Morgunblaðið - 10.05.1977, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1977
Fyrsta viðtalið af fjórum, sem brezki
sjónvarpsmaðurinn David Frost hefur
haft við Nixon, fyrrum Bandaríkja-
forseta, og sýnt var í Bandaríkjunum í
siðustu viku, vakti að vonum gífurlega
athygli og er talið að um 45 milljónir
Bandaríkjamanna hafi horft á þáttinn,
sem er mesti fjöldi sem nokkurn tima
hefur fylgzt með viðtalsþætti. I
viðtalinu viðurkenndi Nixon sem
kunnugt er, að hann hefði brugðizt
bandarisku þjóðinni með því að ljúga
og vanvirða stjórnarskráreið sinn og
taka þátt í að reyna að hylma yfir
Watergatemálið. Hins vegar neitaði
Nixon því algerlega að hann hefði gerzt
sekur um glæpsaiplegt athæfi, eða
athæfi, sem réttlætt hefði getað að
Bandaríkjaþing ræki hann úr embætti.
Nixon sagði að það sem hann hefði
gert, hefði eingöngu verið af pólitísk-
um og mannúðlegum toga spunnið. „Eg
felldi sjálfan mig og rak úr embætti
með því að segja afrnér," sagði Nixon f
þættinum og tárin streymdu niður
kinnar hans.
Skoðanakannanir, sem gerðar voru
strax eftir að þættinum hafði verið
sjónvarpað, gáfu til kynna að Nixon
hefði ekki tekizt að breyta áliti landa
sinna á honum, því að í skoðana-
könnun, sem Newsweek birti í gær,
sögðu 69% að þeir væru fullvissir um
að Nixon væri sekur um glæp, 51%
taldi að Nixon hefði logið nokkrum
sinnum í viðtalinu, 59% töldu að hann
hefði verið að hylma yfir eitthvað í
þættinum, 28% sögðust enn hafa misst
álit á honum, 47% sögðu að álit þeirra
hefði ekkert breyzt og 17% sögðust
hafa fengið meira álit á honum.
Hér á eftir fer þýðing á þeim hluta
viðtalsins þar sem Frost hvetur Nixon
til að viðurkenna að honum hafi orðið á
mikil mistök og hugsanlegt sé að hann
hafi framið glæp, að hann hafi misnot-
að völd sín og vanvirt embættiseiðinn
og að hann hafi brugðizt bandarfsku
þjóðinni og biðjist afsökunar.
Nixon: „Ég man, að þegar ég
tilkynnti Ehrlichmann og Haldeman að
þeir yrðu að segja af sér, munaði engu
að ég skrifaði inn í ræðuna, sem ég hélt
kvöldið eftir í sjónvarpi, að ég hefði
einnig ákveðið að segja af mér vegna
þess að mér fannst að ég bæri ábyrgð á
en þó ekki þannig, að ég væri sekur um
afbrotin, sem ég hef verið sakaður um,
bæri ábyrgð á vitneskju um innbrotið,
mútugreiðslum, að hafa lofað náðunum
o.s.frv. En ég sagði ekki af mér. Ég
viðurkenni að á þeim tíma velti ég
mjög fyrir mér hvort ég ætti að segja af
mér, en mér finnst ég skulda sögunni
það að benda á að frá 30. aprfl til 9.
ágúst, er ég sagði af mér, gerði ég
marga góða hluti. Við héldum 2 topp-
fundi. Eg held að ein af ástæðunum
fyrir þvíað ég vildi sitja áfram var að
ég vildi halda opinni þróuninni f sam-
skiptum Bandarfkjanna og Kína, styðja
við hinn veika friðarsamning í Viet-
nam og ýta áfram þróuninni í Miðaust-
urlöndum.
Þegar ég lít til baka og brýt
spurninguna um hvort ég hefði átt að
segja af mér til mergjar og hvað mér
finnist nú, verð ég að segja að á þessum
tfma urðu mér ekki á mistök. Ég held
að þau mistök, sem ég sé mest eftir,
hafi gerzt eftir á í ýmsum yfir-
lýsingum, sem ég gaf út. Sumar af
þessum yfirlýsingum voru villandi. I
því sambandi minnist ég greinar, sem
Ben Bradlee, ritstjóri Washington Post
Epliádag—töraiíólag
LONDON — Epli á dag
kemur heilsunni f lag —
en tönnunum í ólag ef trúa
má grein í brezka læknis-
fræðitímaritinu.
Það hefur verið trú
manna í meira en hálfa öld
að epli i lok málsverðar
komi í veg fyrir tann-
skemmdir, en nú lítur út
fyrir að epli flýti fyrir
tannskemmdum segir í
greininni.
Epli eru bæði sæt og súr
og þar með slæm fyrir
tennurnar og litlar sem
engar sannanir eru fyrir
því að epli komi í veg fyrir
tannskemmdir að sögn
tímaritsins.
Tímaritið mælir hins
vegar með þeirri hugmynd
að ljúka máltíð með ein-
hverju sem verndi tenn-
urnar og telur hollt fyrir
tennurnar að borða hnetur
og ost eftir máltíð og milli
máltíða.
Alþingi ályktar:
Frumvarp um
atvinnumál ör-
yrkja undirbúið
Unnið að kostnaðargerð um
endurbyggingu raflinukerfis
ÞRJÁR þingsályktanir voru sam-
þykktar í sameinuðu þingí sl.
þriðjudag, en tveimur vfsað til
ríkisstjórnar.
Atvinnumál
öryrkja
Samþykkt var þingsályktun
sem felur í sér að ríkisstjórnin
láti vinna og leggi fram á næsta
þingi frumvarp til laga um at-
vinnumál öryrkja. Skal frumvarp-
ið miða að þvf að fólk með skerta
starfsgetu fái starfstækifæri við
sítt hæfi, annað hvort á sérstök-
um vinnustöðum á vegum ríkis og
sveitarfélaga eða með þvi að opna
þeim aðgang að hinum almenna
vinnumarkaði með sérstökum
ráðstöfunum. Flutningsmaður
var Helgi F. Seljan (Abl) en til-
lögu hans var nokkuð breytt í
atvinnumálanefnd þingsins.
Launakjör
hreppstjóra
Þá var samþykkt þingsályktun
þar sem ríkisstjórn var falið að
láta endurskoða lög og reglur um
launakjör hreppstjóra. Flutnings-
maður var Steingrímur Her-
mannsson (F).
Endurbygging
raflínukerfis
Samþykkt var þingsályktun um
endurbyggingu raflínukerfis i
landinu, þar sem ríkisstjórninni
er falið að láta gera kostnaðar-
áætlun um endurbyggingu raf-
línukerfis í landinu, bæði stofn-
og dreifilína. Aætlunin verði mið-
uð við það að á næstu 4—6 árum
verði byggt upp fullnægjandi
línukerfi. Flutningsmenn Jón
Helgason (F) og 5 aðrir Fram-
sóknarmenn. í umræðu kom fram
að unnið hefur verið að þessu
verkefni um nokkurt skeið — og
að því muni Ijúka (áætlanagerð)
eftir nokkra mánuði.
Vísað til
ríkisstjórnar
Tveimur tillögum til þings-
ályktunar var vísað til ríkisstjórn-
ar, án formlegs samþykkis, um
sundlaug við Grensásdeild Borg-
arspítala og um málefni þroska-
heftra.
Tollur úr 70% Í0%
í frásögn á þingsíðu blaðsins í
gær af samþykktum frumvarpa,
féll niður er sagt var frá frum-
varpi Alberts Guðmundssonar um
breytingar á tollskrá, að við þá
breytingu lækkar tollur á vöru-
pöllum úr plasti („plastpallets")
til notkunar í fiskiðnaði úr 70%
nú í 2% og við næstu áramót
verður tollurinn enginn séu pall-
arnir fluttir inn frá löndum
EFTA eða EBE.
Bæði einmenningur
og tvímenningur hjá
Bridgefélagi
Kópavogs
SlÐASTA laugardag hófst
firmakeppni Bridgefélags
Kópavogs, sem jafnframt er
einmenningskeppni.
Besta árangri náðu:
Stig
Ingólfur Böðvarsson 114
Stefán Guðjohnsen 112
Ármann J. Lárusson 109
Keppninni lýkur laugardag-
inn 7. maí (í dag) og verður
spilað að Hamraborg 11 og
hefst kl. 13.30
Barometerkeppninni var
haldið áfram s.l. fimmtudag og
eru nú aðeins eftir 1 kvöld 3
umferðir.
Jón og Guðbrandur halda enn
öruggri forystu eins og þeir
hafa gert mestan hlut keppn-
innar, en Kári og Ragnar eru
komnir í annað sæti. Árni Þor-
valdsson og Sævar Magnússon
spiluðu fyrir Kára og Ragnar
siðustu umferð og mokuðu inn
194 stigum.
Staða efstu para er nú þessi:
Stig
1. Jön Sigurjónsson
— Guðbrandur Sigurbergss.452
2. Kári Jónasson
— Ragnar Stefánsson 427
3. Grímur Thorarensen
— Guðmundur Pálsson 406
4. Þorlákur Jónsson
— Haukur Ingason 328
5. Sævar Bjarnason
— Lárus Hermannsson 318
Síðustu umferðir þessarar
keppni verða spilaðar n.k.
fimmtudagskvöld og lýkur þá
reglulegri spilamennsku félags-
ins á þessu vori.
Sparisjóðurinn sigr-
aði í firmakeppninni
á Suðurnesjum
FIRMAKEPPNI Bridgefélags
Suðurnesja er nýlega lokið og
tóku 72 firmu þátt ( keppninni.
Keppt var í fyrsta skipti um
veglegan bikar, sem Kaupfélag
Suðurnesja gaf til keppninnar.
Úrslit urðu þessi: (Nöfn spil-
ara í sviga)
Sparisjóðurinn
Keflavík 121
(Haraldur Brynjólfson)
JJ-réttingar
og sprautuverkstæði
(Jóhann Sigurðsson)
Tannlækningastofa
Magnúsar Torfasonar
(Magnús Torfason)
Dagblaðið
(Sigurður Sigurbjörnsson)
Ofnasmiðja Suðurnesja
(Guðmundur Ingólfsson)
V at nsley sustrandarhreppur
(Gunnar Jónsson)
Keflavfkurbær
(Inga Guðleyfsdóttir)
Félagsbíó
(Alfreð G. Alfreðsson)
Verðtíðinni lýkur 11. maí en
þá verður spiluð siðasta um-
ferðin i meistarakeppninni í
einmenning. Spilað er í tveim-
ur 16 para riðlum.
Staða efstu manna fyrir sið-
ustu umferðin: Stig
Magnús Torfason 213
Alfreð G. Alfreðsson 205
Guðmundur Ingólfsson 203
Gunnar Jónsson 201
Haraldur Brynjólfsson er í
fimmta sæti með 191 stig en
hann sigraði i keppninni í
fyrra.
Kristmann og Jónas
unnu minningarmót-
ið á Selfossi
MINNINGARMÓTINU um
Höskuld Sigurgeirsson lauk 2.
maí sl. hjá Bridgefélagi Sel-
foss.
Urslit urðu þessi:
Stig
Kristmann Guðmundsson
— Jónas Magnússon 607
Sigfús Þórðarson
— Vilhjálmur Þ. Pálsson 588
Halldór Magnússon
— Haraldur Gestsson 557
Bjarni Guðmundsson
— Kristján Jónsson 547
Örn Vigfússon
— Þórður Sigurðsson 533
GuðmundurG. Ölafsson
— Haukur Baldvinss. 523