Morgunblaðið - 10.05.1977, Síða 36

Morgunblaðið - 10.05.1977, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1977 VlEP MORöJKí- kafp/nu ' CV)’"' .1» c n S©1 GRANI göslari Jú, jú, að sjálfsögðu hef ég tfma til að ræða við þig, en lof mér aðeins að Ijúa við að teikna vikuskammtinn í Morgunkaffið. Heyrðu! Er þetta ekki maðurinn sem fékk lánuð sýn- ishornin af fataefnunum? Um næturlíf í Reykjavík BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson í spili dagsins eru allir á hættu og suður er gjafari. Hann opnar á einum spaða, sem norður hækkar í þrjá og er það áskorun til suðurs að segja fjóra spaða. Vestur og austur segja pass en hvað á suður nú að segja? Hendur norðurs og suðurs eru þannig: Norður S. 10942 II. Á8 T. KG9 L. K652 Suður S. DG7653 H. G4 T. D3 L. ADG Þessu er erfitt að svara. Vand- virkir rúbertuspilarar segja eflaust pass en sókndjarfir keppnisspilarar segja fjóra spaða. Pass er eflaust rétta sögnin. En vogun vinnur, vogun tapar. Vestur spilar út hjartakóng og hvernig á að vinna fjóra spaða? Gjafaslagirnir virðast óum- flýjanlegir, tveir á spaða og einn á hvorn rauðu litanna. Þó er til örlítil smuga. Möguleikinn felst í, að trompið liggi 2—1 með háspilin skipt og að laufin skiptist 3—3. I heild þarf spilið að vera þessu lfkt. Norður S. 10942 H. A8 T. KG9 L. K652 (CPIB COPI MHICtN m Afsakið. Ég hélt það væri konan sem væri f baði! „Ég hefi lesið f blöðum um næturlif i Reykjavik og varð mér ekki bilt við, ég hefi sjálfur dvalið í Reykjavík mörg ár og séð með eigin augum það ástand, sem hér rikir. Hitt er furðulegt, að ráða- menn þjóðarinnar skuli áratugum saman horfa blindum augum á þetta sér islenzka fyrirbrigði og láta eins og það sé ekki til. Og greinar i erlendum blöðum um Reykjavfk sem stærstu drykkju- búlu í Evrópu hreyfa ekki við þeim. Hér er mikið rætt og rifist um skólamál og flestir þykjast vita að með andfélagslegu upp- eldi sé hægt að gera börn að and- félagslegum þjóðfélagsþegnum. Hitt er eins og menn þori ekki að gera sér grein fyrir eða að láta uppskátt, að með ómanneskju- legri löggjöf er hægt að skapa ómanneskjulegt ástand í þjóðfélaginu. Þó hafa Islendingar upplifað Stóradóm með öllu því böli, sem honum fylgdi, og horft upp á stórþjóðir eins og Banda- ríkjamenn sligast undir því ægi- lega böli, sem viti firrt áfengislög- gjöf um nokkurt árabil leiddi yfir þá miklu þjóð. Tveir Islendingar, þeir Halldór Laxness og fyrr- verandi menntamálaráðherra Magnús Torfi, hafa haft þann manndóm til að bera að vekja athygli á hvílík reginheimska bjórbannið sé. Þeir sem til þekkja vita. að brenndir drykkir eins og brennivín eru mjög ungir i Evrópu, en eftir að brennivinið kom til sögunnar, fór það til að byrja með eins og logi yfir akur. Brennivínsdrykkja leiddi alls staðar til sviþaðs ástands, eins og nú er í Reykjavík, og ekki þarf að lýsa. En smám saman dró úr brennivínsdrykkjunni og nú orðið setur hún hvergi þann svip á mannlífið sem allir þekkja úr Reykjavík. Að sjálfsögðu eru alltaf til einstaklingsbundnar undantekningar eins og t.d. eitur- lyfjaneytendur, en ofurölva maður á götum eða samkomu- stöðum í Evrópu vekur aðeins meðaumkvun eða fyrirlitningu, þá sjaldan hann sést. Þetta vita þeir 50 þúsund Islendingar sem fara til útlanda á hverju ári. Sá, sem þetta ritar, hefur komið í stórborgir í 9 löndum og hvergi kynnst þvi ástandi sem ríkir í áfengismálum á Islandi, tæplega i hafnarbúlum erlendis. Ég býst við, að það yrði upplit á Dönum ef hundrað þúsund börn og ung- lingar flykktust út úr Kaupmannahöfn um hvitasunnu- helgi klyfjaðir brennivins- birgðum, til þess að eyða heíginni i rænulausu fylleríi, einhvers- staðar út á sjálandi.— Það sem þarf að gera hér, er að kynna sér á raunsæjan hátt framkvæmd þessara mála i nágrannalöndum okkar t.d. Vestur S. K H. KD1052 T. 10752 L.973 Austur S. A8 II. 9763 T. A864 L. 1084 Suður S. DG7653 H. G4 T. D3 L. ADG Við tökum fyrsta slag með hjartaás og síðan ás og drottningu i laufi. Laufgosann tökum við með kóng blinds og spilum þréttánda laufinu. I það látum við hjartagosann af hendinni og sama er hvað austur og vestur gera. Þeir fá aðeins tvo slagi á tromp og tígulásinn. ÞAÐ VERÐUR EKKI FENGIÐ, SEM FARIÐ ER 10 Gerðu það fyrir mig. Mér finnst svo hallærislegt að vera að róta I hans plöggum, þegar hann er ekki heima. — Ég skal ekki segja neitt. Henni létti bersýnilega. — Hvað varstu að segja um myndir, spurði hún svo. — Ég var að spyrja hvort þú hefðir... — Séð nýjustu mvndirnar hans? Já, alveg rétt. Nei, ég hef ekki gert það. En hefurðu séð dfnósárusamyndirnar hans. — Hvað áttu við? — Málverkin af fornaldar- dýrunum, þú veizt, þessi risa- dýr sem dóu svo út. — Nei. — Sjáðu hérna. Hún gekk að myndunum f horninu, dró fram eina f senn og sýndi honum. Málverk eftir málverk af grfðarlegum forn- aldarófreskjum blöstu við’ honum, græn skrfmsli með hlægilega Iftinn haus. — Ég vissi ekki að hann mál- aði svona myndir, tautaði Peter og fann einhverja óró grfpa sig. — Venjulega gerir hann það ekki. Það er langt sfðan hann málaði þessar myndir og hann hefur aldrei sent þær á sýn- ingu. Ef þú spyrð hann hvers vegna hann hafi ekki gert það, segir hann bara að þetta séu ekki málverk, heldur bók- menntir. — Hefur þú hugmynd um af hverju hann málaði alla þessa dfnósárusa? Ef hann kallar mvndirnar bókmenntir hlýtur hann að vilja segja eitthvað með þessum myndum? — Hann segist hafa heillazt af dýrunum við að lesa um þau. Sérstaklega fannst honum stór- kostlegt að svona stór og þung dýr voru með öggulftinn heila. Hann heldur þvf fram að þau hafi dáið út af greindarskorti. Heimurinn varð of flókinn fyrir þessi heimsku dýr, segir hann. Þau höfðu ekki nema hundrað gramma heila f skrokki sem vóg um fimmtfu tonn. — Hann ætti að sýna þær. — Ég hef Ifka sagt það við hann. Hún var eðlilegri núna en áður, andlitið einlægara. Og röddin ekki lengur spennt og hrokafull eins og um morgun- inn. — Hvað er hann að fást við núna? — Ég veít það ekki. Hann vill fá mig sem módel. En ég veit ekki hvort ég nenni að gera það. Mér finnst það svo af- spyrnu leiðinlegt. Það er líka erfitt. Ég hef gert það einu sinni. Ég fékk að vfsu að hvfla mig á tuttugu mfnútna fresti, en hann vann marga klukku- tfma á hverjum degi f heila viku, svo að þetta varð mesta púl. Ég varð aum og stirð um allan skrokkinn. Svo varð hann vondur ef ég hélt ekki alltaf nákvæmlega sömu stellingu. Nei, ég held ekki ég vilji vera módel aftur þó að vel sé borgað fyrir það. Framhaldssaga eftir Bernt Vestre. Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi. — Tókst myndin vel? — Að minnsta kosti svo vel að hann seldi hana. Hún var á haustsýningu. Þar hékk ég al- menningi til skoðunar. Það var dálftið sniðugt að fylgjast með viðbrögðum fólks og hlusta á tal þess þegar það skoðaði myndina. Hún tfsti eins og henni væri skemmt við tilhugsunina. Peter var orðinn leíður á masinu f henni. Hann gekk að borði sem á lágu nokkrar teikn- ingar og skissur og blaðaði í þeim. — Ég ætla út að vinna, sagði hann svo. Hann sveið í hörundið þegar hann böðlaðist áfram f rósabeð- unum. Hann hvfldi sig sjaldan en f eitt skiptið kom hann auga á andlit Lenu f einum glugg- anum. Hún virtist einkennilega föl f andliti. Peter var enn að vinna f garðinum, þegar Hemmer kom heim sfðdegis. Hann sté út úr bílnum og gekk hugsi f áttina til hans.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.