Morgunblaðið - 10.05.1977, Side 25

Morgunblaðið - 10.05.1977, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1977 25 Jakob V. Hafstein, lögfræðingur: _Bláa byltingin Fiskiræktarmál Reykj avíkurborgar Fiskræktarmál Reykjavíkurborgar t fyrri grein minni um mál þessi leitaðist ég við að tfunda og gera Ijósan aðdragandann að stofnun Veiði- og fiskræktarráðs Reykjavíkurborgar, birti starfs- reglur ráðsins og verkefni þess I veigamiklum atriðum og upplýsti jafnframt, hvaða menn ættu setu I ráðinu. Þá skýrði ég frá þvf að f sfðari grein minni mundi ég vfkja nán- ara að störfum ráðsins hingað til, málefnum þeim er ágreiningur hefði skapast um f ráðinu hvernig fara skyldi með en fjölmiðlar hafa einmitt fjallað að undan- förnu töluvert um ágreiningsmál- in í ráðinu, sem að mestu eiga rót sfna að rekja til Stangaveiðifé- lags Reykjavfkur og þeirra áhrifa, sem félagið virðist hafa innan ráðsins og hjá borgaryfir- völdum. 1 þessum efnum er þó aðeins hægt að stikla á stóru til þess að níðast ekki á þolinmæði þeirra, er kunna að vilja líta yfir þessar greinar mínar og kynnast þannig afstöðu minni til málanna, jafn- framt því að seðja að nokkru fróð- leiksfýsn þeirra, er spurst hafa fyrir um mál þessi i fjölmiðlum. Störf Veiði- og fiskræktarráðs Það er skoðun mín að starfsemi Veiði- og fiskræktarráðs Reykja- víkurborgar sé bæði þýðingarmik- il og gagnleg fyrir borgina, borg- arbúa alla og ekki hvað sízt fyrir hið geysistóra vatnahverfi borgar- innar, er spannar yfir Elliðaárn- ar, Elliðavatn, Bugðu, Hólmsá, Úlfarsá, Laxá i Kjós, Sog, Ulfljóts- vatn og vötn í nágrenni borgar- innar og i löndum borgarinnar. Af þessari stuttu og raunar ófullkomnu upptalningu má ljóst vera, að verkefni Veiði- og fisk- ræktarráðs eru meiri en nóg og að i mörg horn er að lita, ef vel á að fara. 1 flestum greinum hefur líka — að því er ég bezt þykist vita — verið gott samstarf í ráðinu og það þegar komið ýmsu góðu til leiðar, þó að ekki fari mikið fyrir því, sem eðlilegt er, þegar um byrjunarstarf er að ræða, enda er gott að kunna fótum sínum for- ráð. Nefni ég í þessu sambandi rannsóknir fiskræktarfulltrúa á silungastofnunum í Ulfljótsvatni og Hafravatni, rannsóknir og mat á uppeldisskilyrðum fyrir laxinn i Eiliðaánum í Hólmsá og Bugðu, sammála samþykkt ráðsins um að ráðast í mikla fiskrækt í Hólmsá og Bugðu, framkvæmdir á að- stöðu fyrir fatlaða og lamaða til silungsveiða i Elliðavatni, grein- argerð um Ulfarsá, aukna fisk- rækt i Ulfarsá, endurmat á ánni, tillögur um nýtingu árinnar með bættu veiðiskipulagi jafnframt hreinsun við ána og miklar endur- bætur á rennsli hennar, en Reykjavíkurborg er eigandi að 47.5 hundraðshlutum árinnar, án þess á undanförnum 25 árum að hafa getað notið þessara hlunn- inda — og nú siðast mælt með styrkveitingu til 2-ggja ungra manna, sem unnið hafa að þvi tvö undanfarin ár, af mikilli alúð og áhuga, að gera merkilegar vís- indalegar rannsóknir á lifkerfi EUiðavatns. Allt þetta ber vott um gott og mikið jákvætt starf hjá ráðinu, sem ég tel öruggt að metið verði að verðleikum þegar frami sækir. Þá hefur og Veiði- og fiskræktar- ráð varað við starfsemi smábáta- hafnar við Elliðaárvog og leitað umsagnar erlendra sérfræðinga í mörgum löndum um það, hver áhrif slik starfsemi við ósa og mynni Elliðaánna gaeti haft á laxagöngu i ána og sjógönguseiða úr Elliðaánum út I voginn. Vona ég að ráðinu takist að starfa þann- ig áfram samstillt og heilshugar, því að þetta sannar vissulega þörfina á þvi, að Veiði- og fisk- ræktarráð sé til og starfi af full- um krafti. En svo kemur að hinni nei- kvæðu hlið i starfsemi ráðsins, þegar ráðsmenn eru ósammála um starf og stefnumörkun og hafa skipst i eins jafnstóra hópa og hægt er í 7-manna ráði. Þetta hefur aldrei komið fyrir í ráðinu nema þegar málefni Stangaveiði- félags Reykjavikur hafa legið þar fyrir til úrlausnar. Þetta hefur skeð frá fyrstu starfsdögum ráðs- ins, þegar endurnýja þurfti laxa- veiðisamningana um EUiðaárnar og sniðgengin voru fyrirmæli borgarstjórnar um það i 6. grein starfsreglanna um Veiði- og fisk- ræktarráð, að ráðið ætti að annast og hafa íhlutun um gerð slikra samninga. Stangaveiðifélag Reykjavíkur hóf þá þegar að senda ráðinu kaldar bréflegar kveðjur, i stað þess að leggja áherzlu á það að hafa sem allra bezta samvinnu við Veiði- og fisk- ræktarráð. Síðan hefur þetta ástand magnast, valdið deilum og nú mest á þessu vori, þegar um- ræður fara fram um samninga, varðandi rekstur og nýtingu Kiak- og eldisstöðvarinnar, fyrst og fremst fyrir vatnahverfi borgar- innar. Ég ætla mér ekki i greinarkorni þessu að rekja þá leiðinda sögu í smáatriðum. Slíkt hefur engan til- gang og mundi efalaust gera illt verra. En það er mitt álit, að Veiði- og fiskræktarráðsmenn verði að gera sér ljóst og skilja, að samstillt borgarstjórn hefur sett þeim starfsreglur og verkefni til hagsbóta fyrir borgina og borgar- búa, en ekki fyrir neinar útvaldar félagsheildir eða þrýstihópa, sem telja sig sjálfkjörna til að njóta og nýta mestu og beztu hlunnindin, sem vatnahverfi borgarinnar geta boðið. Mergurinn málsins er þvl aug- ljóslega þessi: Eiga V'eiði- og fisk- ræktarráðsmenn að vinna að hagsmunum heildarinnar, borg- arinnar og borgarbúa, eða telja þeir sig kosna I r^ðiðtil þess að vera þar á verði um hagsmuni Stangaveiðifélags Reykjavfkur? Þeir, sem i fjölmörgum tilfell- um hafa valið sér síðari kostinn, ættu sem allra fyrst að segja lausu starfi sfnu I ráðinu, enda hafa þeir, hjnir sömu miklu fleiri aukastörf og bitlinga hjá borg- inni, en góðu hófi gegnir, og eru því önnum kafnir fyrir. Stangaveiðifélag Reykjavíkur Þrátt fyrir það þó að ég sé bú- inn að vera félagi í Stangaveiðifé- lagi Reykjavíkur yfir 30 ára skeið, oft á tiðum tekið mikinn og ánægjulegan þátt i starfsemi fé- lagsins og gegnt þár ýmsum trún- aðarstörfum af áhuga og alúð, að mér finnst, tel ég samt sem áður rétt að taka fram, að ég hefi aldrei getað skilið þann hugsun- arhátt, sem oft hefur látið á sér kræla, að Stangaveiðifélag Reykjavikur eigi einhvern sið- ferðilegan eða sögulegan for- gangsrétt á þvi, að ráða yfir og reka iaxveiðiréttindin i Elliðaán- um og Klak- og eldisstöðina við Elliðaárnar. Það liggur við að manni blöskri hrokafullt tal manna i þessum efnum um sögu- legt baksvið, sem þeir gjarna smjatta á i þvi sambandi. Þeir, sem þannig tleja sig „réttborna til þessa rikis“ rasa um ráð fram og vaða reyk, að minu mati. Ég vil minna á og leggja á það alveg sérstaka áherzlu, að borgar- yfirvöldin hafa af óvenju mikilli rausn og örlæti, látið Stangaveiði- félagi Reykjavíkur eftir um tugi ára skeið, afnotaréttinn á þessum Síðari grein miklu verðmætum og aðstöðu við Elliðaárnar, laxveiðina, Klak- og eldisstöðina og vandað og skemmtilegt veiðihús, fyrir sára- lítið og óverulegt eftirgjald. Þessu hefi ég fagnað og fagna enn, enda hefur þetta verið aðal lyftistöng félagsins bæði félags- lega og fjárhagslega um áratuga raðir. Stangaveiðifélag Reykja- vikur þarf þvi sannarlega ekki að kvarta og ætti sízt allra að tor- velda stóraukna fiskrækt i vatna- hverfum Reykjavíkurborgar og bætta almenna aðstöðu i þeim efnum. Mér er lika vel kunnugt um það, að einmitt hinar gifurlegu tekjur, sem félagið hefur haft af EUiðaánum og rekstri Klak- og eldisstöðvarinnar, hafa gert þvi kleyft að bjóða i og leigja ýmis veiðivötn utan Reykjavikur vitt um landið i samkeppni við önnur áhugamannafélö^ um stangaveiði og fiskrækt.'Félagið ætti þvf sfzt af öllum að sýna kala f garð þeirra fyrirætlana, sem borgaryf- irvöld hafa á prjónunum f fisk- ræktarmálum og falin hafa verið Veiði- og fiskræktarráði. Sé það í raun svo, að Stanga- veiðifélag Reykjavíkur sé það illa á vegi statt, þrátt fyrir þessi miklu hlunnindi og fjárhagslegu aðstoð, sem borgaryfirvöld hafa veitt þvi um langan aldur, beint og óbeint, að tilvera þess sé i veði — sem ég persónulega vil ekki trúa — er miklu heiðarlegra að ganga hreint til verks, leggja spil- in á borðið og biðja borgaryfir- völd aðstoðar, eins og mörg önnur áhugamannafélög i borginni hafa gert — og fengið. En það er mitt álit að ófær sé sú leið, að láta ekki önnur áhugamannafélög um þessi málefni njóta jafnréttisaðstöðu við Stangaveiðifélag Reykjavfkur og enn verra, ef félagið á að geta komið þvf til leiðar, að torvelda samþykktar fiskræktarfram- kvæmdir f vatnahverfum Reykja- vfkurborgar. Samningarnir um Klak- og eldisstöðina I nóvember mánuði síðastliðn- um var gengið frá samningum við Stangaveiðifélag Reykjavikur um laxveiðiréttinn i Elliðaánum. Sér- stök samninganefnd Veiði- og fiskræktarráðs og Rafmagnsveitu Reykjavíkur fjallaði um þá samn- inga við félagið og sendi þá fyrst til borgarráðs. Borgarráð ákvað að senda samningsdrögin til um- sagnar Veiði- og fiskræktarráðs í heild, sem — að sjálfsögðu er í fullu samræmi við þær reglur um störf og skyldur ráðsins, er borg- arstjórn samþykkti hinn 7. nóv. 1974 og ég hefi áður skýrt frá i fyrri hluta greinar þessarar. Veiði- og fiskræktarráð gerði sír*að veigamiklar breytingar á samningum til stórra bóta, sem borgarráð samþykkti svo endan- lega. Var yið þær breytingar fyrst og fremst haft i huga að árnar yrðu skynsamlega skipulagðar til veiðanna, hagur borgarinnar og borgarbúa hafður í heiðri með hliðsjón af sköpun aukinna og fjölgun veiðileyfa I Elíiðaánum, svo að fleiri gætu notið, en hingað til. Hagur SVFR var virtur en ekki fyrir borð borinn eða félagið „knésett" — svo sem illgjarnar tungur vilja vera Iáta. Nú standa yfir samningaumleit- anir við Stangaveiðifélagið um Klak- og eldisstöðina við Elliða- árnar. Þar er einnig sérstök samn- inganefnd að störfum, en hana skipa rafmagnsstjóri Aðalsteinn Guðjohnsen, formaður VFR-ráðs Ragnar Júlíusson og fiskræktar- fulltrúi Reykjavfkurborgar Jakob Hafstein jr. Veiði- og fiskræktarráð klofn- aði um það, hvort ráðið ætti sjálft að annast rekstur Klak- og eldis- stöðvarinnar. Meirihlutinn lagði til að samninga um rekstur stöðv- arinnar yrði leitað við SVFR og hlaut sú skoðun náð fyrir augum borgarráðs og borgarstjórnar að meirihluta til. Hins vegar verður að álíta, sam- kvæmt tillögu meirihluta Veiði- og fiskræktarráðs um þessa með- ferð málsins, að allir Veiði- og fksiræktarráðsmenn myndi sam- stöðu um það, að engir samningar verði gerðir við SVFR um rekstur stöðvarinnar nema að tryggt verði að vatnahverfi Reykjavfkurborg- ar fái það magn af framleiðslu- getu stöðvarinnar af laxa- og sil- ungaseiðum, sem fiskræktarfull- trúi hefur lagt til að lágmarki, f samræmi við fyrri samþykktir Veiði- og fiskræktarráðs um framkvæmd fiskræktar f Hólmsá og Bugðu og aukna fiskrækt f Úlfarsá. Er nú beðið eftir framvindu þessa máls, sem virðist hafa tafist nokkuð, eftir að stangaveiðafélag- ið Ármenn í Reykjavik sendu ráð- inu erindi um áhuga sinn á þvi, að eiga viðskipti við Klak- og eldis- stöðina við Elliðaár. Vonandi verður niðurstaðan f máli þessu á þann veg, að hún þjappi ráðsmönnum saman og eyði ágreiningsatriðum. Æskulýðsstarfsemi Það er óneitanlega þýðingar- mikið að vekja æsku Reykjavikur- borgar til umhugsunar um mögu- leika hennar við vatnahverfi borgarinnar, veiðiferðir og úti- vist, veiðikunnáttu og veiði- menningu og um leið að gera hana að þátttakanda f vörnum og viðhaldi þessara gæða. Veiði- og fiskræktarráð efndi tíl litilsháttar samstarfs við Æskulýðsráð borg- arinnar í þessum efnum og hafði fiskræktarfulltrúi borgarinnar þar hönd i bagga með fyrir Veiði- og fiskræktarráð. En þvi miður hefur þetta samstarf orðið enda- sleppt og færi vetur á þvi að það yrði tekið upp að nýju hið allra fyrsta. Iþeim efnum ætti að vera hægt um vik þar sem varaformað- ur Veiði- og fiskræktarráðs er for- maður Æskulýðsráðs borgarinn- ar, en sannast sagna hefur mér fyndist hann sýna þessu máli óskiljanlegt áhugaleysi. Það er þó tæpast hætta á því að þessir aðilar verði til þess að skerða hagsmuni Stangaveiðifélags Reykjavfkur. Ég get ekki látið hjá liða að vekja athygli á þvi, að i hinni ágætu bók um Elliðaárnar — „perlu Reykjavikur" sem rituð er af Guðmundi Danielssyni, gefin út af forlagi Guðjóns Ö. Guðjóns- sonar — er skemmtilegt viðtal við Matthias Johannessen, ritstjóra, þar sem hann einmitt vekur at- hygli á hinum glæsilega vett- vangi, sem æska Reykjavikur gæti skapað sér við Elliðaárnar, Elliðavatn, Hólmsá og Bugðu. Þetta mál er þvi ekki nýtt af nálinni, heldur nærri 10 ára gam- alt og því sannarlega timabært að það verði stór þáttur í „Bláu bylt- ingunni“. Þessari grein minni — hinni síðari — er nú senn lokið um „Bláu byltinguna" i vatnahverf- um Reykjavikurborgar. Ég hefi ieitast við á málefnalegan hátt að gera grein fyrir afstöðu minni til hinna ýmsu þátta þessa máls og baráttunni fyrir því, að Veiði- og fiskræktarráð starfi eftir þeim reglum og skyldum, er samstæð borgarstjórn setti ráðinu hinn 7. nóvember 1974. Menn geta deilt um leiðir og starfsaðferðir og hvernig árangri verði bezt náð og á sem fljótvirk- asatan hátt í einstökum atriðum. En við V'eiði- og fiskræktarráðs- menn getum ekki og megum held- ur ekki deila um það, að okkur hefur verið falið að vera á verði um mikil hagsmunamál Reykja- vfkurborgar, ba-ta þau og efia, svo sem okkur er framast unnt. Önn- ur sjónarmið verða og eiga að vfkja, meðan núverandi starfs- reglur Veiði- og fiskræktarráðs eru f gildi og i heiðri hafðar. Það er mergurinn málsins. Klakstöðin við Elliðaárnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.