Morgunblaðið - 10.05.1977, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 10.05.1977, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1977 + Móðir okkar. HALLFRÍÐUR GUORÚN GUOMUNDSDÓTTIR frá Ófeigsfirði Hringbraut 86 andaðist f Landsspltalanum sunnudaginn 8 maf. F.h. aðstandenda, Sigrún Sturlaugsdóttir. + Móðir okkar, PÁLÍNA GUOJÓNSDÓTTIR. Hrafnistu. andaðist að Landsspftalanum 8 maí. Börnin. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma JÓNÍNA LOFTSDÓTTIR, Sólheimum 23, lést f Heilsuverndarstöð Reykjavfkur hinn 7. maf Kristján Hafliðason, Helga Wium, Loftur Hafliðason Sigrfður Danielsdóttir, Ásdfs Hafliðadóttir. Gunnar Sigurgfslason. Hákon J. Hafliðason og bamaborn + Faðir okkar, bróðir og mágur, ÞÓRARINN B. ÓLAFSSON. Mánagötu 24. andaðist 7 þ.m Fyrir hönd barna hans og tengdabarna, Kristján B. Þórarinsson. Kristlaug Ólafsdóttir. Valdimar Guðjónsson. + Ff0ken RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR fyrrum skólastjóri Kvennaskólans 1 Reykjavlk andaðist í Landspítalanum laugardaginn 7 maí Vandamenn + Eiginmaður minn. faðir og tengdafaðir, PÁLL G. ÞORLEIFSSON, Kleppsvegi 18. andaðistá Landakotsspitala. sunnudaginn 8 maf Elka Guðbjörg Þorláksdóttir, Valgerður Pálsdóttir. Hreinn Bergsveinsson. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, DAGBJÖRT EIRÍKSDÓTTIR, Hverfisgötu 83, andaðist að heimili sfnu sunnudaginn 8 maf. Aðstandendur. + Jarðarför GUÐFINNU BJÖRNSDÓTTUR. Hagamel 47. ferframfrá Neskirkju þriðjudaginn 10 maf kl 13.30 Ásdfs Magnúsdóttir Benedikt Guðmundsson + Jarðarför bróður okkar SIGURJÓNS OTTESEN, Hagamel 40, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11 maf kl 10.30 Blóm vinsamlega afþökkuð. Guðný Ottesen. Lárus Ottesen. Minning: Kristmann Hjörleifs- son skrifstofustjóri Fæddur 6. september 1920. Dáinn 3. maf 1977 „Þetta er bara svona, þaó er staðreynd, það þýðir ekkert að tala um það.“ Hve oft sagðir þú ekki þessi orð við mig þegar vandamál lfðandi stundar bar á góma. Það er staðreynd, sem við verðum að sætta okkur við, að þú leystir landfestar hérvistar og lagðir á djúpið þann 3. maí s.l. Menn hafa oft hugsað sér dauð- ann, sem sjóferð yfir hafið. Eitt af skáldum þjóðarinnar hefir i minningarljóðum eftir látinn vin komist svo að orði: „Nú eru þá sigldur á ókunnan sæ þú ægilegt hafsdjúpió þráðir æ. En hérsit ég eftir hljóður. Og grátskvld viðkvæmni grlpur mig um giaumlausa nótt, er ég hugsa um þig sem breyskan, en hjartfólginn bréður". Við sem eftir stöndum á strönd- inni vonum að landtakan verði góð hinumegin og þaó skipti til hins betra. Þú tókst veikindum þínum með slíkri karlmennsku, sannfærður um bata, að okkur vini þína óraði ekki fyrir svo snöggum umskiptum. Er við frétt- um lát Kristmanns, var það okkur vinum hans hin mesta sorgar- fregn, þvi að elskan og virðingin syrgir eins fyrir það, þó hún viti, að enginn má sköpum renna. En vitneskjan um að látinn lifir, það er huggun harmi gegn. Kristmann var fæddur 6. sept- ember 1920, sonur hjónanna Kristínar Þorleifsdóttur og Hjör- leifs Kristmannssonar, skósmiðs, að Þórsgötu 23 í Reykjavík. Eru þau hjón látin. Eftirlifandi systkini Kristmanns eru: Gerður, verzl- unarstjóri, Hjördfs húsfrú, Helgi skósmiður, og Ásgeir, fram- kvæmdastjóri, öll búsett í Reykja- vfk. Kristmann lauk prófi frá Verzlunarskóla íslands árið 1938 með hæstu einkunn. Hóf síðan störf hjá útgerðarfélagi Geirs Thorsteinssonar. Það markaði tímamót i lífi hans, þvf þá fékk hann ódrepandi áhuga á togaraút- gerð, sem entist honum til ævi- loka. Okkar kynni hófust, er hann kom skrifstofustjóri til útgerðar Guðmundar Jörundssonar fyrir um 10 árum síðan. Ég mun seint gleyma því, þegar þessi vörpulegi maður snaraði sér inn f loft- skeytaklefann á b/v Narfa, sem þá var staddur i Þorlákshöfn, eld- snemma morguns þann 18. ágúst 1967. Hann mun hafa hafið störf hjá útgerðinni nokkru fyrr, en þarna urðu okkar fyrstu kynni. Áhugi hans á útgerðinni var slik- ur, að hann var ávallt mættur með forstjóranum til skips, hvort held- ur var að nóttu eða degi, bæði við komu og brottför skipsins. Um skrifstofustörfin þarf ekki að ræða, þar var allt í fyllstu röð og reglu, enda maðurinn afburða snjall bókhaldari og skrifstofu- maður og fljótur að átta sig á hlutunum, gjörþekkti allt í þágu skips og útgerðar. Guðmundur Jörundsson kunni vel að meta áhuga hans og hæfni og var gott samstarf þeirra á milli, sem þró- aðist upp i vináttu. Ég átti því láni að fagna að eignast vináttu þessa mæta manns. Vináttu, sem aldrei bar skugga á. Áttum við margar skemmtilegar samverustundir á góðum degi. Kristmann var hrók- ur alls fagnaðar á góðri stund, enda maður víðlesinn, fróður og kunni vel að segja frá. Og til hans var leitað ráða, þegar úrlausna þurfti við. Kristmann var meðlim- ur Oddfellowreglunnar og starf- aði þar af sínum alkunna dugn- aði, og bar velferð reglunnar og reglubræðra fyrir brjósti, enda áhuginn lifandi, viljinn einlægur og tryggðin óþreytandi og er hans nú saknað af reglubræðrum. Árið 1947 steig Kristmann eitt sitt mesta gæfuspor, þegar hann gekk að eiga Huldu Einarsdóttur Bogasonar frá Hringsdal í Arnar- firði, sem reyndist honum góð og ástrik eiginkona til hinstu stund- ar, enda mat hann hana mikils. Ég minnist þess að er Kristmann heyrði góðrar konu getið, þá sagði hann oft: „Ætli að hún sé ekki ættuð að vestan þessi", og segir það sína sögu. Hulda bjó manni sínum fagurt heimili, þar var gott að koma. Og eigum við vinir þeirra hjóna margar fagrar minn- ingar frá samverustundum okkar þar. Meðan þeir lifa er kynntust Kristmanni, blessa þeir minningu hans með þakklátum hug. Hulda mín, ég sendi þér og systkinum Kristmanns mínar innilegustu samúðarkveðjur. Endurminn- ingin um góðan dreng er besti minnisvarði hans. Ólafur K. Björnsson. Birting afmælis- og minning- argreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast f sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu lfnubili. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför sonar okkar og bróður HJALTA ÞÓRS SÍGURÐSSONAK. SigurSur Fjeldsted. Þórunn Árnason, Sigurður Sigurðsson, Sesselja Kristfn Sigurðardóttir. S. Helgason hf. STEINIDJA fínholtl 6 Slmar 16677 og U2S4 Eiginmaður minn, sonur okkar og faðir, RAGNARJÓHANNSSON, Hverfisgötu 83, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11 maí kl. 3 e.h. Hafdfs Ellertsdóttir, Margrét Árnadóttir, Jóhann Jónsson og bömin. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og útför eiginkonu minnar, fósturmóður og tengdamóður, HERMÍNU GÍSLADÓTTUR Ijósmóður, Barnahlfð 37. Einar Sigmundsson, Þorsteinn Einarsson, Halldóra Hálfdánardóttir, AHreð Eymundsson, Unnur Ólafsdóttir. + Þökkum auðsýnda samúð, tryggð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns mlns, MAGNÚSAR G. WAAGE, Ásgarði 61. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarliðs deildar A-7, Borgarspítalan- um. fyrir veitta hjúkrun Einnig hjartans þakkir til barna, tengdabarna og barnabarna fyrir ómetanlega hjálp og umhyggju. Guð blessi ykkur öll, Jóhanna S. Waage

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.