borgar-
ráð að athuga möguleika á
varðveizlu húss þess við
Garðastræti, er skáldið
fæddist i. Albert
Guðmundsson borgarfull-
trúi flutti framangreinda
tillögu. Tillagan var sam-
þykkt með þremur sam-
hljóða atkvæðum i borgar-
ráði.
INNLENT
Slökkviliðið f Eyjum brá
skjðtt við og kom f veg
fyrir stðrskemmdir tvíveg-
is á einum sólarhring f
Fiskimjölsverksmiðju
Einars Sigurðssonar f
Eyjum.
verksmiðjunnar. Slökkvi-
liðið í Eyjum kom mjög
skjótt á vettvang og náði að
slökkva eldinn á skömmum
tíma og koma í veg fyrir
stórskemmdir. Var allur
reykháfurinn rauðglóandi
niður í gólf um tíma og
eyðilagðist 15—20 millj. kr.
blásari við reykháfinn, en
tækið svo gott sem bráðn-
aði niður í hitanum. Vegna
þessa óhapps stöðvaðist
vinnsla í verksmiðjunni til
hádegis í gær, en skömmu
eftir að aftur var sett í
gang þar, kviknaði í sama
þurrkaranum á ný, en
slökkviliðinu tókst að ráða
niðurlögum eldsins áður en
Húsnæði fyrir Rannsóknarlögreglu ríkisins:
„Erum að athuga með hús í
Kópavogi en ekkert er afráðið”
JL Ljósm. Mbl. RAX.
— segir Eiríkur Tómasson,
adstodarmadur rádherra
—JÚ, það er rétt, við höfum
verið að athuga með húsnæði f
Kópavogi fyrir Rannsóknarlög-
reglu ríkisins en ekkert hefur
verið ákveðið 1 þeim efnum,
sagði Eirfkur Tómasson, að-
stoðarmaður dómsmálaráð-
herra, f samtali við Mbl. í gær
en Eirfkur hefur unnið að þvf
fyrir hönd ráðuneytisins að
finna húsnæði fyrir hina nýju
stofnun. Húsnæði það, sem um
ræðir, er Auðbrekka 61 f Kópa-
vogi.
Eiríkur staðfesti það, að
starfsmenn rannsóknarlögregl-
unnar í Reykjavík, sem flestir
hverjir munu starfa við hina
nýju Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins, væru óánægðir með staðar-
valið.
„Þeir hafa bent á ýmis atriði,
Framhald á bls. 19
Auðbrekka 61 f Kópavogi, en
rfkið hefur til athugunar að
kaupa þetta hús fyrir Rann-
sóknarlögreglu rfkisins.