Morgunblaðið - 10.05.1977, Side 12

Morgunblaðið - 10.05.1977, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAl 1977 Frumvarp um hlut afélagalög: Verðbréf NÝLEGA var lagt fram á Alþingi frumvap til laga um hlutafélaga- lög. Þetta frumvarp felur f sér á margan hátt verulegar breytingar frá núgildandi lögum auk þess sem það er mun ítarlegra en lögin frá 1921 eins og sjá má af þvf að frumvarpið er í 160 greinum en gildandi lög eru aðeins 60 grein- ar. Þetta frumvarp er samið f tengslum við ný hlutafélagalög á hinum Norðurlöndunum, en þð aðallega sniðið eftir dönsku hlutafélagalögunum. Hér verður gerð grein fyrir helztu atriðum frumvarpsins og helztu breyting- um frá núgildandi lögum. Hlutafé I frumvarpinu er gert ráð fyrir því, að lágmarksfjárhæð hlutafjár skuli vera ein milljón króna, í stað 2.000 króna eins og nú er. Sú upphæð hefur verið óbreytt frá þvi 1921, þegar hún taldist há, þannig að með hliðsjón af verð- lagsþróun er hún úr tengslum við veruleikann. Við skráningu nýs hlutafélags þarf þó ekki nema helmingur heildarhlutafjár, þó aldrei minna en 600 þúsund, að vera greiddur fyrr en að ári. í gildandi lögum þarf aðeins fjórð- ungur lofaðs hlutafjár að vera greiddur, en lágmarksupphæð ekki tiltekin þannig að nú er hægt að stofna og fá skrásett hlutafélag með aðeins 500 króna hlutafjár- innborgun. Fjöldi hluthafa Samkvæmt gildandi lögum mega hluthafar ekki vera færri en fimm, en frumvarpið gerir ráð fyrir þvi að lágmarksfjöldi hlut- hafa og stofnenda verði tíu. Til- gangurinn með þessu mun vera að hamla gegn svo kölluðum gervihlutafélögum. Ef hluthafar verða færri en tíu skal hlutafélag- inu slitið. Samstædur Gagnstætt því sem er í núgild-. andi lögum eru ákvæði i frum- varpinu um fyrirtækjasamstæð- ur, sem meðal annars fela það i sér, að ef hlutafélag á svo mikinn hluta hlutafjár i öðru félagi að það fari með meirihluta atkvæða eða hafi yfirráð i félaginu, þá telst hið fyrrnefnda móðurfélag en hið síðarnefnda dótturfélag. Þessi ákvæði miða að þvi að koma í veg fyrir óeðlilega skiptingu gjalda og tekna milli félaga innan hlutafélagasamstæðu, þar sem þau gera ráð fyrir því, að félögin skoðist sem ein lagaleg og fjár- hagsleg heild. Stofnun hlutafélags Frumvarpið felur í sér tölu- verðar breytingar frá gildandi lögum varðandi aðferð og undir- búning að stofnun hlutafélags. Meðal annars er breytt ákvæðum um fjölda stofnenda og skilyrð- um, sem þeir skulu uppfylla. Sam- kvæmt gildandi lögum skulu stofnendur ekki vera færri en fimm lögráða menn, fjár sins ráð- andi og öðrum þeim kostum bún- ir, sem þeir skyldu hafa sam- kvæmt lögum til þess að reka i eigin nafni atvinnu fyrirhugaðs félags eða til að eiga þær eignir, sem félaginu er ætlað að eiga. Frumvarpið gerir hins vegar ráð fyrir þvi, að stofnendur skuli vera tíu hið fæsta og minnst helmingur þeirra skal hafa heimilisfesti á tslandi. í gildandi lögum er það skilyrði, að stofnendur hluta- félags séu einstaklingar. Þetta ákvæði er orðið úrelt og því breytt þannig að auk einstaklinga geta ýmsir lögaðilar verið stofn- endur að hlutafélagi, svo sem ríki, sveitarfélög, samvinnufélög, hlutafélög og fleiri. Önnur ákvæði um stofnun hlutafélaga eru samkvæmt frumvarpinu ýtar- legri og strangari en gildandi lög, enda hefur verið á það bent, að það sé einkum við stofnun hluta- félaga, sem hætta sé mest á mis- ferli. Hækkun hlutafjár í frumvarpinu felast fyllri ákvæði um hækkun hlutafjár, þar sem ákvæði gildandi laga um þetta atriði eru mjög ófullkomin. Sömu sjónarmið eiga að miklu leyti við um hækkun hlutafjár og stofnun félags. Ákvæðin um hækkun hlutafjár miða þannig einkum að því, að tryggja það að félagið fái raunveruleg verðmæti sem greiðslu á hlutum og að væntanlegir áksrifendur að nýju hlutafé eigi aðgang að nauð- synlegum upplýsingum um hag félagsins, áður en þeir taka ákvörðun um áskrift. Við hækkun hlutafjár er ennfremur reynt að gæta hagsmuna eldri hluthafa og því eru settar reglur, sem tryggja hag þeirra. Hækkun hlutafjár get- ur verið fólgin i áskrift nýrra hluta eða útgáfu jöfnunarhluta- bréfa og eru settar reglur um hvort tveggja. Þá felur frumvarpið í sér nokkrar breytingar á reglum um lækkun hlutafjár og miða breyt- ingarnar aðallega að þvi að tryggja að hagur lánardrottna skerðist ekki Við lækkunina. Eigin hlutabréf Mikilvægar breytingar eru gerðar frá gildandi lögum varð- andi eigin hlutabréf félags. Frum- varpið felur í sér að hlutafélagi verði ekki heimilt að eiga meir en 10% af greiddu hlutafé sínu. Samkvæmt gildandi Iögum er félögum heimilt að eiga allt að 10% af eigin hlutafé, en ráðherra hefur getað veitt leyfi til að auka eigin hlutabréfaeign, þannig að sú venja hefur skapazt, að hluta- félög hafa átt allt að 30% af eigin hlutafé. Þessi venja hefur ýmsa ókosti i för með sér og er því talið rétt að afn'ema hana. Samkvæmt gildandi lögum hefur félagsstjórn ráðið yfir atkvæðisrétti, sem fylgt hefur eigin hlutabréfum félags. Samkvæmt frumvarpinu skulu eigin hlutir félags eða hlutir, sem dótturfélag á í móðurfélagi, ekki njóta atkvæðisréttar. Félagsstjórn Meðal nýmæla er, að heimilt er í samþykktum að veita stjórnvöld- um eða öðrum rétt til að tilnefna HAPPDR/ETTISSKULDABREF RIKISSJÓÐS UPPLÝSINGATAFLA FLOKKUR HÁMARKSLÁNS ÚTDRÁTT- VINN ÁRLEGUR VÍSITALA VERÐ PR. KR. MEOALVIRK- TÍMI = INN- ARDAGUR INGS % FJÖLDI 01 02 1977 100 MIÐAÐ VIÐ IR VEXTIR F. LEYSANLEG í **) VINNINGA 682 STIG. VÍSITÓLU TEKJUSKATT SEÐLABANKA HÆKKUN 1 % 01 02 1977 FRÁ ÚTG. D FRÁ OG MEO *) ...» ***) 1972-A 15.03.1982 15.06 7 255 334.39 434.39 35.2% 1973-B 01.04.1983 30.06 7 344 272.68 372.68 41.3% 1973-C 01.10.1983 20.12 7 273 224.76 324.76 42.0% 1974-D 20.03.1984 12.07 9 965 181.82 281.82 43.6% 1974 E 01.12.1984 27.12 10 373 99.42 199.42 35.6% 1974 F 01.12.1984 27.12 10 646 99.42 199.42 37.0% 1975-G 01.12.1985 23.01 10 942 38.90 138.90 31.0% 1976-H 30.03.1986 20.05 10 942 34.52 134.52 42.8% 1976-1 30.11.1986 10.02 10 598 5.74 105.74 39.7% *) Happdrettisskuldabréfin eru ekki innleysanleg, fyrr en hámarkslánstfma er náð. **) Heildarupphæð vinninga I hvert sinn. miðast við ákveðna % af heildarnafnverði hvers útboðs. Vinningarnir eru því óverðtryggðir. ***) Verð happdrættisskuldabréfa miðað við framfærsluvfsitölu 01.02.1977 reiknast þannig: Happdrættisskuldabréf, flokkur 1974-D að nafnverði kr. 2.000.-, hefur verð pr. kr. 100.- = kr. 281.82. Verð happdrættisbréfsins er þvf 2.000 x 281.82/100 = kr. 5.636.- miðað við framfærsluvfsitöluna 01.02. 1977. •***) Meðalvirkir vextir p.a. fyrir tekjuskatt frá útgáfudegi, sýna upphæð þeirra vaxta, sem rlkissjóður hefur skuldbundið sig að greiða fram að þessu. Meðalvirkir vextir segja hins vegar ekkért um vexti þá, sem bréfin koma til með að bera frá 1.11. 1976. Þeir segja heldur ekkert um ágæti einstakra flokka, þannig að flokkur 1974-F er alls ekki lakari en t.d. flokkur 1974-D. Auk þessa greiðir rfkissjóður út ár hvert vinninga ( ákveðinni % af heildarnafnverði flokkanna. VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS FLOKKUR HÁMARKS LÁNSTÍMI TIL*) INNLEYSANLEG ÍSEÐLABANKA FRÁ OG MEÐ RAUN- VEXTIR FYRSTU 4—5 ÁRIN %") MEÐAL TALS- RAUN VEXTIR % VÍSITALA 01 04 1977: 135 (2637) STIG HÆKKUN í % VERÐ PR KR. 100 MIÐAÐ VIO VEXTI OG VÍSITÖLU 01 04 1977.***) MEÐALVIRK IR VEXTIR F. TSK. FRÁ UTGÁFUDEGI 1965 10.09.77 10.09.68 5 6 1.027.85 2.192.54 30.6 1965-2 20.01.78 20.01.69 5 6 901.12 1.900.63 30.1 1966 1 20.09.78 20.09.69 5 6 851.25 1.726.49 31.1 1966 2 15.01.79 15.01.70 5 6 812.29 1.619.35 31.4 1967-1 15.09.79 15.09.70 5 6 796.98 1.522.36 33.0 1967-2 20.10.79 20.10.70 5 6 796.98 1.512.51 33.3 1968 1 25.01.81 25.01.72 5 6 751.27 1.322.22 37.1 1968 2 25.02.81 25.02.72 5 6 705.12 1.243.77 36.5 1969 1 20.02.82 20.02.73 5 6 539.47 929.29 36.8 1970-1 15.09.82 15.09.73 5 6 508.88 855.17 38.8 1970-2 05.02.84 05.02.76 3 5.5 410.11 629.09 34.8 1971-1 15.09.85 15.09.76 3 5 399.63 595.27 38.0 1972-1 25.01.86 25.01.77 3 5 343.28 518.85 37.4 1972-2 15.09.86 15.09.77 3 5 291.36 447.79 39.1 1973-1A 15.09.87 15.09.78 3 5 213.36 347.98 42.2 1973-2 25.01.88 25.01.79 3 5 192.77 321.65 44.4 1974-1 15.09.88 15.09.79 3 5 107.21 223.40 37.2 1975-1 10.01.93 10.01.80 3 4 71.02 182.64 31.1 1975-2 25.01.94 25.01.81 3 4 34.59 139.38 32.5 1976-1 10.03.94 10.03.81 3 4 28.57 132.65 30.7 1976-2 25.01.97 25.01.82 3 3.5 7.14 107.72 50.8 1977-1 25.03.97 25.03.83 3 3.5 0.00 100.04 — Miklar breytingar frá gildandi lögum einn eða fleiri stjórnarmenn. Þetta gefur meðal annars mögu- leika á því að starfsmenn geti tilnefnt fulltrúa í stjórnina. Meirihluti stjórnar skal þó alltaf kosinn af hluthafafundi, sam- kvæmt frumvarpinu. í félögum þar sem hlutaféð er tiu milljónir króna eða meira, skal stjórnin ráða einn eða fleiri framkvæmda- stjóra. Samkvæmt frumvarpinu eru skilyrðin, sem stjórnarmenn og framkvæmdastjórar verða að uppfylla, þau, að þeir skulu vera lögráða, fjár síns ráðandi og mega ekki hafa hlotið dóm fyrir refsi- verðan verknað samkvæmt 68. grein almennra hegningarlaga. Stjórnarmenn verða hins vegar ekki að eiga hlut í félaginu eins og gildandi lög kveða á um. Fram- kvæmdastjórar og meirihluti stjórnar skulu búsettir á íslandi en ráðherra getur veitt undan- þágu frá þeirri reglu. Frumvarpið felur í sér ýtarlegar reglur um fundi félagsstjórnar, starfssvið og starfsskyldur hennar og fram- kvæmdastjóra en ákvæði um þessi atriði eru fátækleg í gild- andi lögum. Þá skal heimilt að ákveða í samþykktum að hlut- hafafundur kjósi auk félags- stjórnar fulltrúanefnd, sem skal *) Kftir h&markslánsttma njóta sparisktrteinin ekki lengur vaxta né verótryggingar. **) Raunvextir t&kna vexti (nettó) umfram veróhvkkanir eins og þcr eru meldar skv. byggingarvttitölunni. ***) Veró sparisktrteina mióað vió vexti og vtsitölu 01.04. 77 reiknast þannig: Sparisktrteinl flokkur 1972-2 aó nafnverói kr. 50.000 hefur veró pr. kr. 100 = kr. 447.79. Heildarveró sparisktrtelnisins er þvt 50.000 x 447.79/100 = kr. 223.895 mióað vió vexti og vlsitölu 01.04. 1977. •*••) Meðalvirkir vextlr fyrir tekjuskatt frá útgifudegi sýns heildaruppheó þeirra vaxta, sem rfkissjóóur hefur skuldhundió sig til að greióa fram aó þessu, þegar tekió hefur verið tillit til hækkana á byggingavlsitölunnl. Meðalvirkir vextlr segja hins vegar ekkert um vexti þá. sem bréfin koma til meó aó bera frá 01.04. 1977. Þelr segja heldur ekkert um ágæti einstakra flokka. þannig aó flokkar 1966 eru alls ekki lakari en t.d. flokkur 1973-2. Þessar upplýsingatöflur eru unnar af Verðbréfamarkaði Fjárfestingafélags fslands. Arður Nokkur nýmæli eru í frumvarp- inu varðandi arðsúthlutanir og varasjóði, þar á meðal að settar eru reglur um hverju sé unnt að úthluta sem arði. Kveðið er á um skyldu til að leggja í varasjóð og hversu mikinn hluta árságóða beri að leggja i slikan sjóð. Enn- fremur eru ákvæði um hvernig nota megi varasjóð. Settar eru reglur um ákvörðun um arðsút- hlutun og í þvi sambandi er minnihluta hluthafa tryggður réttur til arðgreiðslu að vissu marki. Ákvæði er um það að lán- veitingar félags til hluthafa, stjórnarmanna eða framkvæmda- stjóra séu þvi aðeins heimilar, að fullnægjandi trygging sé sett og aðeins að þvi marki, sem eigið fé félagsins er hærra en hlutafé. Félagsslit Ástæðum, sem leiða til félags- slita, er fjölgað frá gildandi lög- um, og eru nýjar ástæðum þessar: Ef hluthafar verða færri en tíu skal félagi slitið. Þegar félagið hefur ekki tilkynnt hlutafélaga- skrá um stjórn og stjórnarmenn, sem fullnægja skilyrðum eða hef- ur ekki ráðið framkvæmdastjóra þegar þess er krafizt í frumvarp- inu. Þegar ársreikningar, sam- þykktir og endurskoðaðir, hafa ekki verið sendir hlutafélagaskrá fyrir síðustu þrjú reikningsár. Skráning Frumvarpið gerir ráð fyrir verulegum breytingum á fyrir- komulagi skráningar hlutafélaga. Samkvæmt gildandi lögum fer skráning fram í hverju lögsagnar- Framhald á bls. 29 hafa eftirlit með því hvernig félagsstjórn og framkvæmda- stjóri ráða málum félagsins og láta aðalfundi í té umsögn um, hvort samþykkja beri ársreikn- inga félagsins og tillögu stjórnar um ráðstöfun hagnaðar. Hluthafafundir Gagnstætt því sem er í gildandi lögum kveður frumvarpið ýtar- lega á um hluthafafundi. Miðar frumvarpið að því að auka og af- marka réttindi einstakra hlut- hafa. Þannig eru ákvæði, sem eiga að tryggja minnihluta hlut- hafa ákveðna vernd. Meðal ný- mæla og breytinga er að hluthöf- um er heimilt að láta umboðs- menn sækja hluthafafundi eða hafa ráðgjafa með sér á slfka fundi. Reynt er að sporna við óhóflegu valdi einstakra hluthafa með öðrum og raunhæfari hætti en gert er i gildandi lögum. Þá fá einstaka hluthafar rétt til að fá ákveðin mál tekin upp á hluthafa- fundi með skriflegri kröfu. Ef félagsstjórn vanrækir að boða til hluthafafundar, þegar henni er það skylt, ber ráðherra að láta boða til fundar, ef krafa kemur fram um það frá tilteknum aðil- um. Umboðsmaður ráðherra stýr- ir þeim fundum, sem þannig er boðað til. Þá eru sett nákvæm ákvæði um boðun hluthafafund- ar, stjórn þeirra og skyld atriði, en þessi mál hafa oft valdið ágreiningi í hlutafélögum. Endurskoðun og rannsóknir Meðal atriða, sem snerta ákvæði frumvarpsins um endur- skoðun reikninga og sem eru ný- mæli, er réttur, sem minnihluta hluthafa er veittur til að krefjast þess að ráðherra tilnefni endur- skoðanda til starfa að endurskoð- un ásamt kjörnum endurskoðend- um. Hlutafélög yfir ákveðinni stærð skulu kjósa löggiltan endur- skoðanda, en verði misbrestur á því skal ráðherra tilnefna endur- skoðanda samkvæmt tilmælum hluthafa, stjórnarmanns eða framkvæmdastjóra. Þá getur hluthafi krafist rann- sóknar á stofnun félags, tilgreind- um atriðum varðandi starfsemi þess eða ákveðnum þáttum bók- halds eða ársreiknings. Hljóti slík krafa fylgi hluthafa, sem ráða að minnsta kosti 'A hlutafjárins, get- ur hluthafi farið þess á leit við ráðherra, að hann tilnefni rann- sóknarmenn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.