Morgunblaðið - 07.05.1977, Page 1
32 SIÐUR OG LESBOK
102. tbl. 64. árg.
LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Norðmenn
fresta olíu-
leit fyrir
norðan
62. gráðu
Ósló 6. maí NTB.
BJARTMAR Gjerde, iðnaðar-
ráðherra Noregs, sagði í yfirlits-
ræðu um olfumál Norðmanna f
Stórþinginu í dag, að Ekofisk-
óhappið gæfi ekki tilefni til
breytinga á höfuðstefnu norskra
stjórnvalda f olfumálum, en hins
vegar væri fjóst, að ekki væri
grundvöllur fyrir þvf að hefja
olíuboranir fyrir norðan 62.
breiddargráðu árið 1978 eins og
ráðgert hefði verið. Ástæðan fyrir
þessu er, að rfkisstjórnin vill fá
nákvæma skýrslu um öryggis- og
viðbúnaðarmál f kjölfar Ekofisk-
óhappsins. Gjerde sagði að Norð-
menn héldu áfram þróun olfuiðn-
aðar síns með hæfilegum hraða,
en sú þróun yrði undir ströngu
eftirliti og stjórn norskra yfir-
valda.
I ræðu ráðherrans kom fram, að
þegar skýrslan um Ekofisk málið
og aðrar skýrslur f tengslum við
það liggja fyrir verða þær lagðar
fyrir Stórþingið til umræðna áður
en ríkisstjórnin tekur ákvörðun
um frekari olíuleit fyrir norðan’
62. breiddargráðu. Ljóst sé að
skýrslugerð þessi muni taka tals-
verðan tíma, þvf að i mörg horn
þurfi að líta. Gjerde sagði hins
vegar að ríkisstjórnin stæði fast á
Framhald á bls. 18
Umsátur
í Moskvu
Moskvu, 6. maí. AP. Reuter.
RÚMLEGA 100 sovézkir lög-
reglumenn og starfsmenn
leynilögreglunnar umkringdu
sendiráð Eþfópfu f Moskvu f
dag eftir að fréttir bárust um
mótmælaaðgerðir eþfópfskra
stúdenta f byggingunni.
Rúmum fjórum klukkutim-
um eftir að lögreglan kom á
vettvang komu 57 stúdentar út
úr byggingunni og neituðu að
ræða málið. Meðan þessu fór
fram fór þjóðhöfðingi Eþíópfu,
Mengistu Heile Mariam of-
ursti, frá Moskvu til Leníngrad
eftir þriggja daga viðræður við
sovézka embættismenn.
Framhald á bls. 18
Frá setningu landsfundar Sjálfstæðisflokksins í gær.
Geir Hallgrímsson í landsfundarræðu:
Aðgerðir í skatta-, lífeyr-
is- og húsnæðismálum
— til að stuðla að lausn kjaradeilunnar
Sjá ræðu
Geirs Hallgrfmssonar
f heild á miðopnu
U _________i nena a mioopnu_____^
LANDSFUNDUR Sjálfstæðis-
flokksins var settur í Háskólabfói
sfðdegis í gær að viðstöddum
900—1000 landsfundarfulltrúum
og öðrum gestum. Geir Hallgrfms-
son, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, setti landsfundinn og skipaði
dr. Gunnar Thoroddsen, varafor-
mann Sjálfstæðisflokksins,
fundarstjóra, en fundarritarar
voru tilnefndir þau Salóme Þor-
kelsdóttir, Mosfellssveit og Högni
Þórðarson, tsafirði.
Geir Hallgrímsson gerði
viðhorfin f kjaramálum nú m.a.
að umtalsefni og sagði, að á
grundvelli þeirra athugana, sem
fram hefðu farið, teldi hann lík-
legt, að rfkisstjónin mundi grfpa
til aðgerða í skatta- og lffevris-
málum og f vinnuverndar- og
húsnæðismálum til lausnar kjara-
deilunni. Hins vegar sagði for-
sætisráðherra, að það mundi
byggjast á stöðunni f kjara-
viðræðum hvenær endanlegar
ákvarðanir um þessar aðgerðir
yrðu teknar. Geir Hallgrfmsson
sagði svigrúm ríkisstjórnarinnar
Spenna í upphafí
leiðtogafundarins
London 6. maí. Reuter-AP.
NOKKUR spenna og eftirvænting
rfkti f kvöld í London f sambandi
við toppfund leiðtoga 7 auðug-
ustu iðnrfkja á Vesturlöndum,
sem hefst þar f borg á morgun,
laugardag. Tilgangur fundarins
er að sýna einingu meðal þjóð-
anna 7, Bandarfkjanna, Bret-
lands, Kanada, V-Þýzkalands,
Frakklands, Japans og ttalfu, en
djúpur ágreiningur rfkir á mörg-
um sviðum milli Bandarfkjanna
annars vegar og Frakklands og
V-Þýzkalands hins vegar vegna
orkumála og sölu á kjarnorku-
verum milli þjóða.
V-Þjóðverjar tóku vel tillögum
Carters um orkumál, sem hann
kynnti bandarisku þjóðinni í fyrri
viku, en sama verður ekki sagt
um bann hans við sölu á kjarn-
orku til annarra þjóða, til að fyrir-
byggja að þær geti smíðað eigin
kjarnorkuvopn. Tilraunir Carters
til að koma í veg fyrir að Frakkar
og V-Þjóðverjar selji stjórnum
Brazilíu, Pakistan og S-Kóreu
kjarnorkuver hafa hleypt illu
blóði i samskipti þessara þjóða.
V-þýzka stjórnin heldur þvi
fram og nýtur þar m.a. stuðnings
Japana, að þær þjóðir heims, sem
ekki búa yfir olíu- og gaslindum
verði að eiga aðgang að þróun
kjarnorku. Carter er ekki ósam-
mála þessu, en hann vill að langt-
um strangari eftirlitsreglur með
Framhald á bls. 18
Volvo
og Saab
sameinast
Stokkhólmi 6. mai NTB.
STJÓRNIR sænsku Saab- og
Volvo-bifreiðaverksmiðjanna
ákváðu f dag að sameina fyrir-
tækin. Var þessi ákvörðun tek-
in til að styrkja stöðu sænsks
bflaiðnaðar á heimsmarkaði,
að því er skýrt var frá f Stokk-
hólmi f dag. Mun fyrirtækið f
framtfðinni heita Volvo-
Saab-Scania.
Forstjóri Volvo, Pehr
Byllenhammar, verður for-
stjóri hinnar nýju samsteypu
og verða aðalstöðvar hennar í
Gautaborg. Á blaðamanna-
fundi i dag skýrðu forráða-
menn fyrirtækjanna tveggja
frá því, að með sameiningunni
yrði auðveldara fyrir Svia að
mæta aukinni samkeppni í bif-
reiðaiðnaðinum og draga úr
Framhald á bls. 18
takmarkast fyrst og fremst af
fjárhag rfkissjóðs. Utilokað væri
að stefna f hallarekstur rfkissjóðs
á þessu ári vegna þess, að af því
mundi leiða aukna verðbólgu,
sem öllum yrði til tjóns. Þá sagði
forsætisráðherra, að hann gerði
ráð fyrir, að úrræðin f skatta- og
lffeyrismálum yrðu þyngst á
metunum og auðveldast að mæla
þau í auknum kaupmætti launa.
Geir Hallgrímsson kvað eðli-
legt, að rikisstjórnin greiddi fyrir
kjarasamningum milli samtaka
launþega og vinnuveitenda, en þó
aðeins á þeirri forsendu að kjara-
samningarnir feli ekki i sér meiri
aukningu kaupmáttar ráð-
stöfunartekna en þjóðartekjur og
samdráttur annarra útgjalda
þjóðfélagsins gefa svigrúm til.
Ennfremur hlyti það að vera for-
senda aðgerða af rikisins hálfu,
að kjarasamningar horfi til launa-
jöfnunar.
í setningarræðu sinni á Lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins
fjallaði Geir Hallgrimsson um
viðhorfin í landhelgismálum og
til EBE og kvaðst telja nauðsyn-
legt fyrir íslendinga að ná
samningum um fiskvernd við sem
flestar þjóðir á N-Atlantshafi
þannig að ríkisstjórnir væru
gagnkvæmt skuldbundnar til þess
að gera ráðstafanir í þvi skyni að
takmarka sókn í þá fiskstofna,
Framhald á bls. 18