Morgunblaðið - 07.04.1977, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ-FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1977
51
Bjarm asamt þremur ^mástirnum i Hollywood.
sem ég gekk lengi með, eins og
ólétt kona. Ég safnaði fé, smakk-
aði ekki neitt, sparaði og var nirf-
ill, eins og Sæfinnur með sextán
skó, og fastákvað að fara til Amer-
iku.“
Vestur
um haf
stofum kvikmyndafélaganna og
kvikmyndaverum i borginni
lokað. Hollywood hafði nú tögl og
hagldir i kvikmyndaframleiðsl-
unni. Bandaríkjamenn voru einn-
ig orðnir þátttakendur í
styrjaldarrekstrinum og atvinnu-
ástand versnaði. Bjarni lagði á
flótta til Winnipeg, eins og hann
segir sjálfur.
Varla hefur þetta verið létt
ákvörðun. Bjarni hafði eftir að
hann kom heim kynnst ungri
stúlku, Torfhildi Dalhoffsdóttur,
og trúlofast. Árið 1916 fæddist
eldri dóttir þeirra, Katrín, og var
hún á fyrsta ári þegar Bjarni
heldur vestur um haf. Að sögn
Bjargar, yngri dóttur Bjarna, var
þó alltaf í ráði að þær mæðgur
færu á eftir honum, þegar Bjarní
væri búinn að koma sér fyrir og
afkoma þeirra tryggð. En það
varð bið á því — 13 ár liðu þar til
endurfundir urðu að nýju og þá
hér heima á Fróni, þegar Bjarni
sneri aftur og kom jafnvel snauð-
ari að veraldlegum auði en hann
hafði farið héðan en reynslunni
ríkari.
Leið Bjarna lá fyrst til New
York en síðan til Chicago þar sem
hann fékk inni hjá norskum vini
sínum, blaðamanni sem hann
hafði kynnst á Kaupmanna-
hafnarárum sinum. Hann fékk
þar fyrst vinnu við leiktjalda-
málun en eftir því sem hann náði
betri tökum á málinu, fór hann að
nálgast kvikmyndafélögin og
skrifstofur þeirra, þvi að höfuð-
vígi kvikmyndaiðnaðarins hafði
allt til þess tíma verið í Chicago,
enda þótt Hollywood væri þá
tekin að sækja mjög á og laða til
sin kvikmyndamenn vestur á bóg-
inn. Bjarni fékk loks tækifæri i
kvikmynd um atvinnurekstur,
enda gerði félagið sem hann vann
fyrst fyrir eingöngu auglýsinga-
myndir. Siðan fylgdu nokkur
smáhlutverk hjá Essany, öðru
helzta kvikmyndafélagi álfunnar
um þær mundir. Chaplin hafði
starfað hjá því um tima og gerði
þar ýmsar þekktar myndir en
hann hafði haldið til Kalíforniu
árið áður en Bjarni kom til Chi-
cago. Og rétt í þann mund sem
Bjarni var að byrja kvikmynda-
leik sinn í Chicago, var skrif-
+ t tslendinga-
byggðum
Vestur-Islendingar tóku Bjarna
opnum örmum. Hann hélt
skemmtanir víða í Islendinga-
byggðum. Dómarnir sem hann
fékk i vesturheimskum blöðum
voru ekki af lakara taginu: „Svo
var lófaklappið og hlátrasköllin
mikil á samkomu Bjarna Björns-
sonar, að húsið lék á reiðiskjálfi
af hlátri áheyrenda. — Kona ein i
næsta húsi hélt að kviknað væri í
húsinu og fór að grennslast eftir
hvað um væri að vera. „En það
var þá bara hann Bjarni,“ segir
eitt blaðanna og annað blað segir
þessa sögu: „Meira en húsfyllir
var á samkomu Bjarna Björns-
sonar. Sagt að svo hátt hafi verið
hlegið að raftar hafi brotnað i
húsinu af titringi."
1 Kanada bjó Bjarni hjá systur
sinni i góðu yfirlæti að því er
virðist. Bjarni átti þar þátt í því
að setja á stofn leikflokk til að
leika með frú Stefaníu Guð-
mundsdóttur, sem fór frækna
leikför um Islendingabyggðir
ásamt börnum sínum Öskari,
Önnu og Emilíu Borg. Leikritið
sem fyrst var flutt var Kinnar-
hvolssystur og enn lék Bjarni
bergkónginn. Sýningin vakti
stormandi hrifningu og var leik-
sigur fyrir Bjarna ekki siður en
fyrir frú Stefaníu. „Og það skyldu
fáir ætla, að betlaragarmurinn,
lotinn og skjálfraddaður, væri
sami maðurinn og hinn mikil-
úðlegi og tignarlegi bergkon-
ungur, með hreimmikla róminn
og valdsmannsbraginn; og allra
sízt að þetta væri hann Bjarni,"
segir einn gagnrýnandinn og i
öðrum leikdómi: „. . .og höfum
vér aldrei séð eða heyrt neitt til
Bjarna, sem hann hefur leyst eins
vel af hendi og þetta hlutverk —
Það er heimsborgarabragur á Bjarna á þessari mynd en um
tilefnið er ekki vitað.
Nú er allur
Thule bjórlnn
framleiddur undir
sérstöku eftirliti
í rannsóknarstofu
okkar.
NÚ JAFNAST EKKERT ÖL
Á VIÐ THULE-ÖL
SANA — AKUREYRI
i